Wilma Tackett skrifaði:
Why does this pattern need buttons on the side? is this necessary?
22.04.2014 - 18:16DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Tacket, the dress is close-fitting, opening for buttons will help to put it on/out. Happy knitting!
23.04.2014 - 09:04Petra Berková skrifaði:
Dobrý den, bude někdy tento návod v češtině? Jinak super stránky, děkuji. B.
10.02.2014 - 13:46DROPS Design svaraði:
Milá Petro, český návod je doplněn - hodně zdaru! Hana
23.08.2014 - 13:43
M. skrifaði:
Wunderschön! Warte schon drauf, dass es freigeschaltet wird.
21.01.2013 - 15:03Sam skrifaði:
STUPENDOUS
19.01.2013 - 14:02
CRISTINA RUBIO skrifaði:
Muy divertido y elegante
18.01.2013 - 15:53
Janneke skrifaði:
Leuk, halslijn en schouderbandjes mogen wel wat lager en smaller, wordt het pittiger van denk.
06.01.2013 - 16:07
Nina Johnsen skrifaði:
Mystisk
06.01.2013 - 01:33
Inge skrifaði:
Siena
05.01.2013 - 13:48
Marie skrifaði:
Très joli
04.01.2013 - 22:18
Emma skrifaði:
Enkel och väldigt fin klänning, skulle jag gärna ta mig an att göra.
03.01.2013 - 12:08
Purple Crocus#purplecrocusdress |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Heklaður kjóll úr DROPS Muskat með gatamynstri neðst niðri og tölum í hlið. Stærð S-XXXL
DROPS 146-23 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Í hverri umf með fl er fyrsta fl skipt út fyrir 1 ll. Í hverri umf með st, er fyrsta st skipt út fyrir 3 ll. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. ÚRTAKA: Fækkið um 1 l með því að hekla 2 l saman. Heklið 2 st saman þannig: Heklið 1 st í fyrstu l, bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 st í næstu l, þegar draga á þráðinn í gegn í síðasta sinn er þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 l á heklunálinni. Heklið 2 fl saman þannig: Stingið heklunálinni niður í fyrstu l, sækið þráðinn, stingið heklunálinni í næstu l, sækið þráðinn, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið í gegnum allar 3 lykkjur á heklunálinni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Til að áferðin verði eins alla leið, er stykkið heklað fram og til baka í 2 stykkjum sem saumuð eru saman í lokn. FRAMSTYKKI: Heklið 90-97-104-111-125-139 ll með Muskat með heklunál nr 4. Haldið áfram með 1 fl í 2. ll frá heklunálinni, síðan 1 fl í hverja af næstu 4 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 fl í hverja af næstu 6 ll *, endurtakið frá *-* út umf = 78-84-90-96-108-120 fl (ll sem notaðar eru til að snúa við með eru einnig taldar með sem 1 fl) – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Snúið við og heklið 1 fl í hverja l til baka. Haldið áfram með mynstur A.1. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar stykkið mælist ca 23-24-25-26-27-28 cm (passið uppá að næsta umf sé umf með st), fellið af 4 l jafnt yfir – LESIÐ ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku með ca 2 cm millibili 4 sinnum til viðbótar (passið uppá að fellt sé af í umf með st) = 58-64-70-76-88-100 l í umf. Þegar stykkið mælist 38-39-40-41-42-43 cm, aukið úr um 5 l jafnt yfir með því að hekla 2 l í 1 l. Endurtakið útaukningu með 3 cm millibili 2 sinnum til viðbótar – en síðasta skiptið er aukið út um 4-4-6-6-6-6 l jafnt yfir. Eftir útaukningu eru 72-78-86-92-104-116 l í umf. Þegar stykkið mælist 52-53-54-55-56-57 cm, fellið af fyrir handveg í hvorri hlið. Þetta er gert þannig: Heklið kl í fyrstu 4-5-5-6-7-8 l, heklið nú fram þar til 4-5-5-6-7-8 l eru eftir, snúið við. Í næstu umf eru 4 síðustu l í hvorri hlið heklaðar saman 2 og 2 – SJÁ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku í hverri umf 0-0-1-1-2-3 sinnum til viðbótar. Í næstu umf eru 2 síðustu l heklaðar saman, endurtakið úrtöku í hverri umf 2-2-2-3-4-5 sinnum til viðbótar. Eftir úrtöku eru 54-58-62-64-68-72 l í umf. Haldið áfram með A.1. Þegar stykkið mælist 60-61-63-64-66-67 cm, heklið hvora öxl til loka fyrir sig. FYRRI ÖXL: Heklið mynstur A.1 eins og áður yfir fyrstu 17-19-21-22-23-24 l, snúið við og heklið 4 fyrstu l saman 2 og 2, heklið nú út umf. Snúið við og heklið fram þar til 4 l eru eftir að hálsmáli, heklið þessar saman 2 og 2, snúið við. Í næstu umf eru 2 fyrstu l heklaðar saman, heklið síðan úr umf. Snúið við, heklið þar til 2 l eru eftir, heklið þær saman. Snúið við, heklið 2 fyrstu l saman, heklið út umf = 10-12-14-15-16-17 l eftir á öxl. Haldið áfram með A.1 þar til stykkið mælist 70-72-74-76-78-80 cm, klippið frá. SEINNI ÖXL: Heklið eins og sú fyrri – passið uppá að byrja í réttri umf í mynstri og að enda efst í sömu umf og fyrri öxl. BYLGJULAGA KANTUR AÐ NEÐAN: Heklið bylgjulaga kant að neðan á framstykki þannig: Byrjið með að hekla 1 umf með fl frá réttu – aukið út jafnt yfir svo að það verða alls 91-97-103-109-121-139 fl. Snúið við og haldið áfram með mynstur A.2 þannig: A yfir fyrstu 7 l, síðan b þar til 6 l eru eftir, endið með c. Heklið 4 umf í A.2 tvisvar sinnum á hæðina þá mælist bylgjulaga kanturinn ca 10 cm, klippið frá og festið enda. BAKSTYKKI: Heklið á sama hátt og framstykki með úrtöku fyrir handveg = 54-58-62-64-68-72 l í umf. Heklið nú áfram þar til stykkið mælist ca 68-70-72-74-76-78 cm. Nú er hvor öxl hekluð til loka fyrir sig þannig: Heklið 1 umf yfir fyrstu 12-14-16-17-18-19 l, snúið við, heklið 2 fyrstu l saman, heklið út umf. Snúið við, heklið þar til 2 l eru eftir, heklið þær saman. Snúið við, heklið 1 l í hverja l út umf, klippið frá. Endurtakið á hinni öxlinni. Heklið bylgjulaga kant neðst niðri á sama hátt og á framstykki. FRÁGANGUR: Saumið axlarsauma kant í kant svo að saumurinn verði ekki of þykkur. Saumið hægri hliðarsaum alla leið – kant í kant svo að saumurinn sjáist sem minnst. Saumið vinstri hliðarsaum alveg eins, en skiljið eftir op á hlið fyrir tölur. Þetta op á að vera ca 18 cm langt og byrja ca 10 cm neðan við handveg. HNESLA: Heklið meðfram opinu á framstykki – byrjið efst uppi þannig: Heklið 1 fl, * 3 ll, hoppið yfir ca 1 cm, heklið síðan fl í ca 2,5 cm *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum, endið með 3 ll og 1 fl neðst niðri við opið. Saumið tölurnar yst meðfram opi á bakstykki, svo að þær passi við framstykki. KANTUR Í KRINGUM HANDVEG OG HÁLSMÁL: Heklið í kringum hálsmál og handveg þannig: Heklið 1 fl, * 3 ll, 1 st í 3. ll frá heklunálinni, hoppið fram ca 1 cm og heklið 1 fl *, endurtakið frá *-* út umf og endið með 1 kl í fyrstu fl frá byrjun umf. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #purplecrocusdress eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 7 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 146-23
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.