Tasneem Akhtar skrifaði:
In row 13 there are 24 chain space. I used 5 spaces for armholes and 7 for front and back. Is there any problem in my understanding. Please comment
14.01.2023 - 14:14DROPS Design svaraði:
Dear Tasneem, which size are you working? So that we may better answer your question. Happy knitting!
15.01.2023 - 11:02
Tasneem Akhtar skrifaði:
In row 13 there are 24 chain space. I used 5 spaces for armholes and 7 for front and back. Is there any problem in my understanding. Please comment
14.01.2023 - 14:13DROPS Design svaraði:
Dear Tasneem, which size are you working? So that we may better answer your question. Happy knitting!
15.01.2023 - 11:01
Tasneem Akhtar skrifaði:
Hello. I started this lovely jacket. I'm making it for my grand daughter. I faced problem when I reached at row 13.
14.01.2023 - 14:10
Agnes skrifaði:
Bedankt voor uw patroon van het cirkelvestje. Mijn werk gaat bij de randen (rechter- en linkervoorpand omhoog staan, klopt dit?
25.11.2022 - 22:17DROPS Design svaraði:
Dag Agnes,
Het is inderdaad niet de bedoeling dat de randen omhoog gaan staan. Misschien haak je ze te strak? Je zou een grotere naald kunnen gebruiken voor de randen om te kijken hoe dat uitpakt.
27.11.2022 - 14:09
Agnes skrifaði:
3-5 jaar: Toer 11 begrijp ik niet. "TOER 11: 1 l (= eerste v), * 5 l, 1 v in volgende l *, herhaal van *-* 6 keer in totaal, 23 l (= armsgat), sla 4 stk-groepen over, 1 v in volgende l, herhaal van *-* 10 keer, 23 l (= armsgat), sla de laatste 4 stk-groepen over, eindig met 1 hv in eerste l van het begin van de toer." Wat wordt bedoeld met 6 keer? 6 x 5 lossen = 30, hoe kom ik aan 23 lossen?
13.11.2022 - 21:45DROPS Design svaraði:
Dag Agnes,
Wat tussen de sterretjes staat beschreven haak je 6 keer in totaal.
14.11.2022 - 20:46
Iza Márcia skrifaði:
Eu amo o seu site .tudo bem explicado que até eu que estou começando entendo parabéns. 🥰
11.03.2022 - 13:37
Rozália skrifaði:
A magyar változatban kitömött fagylalt minta horgolás leírása került a gyerek kardigán helyére. Eredetiből indítva az automatikus fordítást magyarra már helyeset mutat.
17.01.2022 - 22:00
Mieke skrifaði:
Toer 8 is 24 picot; toer 9 moet dan 24 lussen worden maar ik heb steeds 25 lussen. Begin van toer 9 moet je op de 1e picot losse maken; je hebt 1e picot gesplitst en 25 lussen. Waar doe ik iets fout?
30.06.2020 - 00:13DROPS Design svaraði:
Dag Mieke,
Je maakt steeds een lus van de ene naar de ander picot, dus als je 24 picots hebt, zou je ook 24 lussen moeten krijgen. Begin je op de punt van de eerste picot?
30.06.2020 - 16:00
Mieke skrifaði:
Ik moet beginnen met voorpand en heb 17 lussen afgezet. De eerste toer gedaan maar heb geen 61 stk. Ik snap echt niet hoe ik moet haken met 5 stk minderen aan beide kanten om op 61 stk uit te komen. En moet ik aan het einde óók nog en stokje in de vaste maken?
08.06.2020 - 00:13DROPS Design svaraði:
Dag Mieke,
Je haakt over de 17 lussen en de beide vasten die daarnaast zitten, plus de vasten daartussenin. Ik kom dan op een totaal van 69 steken. Als je aan beide kanten mindert kom je precies op 61 stkeen.
Bovenaan bij het patroon bij 'tip voor het minderen 1' staat aangegeven hoe je 4 steken kunt minderen aan het begin en het eind van de naald. 08.06.2020 - 12:21
Marian Van De Groep skrifaði:
Hoe worden de volgende afkortingen genoemd in een patroon? Stokjes=stk Steken=?? Mvg marian
25.02.2020 - 13:17DROPS Design svaraði:
Dag Marian,
De afkortin st staat voor steek en stk voor stokje. Veel haakplezier :)
28.02.2020 - 19:40
Lovely Lily#lovelylilycardigan |
|
![]() |
![]() |
Hekluð hringpeysa með gatamynstri og löngum ermum úr DROPS Paris. Stærð börn 3–12 ára
DROPS Children 24-6 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- PICOT: 4 ll, 1 st í fyrstu ll sem var hekluð. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 (á við um fram- og bakstykki): Fækkið um 4 st í byrjun og í lokin með því að hekla 5 fyrstu og 5 síðustu st saman. Það er gert þannig: Heklið 1 st en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (þegar fækkað er í byrjun umf eru heklaðar 3 ll í stað 4), * heklið 1 st en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin * , endurtakið frá *-* 3 sinnum til viðbótar, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 6 lykkjur á heklunálinni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2 (á við um ermakúpu): Fækkið um 3 st í byrjun og í lok umf með því að hekla 4 fyrstu og 4 síðustu st saman. Það er gert þannig: Heklið 1 st en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (þegar fækkað er í byrjun umf eru heklaðar 3 ll í stað 4), * heklið 1 st en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin *, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 5 lykkjurnar á heklunálinni. MYNSTUR – ERMI: UMFERÐ 1: Heklið 4 ll (þær koma í stað 1 fl + 3 ll), hoppið yfir 2 st, 1 fl í næsta st, * 3 ll, hoppið yfir 2 st, 1 fl í næsta st *, endurtakið frá *-* út umf. Snúið við. UMFERÐ 2: Heklið ll (þær koma í stað fyrsta st), heklið nú 2 st um hvern ll-boga og 1 st í hverja fl á milli ll-boga, endið á 3 st um síðasta ll-bogann. Snúið við. Endurtakið umf 1 og 2 til loka. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HRINGPEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring frá miðju að aftan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Heklið 4 ll með Paris með heklunál nr 5 og tengið í hring með 1 kl í fyrstu ll. UMFERÐ 1: Heklið 3 ll (þær koma í stað 1 st), 11 st um ll-hringinn, endið á 1 kl í 3. ll í byrjun umf = 12 st. UMFERÐ 2: * Heklið 1 PICOT – sjá útskýringu að ofan – hoppið yfir 1 st í 1 kl í næsta st *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum, endið á 1 picot og 1 kl í fyrstu ll í byrjun umf = 6 blöð. UMFERÐ 3: Heklið 3 ll, 1 fl efst á fyrsta blaði, * 7 ll, 1 fl efst á næsta blaði *, endurtakið frá *-* 6 sinnum, en endið á 1 kl í fl á toppi á fyrsta blaði í umf = 6 ll-bogar. UMFERÐ 4: * Heklið 1 picot, 1 fl um ll-boga, 1 picot, 1 fl í fl á milli ll-boga *, endurtakið frá *-* alls 6 sinnum, en endið á 1 kl í fyrstu ll á picot í byrjun umf = 12 blöð. UMFERÐ 5: Heklið 3 ll, 1 fl efst á fyrsta blaði, * 5 ll, 1 fl efst á næsta blaði , 5 ll *, endurtakið frá *-* umf hringinn og endið á 1 kl í fyrstu fl í byrjun umf = 12 ll-bogar. UMFERÐ 6: Heklið 4 ll + 4 st um fyrsta ll-boga, 1 ll, * 5 st um næsta ll-boga, 1 ll *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 1 kl í 4. ll í byrjun umf = 60 st. UMFERÐ 7: * Heklið 7 ll, hoppið yfir 5 st, 1 fl um ll á milli st-hópa *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 1 kl í fyrstu ll í byrjun umf = 12 ll-bogar. UMFERÐ 8: * Heklið 1 picot, 1 fl um ll-boga, 1 picot, 1 fl í fl á milli ll-boga *, endurtakið frá *-* umf hringinn þannig að það verði 2 picot í hverjum ll-boga = 24 picot, endið á 1 kl í fyrstu ll á picot í byrjun umf. UMFERÐ 9: Heklið 3 ll, 1 fl efst á fyrsta picot, * 4 ll, 1 fl efst á næsta picot *, endurtakið frá *-* út umf, endið á 4 ll og 1 kl í fyrstu fl í byrjun umf = 24 ll-bogar. UMFERÐ 10: Heklið 3 ll + 3 st um fyrsta ll-boga, * 1 ll, 4 st um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 1 ll og 1 kl í 3. ll í byrjun umf = 96 st (= 24 st-hópar). Stykkið mælist nú ca 12 cm frá miðju og út. STÆRÐ 3/5 ÁRA: UMFERÐ 11: Heklið 1 ll (þessi kemur í stað fyrstu fl), * 5 ll, 1 fl í næstu ll *, endurtakið frá *-* alls sinnum, 23 ll (= handvegur), hoppið yfir 4 st-hópa, 1 fl í næstu ll, endurtakið frá *-* 10 sinnum, 23 ll (= handvegur), hoppið yfir 4 síðustu st-hópa, endið á 1 kl í fyrstu ll í byrjun umf. UMFERÐ 12: Heklið 3 ll + 4 st um fyrsta ll-boga, 5 st um hvern af næstu 5 ll-bogum, í langa ll-boga á undan handveg er heklað þannig: * Heklið 1 st í hverja af fyrstu 5 ll, hoppið yfir 1 ll *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, endið á 1 st í hverja af síðustu 5 ll, heklið nú 5 st í hvern af næstu 10 ll-bogum, þ.e.a.s. fram að næsta langa ll-boga fyrir handveg, heklið alveg eins yfir þær eins og yfir fyrsta langa ll-bogann, endið á 1 kl í 3. ll í byrjun umf = 120 st. UMFERÐ 13: Heklið 1 ll (þessi kemur í stað fyrstu fl), * 6 ll, hoppið yfir 5 st, 1 fl á milli síðustu st sem hoppað var yfir og næstu st *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 6 ll og 1 kl í fyrstu ll í umf = 24 ll-bogar. UMFERÐ 14: Heklið 3 ll + 4 st um fyrsta ll-boga, * 1 ll, 5 st um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 1 ll og 1 kl í fyrstu ll í byrjun umf= 120 st (= 24 st-hópar). UMFERÐ 15: Heklið 1 ll (þessi kemur í stað fyrstu fl), * 3 ll, 1 fl í 3. st í fyrsta st-hópinn 3 ll, 1 fl á milli st-hópa *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 3 ll og 1 kl í fyrstu ll í byrjun umf = 48 ll-bogar. UMFERÐ 16: Heklið 3 ll + 2 st um fyrsta ll-boga, heklið nú 3 st um hvern ll-boga, endið á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf = 144 st. UMFERÐ 17: Heklið 1 ll (þessi kemur í stað fyrstu fl), * 4 ll, hoppið yfir 2 st, 1 fl í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 4 ll og 1 kl í fyrstu ll í byrjun umf = 48 ll-bogar. UMFERÐ 18: Heklið 3 ll + 3 st um fyrsta ll-boga, * 3 st um næsta ll-boga, 4 st um næsta ll-boga, 3 st um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-*, endið á 4 st í hvorn af síðustu 2 ll-bogum og 1 kl í 3. ll í byrjun umf = 162 st. UMFERÐ 19: Heklið 1 ll (þessi kemur í stað fyrstu fl), * 4 ll, hoppið yfir 2 st, 1 fl í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 4 ll og 1 kl í fyrstu ll í byrjun umf = 54 ll-bogar. Stykkið mælist nú ca 21 cm frá miðju og út, klippið frá. Heklið nú einungis yfir 17 ll-boga í hvorri hlið – þ.e.a.s. ekki hekla lengur yfir 10 ll-boga efst við hnakka, 10 ll-bogar neðst á baki. Haldið áfram frá útskýringu undir framstykki fyrir neðan. STÆRÐ 6/9 ÁRA: UMFERÐ 11: Heklið 1 ll (þessi kemur í stað fyrstu fl), * 5 ll, 1 fl um næstu ll *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 1 kl í fyrstu ll í byrjun umf = 24 ll-bogar. UMFERÐ 12: Heklið 3 ll + 4 st um fyrsta ll-boga, síðan 5 st um hvern ll-boga umf hringinn = 120 st. Stykkið mælist nú ca 14 cm frá miðju og út. UMFERÐ 13: Heklið 1 ll (þessi kemur í stað fyrstu fl), * 6 ll, hoppið yfir 5 st, 1 fl á milli síðasta st sem hoppað var yfir og næsta st *, endurtakið frá *-* alls 6 sinnum, 25 ll (= handvegur), hoppið yfir 20 st, 1 fl á milli síðasta st sem hoppað var yfir og næsta st, endurtakið frá *-* 10 sinnum, 25 ll (= handvegur), hoppið yfir 20 síðustu st, endið á 1 kl í fyrstu ll í byrjun umf. UMFERÐ 14: Heklið 3 ll + 4 st um fyrsta ll-boga, * 1 ll, 5 st um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum, í langa ll-boga fyrir handveg er heklað þannig: Heklið 1 ll, hoppið yfir fyrsta ll, ** 1 st í hverja af næstu 5 ll, 1 ll, hoppið yfir 1 ll ** 1 endurtakið frá **-** alls 3 sinnum, endið á 1 st í hverja af næstu 5 ll, 1 ll, hoppið yfir síðustu ll, endurtakið nú frá **-** yfir næstu 10 ll-boga, þ.e.a.s. fram að næsta langa ll-boga fyrir handveg, heklið alveg eins yfir þá eins og yfir fyrsta langa ll-boga, endið á 1 kl í 3. ll í byrjun umf = 120 st (= 24 st-hópar). UMFERÐ 15-19: Heklið eins og útskýringin við stærð 3/5 ár, eftir umf 19 eru 54 ll-bogar í umf. UMFERÐ 20: Heklið 3 ll + 3 st um fyrsta ll-boga, * 3 st um næsta ll-boga, 4 st um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-*, endið á 4 st í síðasta ll-boga og 1 kl í 3. ll í byrjun umf = 190 st. UMFERÐ 21: Heklið 1 ll (þessi kemur í stað fyrstu fl), * 4 ll, hoppið yfir 2 st, 1 fl í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn, en á 2 stöðum jafnt yfir er einungis hoppað yfir 1 st, endið á 4 ll og 1 kl í fyrstu ll í byrjun umf = 64 ll-bogar. Stykkið mælist nú ca 23 cm frá miðju og út, klippið frá. Heklið nú einungis yfir 19 ll-boga í hvorri hlið – þ.e.a.s. að ekki lengur er heklað yfir 13 ll-boga efst við hnakka 13 ll-bogar neðst á baki. Haldið áfram frá útskýringu undir framstykki fyrir neðan. STÆRÐ 10/12 ÁRA: UMFERÐ 11: Heklið 1 ll (þessi kemur í stað fyrstu fl), * 5 ll, 1 fl í næstu ll *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 1 kl í fyrstu ll í byrjun umf = 24 ll-bogar. UMFERÐ 12: Heklið 3 ll + 4 st um fyrsta ll-boga, síðan 5 st um hvern ll-boga umf hringinn = 120 st. UMFERÐ 13: Heklið 1 ll (þessi kemur í stað fyrstu fl), * 6 ll, hoppið yfir 4 st, 1 fl í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 6 ll og 1 kl í fyrstu ll í umf = 24 ll-bogar. UMFERÐ 14: Heklið 3 ll + 4 st um fyrsta ll-boga, * 1 ll, 5 st um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 1 ll og 1 kl í fyrstu ll í byrjun umf = 120 st (= 24 st-hópar). Stykkið mælist nú ca 16 cm frá miðju og út. UMFERÐ 15: Heklið 1 ll (þessi kemur í stað fyrstu fl), * 6 ll, 1 fl í næstu ll *, endurtakið frá *-* alls 6 sinnum, 27 ll (= handvegur), hoppið yfir 4 st-hópa, 1 fl í næstu ll, endurtakið frá *-* 10 sinnum, 27 ll (= handvegur), hoppið yfir síðustu 4 st-hópa, endið á 1 kl í fyrstu ll í byrjun umf. UMFERÐ 16: Heklið 3 ll + 5 st um fyrsta ll-boga, heklið nú 6 st um hvern af næstu 5 ll-bogum, í löngu ll-bogum fyrir handveg er heklað þannig: * Heklið 1 st í hverja af fyrstu 6 ll, hoppið yfir 1 ll *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, endið á 1 st í hverja af síðustu 6 ll, heklið nú 6 st um hvern af næstu 10 ll-bogum, þ.e.a.s. fram að næsta langa ll-boga fyrir handveg, heklið á sama hátt yfir þessa eins og yfir fyrstu löngu ll-boga, endið á 1 kl í 3. ll íbyrjun umf = 144 st. UMFERÐ 17-19: Heklið eins og útskýring í stærð 3/5 ára, eftir umf 19 eru 54 ll-bogar í umf. UMFERÐ 20-21: Heklið eins og útskýring í stærð 6/9 ára, eftir umf 21 eru 64 ll-bogar í umf. UMFERÐ 22: Heklið 3 ll + 3 st um fyrsta ll-boga, * 3 st um næsta ll-boga, 3 st um næsta ll-boga, 3 st um næsta ll-boga, 4 st um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-*, endið á 3 st um næsta ll-boga, síðan 4 st um hvorn af síðustu 2 ll-bogunum og 1 kl í 3. ll í byrjun umf = 210 st. UMFERÐ 23: Heklið 1 ll (þessi kemur í stað fyrstu fl), * 4 ll, hoppið yfir 2 st, 1 fl í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 4 ll og 1 kl í fyrstu ll í byrjun umf = 70 ll-bogar. UMFERÐ 24: Heklið 3 ll + 3 st um fyrsta ll-boga, * 3 st um næsta ll-boga, 3 st um næsta ll-boga, 3 st um næsta ll-boga, 3 st um næsta ll-boga, 4 st um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-*, endið á 3 st um hvern af síðustu 4 ll-bogum og 1 kl í 3. ll í byrjun umf = 224 st. UMFERÐ 25: Heklið 1 ll (þessi kemur í stað fyrstu fl), * 4 ll, hoppið yfir 2 st, 1 fl í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn, en á 2 stöðum jafnt yfir er hoppað yfir 3 st í stað 2, endið á 4 ll og 1 kl í fyrstu ll í byrjun umf = 74 ll-bogar. Stykkið mælist nú ca 27 cm frá miðju og út, klippið frá. Heklið nú einungis yfir 22 ll–boga í hvorri hlið – þ.e.a.s. að ekki er lengur heklað yfir 15 ll-boga efst við hnakka 15 ll-bogar neðst við bak. Haldið áfram frá útskýringu undir framstykki fyrir neðan. VINSTRA FRAMSTYKKI: = 17-19-22 ll-bogar. Haldið áfram þannig: UMFERÐ 1: Heklið 1 st í hverja fl (fyrsti st er skipt út fyrir 3 ll) og 3 st um hvern ll-boga – JAFNFRAMT eru heklaðir 5 fyrstu og 5 síðustu st í umf saman - sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 – (þ.e.a.s. að það verða 8 st færri í umf fyrir hvert skipti sem umf 1 er hekluð) = 61-69-81 st í umf. UMFERÐ 2: Heklið 5 ll (jafngilda 1 fl + 4 ll) upp frá fyrsta st (þ.e.a.s. þeir 5 st sem heklaðir voru saman), * hoppið yfir 3 st, 1 fl í næsta st, 4 ll *, endurtakið frá *-*, endið á 1 fl í síðasta st (þ.e.a.s. í þá 5 st sem heklaðir voru saman) = 15-17-20 ll-bogar í umf. Endurtakið umf 1 og 2 alls 4-4-5 sinnum (= ca 8-8-10 cm). Nú eru 9-11-12 ll-bogar eftir lengst út á framstykki. Klippið frá. HÆGRA FRAMSTYKKI: Heklið á sama hátt og vinstra framstykki, yfir 17-19-22 ll-boga í hægri hlið. ERMI: Stykkið er heklað fram og til baka og saumað saman í lokin. Heklið 30-34-37 lausar ll (meðtaldar 3 ll til að snúa við) með heklunál nr 5 með Paris. UMFERÐ 1: Heklið 1 st í 4. ll frá heklunálinni, 1 st í hverja af 5-2-5 næstu ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 st í hverja af næstu 6 ll *, endurtakið frá *-* út umf = 25-28-31 st. Snúið við. Heklið 1 umf með 1 st í hvern st til baka – fyrsta st er skipt út fyrir 3 ll. Haldið áfram með MYNSTUR -ERMI – sjá útskýringu að ofan! JAFNFRAMT þegar stykkið mælist ca 10 cm (stillið af að næsta umf sem hekluð er umf 2 í mynstri) aukið út 3 st jafnt yfir. Endurtakið útaukningu með ca 8.- 10.- 12 millibili 2 sinnum til viðbótar = 34-37-40 st alls í umf. ATH: Haldið uppi stykkinu þegar ermalengd er mátuð, annars verður ermin allt of löng í lokin. Þegar stykkið mælist ca 29-35-40 cm (stillið af að næsta umf sem hekluð er, er umf 1 í mynstri), fellið af í hvorri hlið fyrir ermakúpu þannig. Heklið kl yfir fyrstu 4 st, heklið nú ll-boga eins og áður (fyrsti ll-boginn er heklaður upp frá 4. kl sem hekluð var), þar til 3 st eru eftir, snúið við. Í næstu umf eru 4 fyrstu og 4 síðustu st heklaðir saman – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf 3 sinnum til viðbótar. Klippið frá, stykkið mælist ca 37-43-48 cm. Saumið ermasauma kant í kant, svo að saumurinn verði ekki of þykkur. FRÁGANGUR: Heklið 1 umf í kringum allt fram- og bakstykki þannig – byrjið frá miðju að aftan við hnakka með 1 fl um fyrsta ll-boga: * Heklið 1 picot (= 4 ll, 1 st í fyrstu ll), hoppið yfir ca 1½ cm, 1 fl *, endurtakið frá *-* í kringum allt stykkið, endið á 1 kl í fyrstu fl. Heklið alveg eins neðst niðri í kringum ermar. Saumið ermar í fram- og bakstykki – passið uppá að ermakúpan er saumuð efst í op fyrir handveg, þ.e.a.s. þar sem stysta bilið er á milli í handveg. Heklið loftlykkju umferðir ca 50 ll með heklunál nr 5 með Paris. Klippið frá og festið enda, loftlykkju umferðirnar eru notaðar til þess að hneppa peysunni við miðju að framan. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #lovelylilycardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 7 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 24-6
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.