Löbel, Liane skrifaði:
Hallo, ich brauche Hilfe für die Runden 8 bis14. verstehe ich leider nicht Vielen Dank
18.06.2013 - 13:21DROPS Design svaraði:
Hallo Frau Löbel, sie häkeln in dieser Rd vorzu 1 fM in jede fM und dann nochmals 5 fM um an die richtige Stelle für den nächsten Rd-Anfang zu gelangen.
19.06.2013 - 11:16
Djamila skrifaði:
Vielen dank! Habe den dino fertig sieht echt gut aus und dauert gar nicht lange...
14.06.2013 - 10:41
Djamila skrifaði:
Ich verstehe das mit der 4. bis 6. Reihe nicht wie viele Maschen muss ich da stricken?
12.06.2013 - 22:44DROPS Design svaraði:
Liebe Djamila, es wird 1 fM in jede fM gehäkelt, also in jeder R 12 Maschen.
14.06.2013 - 09:34
Dino#dropsdino |
|
![]() |
![]() |
Hekluð risaeðla / leikfang úr DROPS Safran eða DROPS Paris
DROPS Children 24-7 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- RÁÐ VARÐANDI FYLLINGU: Fyllið með vatti í dýrið jafnóðum og heklað er. HEKLLEIÐBEININGAR: Allar umf með fl byrja á 1 ll (þessi kemur ekki í stað fyrstu fl) og endið á 1 kl í fyrstu fl í byrjun umf. Allar umf með fl er snúið við með 1 ll – þessi ll kemur ekki í stað fyrstu fl í umf. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkað er um 1 fl með því að hekla 2 l saman. Þetta er gert þannig: Stingið heklunálinni niður í fyrstu l, sækið þráðinn, stingið heklunálinni í næstu l, sækið þráðinn, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 l á heklunálinni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- LÍTIL RISAEÐLA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað ofan frá, efst á höfði og niður hálsinn, búkinn og út að hala. Fæturnir eru heklaðir hver fyrir sig og saumaðir fastir. Gaddarnir eru heklaðir í lokin. LESIÐ RÁÐ VARÐANDI FYLLINGU! HÖFUÐ, BÚKUR OG HALI: Heklið 4 ll með litnum hermannagrænn með heklunál nr 3 og tengið í hring með 1 kl í 1. ll. Lesið HEKLLEIÐBEININGAR! UMFERÐ 1: Heklið 6 fl um ll-hringinn. UMFERÐ 2: * Heklið 1 fl í fyrstu fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 9 fl. UMFERÐ 3: * Heklið 1 fl í hvora af fyrstu 2 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 12 fl. Snúið við og heklið til baka frá röngu. UMFERÐ 4-6: Heklið 3 umf með 1 fl í hverja fl fram og til baka (= op þar sem nef er heklað í lokin). UMFERÐ 7: Heklið nú aftur í hring (setjið 1 prjónamerki í byrjun umf). Heklið 2 fyrstu fl saman – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA, síðan 1 fl í hverja af næstu 8 fl og 2 síðustu fl eru heklaðar saman = 10 fl. UMFERÐ 8-14: Heklið 1 fl í hverja fl hringinn án þess að ljúka hverri umf, heklið síðan 1 fl í hverja af fyrstu 5 l, heklunálin er nú við miðju aftan við höfuð – héðan byrjar nú umf. UMFERÐ 15: Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 3 fl, 2 fl í hverja af næstu 4 fl, 1 fl í hverja af síðustu 3 fl = 14 fl. UMFERÐ 16: Heklið 2 fyrstu fl saman, síðan 1 fl í hverja af næstu 3 l. 2 fl í hverja af næstu 4 l, 1 fl í hverja af næstu 3 l og heklið 2 síðustu fl saman = 16 fl. UMFERÐ 17: Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 14 fl, snúið við með 1 ll. Heklið nú fram og til baka og gerið annað stykki fyrir brjóstkassa. UMFERÐ 18 (ranga): Hoppið yfir 2 fyrstu fl, 1 fl í hverja af næstu 11 fl, snúið við með 1 ll. UMFERÐ 19 (rétta): Hoppið yfir 2 fyrstu fl, 1 fl í hverja af næstu 8 fl, snúið við með 1 ll. UMFERÐ 20 (ranga): Hoppið yfir 2 fyrstu fl, 1 fl í hverja af næstu 5 fl, snúið við með 1 ll. UMFERÐ 21: Heklið nú aftur í hring – heklið fl í kringum allt opið – aukið út jafnt yfir svo að það verði alls 20 fl, heklið nú fram að miðju undir maga. UMFERÐ 22: Heklið 1 fl í hverja fl, en í 2 fl við miðju á baki eru heklaðar 2 fl = 22 fl – setjið 1 prjónamerki mitt á milli á þessum fl. UMFERÐ 23-25: Heklið 1 fl í hverja fl. UMFERÐ 26-29: Heklið 1 fl í hverja fl, fækkið nú um 1 l hvoru megin við prjónamerki við miðju á baki (þ.e.a.s. að fækkað er um 2 l í hverri umf). Eftir umf 29 eru 14 fl eftir. UMFERÐ 30-33: Heklið 1 fl í hverja l, en fækkið um 1 l við miðju á baki (fellið af til skiptis á undan og á eftir prjónamerki). Eftir umf 33 eru 10 fl eftir. UMFERÐ 34-36: Heklið 1 fl í hverja fl. UMFERÐ 37-42: Heklið 1 fl í hverja fl, en fækkið um 1 fl fyrir miðju undir hala í öllum umf. Eftir umferð 42 eru heklaðar 4 fl til baka. Klippið frá, þræðið endann í kringum opið, herðið að og festið enda. NEF: Heklið 10 fl með litnum hermannagrænn í kringum opið framan á höfði. Heklið 1 umf með 1 fl í hverja fl, síðan 1 umf þar sem allar fl eru heklaðar 2 og 2 saman. Klippið frá, troðið smá vatti í nefið, snúið þráðarendanum í kringum opið, herðið að og festið. FÓTUR: Heklið 4 ll með litnum hermannagrænn og tengið í hring með 1 kl í fyrstu ll. UMFERÐ 1: Heklið 5 fl um ll-hringinn. UMFERÐ 2: Heklið 2 fl í hverja fl = 10 fl. UMFERÐ 3-6: Heklið 1 fl í hverja fl, klippið frá. Heklið 4 alveg eins fætur. Troðið smá vatti í fæturna og saumið þær fastar neðan á búkinn. GADDAR: Heklið gadda á hrygginn með litnum ljós grænn með heklunál nr 3 þannig: Heklið 1 kl efst á halanum. * Heklið 3 ll, í fyrstu ll er heklaður 1 st, hoppið fram ca 1 cm og heklið 1 fl *, endurtakið frá *-* fram að byrjun á hálsi. Héðan er nú heklað þannig: * Heklið 3 ll, hoppið fram ca 1 cm og heklið 1 fl *, endurtakið fram að miðju aftan á höfði og endið á 1 kl. Klippið frá og festið enda. Saumið út augu og munn með litnum svartur. ------------------------------------------------------- STÓR RISAEÐLA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Heklið á sama hátt og lítil risaeðla, nema með heklunál nr 4 með Paris. Höfuð, búkur og hali eru hekluð með litnum ljós fjólublár. Nef, fætur og gaddar er heklað með litnum púðurbleikur. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #dropsdino eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 6 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 24-7
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.