DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7656.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS Extra 0-897
DROPS design: Mynstur nr fa-231
Garnflokkur A + A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL – XXXL

GARN:
DROPS FABEL frá Garnstudio
300-350-400-400-450-500 g litur nr 800, natur/beige
300-350-400-400-450-500 g litur nr 804, blár/grár

Eða notið:
DROPS FLORA frá Garnstudio
300-350-400-400-450-500 g litur nr 07, beige
300-350-400-400-450-500 g litur nr 14, ísblár

TÖLUR:
DROPS TRÉTALA NR 520: 3 stykki í allar stærðir.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 5: Lengd 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4,5: Lengd 80 cm.

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni með 2 þráðum DROPS Fabel eða DROPS Flora = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7656.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

STUTTAR UMFERÐIR:
Prjónaðar eru stuttar umferðir í 5. hverjum cm á hæðina að loka máli þannig:
Prjónið 20 kantlykkjur að framan í garðaprjóni frá réttu, snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur til baka frá röngu.
Prjónið síðan garðaprjón yfir allar lykkjur eins og áður, snúið stykkinu og prjónið 20 kantlykkjur að framan í garðaprjóni frá röngu, snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur til baka frá réttu.
Prjónið síðan frá röngu yfir allar lykkjur eins og áður.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir 3 hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið fyrstu 4 lykkjur frá miðju að framan, fellið af næstu lykkju, sláið síðan 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt = gat.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
STÆRÐ S: 26, 33 og 40 cm.
STÆRÐ M: 27, 34 og 41 cm.
STÆRÐ L: 28, 35 og 42 cm.
STÆRÐ XL: 29, 36 og 43 cm.
STÆRÐ XXL: 30, 37 og 44 cm.
STÆRÐ XXXL: 31, 38 og 45 cm.
Það á að vera eftir 1 cm áður en fellt er af í kanti að framan.

ÚRTAKA (á við um úrtöku í hálsmáli mitt að framan):
Lykkjum er fækkað frá réttu innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Fækkið lykkjum á EFTIR 1 kantlykkju þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir.
Fækkið lykkjum á UNDAN 1 kantlykkju þannig: 2 lykkjur slétt saman.

ÚRTAKA:
Aukið er út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn til að koma í veg fyrir gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 205-217-229-249-269-289 lykkjur (meðtaldar 20 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 4,5 með 1 þræði í hvorum lit í DROPS Fabel eða DROPS Flora.
Prjónið stroff þannig (1. umferð = rétta): 20 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 20 lykkjur eru eftir, prjónið þessar kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið áfram með stroff og 20 kantlykkjur að framan í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 4 cm er skipt yfir á hringprjón 5, prjónið næstu umferð frá réttu þannig:
Prjónið fyrstu 20 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, sléttprjón yfir miðjulykkjur – jafnframt er fækkað um 1 lykkju, endið með 20 kantlykkjur að framan í garðaprjóni = 204-216-228-248-268-288 lykkjur á prjóni.
Haldið áfram í sléttprjóni með 20 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 5 cm eru prjónaðar STUTTAR UMFERÐIR – lesið útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 26-27-28-29-30-31 cm, fellið af fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – lesið útskýringu að ofan.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
LESTU 2 NÆSTU KAFLA ÁÐUR EN ÞÚ PRJÓNAR ÁFRAM!
Þegar stykkið mælist 41-42-43-44-45-46 cm setjið 1 merki 61-64-67-72-77-82 lykkjur inn frá hvorri hlið (= 82-88-94-104-114-124 lykkjur á milli merkja á bakstykki), látið merkin fylgja með í stykkinu.
Í byrjun á næstu 2 umferðum eru felldar fyrstu 19 lykkjurnar = 166-178-190-210-230-250 lykkjur eftir, setjið síðan 1 merki í byrjun og í lok umferðar (merkin sýna hvar byrja á að prjóna upp sjalkragann). Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju frá hálsmáli í hvorri hlið – lesið ÚRTAKA!
Endurtakið úrtöku í 4. hverri umferð 13-14-14-15-16-16 sinnum til viðbótar (alls 14-15-15-16-17-17 sinnum) – JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 47-48-49-50-51-52 cm fellið af 3 lykkjur hvoru megin við hvort prjónamerki = 6 lykkjur færri í hvorri hlið) fyrir handvegi. Nú skiptist stykkið og hvert stykki er prjónað til loka fyrir sig.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Haldið áfram í sléttprjóni og úrtöku fyrir hálsmáli mitt að framan – JAFNFRAMT er fellt af fyrir handvegi í byrjun hverrar umferðar frá réttu þannig: 3 lykkjur 0-0-0-1-1-1 sinnum, 2 lykkjur 0-1-1-1-3-4 sinnum og 1 lykkja 2-2-3-3-3-4 sinnum. Eftir alla úrtöku / affellingu eru 23-23-25-26-26-28 lykkjur eftir á öxl. Fellið af allar lykkjur þegar stykkið mælist 68-70-72-74-76-78 cm.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og vinstra framstykki, nema gagnstætt.

BAKSTYKKI:
= 76-82-88-98-108-118 lykkjur.
Haldið áfram í sléttprjóni jafnframt er fellt af fyrir handvegi í byrjun hverrar umferðar í hvorri hlið á sama hátt og á framstykki = 72-74-78-82-84-88 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm, fellið af miðju 22-24-24-26-28-28 lykkjur af fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Í byrjun næstu umferðar frá hálsmáli eru felldar af 2 lykkjur = 23-23-25-26-26-28 lykkjur eftir á öxl.
Fellið af þegar stykkið mælist 68-70-72-74-76-78 cm.

ERMI:
Ermin er prjónuð fram og til baka.
Fitjið upp 40-42-44-46-48-50 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 4,5 með 1 þræði í hvorum lit í DROPS Fabel eða DROPS Flora.
Prjónið stroff þannig (2. umferð = rétta): 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-* og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Þegar stykkið mælist 4 cm er skipt yfir á hringprjón 5, prjónið sléttprjón og 1 kantlykkju í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu með 3½-3½-3-2½-2½-2 cm millibili alls 11-11-13-14-15-16 sinnum (alls 12-12-14-15-16-17 sinnum) = 64-66-72-76-80-84 lykkjur. Þegar stykkið mælist 52-51-50-49-48-47 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengri ermakúpu og breiðari vídd á öxlum) fellið af fyrir ermakúpu í byrjun hverrar umferðar í hvorri hlið: 3 lykkjur 1-1-1-2-2-2 sinnum, 2 lykkjur 1-2-2-2-4-4 sinnum og 1 lykkja 1-2-2-3-3-4 sinnum. Fellið síðan af 2 lykkjur í hvorri hlið þar til stykkið mælist 61 cm, fellið síðan af 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið. Fellið af allar lykkjur, stykkið mælist ca 62 cm í öllum stærðum.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið ermar í og saumið ermasauma innan við 1 kantlykkju.

SJALKRAGI:
Stykkið er prjónað fram og til baka.
Prjónið upp lykkjur innan við 1 kantlykkju á hringprjón 4,5 með 1 þræði í hvorum lit í DROPS Fabel eða DROPS Flora þannig:
Byrjið mitt að framan við merki í hægra framstykki, prjónið upp ca 60 til 70 lykkjur upp að öxl, síðan ca 40 til 50 lykkjur í kringum hnakka og ca 60 til 70 lykkjur meðfram vinstra framstykki niður að merki = ca 160 til 190 lykkjur.
Prjónið 1 umferð slétt frá röngu – JAFNFRAMT þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður út til 153-159-163-169-175-181 lykkjur.
Í næstu umferð frá réttu er prjónað stroff þannig: 1 lykkja garðaprjón, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-* og endið með 1 lykkju slétt og 1 lykkju garðaprjón.
Haldið áfram með stroff þar til kraginn mælist ca 6 cm.
Í næstu umferð frá réttu er aukið út um 1 lykkju brugðið í hverri af miðju 12-13-13-14-13-14 brugðnu einingunum (= aftan í hnakka) = 165-172-176-183-188-195 lykkjur.
Haldið áfram með stroff þar til kraginn mælist ca 10 cm (endið með 1 umferð frá réttu).
Prjónið 3 umferðir slétt yfir allar lykkjur, fellið síðan laust af með sléttum lykkjum frá réttu. Saumið kragann niður neðst niðri í hvorri hlið við kant að framan – saumið kant í kant svo saumurinn verði ekki þykkur. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

VASI:
Fitjið upp 30 lykkjur með 1 þræði í hvorum lit í DROPS Fabel eða DROPS Flora á prjón 5, prjónið sléttprjón þar til vasinn mælist 16 cm.
Skiptið yfir í prjón 4,5 og prjónið stroff þannig: * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-*. Prjónið stroff þar til vasinn mælist 18 cm, fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Prjónið annan vasa til viðbótar á sama hátt. Saumið vasana niður á peysuna við kant að framan mitt að framan og niður að stroffi neðst niðri.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-897

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (29)

country flag Lena Ask wrote:

Hei! I oppskriften står det at jeg skal hente opp masker til kragen innenfor kantmasken, mens i videoen benyttes selve kantmasken. Hvilken er riktig?

29.01.2024 - 13:47

DROPS Design answered:

Hei Lena, Det som står i teksten gjelder for denne oppskriften. Videoene er for å vise teknikk og er ikke alltid det samme som står i oppskriften. God fornøyelse!

30.01.2024 - 06:48

country flag Emilie wrote:

Bonjour, pour la fin des manches, quand vous dites de rabattre 2m de chaque côté jusqu'à ce que la manche mesure 61cm, vous voulez dire 4m rabattues par rang (2m au début et 2m à la fin) ou alors 2m rabattues au début de chaque rang ? car j'ai l'impression qu'avec 4m rabattues par rang je me suis trompée... Merci d'avance pour votre aide ! :)

19.03.2023 - 15:07

DROPS Design answered:

Bonjour Emilie, on veut bien dire 2 mailles de chaque côté, autrement dit rabattez 2 mailles au début du rang suivant sur l'endroit, 2 mailles au début du rang suivant sur l'envers et répétez ces 2 rangs jusqu'à ce que la manche mesure 61 cm (il faut bien avoir rabattu le même nombre de mailles de chaque côté, ajustez si besoin un peu avant ou un peu après les 61 cm). Bon tricot!

20.03.2023 - 09:37

country flag Helene wrote:

Bonjour,lorsque je monte les mailles,vous dites monté 289 est ce que je dois faire + 2×20......ou si le 2×20 est inclut dans le 289?

10.03.2023 - 00:49

DROPS Design answered:

Bonjour Hélène, les 20 mailles de bordure devant sont comptées dans ces 289 mailles, vous n'avez pas à les monter en plus. Bon tricot!

10.03.2023 - 09:49

country flag Majken Bresson Pedersen wrote:

Hej Udtagningen i nakken på sjalskraven forstår jeg ikke. Hvad er et vr-parti? Skal man efter udtagning i nakken strikke 1 ret og 2 vrang? Mh Majken

21.04.2022 - 09:52

DROPS Design answered:

Hej Majken, ja det stemmer du strikker 1 ret og 2 vrang i de midterste masker bag i nakken :)

22.04.2022 - 12:42

country flag Irene wrote:

Thank you for the reply. I would like to say that a "section" implies more than one or a group of something. P is a stitch, just one. I would like to suggest saying "in the middle 12(13) or(14) sts convert to K1P2". Finish row with K1P1. I hope it helps others.

24.12.2021 - 12:55

country flag Irene wrote:

I solved the yarn shortage. I desperately want to finish the collar. Can you explain how to do the increases in the back of the neck? What are "On next row from RS inc 1 P st in each of the middle 12-13-13-14-13-14 P-sections " . What are P sections?

20.12.2021 - 14:43

DROPS Design answered:

Dear Irene, you are working collar in rib K1/P1, where P1 is a P-section, you will increase in the middle 12-13-13-14-13-14 sections of the collar (to make the collar fold nicely), this means you will continue with K1/P1 (seen from RS) over the first stitches before the 12-13-14 P-sections on mid back, then work K1/P2 a total of 12-13-14 times (along mid-back) and finish with K1/P1 to the bottom edge. Happy knitting!

20.12.2021 - 14:58

country flag Irene Golden wrote:

It appears I may run out of yarn to finish. I am at the point where I'll start the sleeves. I'm using Hayfield Journey in Silver Storm. What do you suggest?

26.11.2021 - 16:48

DROPS Design answered:

Dear Irene, please understand that these patterns are made available to support DROPS yarns, therefore we cannot advise you about yarns from other brands. Happy Stiching!

28.11.2021 - 00:24

country flag Irene Golden wrote:

"On the beg of the next 2 rows, bind off the first 19 sts = 166-178-190-210-230-250 sts remain, then insert 1 marker at beg and end of row (marks where to start knitting up the collar). On next row from RS, dec 1 st from neck in each side - " Please explain where to bind off. Can't be the beginning of row-there is a border.

23.10.2021 - 15:32

DROPS Design answered:

Dear Irene, yes, cou binding off the stitches of the button band. (If you look at the picture and the drawing, you can see that the shawlcollar if knitted separately and sewn to the band later. Happy stitching!

24.10.2021 - 03:07

country flag Irene wrote:

Please explain exactly where to bind off the 19 sts. Certainly you can't mean at the beginning of the garter sts. I placed markers 72 sts inside from edge each row.

23.10.2021 - 15:08

country flag Irene Golden wrote:

I want to substitute Drops Air with 167 yds. How many balls do I need?

10.07.2021 - 03:59

DROPS Design answered:

Dear Irene, to calculate the amount of substitute yarns, use our yarn converter HERE. Happy Stitching!

11.07.2021 - 06:30