Angelica Caceres skrifaði:
Son unos genios , yo super agradecida de uds Una pregunta, como compro lanas y agujas desde Argentina. Se PUEDE?
11.07.2024 - 03:59Diane Côté skrifaði:
Je trouve beau je vais de le faire j'ai jamais fait de tornade ça être la Première fois
29.10.2013 - 02:48Lada skrifaði:
Will you pls explain if there is only RS (right rows) on Diagram A? What is total hat height? Thanks.
15.10.2013 - 14:55DROPS Design svaraði:
Dear Lada, in the diagram, 1 square= 1st x 1 row, hat is worked in the round, ie you will work only RS row, start on the bottom corner on the right side and read towards the left every round. Happy knitting!
15.10.2013 - 16:00
Tina skrifaði:
Zeer leuk setje, zeker met bijpassende handschoenen
26.06.2013 - 23:03
Petra skrifaði:
Das ist es, genau so ein Modell such ich für den Winter, sehr schick und edel
21.06.2013 - 19:51
Dolly skrifaði:
Prachtig. Dit wil ik graag maken.
09.06.2013 - 08:39
Bernadette skrifaði:
Mon préféré de tous les modèles de cette collection
02.06.2013 - 17:55
Christiane Pagenberg skrifaði:
Super schlicht und edel
31.05.2013 - 09:10Josenice Meneguelli skrifaði:
Simples e perfeito!
30.05.2013 - 17:37
Monica#monicaset |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
Prjónuð húfa og hálsskjól úr DROPS Snow með köðlum
DROPS 149-9 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1-A.3. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA (á við um hálsskjól): Fækkað er um 1 l eftir prjónamerki þannig: Prjónið 2 l slétt saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. HÚFA: Fitjið laust upp 52-54 l skipt niður á sokkaprjóna nr 8 með Snow. Prjónið mynstur A.1 (= 13 l) og síðan 39-41 l sl. ATH: umf 3 í mynstri A.1 er prjónuð þannig: Prjónið 4 l br, 3 l á kaðlaprjón framan við stykkið, sláið 1 sinni uppá prjóninn (uppslátturinn er prjónaður snúinn sl í næstu umf), 2 l sl, 3 l sl af kaðlaprjóni, 4 l br = 53-55 l á prjóni. Prjónið mynstur A.1 (= 14 l) 1 sinni á hæðina með sl yfir þær 39-41 lykkjur sem eftir eru. Prjónið nú mynstur A.2 yfir A.1 alls 1-2 sinnum á hæðina. Stykkið mælist ca 18-21 cm. Prjónið nú mynstur A.3 yfir A.2 alls 1 sinni á hæðina JAFNFRAMT er lykkjum fækkað í sléttum lykkjum þannig: UMFERÐ 1: Prjónið 2 l slétt saman, * 10 l sl, 2 l sl saman *, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar (= alls 3 sinnum), endið á 1-3 l sl = 49-51 l (= alls 4 l færri í sléttprjóni). UMFERÐ 2 (og síðan allar umferðir í sléttri tölu): Prjónið slétt. UMFERÐ 3: Prjónið * 4 l sl, 2 l slétt saman *, endurtakið frá *-* 4 sinnum til viðbótar (= alls 5 sinnum), 3-5 l sl, 2 l slétt saman = 41-43 l (= alls 8 l færri). UMFERÐ 5: Prjónið * 3 l sl, 2 l slétt saman *, endurtakið frá *-* 4 sinnum til viðbótar (= alls 5 sinnum), endið á 4-6 l sl = 34-36 l (= alls 7 l færri). UMFERÐ 7: Prjónið * 2 l slétt saman, 2 l sl *, endurtakið frá *-* 5 sinnum til viðbótar (= alls 6 sinnum), endið á 0-2 l sl = 26-28 l (= alls 8 l færri). UMFERÐ 9: Prjónið * 1 l sl, 2 l slétt saman *, endurtakið frá *-* 5 sinnum til viðbótar (= alls 6 sinnum), endið á 0-2 l sl = 18-20 l (= alls 8 l færri). Þegar mynstur A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina lykkjum fækkað yfir alla umferðina þannig: UMFERÐ 11: Prjónið allar l 2 og 2 slétt saman = 9-10 l. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru og festið vel. ------------------------------------------------------- HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna. HÁLSSKJÓL: Fitjið upp 73 l á hringprjóna nr 8 með Snow. Prjónið MYNSTUR A.1 (= 13 l), prjónið 5 l sl, setjið 1 prjónamerki, * prjónið 10 l sl, setjið 1 prjónamerki *, endurtakið frá *-* 4 sinnum til viðbótar (= alls 5 sinnum), endið á 5 l sl = 6 prjónamerki. ATH: umf 3 í mynstri A.1 er prjónað þannig: Prjónið 4 l br, 3 l á kaðlaprjón framan við stykkið, sláið 1 sinni uppá prjóninn (uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umf), 2 l sl, 3 l sl af kaðlaprjóni, 4 l br = 74 l á prjóni. Prjónið A.1 (= 14 l) og sléttprjón JAFNFRAMT sem í umf 4 er fækkað um 1 l á eftir hverju prjónamerki – sjá ÚRTAKA að ofan = 68 l (= 6 l færri). Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 14 cm = 62 l (= 6 l færri). Þegar mynstur A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er mynstur A.2 prjónað yfir A.1 alls 2 sinnum á hæðina. Prjónið nú þannig: UMFERÐ 1: Prjónið 4 l br, 2 l slétt saman, 2 sl, 2 l slétt saman, 4 l br (= yfir A.2), sl yfir þær l sem eftir eru = 60 l. UMFERÐ 2: Prjónið 4 l br, 4 l sl, 4 l br (= yfir A.2), sl yfir þær l sem eftir eru. Fellið af. Stykkið mælist ca 23 cm. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #monicaset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 13 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 149-9
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.