DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS SS24
DROPS 149-46
DROPS Design: Mynstur nr de-108
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð: ca 100 x 150 cm

Efni:
DROPS DELIGHT frá Garnstudio
500 gr litur nr 10, ólífa/ryð/plóma
Og einnig:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
100 gr litur nr 8903, svartur

DROPS SOKKAPRJÓNAR (x 2) og HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l og 40 umf með garðaprjón verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Mynsturteikning A.1 sýnir allan neðri hlut á teppinu með sólfjaðramynstri, séð frá réttu.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TEPPI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið samanstendur af mörgum “sólfjöðrum” sem prjónaðar eru saman jafn óðum. Byrjað er neðst niðri á teppinu í þeirri númeraröð sem sólfjaðrirnar liggja – sjá mynsturteikningu A.1. Prjónuð eru 2 stykki sem í lokin eru saumuð saman fyrir miðju þannig að teppið verði alveg eins í báðum hliðum. Nýjar lykkjur eru alltaf teknar upp frá réttu. Fyrstu 2 umf í hverri sólfjöður eru prjónaðar með Alpaca, síðan er sólfjöðrin prjónuð til loka með Delight.

SÓLFJÖÐUR 1A:
Fitjið upp 61 l á hringprjóna nr 4,5 með Alpaca og prjónið þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið slétt.
UMFERÐ 3 : Skiptið yfir í Delight: Prjónið 2 l slétt saman, 9 l sl, * takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, 6 l sl *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum, 3 l sl, 2 l slétt saman = 49 l.
UMFERÐ 4-10: Prjónið slétt.
UMFERÐ 11: Prjónið 2 l slétt saman, 7 l sl, * takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, 4 l sl *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum, 3 l sl, 2 l slétt saman = 37 l.
UMFERÐ 12-18: Prjónið slétt.
UMFERÐ 19: Prjónið 2 l slétt saman, 5 l sl, * takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, 7 l sl *, endurtakið frá *-* alls 2 sinnum, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, 5 l sl, 2 l slétt saman = 29 l.
UMFERÐ 20-26: Prjónið slétt.
UMFERÐ 27: Prjónið 2 l slétt saman, 3 l sl, * takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, 5 l sl *, endurtakið frá *-* alls 2 sinnum, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, 3 l sl, 2 l slétt saman = 21 l.
UMFERÐ 28-34: Prjónið slétt.
UMFERÐ 35: Prjónið 2 l slétt saman, 7 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, 7 l sl, 2 l slétt saman = 17 l.
UMFERÐ 36-42: Prjónið slétt.
UMFERÐ 43: Prjónið 2 l slétt saman, 5 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, 5 l sl, 2 l slétt saman = 13 l.
UMFERÐ 44-48: Prjónið slétt.
UMFERÐ 49: Prjónið 2 l slétt saman, 3 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, 3 l sl, 2 l slétt saman = 9 l.
UMFERÐ 50-54: Prjónið slétt.
UMFERÐ 55: Prjónið 2 l slétt saman, 1 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, 1 l sl, 2 l slétt saman = 5 l.
UMFERÐ 56-58: Prjónið slétt.
UMFERÐ 59: Prjónið 1 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, 1 l sl = 3 l.
UMFERÐ 60: Prjónið slétt.
UMFERÐ 61: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, 1 l sl. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum l og festið.

Prjónið SÓLFJÖÐUR 2A, 3A og 4A o.s. frv. Í 1. röð

HÁLF SÓLFJÖÐUR VINSTRA MEGIN VIÐ STYKKIÐ – SÓLFJÖÐUR 1B:
Fitjið upp 31 l með Alpaca og prjónið þannig:
UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið slétt.
UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið slétt.
UMFERÐ 3: Skiptið yfir í Delight: Prjónið 2 l slétt saman, 9 l sl, * takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, 6 l sl *, endurtakið frá *-* alls 2 sinnum, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir = 25 l.
UMFERÐ 4-10: Prjónið slétt.
UMFERÐ 11: Prjónið 2 l slétt saman, 7 l sl, * takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, 4 l sl *, endurtakið frá *-* alls 2 sinnum, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir = 19 l.
UMFERÐ 12-18: Prjónið slétt.
UMFERÐ 18: Prjónið 2 l slétt saman, 5 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, 7 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir = 15 l.
UMFERÐ 20-26: Prjónið slétt.
UMFERÐ 27: Prjónið 2 l slétt saman, 3 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, 5 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir = 11 l.
UMFERÐ 28-34: Prjónið slétt.
UMFERÐ 35: Prjónið 2 l slétt saman, 7 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir = 9 l.
UMFERÐ 35-42: Prjónið slétt.
UMFERÐ 43: Prjónið 2 l slétt saman, 5 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir = 7 l.
UMFERÐ 44-48: Prjónið slétt.
UMFERÐ 49: Prjónið 2 l slétt saman, 3 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir = 5 l.
UMFERÐ 50-54: Prjónið slétt.
UMFERÐ 55: Prjónið 2 l slétt saman, 1 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir = 3 l.
UMFERÐ 56-60: Prjónið slétt.
UMFERÐ 61: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir = 1 l. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum l og festið.

HÁLF SÓLFJÖÐUR HÆGRA MEGIN VIÐ STYKKIÐ – SÓLFJÖÐUR 2B:
Fitjið upp 31 l með Alpaca og prjónið eins SÓLFJÖÐUR 1B, nema spegilmynd (þ.e.a.s. í 3.- 11.- 19.- 27.- 35.- 43.- 49.- 55. og 61 umf er lesið aftur á bak, en byrjið á 2 l slétt saman og endið á að taka 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir – Til dæmis er 3. umf prjónuðu þannig: Prjónið 2 l slétt saman, * 6 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir *, endurtakið frá *-* alls 2 sinnum, prjónið 9 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir = 25 l).

1. röð með sólfjöðrum hefur nú verið prjónuð.

SÓLFJÖÐUR 1C:
Prjónið upp 30 l með Alpaca meðfram vinstri kanti á SÓLFJÖÐUR 2B (séð frá réttu) – og prjónið síðan upp 31 l meðfram hægri kanti á SÓLFJÖÐUR 1A (séð frá réttu) = 61 l á prjóni. Prjónið nú eins og SÓLFJÖÐUR 1A, nema frá umf 2 (þ.e.a.s. byrjið á sl frá röngu).

Prjónið SÓLFJÖÐUR 2C, 3C, 4C og 5C í 2. Röð alveg eins – sjá staðsetningu í mynsturteikningu A.1.

2. röð með sólfjöðrum hefur nú verið prjónuð.

Prjónið SÓLFJÖÐUR 1D, 2D, 3D og 4D í 3. Röð alveg eins – sjá staðsetningu í mynsturteikningu A.1, en þegar l eru prjónaðar upp er það gert þannig (t.d. eins og útskýrt er í sólfjöður 1D): Prjónið upp 30 l með Alpaca meðfram vinstri kanti á SÓLFJÖÐUR 1C (séð frá réttu), prjónið upp 1 l efst í horni á SÓLFJÖÐUR 1A og prjónið að lokum upp 30 l meðfram hægri kanti á SÓLFJÖÐUR 2C (séð frá réttu) = 61 l á prjóni.

SÓLFJÖÐUR 1E:
Prjónið upp 30 l með Alpaca meðfram vinstri kanti (séð frá réttu) í síðustu sólfjöður í 2. röð, að auki er prjónuð upp 1 l í horni efst á SÓLFJÖÐUR 1B = 31 l á prjóni. Prjóni nú eins og SÓLFJÖÐUR 1B, nema frá umf 2 (þ.e.a.s. byrjið á sl frá röngu).

SÓLFJÖÐUR 2E:
Prjónið upp 1 l með Alpaca í horni efst á SÓLFJÖÐUR 2B, prjónið síðan upp 30 l meðfram hægri kanti á SÓLFJÖÐUR 1C (séð frá réttu) = 31 l á prjóni. Prjónið nú eins og SÓLFJÖÐUR 2B, nema frá umf 2 (þ.e.a.s. byrjið á sl frá röngu).

3. röð með sólfjöðrum hefur nú verið prjónuð.

SÓLFJÖÐUR 1F:
Prjónið upp 30 l með Alpaca meðfram vinstri kanti á SÓLFJÖÐUR 2E (séð frá réttu), prjónið upp 1 l í horni efst á SÓLFJÖÐUR 1C og prjónið síðan upp 30 l meðfram hægri kanti á SÓLFJÖÐUR 1D (séð frá réttu) = 61 l á prjóni. Prjónið nú eins og SÓLFJÖÐUR 1A, nema frá umf 2 (þ.e.a.s. byrjið á sl frá röngu).

Prjónið SÓLFJÖÐUR 2F, 3F, 4F og 5F alveg eins.
Haldið svona áfram (endurtakið 2 síðustu raðirnar í sólfjöðrum) þar til teppið mælist 75 cm, endið eftir röð með 4 heilum og 2 hálfum sólfjöðrum. Geymið stykkið og prjónið hinn helminginn alveg eins.

HRINGUR: Prjónið 5 hringi sem saumaðir eru saman fyrir miðju í teppið.
Prjónað er í hring á sokkaprjóna, frá miðju og út.
Fitjið upp 6 l skipt á 3 stk sokkaprjóna nr 4,5 (= 2 l á hvern prjón) með Delight.
UMFERÐ 1: Prjónið br.
UMFERÐ 2: Prjónið sl.
UMFERÐ 3: Prjónið * 1 l br, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* = 12 l.
UMFERÐ 4: Prjónið sl, uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan til að koma í veg fyrir göt).
UMFERÐ 5: Prjónið br.
UMFERÐ 6: Prjónið sl.
Prjónið nú áfram með 7 stk sokkaprjónum. Skiptið l á 6 stk prjóna þannig að það verða 2 l á hverjum prjóni.
UMFERÐ 7: Prjónið * 1 l br, sláið uppá prjóninn, 1 l br, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* = 24 l (= 4 l á hverjum prjóni).
UMFERÐ 8-10: Prjónið eins og umf 4-6.
UMFERÐ 11: Prjónið * 1 l br, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 l br, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* = 36 l.
UMFERÐ 12-14: Prjónið eins og umf 4-6.
UMFERÐ 15: Prjónið * 2 l br, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l br, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 l br *, endurtakið frá *-* = 48 l.
UMFERÐ 16-18: Prjónið eins og umf 4-6.
UMFERÐ 19: Prjónið * 1 l br, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 5 l br, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l br *, endurtakið frá *-* = 60 l.
UMFERÐ 20-22: Prjónið eins og umf 4-6.
UMFERÐ 23: Prjónið * 3 l br, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l br, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 6 l br *, endurtakið frá *-* = 72 l.
UMFERÐ 24-26: Prjónið eins og umf 4-6.
UMFERÐ 27: Prjónið * 1 l br, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 7 l br, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 4 l br *, endurtakið frá *-* = 84 l.
UMFERÐ 28-30: Prjónið eins og umf 4-6.
UMFERÐ 31: Prjónið * 4 l br, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l br, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 9 l br *, endurtakið frá *-* = 96 l.
UMFERÐ 32-34: Prjónið eins og umf 4-6.
UMFERÐ 35: Prjónið * 1 l br, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 9 l br, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 6 l br *, endurtakið frá *-* = 108 l.
UMFERÐ 36-38: Prjónið eins og umf 4-6.
UMFERÐ 39: Prjónið * 5 l br, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l br, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 12 l br *, endurtakið frá *-* = 120 l.
UMFERÐ 40-42: Prjónið eins og umf 4-6.
UMFERÐ 43: Skiptið yfir í Alpaca. Prjónið * 1 l br, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 11 l br, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 8 l br *, endurtakið frá *-* = 132 l.
UMFERÐ 44: Fellið LAUST af með sl yfir allar l. Klippið frá og haldið eftir ca 50 cm fyrir frágangt.

Saumið stykkin saman með hringina fyrir miðju.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 05.08.2013
Nýtt efnismagn í Alpaca: DROPS AlPACA frá Garnstudio 100 gr litur nr 8903, svartur

Mynstur

diagram measurements
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 149-46

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (111)

country flag Andrea wrote:

Liebes Drops-Team, ich habe heute die Wolle bekommen und freue mich auf ein neues Projekt. Gleich am Anfang ergeben sich schon 2 Fragen: - Werden keine Randmaschen gestrickt? Dh ab Reihe 3 werden die 1. und die 2. oder die 2. und die 3. Masche zusemmengestrickt? - Werden die zu vernähenden Fäden eingestrickt oder zum Schluss vernäht? Vielen Dank für eure Hilfe!

10.02.2022 - 11:02

DROPS Design answered:

Liebe Andrea, jeder Fächer wird kraus rechts gestrickt, so sind keine extra Randmaschen dazu gezählt. Fäden vernähen Sie, wie Sie es am besten haben, entweder bei dem Farbewechsel oder ganz am Ende. Viel Spaß beim stricken!

10.02.2022 - 13:29

country flag Karin wrote:

Die Maschen für die Kreise direkt aus den Fächern , der zwei Hälften aufnehmen und von aussen nach innen stricken. Viel schöner als die Kreise anzunähen.

19.08.2020 - 13:24

country flag Karin wrote:

Wenn ich die decke größer stricken will und mehr Fächer in der Breite stricke, (plus 5 A UND 6 A ) geht sich das mit den Kreisen aus? Oder ist es besser in der Höhe? ( G, H, I, J) . Statt 5 kreisen dann 7. Danke

15.05.2020 - 07:16

DROPS Design answered:

Liebe Karin, wahrscheinlich passt es in der Breite sowie in der Höhe, wie Sie es am liebsten haben. leider können wir jeder Anleitung nach jedem individuellen Frage anpassen und einzelne Modelle auf individuellen Wunsch hin umrechnen. Wenn sie Hilfe damit brauchen, wenden Sie sich bitte an Ihrem DROPS Laden, dort hilft man Ihnen gerne weiter. Viel Spaß beim stricken!

15.05.2020 - 08:54

country flag Dietje wrote:

Goedendag, Ik vind deze deken echt prachtig, maar ben niet zo thuis in breien. Is er een soortgelijk patroon om te haken? De cirkels lukt wel maar hoe tel ik de waaiers uit? Ik ben benieuwd.

03.04.2019 - 17:31

DROPS Design answered:

Dag Dietje

Helaas is er niet een dergelijk haakpatroon voor deze deken. Je kan natuurlijk wel even zoeken bij de haakpatronen voor dekens.

De waaiers worden gaandeweg tijdens het breien aan elkaar gebreid, tijdens het breien wordt dit wel duidelijk als je gewoon het patroon volgt. Onderaan het patroon staat een schema, zodat je kunt zien waar welke waaiers komen.

04.04.2019 - 08:06

country flag Ann wrote:

Når I nu har konstateret, at garnmængden på alpaca kun skal være 100 g, hvorfor retter I det så ikke oppe i toppen, hvor man finder oplysninger om garnforbrug? Nu har jeg lige bestilt garn, og kan regne ud, at jeg har købt 150 g for meget! Ret irriterende..

18.02.2019 - 21:39

DROPS Design answered:

hei Ann. Beklager det, det var en glipp i den danske oppskriften. Det er nå blitt rettet. Jeg vil anta at du kan returnere det garnet som er kjøpt for mye og få pengene tilbake for det. Igjen, beklager det og god fornøyelse

20.02.2019 - 15:39

country flag Pitha wrote:

Die kleur is niet olijfgroen. maar turqoise.

31.08.2018 - 22:33

country flag Karin Larsen wrote:

Hvor mange vifter skal man strikke , og hvor mange halv vifter skal man strikke

03.03.2017 - 15:35

DROPS Design answered:

Hej Karin. Det er ikke angivet i opskriften, saa det ved jeg ikke. Du skal fölge opskriften til de maal der angives: 75 cm og afslutte med 4 hele og 2 halve vifter - du strikker 2 dele paa denne maade. Og de to dele forbinder du med 5 cirkler. Jeg synes at kunne se 7 eller 8 raekker paa billedet. Men er din strikkefasthed i orden og fölger opskriften, saa bliver det korrekt :)

06.03.2017 - 14:59

country flag Nanny Nørgård wrote:

Er meget tæt på at være færdig med tæppet, men mangler 1 række på sidste halvdel af tæppet. Har ikke mere DROPS DELIGHT, til gengæld 3 overskydende DROPS ALPACA. HVAD GØR JEG?? Så gi´r Pia ret i hendes kommentar 21.11.13, da jeg har fået det rigtige antal nøgler iflg. opskriften og min strikkefasthed stemmer. Med venlig hilsen Nanny Nørgård P.S.: Vil mene at jeg kan færdiggøre tæppet med 1 nøgle mere af DROPS DELIGHT farve nr. 10, oliven/rust/blomme

23.03.2015 - 14:56

DROPS Design answered:

Hej Nanny, Vi skal lade din kommentar gå videre til design, jeg kan se at garnforbruget er rettet tidligere. God fornøjelse!

18.05.2015 - 11:23

country flag Kerstin wrote:

Habe jetzt die beiden Hälften dieser wunderbaren Decke gestrickt. Wofür benötige ich fünf Kreise? Wenn ich die beiden Hälften zusammenlege, sieht es aus als würde ich 4 Kreise und zwei halbe benötigen. Was mache ich falsch? Vielen Dank

25.06.2014 - 21:32

DROPS Design answered:

Liebe Kerstin, am besten ist auf dem Foto zu sehen, wo Sie die 5 Kreise platzieren müssen bzw. wie sie angeordnet sind. Sie sehen ja ganz oben in der Mitte den ersten Kreis (der unterste 5. Kreis ist dann nicht mehr zu sehen, aber der untere Rand sieht ja wie der obere aus). Halbe Kreise benötigen Sie daher eigentlich nicht. Und in der Schemazeichnung unter der Anleitung sehen Sie, wie die halben Fächer am Rand angeordnet sind.

27.06.2014 - 14:41

country flag Ursula wrote:

Habe diese Decke gestrickt, ging überraschend schnell. Meine Familie und Freunde sind begeistert.

03.05.2014 - 14:11