Dani skrifaði:
Wunderschön!
08.06.2013 - 17:30
Marie-Estelle skrifaði:
J adore le mariage des couleurs. J ai hâte de le commencer. Merci
07.06.2013 - 14:27
Marie skrifaði:
J adore le mariage des couleurs. J ai hâte de le commençer.
07.06.2013 - 14:25
Claudia skrifaði:
Klasse farben!! herrlich-herbstlich
07.06.2013 - 12:29
Ilona skrifaði:
WOW!! Herbsttraum
06.06.2013 - 22:05
Siglinde skrifaði:
Muster und Farben - einfach wunderbar, muss man haben!
04.06.2013 - 14:46
Jeanet skrifaði:
Mooie kleurschakeringen
03.06.2013 - 21:17
Myriam skrifaði:
Lovely yarn.
03.06.2013 - 18:45
Anna Ducháčková skrifaði:
Super, nádherné barvy.
02.06.2013 - 09:36
Jutta skrifaði:
Beautiful colours to warm up a cold winter :)
01.06.2013 - 11:30
Log Cabin#logcabinblanket |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Heklað teppi úr DROPS Big Delight með blúndukanti hekluðum úr DROPS Big Merino.
DROPS 150-54 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. 2 TBST SAMAN: Heklið 1 tbst, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið næsta tbst í sömu l, en nú er þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 l á heklunálinni. 3 ST SAMAN: Heklið 1 st, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið næsta st í sama boga, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið næsta st í sama boga, en nú er þráðurinn dreginn í gegnum allar 4 l á heklunálinni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TEPPI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Heklaðir eru alls 40 ferningar sem saumaðir eru saman í lokin. 19 ferningar úr Big Delight með lit nr 11, 7 ferningar úr Big Delight í lit nr 05, 7 ferningar úr Big Delight í lit nr 06, 7 ferningar úr Big Delight í lit nr 10. Síðan er heklaður kantur í kringum allt teppið. HEKLAÐUR FERNINGUR: Heklið 4 ll með heklunál nr 7 með Big Delight og tengið saman í hring með 1 kl í fyrstu ll. Heklið nú eins og útskýrt er í A.1, þ.e.a.s. heklað er þannig: UMFERÐ 1: Heklið 1 ll, heklið 12 fl um hringinn og endið á 1 kl í ll frá byrjun umf = 12 fl. UMFERÐ 2: Heklið 4 ll (jafngildir 1 tbst), heklið 1 tbst í sömu l, * 2 ll, 2 TBST SAMAN – sjá útskýringu að ofan, í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn og endið á 2 ll og 1 kl í 4. ll frá byrjun umf = 12 tbst-hópar með 2 ll á milli hverra. UMFERÐ 3: Heklið 1 kl um fyrsta ll-boga, 3 ll (jafngildir 1 st), 2 st saman um sama ll-boga (þ.e.a.s. heklið 1 st, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið næsta st, en nú er þráðurinn dreginn í gegn um allar 3 l á heklunálinni), * 3 ll, 3 ST SAMAN – sjá útskýringu að ofan, en um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* umf hringinn og endið á 3 ll og 1 kl í 3. ll í byrjun umf = 12 st-hópar með 3 ll á milli hverra. UMFERÐ 4: Heklið 5 ll (jafngildir 1 hst + 3 ll), hoppið yfir 1 ll-boga, * um næsta ll-boga (= horn) heklið þannig: Heklið 3 st saman, 2 ll, 3 st saman, 4 ll, 3 st saman, 2 ll og 3 st saman, 3 ll ** , hoppið yfir 1 ll-boga, efst í næsta st-hóp er heklað 1 hst, 3 ll, hoppið yfir 1 ll-boga *, endurtakið frá *-* 3 sinnum til viðbótar, en síðasta endurtekning endar eftir **, heklið nú 1 kl í 2. ll frá byrjun umf. UMFERÐ 5: Heklið 3 ll (jafngildir 1 st), 2 st saman í sömu l, * 2 ll, 3 st saman um næsta ll-boga, 2 ll, 3 st saman um næsta ll-boga, 2 ll, um næsta ll-boga (= horn) heklið nú þannig: Heklið 3 st saman, 2 ll, 3 st saman, 4 ll, 3 st saman, 2 ll og 3 st saman, 2 ll, heklið 3 st saman um næsta ll-boga, 2 ll, 3 st saman um næsta ll-boga, 2 ll **, 3 st saman í hst *, endurtakið frá *-* 3 sinnum, en síðasta endurtekning endar eftir **, heklið nú 1 kl í 3. ll frá byrjun umf. UMFERÐ 6: Skiptið yfir í Big Merino og heklið eina umf með fl þannig: Heklið 1 ll, heklið 2 fl um hvern ll-boga og 1 fl efst í hvern st-hóp, um ll-bogann í hverju horni er heklað 2 fl + 2 ll + 2 fl. Klippið frá og festið enda. FRÁGANGUR: Staðsetjið ferninga með 5 ferninga á breidd og 8 ferninga á hæð – sjá t.d. ljósmynd varðandi staðsetningu. Saumið ferningana saman með Big Merino – ferningarnir eru saumaðir saman með 1 spori í ca aðra hverja l, passið uppá að kanturinn verði jafn og fínn. HEKLAÐUR KANTUR: Heklið kant í kringum allt teppið með heklunál nr 7 með Big Merino þannig: UMFERÐ 1: Heklið 1 fl í fyrstu l, * 2 ll, hoppið yfir 1 l, 1 fl í næstu l *, endurtakið frá *-* í kringum allt teppið – ATH: Um ll-boga í hverju horni á teppinu eru heklaðir 2 ll-bogar. Endið umf með 1 kl í fyrstu fl í byrjun umf. UMFERÐ 2: Heklið 5 ll, 1 st í 4. ll frá heklunálinni, hoppið yfir 1 ll-boga, 1 fl um næsta ll-boga, * 4 ll, 1 st í 4. ll frá heklunálinni (= 1 picot), hoppið yfir 1 ll-boga, 1 fl um næsta ll-boga*, endurtakið frá *-* í kringum allt teppið – ATH: Passið uppá að það verði picot/takki í hverju horni á teppinu. Klippið frá og festið enda. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #logcabinblanket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 8 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 150-54
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.