DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10890.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS Extra 0-899
DROPS Design: Mynstur nr z-641
Garnflokkur A+A eða C
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL – XXXL

GARN:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
350-400-450-500-550-550 g litur nr 100, natur
200-200-200-250-300-300 g litur nr 6205, ljós blár

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 5: Lengd 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: Lengd 40 cm og 80 cm.

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni með 2 þráðum = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10890.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

STROFF:
* 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-*.

ÚRTAKA:
Lykkjum er fækkað innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum á undan kantlykkju þannig: 2 lykkjur slétt saman.
Fækkið lykkjum á eftir kantlykkju þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna með 2 þráðum Alpaca.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 94-98-106-118-130-142 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) með 2 þráðum í litnum natur DROPS Alpaca með hringprjóna 4.
Prjónið STROFF – lesið útskýringu að ofan – í 5 cm.
Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið 1 umferð slétt frá réttu, JAFNFRAMT er fækkað um 16-14-16-18-22-24 lykkjur jafnt yfir = 78-84-90-100-108-118 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið).
Haldið áfram í sléttprjóni.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Aukið út 1 lykkju í hvorri hlið þegar stykkið mælist 15-16-10-16-17-18 cm, endurtakið útaukningu með 10-10-9-11-11-11 cm millibili 2-2-3-2-2-2 sinnum til viðbótar (alls 3-3-4-3-3-3 sinnum) = 84-90-98-106-114-124 lykkjur. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 38-38-38-39-39-40 cm, skiptið yfir í 1 þráð í litnum ljós blár og 1 þráð í litnum natur.
Þegar stykkið mælist 45-46-47-48-49-50 cm, fitjið upp 2 nýjar lykkjur í lok næstu 2 umferða = 88-94-102-110-118-128 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 48-48-49-50-50-52 cm og haldið áfram með 2 þræði í litnum ljós blár.
Þegar stykkið mælist 60-62-63-65-66-68 cm fellið af miðju 14-14-16-16-18-18 lykkjur af fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig (=37-40-43-47-50-55 lykkjur á hvorri öxl). Fellið síðan af lykkjur í hverri umferð frá hálsmáli þannig: 2 lykkjur 2 sinnum, 1 lykkja 3 sinnum.
Þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm fellið af 8-9-10-11-12-14 lykkjur fyrir skáhallandi öxl í byrjun næstu umferðar frá handveg 2 sinnum. Í næstu umferð eru þær lykkjur sem eftir eru felldar af (= 14-15-16-18-19-20 m).
Stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm lengst út frá öxl og niður.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið á sama hátt og framstykki.
Þegar stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm fellið af miðju 26-26-28-28-30-30 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli.
Þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm fellið af 8-9-10-11-12-14 lykkjur fyrir skáhallandi öxl í hvorri hlið í byrjun næstu umferðar frá handveg 2 sinnum. Í næstu umferð eru felldar af þær lykkjur sem eftir eru (=14-15-16-18-19-20 m).
Stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm lengst út frá öxl og niður.

ERMI:
Stykkið er prjónað fram og til baka.
Fitjið upp 54-58-62-62-66-66 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorir hlið) með 2 þráðum í litnum natur DROPS Alpaca á hringprjón 4.
Prjónið STROFF – lesið útskýringu að ofan – í 6 cm.
Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið sléttprjón JAFNFRAMT því sem lykkjufjöldinn er fækkaður til 44-48-50-52-54-56 lykkjur. Þegar stykkið mælist 9-8-10-9-9-10 cm aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið. Endurtakið útaukningu með 4-4-3,5-3,5-3-2,5 cm millibili 11-11-12-12-13-14 sinnum til viðbótar = 68-72-76-78-82-86 lykkjur. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 47-47-46-45-44-42 cm skiptið yfir í 1 þráði í litnum ljós blár og 1 þráð í litnum natur. Þegar stykkið mælist 55-54-53-51-50-47 cm – ATH! Styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla – fellið af fyrir handveg í byrjun hverrar umferðar þannig: 5 lykkjur 3 sinnum í hvorri hlið. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru þegar stykkið mælist 58-57-56-54-53-50 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við 1 kantlykkju. Saumið ermar í, saumið erma- og hliðarsauma innan við 1 kantlykkju.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna.
Prjónið upp 90-110 lykkjur í kringum hálsmál með 2 þráðum í litnum ljós blár á hringprjón 4.
Skiptið yfir í 2 þræði í litnum natur og prjónið 1 umferð slétt – JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður út til 96-96-100-100-104-104 lykkjur.
Prjónið 1 umferð brugðið og 1 umferð slétt. Prjónið síðan STROFF – lesið útskýringu að ofan – þar til kantur í hálsmáli mælist 2,5 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-899

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (74)

country flag Magda wrote:

W opisie przodu i tyłu nie widzę spuszczania oczek na podkroj pachy a na schemacie jest wyraźny podkroj. Czy przypadkiem na wys 45 cm w rozmiarze s gdzie mowa o dodaniu 2 oczek nie chodzi o ich spuszczenie?

05.04.2024 - 20:58

DROPS Design answered:

Witaj Magdo, wydaje mi się, że masz rację. Ta zmiana pociągnie kolejne, dlatego zgłosiłam już problem do sprawdzenia. Jak tylko zostanie to zweryfikowane, zostanie naniesiona korekta do wzoru. Bardzo dziękujemy i pozdrawiamy!

08.04.2024 - 08:44

country flag Karine wrote:

Hei, jeg er bittelitt usikker på hvordan jeg skal gjøre denne biten, kan dere forklare det til en som ikke er kjempe erfaren?\r\n\"skulder). Videre felles det på hver p fra halsen slik: 2 m 2 ggr, 1 m 3 ggr. Når arb måler 66-68-70-72-74-76 cm felles det av 8-9-10-11-12-14 m til skrå skulder på beg av neste p fra ermhull 2 ggr. På neste p felles de resterende m av (= 14-15-16-18-19-20 m). Arb måler 66-68-70-72-74-76 cm ytterst på skulderen og ned.\"

21.03.2024 - 21:24

DROPS Design answered:

Hej Karine, når du vender første gang ved halsen, starter du med at felle 2 masker, det gør du også næste gang du strikker fra halsen. 3.gang du strikker fra halsen lukker du kun 1m og det gør du ialt 3 gange :)

03.04.2024 - 14:16

country flag Karin wrote:

In het patroon kan ik nergens vinden hoe veel steken ik in het voor- en achterpand moet afkanten voor de mouw. Alvast bedankt voor uw antwoord.

24.02.2024 - 13:20

DROPS Design answered:

Dag Karin,

In dit patroon kant je geen steken af voor de armgaten, maar je zet steken op aan het einde van de naald om een zgn verlaagd armsgat te maken.

25.02.2024 - 10:29

country flag Elisabeth Westerlund wrote:

Garnpriset till denna modell, Blue Horizon, ska vara 204 kr för minsta storleken. Jag får det till 385 kr. Räknar jag fel, eller….? Mvh Elisabeth Westerlund

07.11.2023 - 22:19

DROPS Design answered:

Hej Elisabeth, det er en fejl - det er rettet - tak for info!

09.11.2023 - 15:42

country flag Aitameur wrote:

Bonjour Je dois faire des diminutions d3s MANCHES apres les Cotes de 62 a 50 mailles...sauf que ca dis pas combien de diminution pour calculer et repartir les diminutions ...merci de me le preciser ...merci encore pour tout vos beaux modèles.

18.09.2023 - 23:35

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Aitameur, vous devez donc diminuer 12 mailles à intervalles réguliers au tour suivant; dans cette leçon, nous expliquons comment répartir des diminutions (ou des augmentations), vous saurez ainsi comment les placer. Bon tricot!

19.09.2023 - 09:26

country flag Anna wrote:

Hello! I’d like to knit this with yarn from yarn group C, but I’m a bit confused about how to do the gradient section without holding two strands together (as I would with yarn group A). What would you recommend ?

13.09.2023 - 16:31

DROPS Design answered:

Dear Anna, with 1 strand yarn group C you won't get the same effect with colours as you will work with only one colour, but you can choose 3 different colours that can create such a nice effect. Feel free to ask your DROPS store for any further assistance choose the best matching colours, they will be able to help even per mail or telephone. Happy knitting!

14.09.2023 - 09:36

country flag Jack wrote:

For the increases in the sleeve in the XL size, is the first increase at 9cm and then an additional 12 increases after this (13 in total)? If it is just 12 increases with the final increase at 47.5cm, this brings the stitch count to 76 not 78. If the final increase is at 51cm, this is when the deceases for the sleeve cap begin?

07.09.2023 - 13:24

DROPS Design answered:

Dear Jack, ah oops you are right, you should increase 13 times and not 12 as explained in the previous answer, you might then have to increase more often to get the correct length, it should work with 3 cm between each increase - I'll report this to our design team, thanks for noticing. Happy knitting!

07.09.2023 - 17:06

country flag Jack wrote:

Does the sleeve measure 54cm including the 6cm cuff? Also, the last increase for the sleeve is at 51cm but this is when the decreases for the cap start. How does this work?

06.09.2023 - 22:58

DROPS Design answered:

Dear Jack, in 4th size you increase the first time after 9 cm, then 12,5 cm, 16 cm, 19,5 cm ... 12th increase will be worked after 47,5 cm, so 3,5 cm before the 51 cm. Measure piece from cast on edge (including the 54 cm). Happy knitting!

07.09.2023 - 09:14

country flag Lola wrote:

Hola de nuevo! Igual me estoy precipitando pq aún no he empezado las mangas pero no me cuadra que las mangas acaben con el color azul-blanco y no con azul-azul dado por la unión con las terminaciones del hombro. ¿Confío en el proceso? Gracias! ❤️

15.08.2023 - 13:30

DROPS Design answered:

Hola Lola, la manga es bastante baja en este modelo. La unión entre el hombro y la manga se da justo en el borde entre la región azul-azul (en el hombro) y la región azul-blanco (de la manga). El patrón está correcto.

20.08.2023 - 19:13

country flag Lola wrote:

Hola, estoy teniendo problemas con los hombros. He tejido así (talla L): 63cm Los hombros a partir del remate del cuello (43pt en cada lado): 1v: (r) 2pj×2 al final de la hilera = 41 2v: (d) 2pj×2 al principio de la hilera = 39 3v: (r) 2pj al final =38 4v: (d) 2pj al principio = 37 5v: (r) 2pj al final= 36 Ahora pone que tengo que seguir tejiendo hst q mida 70cm y luego en las últ 3 hileras rem 10pts, 10 y 16 😥. ¿Cómo lo hago? No lo entiendo. Gracias!

15.08.2023 - 13:27

DROPS Design answered:

Hola Lola, en la 1ª fila que comienza desde el escote cierras 2 pts al inicio de la fila. En la siguiente fila trabajas normal de vuelta. En la 3ª fila (desde el escote) cierras 2 pts al inicio de la fila. Trabaja de vuelta la siguiente fila. En la 5ª (y en la 7ª y 9ª) fila cierras solo 1 pt al inicio de la fila. Las otras filas se trabajan de vuelta. Deberías tener 36 pts. Trabaja en pt jersey hasta que la labor mida 70cm. En la siguiente fila que comienza desde la sisa cierra 10 pts al inicio de la fila. Trabaja la siguiente fila de vuelta. En la siguiente fila desde la sisa cierra 10 pts más al inicio de la fila. En la última fila cierra los 16 pts restantes.

20.08.2023 - 19:09