Lilian skrifaði:
I will try doing this beautiful jacket eith colour blocking cause my stash think doesn't 14 or 16 balls in one colour.But first have to finish my Poncho! Cheerio
08.07.2022 - 18:52
Marcela Alicia Roge skrifaði:
Very clear explanations!!!! It came out just as instructions say. Beautiful pattern. Thanks a lot!!!
28.09.2020 - 11:51
Mrs Jennifer Allen skrifaði:
I do not understand instructions for neck shaping/decreasing. Can you help please? Regards
11.08.2017 - 19:55DROPS Design svaraði:
Hi Mrs Allen, If you are working the right front piece, at the right length you start decreasing for the neck by working the next to last 2 double crochets on the row (at the end towards mid front) together. There is a description of how to do this at the top of the pattern. Repeat this decrease on every row with double crochets the required number of times. I hope this helps and happy crocheting!
12.08.2017 - 08:07
Jann Van De Luitgaarden skrifaði:
U schrijft: Dat is de rij van vaste die je haakt in het patroon (toer 1 van het structuurpatroon) Dat doe ik al en daarna haak ik toer 2 van het patroon de 3 dubbele stokjes, maar het ziet er anders uit als op het patroon.
29.07.2015 - 15:05DROPS Design svaraði:
Beste Jann. Ik kan je helaas niet verder helpen dan dit. Ik heb nagekeken en het patroon bij mij komt overeen met wat ik op deze foto zie.
29.07.2015 - 15:07
Jann Van De Luitgaarden skrifaði:
Helaas is mijn vraag niet goed beantwoord, ik probeer het nogmaals uit te leggen . Op de foto in van het model zie je 3 dubbel gehaakte stokjes, daartussen een rij met dwars liggende v-tjes en daarna weer de stokjes. Als ik haak volgens het patroon komt er in mijn haakwerk geen rij met dwarsliggende v-tjes
29.07.2015 - 07:21DROPS Design svaraði:
Hoi Jann. Dat is de rij van vaste die je haakt in het patroon (toer 1 van het structuurpatroon)
29.07.2015 - 12:01
Jann Van De Luitgaarden skrifaði:
In het model DROPS Extra 0-918 lukt het mij niet om de rand met de v-tjes te haken. Ik haak volgens dit patroongedeelte: TRUCTUURPATROON: TOER 1 (= verkeerde kant): 1 v in elk dstk. TOER 2 (= goede kant): 1 dstk in elke v. Herhaal 1e en 2e toer.
28.07.2015 - 13:46DROPS Design svaraði:
Hoi Jann. De beschrijving voor de rand van het vest vind je onder AFWERKING: Haak 2 toeren met v langs de voorbiezen en langs de hals (haak ongeveer 3 v langs elk dstk en 1 v in elke v, dus ongeveer 16 v per 10 cm).
28.07.2015 - 15:33
Mr skrifaði:
Hei Jeg er nybegynner i hekling. Jeg har fullført høyre forsk på jakken. I oppskriften står det at keg skal hekle omvendt ved venstre forsk. Hvordan gjør jeg det. Det er tydelig forskjell på rett og vrang. Hvis jeg hekler vendte siden identisk som høyre og vender tøye så er det tydelig forskjell mellom den.
03.03.2015 - 18:17DROPS Design svaraði:
Hej, du hekler venstre forstk på samme måde men med udtagninger til ærme i modsat side. Starten er forklaret i opskriften. God fornøjelse!
25.05.2015 - 15:13
K. Coshof skrifaði:
In the section SLEEVE the pattern says to "insert a marker = mid on top of shoulder." Does this mean halfway between the neck edge and the start of the sleeve? Also, WHY? I don't understand at all. Second, in LEFT FRONT PIECE & SLEEVE you give instructions for working "in reverse", but why is this necessary? The piece is exactly the same as the right front/sleeve and can be worked the same way then turned so that it's the mirror-image of the right piece.
07.03.2014 - 16:30DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Coshof, you insert a marker on mid top of shoulder, piece will be then folded where markers are on each shoulder. Next 2 cm are then before neckline on back piece. Happy crocheting!
07.03.2014 - 16:54
Sand Storm |
|
|
|
Hekluð ermalaus peysa úr DROPS Cotton Light. Stærð S - XXXL.
DROPS Extra 0-918 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Fyrsta fl í hverri umf með fl er skipt út fyrir 1 ll. Fyrsti tbst í hverri umf með tbst er skipt út fyrir 4 ll. MYNSTUR MEÐ ÁFERÐ: UMFERÐ 1 (= ranga): Heklið 1 fl í hvern tbst. UMFERÐ 2 (= rétta): Heklið 1 tbst í hverja fl. Endurtakið umf 1og 2. 2 FL HEKLAÐAR SAMAN: Stingið heklunálinni í einn tbst, sækið þráðinn, stingið heklunálinni í næsta tbst, sækið þráðinn, bregðið þræðinum utan um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum 3 lykkjur á heklunálinni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fyrst er hægra framstykki heklað og aukið út fyrir ermi, síðan er vinstra framstykki heklað á sama hátt. Síðan eru bæði stykkin hekluð saman niður bakstykki. HÆGRA FRAMSTYKKI + ERMI: Heklið 38-42-46-50-55-60 lausar ll með heklunál nr 5 með Cotton Light. Heklið nú 1 fl í 2. ll frá heklunálinni og síðan 1 fl í hverja af næstu 6-4-2-6-5-4 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 fl í hverja af næstu 5 ll *, endurtakið frá *-* út umf 33-36-39-43-47-51 fl (fyrsta fl = 1 fl). LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Snúið við og heklið 1 tbst í hverja fl til baka. Haldið áfram með MYNSTUR MEÐ ÁFERÐ – sjá útskýringu að ofan! ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! ÚRTAKA Í HLIÐUM: Þegar stykkið mælist ca 10 cm, fellið af 1 l á hlið – fellið af í byrjun 1 umf með fl með því að hekla 2 næst síðustu fl saman – sjá 2 FL HEKLAÐAR SAMAN að ofan! Endurtakið úrtöku með ca 10 cm millibili 3 sinnum til viðbótar = 29-32-35-39-43-47 l í umf. LESIÐ BÆÐI ÚRTAKA FYRIR HÁLSMÁLI OG ERMI ÁÐUR EN HEKLAÐ ER ÁFRAM! ÚRTAKA FYRIR HÁLSMÁLI: Þegar stykkið mælist ca 42-44-45-47-49-50 cm, fellið af 1 l við miðju að framan – fellið af í lok 1 umf með fl með því að hekla 2 næst síðustu fl saman við miðju að framan. Endurtakið úrtöku í hverri umf með fl 6-6-6-7-7-8 sinnum til viðbótar. ERMI: Þegar stykkið mælist ca 44-45-46-47-48-49 cm, heklið 38-36-34-31-28-25 lausar ll (færri l í stærri stærðum vegna breiðari axla) í lok umf á hlið – passið uppá að þessi umf er hekluð frá réttu með tbst. Snúið við og heklið til baka þannig: Heklið 1 fl í 2. ll frá heklunálinni, 1 fl í hverja af þeim 6-4-2-5-2-5 næstu fl, * hoppið yfir 1 ll, 1 fl í hverja af næstu 5 ll *, endurtakið frá *-* yfir allar ll (= 33-31-29-27-24-22 fl), heklið nú fl út umf. Haldið áfram með mynstur með áferð eins og áður yfir allar l. Eftir að fitjað hefur verið upp fyrir ermi og öllum l hefur verið fækkað við hálsmáli eru 55-56-57-58-59-60 l í umf. Heklið áfram þar til stykkið mælist alls 70-72-74-76-78-80 cm, setjið 1 prjónamerki = miðja á öxl. Heklið ca 2 cm, endið eftir 1 umf með tbst, geymið stykkið. VINSTRA FRAMSTYKKI + ERMI: Heklið á sama hátt og hægra framstykki nema spegilmynd. Þ.e.a.s. þegar fitjað er upp fyrir ermi, verður að klippa þráðinn frá eftir 1 umf með fl þegar stykkið mælist ca 44-45-46-47-48-49 cm. Síðan er byrjað að hekla 38-36-34-31-28-25 lausar ll, til þess að hekla tbst yfir l á framstykki, snúið við og heklið fl til baka og yfir ll-umf á ermi er heklað þannig: * Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 5 ll, hoppið yfir 1 fl *, endurtakið frá *-* þar til 8-6-4-7-4-7 ll eru eftir, heklið 1 fl í hverja af þessum = 33-31-29-27-24-22 fl yfir ermi. Haldið áfram með mynstur með áferð og fellið af fyrir hálsmáli á sama hátt og hægri hlið þar til stykkið er jafn langt og hægra framstykki – teljið svo að heklað hefur verið jafn margar umf á báðum framstykkjum. BAKSTYKKI: UMFERÐ 1 (= ranga): Heklið fl yfir 55-56-57-58-59-60 tbst á hægra framstykki, heklið nú 14-14-14-16-16-18 lausar ll (= aftan við hnakka), áður en fl eru heklaðar yfir 55-56-57-58-59-60 tbst á vinstra framstykki. Snúið við og heklið 1 tbst í hverja fl og hverja ll við hnakka = 124-126-128-132-134-138 tbst alls í umf. Heklið nú mynstur með áferð eins og áður. Þegar stykkið mælist ca 25-26-27-28-29-30 cm frá prjónamerki á öxl, klippið frá. Nú hafa ermar verið heklaðar og ekki er lengur heklað yfir 33-31-29-27-24-22 l í hvorri hlið. Haldið áfram eins og áður yfir miðju 58-64-70-78-86-94 l. Nú hafa verið heklaðir ca 5-6-7-8-9-10 cm eftir úrtöku á ermum, aukið út 1 l í hvorri hlið með því að hekla 2 l í næst síðustu l í hvorri hlið. Endurtakið útaukningu með 10 cm millibili alls 3 sinnum til viðbótar = 66-72-78-86-94-102 l. Þegar stykkið mælist ca 70-72-74-76-78-80 cm – endið eftir 1 umf með fl – klippið frá. VASI: Heklið 24-24-24-26-26-26 lausar ll með heklunál nr 5. Snúið við og heklið 1 fl í 2. ll frá heklunálinni, haldið áfram með 1 fl í hverja ll. Haldið áfram með fl fram og til baka í öllum umf þar til vasinn mælist 16-16-16-17-17-17 cm, klippið frá. Heklið annan vasa á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið stykkið við prjónamerki á öxl, saumið hliðar- og ermasauma kant í kant yst í lykkjubogann. Heklið 2 umf með fl meðfram kanti og í kringum hálsmál (heklið ca 3 fl meðfram hverjum tbst og 1 fl í hverja fl, þ.e.a.s. ca 16 fl á 10 cm). Saumið vasann ca 5-6 cm frá neðri brún og ca 5-6 cm frá miðju að framan. Saumið efstu töluna í vinstri kant að framan í þeirri umf sem úrtaka fyrir hálsmáli byrjar – saumið í fyrstu umf sem hekluð var með fl meðfram kanti. aumið neðstu töluna aðeins fyrir ofan efri brún á vasanum og staðsetjið miðju töluna mitt á milli talna. Hneppið í gegnum lykkjur í hægri hlið. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 5 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-918
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.