DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 880.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS Children 24-8
DROPS Design: Mynstur nr e-010-bn
Garnflokkur A og C eða A + A
----------------------------------------------------------

LÍTILL GÍRAFFI:
Stærð: ca 15 cm hæð x 9 cm lengd

Efni:
DROPS SAFRAN frá Garnstudio
50 gr litur nr 11, skærgulur
50 gr litur nr 22, ljós brúnn
+ smá af litnum svartur fyrir horn og augu

DROPS HEKLUNÁL NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 fl verði 10 cm á breiddina. FYLGIHLUTIR: Vatt til fyllingar.

STÓR GÍRAFFI:
Mál: ca 21 cm á hæð x 13 cm á lengd

Efni:
DROPS PARIS frá Garnstudio
50 gr litur nr 27, ferskja
50 gr litur nr 33, milli bleikur
+ smá af litnum svartur fyrir horn og augu.

DROPS HEKLUNÁL NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 17 fl verði 10 cm á breidd.
FYLGIHLUTIR: Vatt til fyllingar.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 880.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

RÁÐ VARÐANDI FYLLINGU:
Fyllið dýrið með vatti jafnóðum og heklað er.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Allar umf með fl byrja á 1 ll (þessi kemur ekki í stað fyrstu fl) og endar á 1 kl í fyrstu fl í byrjun umf.
Allar umf með fl er snúið við með 1 ll – þessi ll kemur ekki í stað fyrstu fl í umf.

ÚRTAKA:
Fækkað er um 1 l með því að hekla 2 l saman þannig: * Stingið heklunálinni í næstu l, sækið þráðinn *, endurtakið frá *-* einu sinni til viðbótar, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 l á heklunálinni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

LÍTILL GÍRAFFI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað ofan frá á höfði, niður yfir háls og út búk. Fætur, hali, eyru, horn og blettir eru heklaðar sér hver fyrir sig og saumað á í lokin. LESIÐ RÁÐ VARÐANDI FYLLINGU!

HÖFUÐ, HÁLS OG BÚKUR:
Heklið 4 ll með litnum skærgulur með heklunál nr 3 og tengið í hring með 1 kl í fyrstu ll.
UMFERÐ 1: Heklið 5 fl um ll-hringinn.
UMFERÐ 2: Heklið 2 fl í hverja fl = 10 fl. Snúið við með 1 ll, heklið nú fram og til baka einu sinni.
UMFERÐ 3-7: Heklið 1 fl í hverja fl fram og til baka (= op þar sem nefið er heklað í lokin).
UMFERÐ 8-20: Heklið 1 fl í hverja fl hringinn án þess að ljúka hverri umf, að lokum er heklað upp að miðjum hnakka.
UMFERÐ 21: Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 4 fl, 2 fl í hvora af næstu 2 fl og 1 fl í hverja af síðustu 4 fl = 12 fl.
UMFERÐ 22: Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 5 fl, 2 fl í hvora af næstu 2 fl og 1 fl í hverja af síðustu 5 fl = 14 fl.
UMFERÐ 23: Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 12 fl, snúið við með 1 ll, héðan er heklað fram og til baka og myndað stykki fyrir brjóstkassa.
UMFERÐ 24 (ranga): Hoppið yfir fyrstu fl, 1 fl í hverja af næstu 10 fl, snúið við með 1 ll.
UMFERÐ 25 (rétta): Hoppið yfir fyrstu fl, 1 fl í hverja af næstu 8 fl, snúið við með 1 ll.
UMFERÐ 26 (ranga): Hoppið yfir fyrstu fl, 1 fl í hverja af næstu 6 fl, snúið við með 1 ll.
UMFERÐ 27 (rétta): Hoppið yfir fyrstu fl, 1 fl í hverja af næstu 4 fl, snúið við með 1 ll.
UMFERÐ 28 (ranga): Hoppið yfir fyrstu fl, 1 fl í hvora af næstu 2 fl, snúið við með 1 ll.
UMFERÐ 29 (rétta): Hoppið yfir fyrstu fl, 1 fl í hverja af næstu 4 fl, snúið við með 1 ll.
UMFERÐ 30 (ranga): Hoppið yfir fyrstu fl, 1 fl í hverja af næstu 6 fl, snúið við með 1 ll.
UMFERÐ 31 (rétta): Hoppið yfir fyrstu fl, 1 fl í hverja af næstu 8 fl, snúið við með 1 ll.
UMFERÐ 32 (ranga): Hoppið yfir fyrstu fl, 1 fl í hverja af næstu 10 fl, snúið við með 1 ll.
UMFERÐ 33 (rétta): Hoppið yfir fyrstu fl, 1 fl í hverja af næstu 12 fl, snúið við með 1 ll.
UMFERÐ 34 (ranga): Hoppið yfir fyrstu fl, 1 fl í hverja af næstu 14 fl, snúið við með 1 ll. Nú er haldið áfram að hekla aftur í hring.
UMFERÐ 35: Heklið fl í kringum allt opið – aukið út jafnt yfir þannig að það verða alls 22 fl.
UMFERÐ 36-45: Haldið áfram hringinn með 10 umf fl.
UMFERÐ 46: Heklið fl, jafnframt því sem fækkað er um 4 fl jafnt yfir með því að hekla 2 og 2 fl saman – SJÁ ÚRTAKA = 18 fl.
UMFERÐ 47: Heklið fl, jafnframt sem fækkað er um 4 fl jafnt yfir með því að hekla 2 og 2 fl saman = 14 fl.
UMFERÐ 48: Heklið fl, jafnframt sem fækkað er um 4 fl jafnt yfir með því að hekla 2 og 2 fl saman = 10 fl.
UMFERÐ 49: Heklið allar fl saman 2 og 2 = 5 fl.
Klippið frá, þræðið endann í kringum opið, herðið að og festið.

NEF:
Heklið 14 fl með litnum skærgulur í kringum op framan á höfði. Setjið 1 prjónamerki fyrir miðju á höfði. Haldið áfram 3 umf með 1 fl í hverja fl jafnframt sem heklaðar eru saman 2 fl fyrir miðju á höfði = 11 fl. Skipti yfir í litinn ljós brúnt. Haldið áfram með 1 umf fl jafnframt sem 2 miðju fl á höfði eru heklaðar saman í hverri umf = 10 fl. Heklið nú 1 umf þar sem allar fl eru heklaðar saman = 5 fl, klippið frá. Þræðið smá vatti í nef, þræðið endann í kringum opið, herðið að og festið.

FÓTUR:
Heklið 4 ll með litnum ljós brúnn og tengið í hring með 1 kl í fyrstu ll.
UMFERÐ 1: Heklið 6 fl um ll-hringinn.
UMFERÐ 2: * Heklið 1 fl í fyrstu fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* = 9 fl, klippið frá.
UMFERÐ 3-8: Skiptið yfir í litinn skærgulur og heklið 1 fl í hverja fl hringinn, klippið frá.
Heklið 4 alveg eins fætur. Troðið smá vatti í fæturna og saumið niður neðan á búk.

HALI:
Heklið 7 ll með litnum ljós brúnn, heklið nú 3 hst í 2. ll frá heklunálinni, heklið nú 1 kl í hverja af síðustu 5 ll, klippið frá og saumið halann fastann aftan á búk þannig að hann vísar upp.

EYRA:
Heklið 4 ll með litnum ljós brúnn, heklið nú 1 tbst í fyrstu ll, 3 ll og 1 kl neðst í tbst, klippið frá.
Heklið 2 alveg eins eyru og saumi þau á höfuðið.

HORN:
Heklið 5 ll með litnum svartur, heklið nú 1 tbst í 2. ll frá heklunálinni, heklið nú 1 fl í hverja af síðustu 3 ll, klippið frá.
Heklið 2 alveg eins horn og saumið þau á höfuðið, innan við eyru.

BLETTIR:
Heklið 4 ll með litnum ljós brúnn og tengið saman í hring með 1 kl í fyrstu ll. Heklið nú 6 fl í ll-hringinn, endið á 1 kl í fyrstu fl, klippið frá.
Heklið 5 alveg eins bletti og saumið þá á bakið á gíraffanum.

Saumið út augu með litnum svartur.
-------------------------------------------------------

STÓR GÍRAFFI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Heklið á sama hátt og lítill gíraffi, nema með heklunál nr 4 með Paris. Skiptið út litnum skærgulur með litnum ferskja og skiptið út litnum ljós brúnn með litnum millibleikur.
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 24-8

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (20)

country flag Caro wrote:

Liebes Drops Team, Ich verstehe die Anleitung leider ab der Reihe 8 nicht. Durch die Hin- und Rückrunden bis Reihe 7 habe eine Art Halbkreis. Wo werden die fM angesetzt und wenn die Runden nicht geschlossen werden sind dann wieder Hin- und Rückrunden gemeint? Vielen Dank für eure Hilfe.

11.07.2019 - 23:20

DROPS Design answered:

Liebe Caro, Sie häkeln jetzt 1 fM in jedem fM (= 10 fM pro Runde), ohne die Runde mit 1 kM zu schliessen, am Ende der Runde, einfach 1 fM in das ersten fM der Runde häkeln, eine Markierung können Sie hier zwischen den letzten und ersten Maschen der Runde anbringen. Es wird ein Loch entstehen (= Reihen 3 bis 7) hier wird man später die Schnauze häkeln. Viel Spaß beim häkeln!

12.07.2019 - 08:39

country flag Anna wrote:

Hallo, ich verstehe nicht so ganz, wie man die Reihen 29-34 häkeln soll. Wohin sollen die Festmaschen gesetzt werden? Ich würde mich sehr über eine Erklärung freuen.

27.02.2019 - 20:42

DROPS Design answered:

Liebe Anna, am Ende der Reihe 28,mit 1 Lm wenden, dann die nächste Festmasche überspringen und 1 Festmasche in jeder der nächsten 4 Maschen häkeln (= Reihe 29), mit 1 Luftmasche wenden, dann die nächste Masche überspringen, 1 Festmasche in jeder der nächsten 6 Maschen häkeln (= Reihe 30) und so weiter häkeln, bis Sie 14 Festmaschen gehäkelt haben. Nach 34. Reihe (= Rückreihe), wenden Sie mit 1 Luftmasche, dann wieder in Runden häkeln. Viel spaß beim häkeln!

28.02.2019 - 09:31

country flag Susana Rodríguez-Vida wrote:

Las instrucciones de las vueltas 8-20 del cuerpo no se entienden. Para que quede claro debería decir: "Trabajar en redondo los 10 p.b., pero sin hacer el p.bjs y la cadeneta de final de vuelta; como se trabajará en espiral, el inicio de cada vuelta se irá desplazando y la vuelta 20 acabará en el centro de la parte posterior del cuello (o sea, el lado opuesto a la abertura del hocico)".

04.12.2018 - 16:20

country flag Kristýna wrote:

Dobrý den Nerozumím řadám 23 - 34, resp. jak pak pokračovat dále. Z těchto řad mi vznikly dva spojené trojúhelníky, na ně pak navazuje tělo. Jak ale tyto trojúhelníky spojím? Děkuji moc za odpověď

12.10.2017 - 20:31

country flag Viky Fernandez wrote:

Como soy nueva en esto del ganchillo, no entiendo que significa trabajar en redondo sin terminar cada vuela (vuelta 8 a 20),como se hace?. Saludos

21.02.2017 - 16:26

DROPS Design answered:

Hola Vicky. En las vueltas 8-20 no terminamos las vueltas como se explica en el TIP PARA LA ELABORACIÓN DEL TRABAJO, sino que trabajamos como sigue: 1 punto bajo en el último punto bajo de la fila anterior, 1 punto bajo en el primer punto bajo de la fila anterior ( trabajo en el espiral).

27.02.2017 - 20:29

country flag Monica wrote:

Bellissimi tutti questi animaletti ... ma ci fate anche un cavallino?

14.07.2016 - 20:40

DROPS Design answered:

Buongiorno Monica. Inoltriamo volentieri la sua richiesta alla casa madre. Grazie e buon lavoro!

14.07.2016 - 20:46

country flag Nancy Verbist wrote:

Bonjour De 2 a 22 faut il fermer le cercle svp et après? ?? Merci par ce que je n'y arrive pas

14.05.2016 - 15:33

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Verbist, on termine le tour 1 de la partie tête/cou/corps par 1 mc dans la 1ère ms (voir astuce crochet), à partir du 2ème tour, on ne ferme pas en rond, on tourne avec 1 ml et on crochète en rangs. À partir du tour 8 jusqu'au tour 20, on continue en rond en ms, sans fermer par une mc = crochetez la 1ère ms du tour dans la 1ère ms du début du tour précédent sans faire de mc. Bon crochet!

17.05.2016 - 09:15

country flag Fanchon wrote:

Je reprends donc pas à pas les explications !... J'ai refait à partir du rang 21 car je n'étais pas partie du milieu du dos .ok donc jusqu'au rang 34 mais après ??? continuer en rond et crocheter 35 crocheter tout autour de l'ouverture ???

29.01.2016 - 17:33

DROPS Design answered:

Bonjour Fanchon, à partir du rang 23 vous avez crocheté en rangs (allers et retours en tournant à la fin de chaque rang), au tour 35, crochetez maintenant 1 ms tout autour de cette ouverture en ajustant le nombre de mailles à 22 ms à la fin de ce tour. Continuez ensuite en rond. Bon crochet!

29.01.2016 - 17:35

country flag Fanchon wrote:

Bonsoir Je travaille avec bonheur,depuis plusieurs années, avec les modèles DROPS. Les explications sont habituellement claires MAIS là, avec la girafe (drops children 24-8), je coïnce !... Jusqu'au rang 20, pas de problème mais après... Il serait intéressant de faire un schéma pour ce modèle. J'ai essayé d'appliquer les conseils donnés dans la rubrique commentaire, mais j'en suis au rang 45 et ma girafe a vraiment une drôle d'allure. Merci à toute l'équipe

28.01.2016 - 19:17

DROPS Design answered:

Bonjour Fanchon, si vous suivez bien pas à pas les explications, votre girafe prendra forme. N'hésitez pas à contacter votre magasin DROPS, ou adressez-vous au forum DROPS si besoin. Bon crochet!

29.01.2016 - 09:18

country flag Trotet Roselyne wrote:

Bonjour j'ai encore une question : que veux dire "à partir du milieu du haut du cou "pour moi le haut du cou c'est les premiers rangs voulez vous dire le bas du cou de la girafe juste avant le dos ? Cordialement

29.05.2015 - 18:59

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Trotet, après le tour 20, continuez le tour jusqu'au milieu du cou, au dos de la girafe, et commencez les tours suivants à partir de là. Bon crochet!

30.05.2015 - 14:39