Francesca Bennett skrifaði:
Hi can i substitute lima mix for karisma in pattern 0-898. Would i use 4 or 4.5 needles and how many balls would i need for an XL pattern (would bis be 42"?)
22.11.2019 - 18:50DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Bennett, since Karisma and Lima are both yarn group B you can use here Lima. Use our yarn converter to check the amount of yarn required for your size. Happy knitting!
25.11.2019 - 08:04
Anita Roos skrifaði:
Kan inte få till delen avseende falsk raglan o förstår att jag inte är ensam om detta snälla en förklaring som går förstå Anita Roos
10.10.2019 - 08:28DROPS Design svaraði:
Hej Anita, vi har en bra video som visar hur man gör :)
How to knit the false raglan in DROPS Extra 0-898 from Garnstudio Drops design on Vimeo.
10.10.2019 - 14:19
May skrifaði:
Hi, Is there chest measurements for the different sizes? I.e. size M to fit chest xx cm etc? I’m unsure which size pattern to follow in order for it to fit. Many thanks!
17.09.2019 - 03:26DROPS Design svaraði:
Hi May, You will find a sketch at the bottom of the page with measurements for the different sizes. Happy knitting!
17.09.2019 - 06:47
Susanne Mathiasen skrifaði:
Hej, Er det muligt at strikke trøjen på rundpind? Eller hvad er årsagen til, at den strikkes frem og tilbage?
25.08.2019 - 13:17DROPS Design svaraði:
Hej Susanne, Ja du må gerne strikke den på rundpind, da strikkes det patentstrikkede lidt anderledes, du finder instruktionsvideoer på hvordan man gør. God fornøjelse!
10.09.2019 - 14:50
Chisaco skrifaði:
Concerne le devant, taille M. A partir de 47 cm j'ai commencé le raglan comme pour le dos et si j'ai bien compris c'est à 60 cm que je dois rabattre les 21 m. centrales et ensuite chaque épaule séparément faisant les dim. côté encolure (directement après les 21 m.centrales ?) Et tout cela en continuant avec le raglan comme pour le dos (12x au total à partir des 47 cm raglan et 2 cm de côtes anglaises après les dernières aug. / dim. ? ) ? Merci pour votre réponse.
10.07.2019 - 11:55DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Chisaco, effectivement, à 60 cm de hauteur totale, vous glissez les 21 m centrales en attente pour l'encolure et continuez chaque épaule séparément comme avant (faux raglan) en rabattant côté encolure 2 x 2 m et 1 x 1 m. Quand vous avez fait les augmentations et diminutions du faux raglan 12 fois au total, tricotez 2 cm en côtes anglaises et rabattez à 70 cm de hauteur totale, comme pour le dos. Bon tricot!
10.07.2019 - 13:34
Shira'Adijana skrifaði:
Danke! Das sie strickmuster in übergrösse haben. Finde ich toll! 👍🏻
24.02.2019 - 21:47
Germana skrifaði:
Sera, ho guardato il video...il lato dove si inseriscono i segnapunti alla fine sembra essere il rovescio del lavoro....è cosi o sbaglio? perche se cosi fosse allora è giusto come mi viene.. grazie
14.12.2018 - 19:41DROPS Design svaraði:
Buonasera Germana. Il diritto del lavoro è il ferro su cui vengono spostate le coste. Buon lavoro!
16.12.2018 - 21:51
Germana skrifaði:
Salve ho un problema con il raglan....sto facendo una taglia xl sul dritto del lavoro ho 3 coste che vanno per sbieco mentre sul rovescio ne ho 2 come nel modello.....Mi sta sorgendo il dubbio che quello che penso sia il dritto in realtà e il rovescio....Aiutooo ho già smontato 2 volte il lavoro perché non riuscivo a farlo e ora che sembra ci sono riuscita mi è sorto questo dubbio....grazieeee
13.12.2018 - 20:28DROPS Design svaraði:
Buongiorno Germana. Provi a confrontare il suo lavoro con quello mostrato nel video sotto. Per ulteriori dubbi, può contattare via mail il suo rivenditore Drops di fiducia, allegando una foto del suo lavoro. Buon lavoro!
14.12.2018 - 13:16Tali skrifaði:
Hello, I knit the sweater now with Karisma yarn as recommended. What should be the best technique to use when changing yarns? Thanks a lot, Tali
26.09.2018 - 22:46DROPS Design svaraði:
Dear Tali, I personnally always change yarn/start a new ball at the beg of a row, so that you can use ends for sewing sides. Your DROPS store will have more tipps for you, do not hesitate to contact them - even per E-mail or telephone. Happy knitting!
27.09.2018 - 08:29
Carmen Baker skrifaði:
Wieso fange ich den falschen raglan beim Vorderteil nach 47cm,und beim Rückenteil nach 60 cm an?
27.03.2018 - 21:16DROPS Design svaraði:
Sie fangen das falsche Raglanmuster bei beiden Teilen bei 47 cm an - beim Rückenteil steht die Angabe 47 cm und beim Vorderteil stricken Sie ja bis zu einer Länge von 60 cm ebenso wie beim Rückenteil - also auch das falsche Raglanmuster ab 47 cm Länge.
28.03.2018 - 09:33
DROPS Extra 0-898 |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa fyrir herra í klukkuprjóni úr DROPS Karisma. Stærð S - XXXL
DROPS Extra 0-898 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MÆLING: Vegna þyngdar á garninu verður að gera öll mál þegar flíkinni er haldið uppi. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI (prjónað fram og til baka): UMFERÐ 1 (= ranga): 1 lykkja garðaprjón, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið, 1 lykkja slétt *, endurtakið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, endið með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eins og prjóna eigi brugðið, 1 lykkja garðaprjón. UMFERÐ 2 (= rétta): 1 lykkja garðaprjón, * prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, endurtakið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, 1 lykkja garðaprjón. UMFERÐ 3 (= frá röngu): 1 lykkja garðaprjón, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman *, endurtakið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, endið með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið, 1 lykkja garðaprjón. Endurtakið umferð 2 og 3. KLUKKUPRJÓNSLYKKJA: Þegar lykkjur eru taldar, er uppslátturinn ekki talin sem eigin lykkja. ÚTAUKNING (á við um ermi): Aukið er út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið á stykki. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, þ.e.a.s. prjónað er í aftari lykkjubogann í stað fremri. ATH: Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í klukkuprjón. AFFELLING: Þegar lykkjur eru felldar af er uppslátturinn og lyfta lykkjan prjónað slétt saman (= 1 lykkja slétt). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna til að fá pláss fyrir allar lykkjur. BAKSTYKKI: Fitjið upp 82-90-96-106-118-128 lykkjur á hringprjón 4,5 með DROPS Karisma. Prjónið frá réttu þannig: 1 kantlykkja, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-* og endið með 1 kantlykju. Kantlykkjur eru prjónaðar í GARÐAPRJÓN að loka máli – lesið útskýringu að ofan. Prjónið stroff svona í 6 cm – lesið MÆLING. Aukið út um 1 lykkju í lok síðustu umferðar í stroffi (síðasta umferð = frá réttu) = 83-91-97-107-119-129 lykkjur. Síðan er prjónað KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI með 1 kantlykkju í hvorri hlið – lesið útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 47-47-47-46-45-43 cm er prjónuð fölsk laskalína – 4 lykkjur klukkuprjón í hvorri hlið eiga að færast að hálsmáli. Í hægri hlið (frá réttu) er aukið út um 2 lykkjur á undan 4 lykkjum í klukkuprjóni og fækkað um 2 lykkjur á eftir 4 lykkjum í klukkuprjóni. Í vinstri hlið er fækkað um 2 lykkjur á undan 4 lykkjum í klukkuprjóni og aukið út um 2 lykkjur á eftir 4 lykkjum í klukkuprjóni. Lykkjufjöldinn á alltaf að vera sá sami. Þær 2 útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í klukkuprjón. Prjónað er frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, sláið 2 sinnum uppá prjóninn, setjið 1 merki í stykkið, prjónið 4 lykkjur klukkuprjón eins og áður (uppslátturinn er ekki talinn sem ný lykkja – lesið KLUKKUPRJÓNSLYKKJA), setjið 1 merki í stykkið, lyftið næsta uppslætti yfir lykkjuna (þannig að uppslátturinn kemur til með að liggja aftan við þessa lykkju, lyftið þessari lykkju af prjóni, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir, haldið áfram í klukkuprjóni þar til 7 lykkjur eru eftir í klukkuprjóni + 1 kantlykkju, prjónið næstu 3 lykkjur slétt saman, setjið 1 merki í stykkið, prjónið 4 lykkjur klukkuprjón eins og áður, setjið 1 merki í stykkið, sláið 2 sinnum uppá prjóninn, endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Í næstu umferð er nýi uppslátturinn prjónaður þannig: Í byrjun umferðar (séð frá röngu): 1 kantlykkja, prjónið brugðið í aftari liðinn á fyrri uppslætti, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið slétt í aftari liðinn á seinni uppslætti, haldið áfram í klukkuprjóni eins og áður. Í lok umferðar (séð frá röngu): 1 lykkja slétt í aftari liðinn á fyrri uppslætti, 1 lykkja brugðið í aftari liðinn á seinni uppslætti, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Prjónið 4 umferðir klukkuprjón yfir allar lykkjur. Í næstu umferð er prjónað klukkuprjón, JAFNFRAMT því sem aukið er út á undan fyrsta merki, fækkið lykkjum á eftir öðru merki, fækkið lykkjum á undan þriðja merki og aukið út á eftir fjórða merki eins og útskýrt er að ofan. Aukið er út og lykkjum fækkað síðan í 6. Hverri umferð alls 11-12-13-15-17-19 sinnum. Prjónið síðan áfram í klukkuprjóni í 2 cm á eftir síðustu úrtöku/útaukningu. Nú eru felldar af miðju 27-31-33-35-39-41 lykkjur – lesið AFFELLING = 28-30-32-36-40-44 lykkjur eftir á hvorri öxl. Hvor öxl er síðan prjónuð fyrir sig. Prjónið klukkuprjón í 2 cm, fellið af. Stykkið mælist alls ca 68-70-72-74-76-78 cm. Setjið 1 merki í hvora hlið á bakstykki 21-22-23-24-25-26 cm niður frá öxl. Merkin sýna hvar sauma á ermar í. FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og bakstykki þar til stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm. Haldið áfram með útaukningu og úrtökur í 6. hverri umferð, JAFNFRAMT eru lykkjur felldar af fyrir hálsmáli þannig: Setjið miðju 17-21-23-25-29-31 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli, síðan er hvor öxl prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram með mynstur og tilfærslu á lykkjum eins og áður, JAFNFRAM er fellt af fyrir hálsmáli í hverri umferð frá miðju að framan þannig: 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkja 1 sinni = 28-30-32-36-40-44 lykkjur eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 68-70-72-74-76-78 cm. Setjið 1 merki í hvora hlið á stykkinu 21-22-23-24-25-26 cm niður frá öxl. Merkin sýna hvar sauma á ermar í. ERMI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið laust upp 44-46-48-50-52-54 lykkjur með DROPS Karisma á hringprjón 4,5. Prjónið frá réttu þannig: 1 kantlykkja, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-* og endið með 1 kantlykkju. Kantlykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni að loka máli. Prjónið stroff í 6 cm – lesið MÆLING. Aukið út um 1 lykkju í lok síðustu umferðar í stroffi (síðasta umferð = frá réttu) = 45-47-49-51-53-55 lykkjur. Síðan er prjónað klukkuprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING að ofan. Endurtakið útaukningu með 3-2½-2½-2½-2-2 cm millibili 15-16-16-17-18-18 sinnum til viðbótar (alls 16-17-17-18-19-19 útaukningar) = 77-81-83-87-91-93 lykkjur. Þegar stykkið mælist 58-57-56-55-53-51 cm (ATH! Styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla) fellið af. FRÁGANGUR: Saumið saum undir ermum innan við 1 kantlykkju. Saumið ermar í niður að merki á fram- og bakstykki. Saumið hliðarsauma innan við kantlykkjur. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp ca 84-88-92-96-100-104 lykkjur (meðtaldar lykkjur af þræði) í kringum hálsmál á stuttan hringprjón 4,5. Prjónið stroff 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið í 3 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 18 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-898
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.