Diana skrifaði:
Gefällt mir sehr gut! In gedeckten Farben sicher auch sehr schön für´s Büro
16.06.2013 - 22:39
Bettina skrifaði:
Gefällt mir sehr gut.
15.06.2013 - 23:10
Elisabeth skrifaði:
Pæn og enkel
13.06.2013 - 17:40
Benedetta skrifaði:
Molto fine!
06.06.2013 - 09:37
Anita skrifaði:
Würde diesen Bolero gerne nachstricken.
05.06.2013 - 23:04
Judith skrifaði:
Toll!
05.06.2013 - 09:12
Sonja skrifaði:
Mooi en altijd praktisch een korte bolero
04.06.2013 - 12:53
Silvana Andrea skrifaði:
Wunderschönes Bolero!
02.06.2013 - 14:10
Sylvia Lang skrifaði:
Ich bin FAN von Boleros und Kurzjacken, dieser ist wunderschön und sicher schnell gestrickt.
01.06.2013 - 19:22
Rieypeyroux skrifaði:
Tout mignon tout chaud.
01.06.2013 - 09:29
Ellis#ellisbolero |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónaður bolero úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk með gatamynstri og perluprjóni. Stærð S - XXXL
DROPS 151-25 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna): *1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*. PERLUPRJÓN: UMFERÐ 1: * Prjónið 1 l sl, 1 l br *, endurtakið frá *-*. UMFERÐ 2: Prjónið sl yfir br og br yfir sl. Endurtakið umf 2. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- BOLERO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í 2 stykkjum sem síðan eru saumuð saman við miðju að aftan. Prjónaður kantur er í kringum opið á stykkinu. Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. BOLERO: Fitjið upp 40-40-40-48-48-48 l á hringprjóna nr 5,5 með 1 þræði af hvorri tegund. Prjónið PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið þar til stykkið mælist 4 cm. Í næstu umf frá röngu er prjónað mynstur A.1 – sjá útskýringu að ofan (= 5-5-5-6-6-6 sinnum á breiddina). Prjónið mynstur A.1 1 sinni á hæðina. Prjónið nú 7 umf perluprjón yfir allar l. Í næstu umf frá röngu eru prjónað A.1 (= 5-5-5-6-6-6 sinnum á breiddina). Prjónið mynstur A.1 1 sinni á hæðina. Prjónið nú perluprjón yfir allar l. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 15 cm er aukið út um 1 l í hvorri hlið. Endurtakið útaukningu í hvorri hlið í 5.-5.-5.-5.-5.-4. hverri umf 13-15-15-13-15-17 sinnum til viðbótar (= alls 14-16-16-14-16-18 sinnum) = 68-72-72-76-80-84 l. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í perluprjóni. Þegar stykkið mælist 43 cm er sett 1 prjónamerki í hvora hlið – héðan er nú mælt! Fækkið nú lykkjum í annarri hliðinni á stykkinu (= framstykki) JAFNFRAMT eru fitjaðar upp nýjar l í annarri hliðinni á stykkinu (= við bakstykki) þannig: FRAMSTYKKI: Fækkið lykkjum í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hverri umf frá réttu): 4 l 3 sinnum í öllum stærðum, 2 l 6 sinnum í öllum stærðum og 1 l 5-8-6-10-13-16 sinnum, síðan er lykkjum fækkað í 4. hverri umf (þ.e.a.s. í byrjun á annarri hverri umf frá réttu): 1 l 5-4-6-4-3-2 sinnum. Eftir síðustu úrtöku mælist stykkið 17-18-19-19-20-21 cm. VIÐ BAKSTYKKI: Fitjið upp nýjar l í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í lok hverrar umf frá réttu): 1 l 7-10-16-16-18-18 sinnum og síðan í 4. hverri umf (þ.e.a.s. í lok annarrar hverrar umf frá réttu): 1 l 3-2-0-0-0-0 sinnum. Eftir alla úrtöku og útaukningu eru 44-48-52-54-58-60 l á prjóni. Prjónið perluprjón þar til stykkið mælist 21-22-23-24-25-26 cm (frá prjónamerki). Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – yfir allar l. Fellið af. Stykkið mælist ca 65-66-67-68-69-70 cm alls. Stykkið er núna prjónað að mitti að aftan, þ.e.a.s. hálfa leið. VINSTRI HLIÐ: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og hægri hlið, nema spegilmynd. Þ.e.a.s. að þegar lykkjum er fækkað á framstykki þá er lykkjum fækkað í byrjun umf frá röngu (í stað frá réttu). Fitjaðar eru upp nýjar l við bakstykki í lok umf frá röngu (í stað frá réttu). FRÁGANGUR: Saumið saman bæði stykkin við miðju að aftan. Saumið ermasauma upp að prjónamerki. KANTUR: Prjónið upp l meðfram opi á stykkinu – þ.e.a.s. meðfram hægra framstykki, aftan við hnakka, niður meðfram vinstra framstykki og síðan meðfram bakstykki þannig: Prjónið upp frá réttu 153-162-168-174-180-183 l (ca 33-35-37-37-38-39 l = á hvoru framstykki, 18-18-18-20-20-20 l = við hnakka, 69-74-76-80-84-85 l = á öllu bakstykkinu) á hringprjóna nr 5 og prjónið í hring þannig: Prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT er aukið út um 18 l jafnt yfir (aukið sérstaklega við skiptingarnar á milli fram/bakst/hnakka) = 171-180-186-192-198-201 l. Prjónið nú séð frá réttu A.2 yfir allar l 1 sinni á hæðina. Prjónið 6 umf garðaprjón. Prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT er aukið út um 18 l = 189-198-204-210-216-219 l. Prjónið nú A.2 yfir allar l 1 sinni á hæðina. Prjónið nú 6 umf garðaprjón. Prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT er aukið út um 18 l jafnt yfir = 207-216-222-228-234-237 l. Kanturinn mælist ca 10 cm. Felli laust af. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #ellisbolero eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 17 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 151-25
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.