DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24
DROPS Extra 0-896
DROPS Design: Mynstur nr fa-230
Garnflokkur A + A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL – XXXL

GARN:
DROPS FABEL frá Garnstudio
350-350-400-450-500-550 g litur nr 604, yfir hafið

Og einnig:
DROPS BABY ALPACA SILK frá Garnstudio
150-200-200-200-250-250 g litur nr 6235, grá blár
150-200-200-200-250-250 g litur nr 7402, ljós sægrænn
100-100-100-100-150-150 g litur nr 1306, púður
50-50-50-50-50-50 g litur nr 7219, pistasía

TÖLUR:
DROPS DUFFELTALA, NR 520: 2-2-2-3-3-3 stykki.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 5: Lengd 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4,5: Lengd 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir) = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

RENDUR FRAM- OG BAKSTYKKI (F= Fabel og BS= Baby Alpaca Silk):
Prjónið 14-15-15-16-16-17 cm (meðtalið stroff) með 1 þræði F + 1 þræði í litnum púður BS, prjónið A.3 (= ca 3½ cm), prjónið 14-14-15-15-16-16 cm með 1 þræði F + 1 þræði í litnum ljós sægrænn BS, prjónið A.3 (= ca 3½ cm), prjónið síðan með 1 þræði F + 1 þræði í litnum gráblár BS að loka máli.

RENDUR ERMI:
Prjónið 14-13-12-14-12-13 cm (meðtalið stroff) með 1 þræði F + 1 þræði í litnum púður BS, prjónið A.1 (= ca 3½ cm), prjónið 12-12-12-11-11-10 cm með 1 þræði F + 1 þræði í litnum pistasía BS, prjónið A.2 (= ca 3½ cm), prjónið 12-12-12-11-11-10 cm með 1 þræði F + 1 þræði í litnum ljós sægrænn BS, prjónið A.3 (= ca 3½ cm), prjónið síðan með 1 þræði F + 1 þræði í litnum gráblár BS að loka máli.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 185-203-221-239-257-287 lykkjur (1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 4,5 með 1 þræði Fabel + 1 þræði í litnum púður Baby Alpaca Silk (= 2 þræðir).
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, * 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir og endið með 3 lykkjur slétt, 1 kantlykkja í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með stroff. Þegar stykkið mælist 6 cm er prjónuð 1 umferð slétt frá réttu JAFNFRAMT er fækkað um 41-47-49-55-61-67 lykkjur jafnt yfir = 144-156-172-184-196-220 lykkjur.
Setjið 1 merki 31-34-38-40-42-48 lykkjur inn frá hvorri hlið (= 82-88-96-104-112-124 lykkjur á milli merkja á bakstykki).
Skiptið yfir á hringprjón 5 og haldið áfram í sléttprjóni og RENDUR FRAM- OG BAKSTYKKI – lesið útskýringu að ofan, en ystu lykkjur í hvorri hlið eru prjónaðar slétt í hverri umferð (= kantlykkja).
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 47-48-49-50-51-52 cm prjónið næstu umferð þannig: Prjónið 30-33-37-39-41-47 lykkjur (= framstykki), fellið af 2 lykkjur fyrir handveg, prjónið 80-86-94-102-110-122 lykkjur (= bakstykki), fellið af 2 lykkjur fyrir handveg og prjónið síðustu 30-33-37-39-41-47 lykkjur (= framstykki). Hvert stykki er nú prjónað fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 80-86-94-102-110-122 lykkjur.
Haldið áfram í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm. Í næstu umferð eru felldar af miðju 18-18-18-22-26-26 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fækkið síðan um 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 30-33-37-39-41-47 lykkjur eftir á öxl.
Fellið laust af allar lykkjur þegar stykkið mælist 68-70-72-74-76-78 cm. Endurtakið á hinni öxlinni.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
= 30-33-37-39-41-47 lykkjur.
Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 68-70-72-74-76-78 cm, fellið laust af allar lykkjur.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og hægra framstykki.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 42-48-48-48-54-54 lykkjur á sokkaprjóna 4,5 með 1 þræði DROPS Fabel + 1 þræði í litnum púður í DROPS Baby Alpaca Silk (= 2 þræðir).
Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff (= 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið).
Þegar stroffið mælist 6 cm er skipt yfir á sokkaprjón 5.
Prjónið sléttprjón og RENDUR ERMI – lesið útskýringu að ofan, JAFNFRAMT er fækkað um 2-8-6-6-10-10 lykkjur jafnt yfir í 1. umferð = 40-40-42-42-44-44 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 7-7-7-7-7-8 cm aukið út 2 lykkjur mitt undir ermi. Endurtakið útaukningu í stærð S: Í 7. hverri umferð, í stærð M: Til skiptis í 6. og 7. hverri umferð, í stærð L: Í 6. hverri umferð, í stærð XL + XXL: Í 5. hverri umferð og í stærð XXXL: Í 4. hverri umferð, 15-16-17-19-19-21 sinnum til viðbótar (= alls 16-17-18-20-20-22 útaukningar) = 72-74-78-82-84-88 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 58-57-56-55-53-51 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla). Nú eru felldar af 5 lykkjur í byrjun 2 næstu umferða áður en allar lykkjur eru felldar laust af.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið ermar í.

VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Prjónað er fram og til baka á hringprjóna.
Byrjið frá miðju aftan í hnakka, prjónið upp frá réttu ca 130 til 150 lykkjur innan við 1 kantlykkju í kringum hálsmál og niður meðfram vinstra framstykki á hringprjón 4,5 með 1 þræði DROPS Fabel + 1 þræði í litnum ljós sægrænn DROPS Baby Alpaca Silk (= 2 þræðir).
Í næstu umferð (= ranga) eru prjónað brugðið JAFNFRAMT því sem aukið er út jafnt yfir til 179-185-191-197-203-209 lykkjur (deilanlegt með 6 + 5).
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja garðaprjón, 1 lykkja slétt, * 3 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt *, endurtakið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir og endið með 3 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram með stroff þar til kantur að framan mælist 8-8-8-9-10-10 cm.
Setjið 1 merki frá réttu eftir fyrstu 38-38-38-44-44-44 lykkjur á prjóni. Nú er aukið út um 1 lykkju í hverri brugðinni einingu (séð frá réttu) yfir 38-38-38-44-44-44 lykkjur = 6-6-6-7-7-7 nýjar lykkjur í hnakka. Endurtakið útaukningu þegar kantur að framan mælist 10-10-10-11-11-11 cm = 191-197-203-211-217-223 lykkjur. Þegar kantur að framan mælist 12-12-12-14-16-16 cm fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Prjónið upp ca 130 til 150 lykkjur meðfram hægra framstykki frá uppfitjunarkanti og að miðju að aftan í hnakka. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu og aukið út jafnt yfir á sama hátt og á vinstri kanti að framan. Prjónið síðan næstu umferð frá réttu þannig: 3 lykkjur garðaprjón, * 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir og endið með 1 lykkju slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni mitt aftan í hnakka. Prjónið og aukið út í hnakka á sama hátt og á vinstri kanti að framan. Þegar kantur að framan mælist 10-10-10-12-14-14 cm fellið af fyrir 2-2-2-3-3-3 hnappagötum.
1 hnappagat = prjónið 2 lykkjur slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn (fallegast er að fella af í brugðinni einingu séð frá réttu). Efsta hnappagatið á að vera staðsett ca 36-38-40-42-44-46 cm frá öxl og það eiga að vera ca 7-10 cm á milli hnappagata.
Fellið af þegar kantur að framan mælist 12-12-12-14-16-16 cm.

FRÁGANGUR:
Saumið kanta að framan saman mitt aftan í hnakka innan við 1 kantlykkju. Saumið tölur í.

Mynstur

symbols = 1 þráður F + 1 þráður í litnum púður BS
symbols = 1 þráður F + 1 þráður í litnum pistasía BS
symbols = 1 þráður F + 1 þráður í litnum sægrænn BS
symbols = 1 þráður F + 1 þráður í litnum gráblár BS
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-896

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (7)

country flag Jolanda wrote:

Warum muss ich nach dem bord so viele Maschen abnehmen. Und wie nehme ich diese am besten ab???

31.10.2023 - 17:19

DROPS Design answered:

Liebe Jolanda, man braucht mehr Maschen für die Bündchen mit den kleineren Nadeln als für Glattrechts mit den grösseren Nadeln, deshalb wird man abnehmen. Hier wird es erklärt, wie man regelmäßig verteilt abnimmt (2 Maschen rechts zusammen). Viel Spaß beim stricken!

01.11.2023 - 14:47

country flag Eleen wrote:

Sooviksin uurida et mis suurust kannab modell pildil? Küsin, et paremini suurust otsustada, kuna pildil paistab see kampsun pigem ebaharilikult madala õla joonega ja ka päris pika hõlmaga. Mõõtude järgi on päris keeruline suuruse kohta otsustada. Ette tänades!

26.01.2022 - 18:55

DROPS Design answered:

Tere Eleen! Vaadake mõõtudega joonist juhendi lõpus. Vajadusel võrrelge mõõte olemasolevate riietega, et aidata suurust valida. Loodetavasti on abiks!

26.01.2022 - 23:37

country flag Jeanette Damgaard wrote:

Hvis jeg skal skifte garnet om til noget, der kun skal bruges 1 tråd af, skal jeg så kigge i garngruppe B?

31.10.2020 - 17:19

DROPS Design answered:

Hei Jeanette. Nei, ikke garngruppe B, men garngruppe C. DROPS Fabel og DROPS Baby Merino tilhører garngruppe A. Bruker du 2 tråder fra garngruppe A, blir det det samme som 1 tråd fra garngruppe C. mvh DROPS deisgn

02.11.2020 - 13:07

country flag Helena Nilsson wrote:

Hej. Tänkte sticka denna kofta till min make men det finns endast beskrivning till 3XL men ha har storlek 7XL. Har ni någon beskrivning med denna storlek? Finns ju faktiskt människor som är lite större som också behöver koftor. Kan ni annars hjälpa mig att räkna ut så beskrivningen kan användas till storlek 7XL ? Tack i förhand. Med vänlig hälsning Helena

25.03.2019 - 00:25

DROPS Design answered:

Hej. Vi har dessvärre inget mönster i storlek 7XL och vi har ingen möjlighet att göra extra beräkningar på andra storlekar än de som redan finns i mönstret eftersom det skulle bli alltför resurskrävande, hoppas du har förståelse för detta. Mvh DROPS Design

25.03.2019 - 11:34

country flag Ivana wrote:

Buongiorno, nella spiegazione viene consigliato di avviare un certo numero di maglie e poi, a fine bordo, di effettuare una notevole diminuzione e ridurre il numero del ferro. Vorrei sapere se questa diminuzione è dovuta al tipo di lana o se il bordo 3d-3r necessita di più morbidezza. Perchè per il lavoro userò della lana Big Delight Print e altra Nepal (che vorrei usare per i bordi). Grazie, Ivana

15.04.2018 - 11:38

DROPS Design answered:

Buongiorno Ivana. Le diminuzioni sono dovute al fatto che le coste 3 dir / 3 rov stringono molto il lavoro e lasciare lo stesso numero di m lavorate con ferri di misura maggiore renderebbe il capo troppo largo. Buon lavoro!

15.04.2018 - 17:38

country flag Bente Poulsen wrote:

Hej Hvad er brystmålene for denne trøje, kan kun se størrelser i opskriften med venlig hilsen Bente

21.05.2013 - 13:55

country flag Patricia wrote:

Kan dit ook als dames model vindt het wel mooi

23.02.2013 - 16:55

DROPS Design answered:

Wij hebben soortgelijke damesmodellen in onze database. Probeer te zoeken in onze database.

27.02.2013 - 17:15