Eileen Niclasen skrifaði:
Kan man bruge et slags garn i stedent for 3 ved ikke hvordan man lige omregner når der er 3 tråde?
29.04.2020 - 20:37DROPS Design svaraði:
Hej Stickfastheten här är samma som 1 tråd från Garngrupp F. Vi har ett garn i garngrupp F och det är DROPS Polaris. Du kan kombinera garn från andra garngrupper för att få Garngrupp F och det ser du här hur du kan göra. Tänk bara på att du ska få samma stickfasthet som uppges i oppskriften. Lycka till!
30.04.2020 - 08:28
Barbara skrifaði:
= 1 gettato sul f. (far cadere il gettato dal f. sul f. successivo) = 1 gettato sul f. (far cadere il gettato dal f. sul f. successivo) Vorrei segnalare che nella versione italiana i simboli dei gettati sono descritti in modo errato, credo. Vedo che nella versione in italaino il secondo simbolo corrisponde a 1 gettato, mentre in quella inglese 2 gettati... grazie e buona giornata
11.05.2019 - 10:34DROPS Design svaraði:
Buongiorno Barbara. Abbiamo corretto il testo dell’ultimo simbolo. La ringraziamo per la segnalazione. Buon lavoro!
11.05.2019 - 16:30Marie-Claire skrifaði:
I love the look of this jacket but I am very sensitive to wool against my skin, particularly against my neck and in the collar area? Which of your yarn combinations would you recommend for me to use to avoid this problem? Thanks for your help.
27.12.2015 - 04:22DROPS Design svaraði:
Dear Marie-Claire, please contact your DROPS store for personal advices matching your wishes, you will get that way individual assistance. Happy knitting!
02.01.2016 - 14:01
Gerda Oosterbroek skrifaði:
Leuk vest! gebreid. fijne materialen. maar patroon qua mouwen??? mouwen zijn te smal mbt rest van het vest.
18.04.2013 - 18:51
Gittan skrifaði:
En mysig sommar kvälls kofta. När kommer mönstret? Vill gärna komma igång med ett vår stick projekt
29.01.2013 - 21:46
Cristina skrifaði:
Name: Angelica
17.01.2013 - 10:55Marion Aigner skrifaði:
Einfache luftige Weste, klassisch.
14.01.2013 - 14:02
Karin Aaboen skrifaði:
Sommerdis tenkte jeg på med en gang jeg så denne jakken.
14.01.2013 - 13:11
Agneta skrifaði:
Luftig och mysig, skön på svala sommarkvällar:)
08.01.2013 - 17:48
Heli skrifaði:
Selkeä ja tyylikäs
06.01.2013 - 08:05
Douce jacket#doucejacket |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca Bouclé, DROPS Symphony og DROPS Cotton Viscose eða DROPS Alpaca Bouclé, DROPS Melody og DROPS Cotton Viscose með löngum lykkjum. Stærð S - XXXL.
DROPS 146-20 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. LEIÐBEININGAR: Í þeim umf þar sem langar lykkjur eru prjónaðar, verður að slá aukalega uppá prjóninn innan við kantlykkju í hvorri hlið (þ.e.a.s. 3 uppslættir í umf með stórum löngum lykkjum og 2 uppslættir í umf með smáum löngum lykkjum). Uppslættirnir eru látnir falla niður í næstu umf eins og áður. Þetta er gert til þess að koma í veg fyrir að kantar á stykkinu verði of stífir. MÆLING: Vegna þyngdar á garninu er öll mæling gerð þegar stykkinu er haldið uppi, annars verður flíkin of löng þegar hún er mátuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. BAKSTYKKI: Fitjið laust upp 36-40-44-48-52-56 l á prjóna nr 12 með 1 þræði af hverri tegund (= 3 þræðir). Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan (1. umf = rétta). Prjónið nú mynstur eftir A.1 með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið – LESIÐ LEIÐBEININGAR og ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 56-58-60-61-64-66 cm – LESIÐ MÆLING, fitjið upp 2 nýjar l í lok 2 næstu umf = 40-44-48-52-56-60 l. Haldið áfram með A.1 með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið – ATH: Mikilvægt er að í umf með löngum lykkjum verður einnig að slá uppá prjóninn aukalega áður en kantlykkja er prjónuð í hvorri hlið (uppslátturinn er látinn falla niður í næstu umf). Þetta er gert til að koma í veg fyrir að kantarnir verði of stífir. Þegar stykkið mælist 69-72-75-78-81-84 cm – munið eftir MÆLING, fellið af miðju 10-10-10-12-12-12 l af fyrir hálsmál frá réttu og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið nú af 1 l í næstu umf frá hálsi = 14-16-18-19-21-23 l eftir á öxl. Prjónið 1 umf slétt frá réttu og 1 umf slétt frá röngu áður en fellt er LAUST af með sl frá réttu, stykkið mælist ca 71-74-77-80-83-86 cm. Endurtakið eins á hinni öxlinni. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið laust upp 21-23-25-27-29-31 l (meðtaldar eru 3 kantlykkjur við miðju að framan) á prjóna nr 12 með 1 þræði af hverri tegund (= 3 þræðir). Prjónið 4 umf garðaprjón. Prjónið nú mynstur eftir A.1 alveg eins og á bakstykki, síðustu 3 l við miðju að framan (= kantur að framan) og 1 l síðasta l í hlið eru prjónaðar í garðaprjóni – ATH: Munið eftir að í umf með löngum lykkjum verður einnig að slá 1 sinni uppá prjóninn á milli hverra l í garðaprjóni eins og á bakstykki. Þegar stykkið mælist 56-58-60-61-64-66 cm – munið eftir MÆLING, fitjið upp 2 nýjar l í lok næstu umf í hlið = 23-25-27-29-31-33 l. Haldið áfram með mynstur með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hlið og 3 kantlykkjum í garðaprjóni við miðju að framan. Þegar stykkið mælist 65-68-71-73-76-79 cm fellið af síðustu 7-7-7-8-8-8 l við miðju að framan fyrir hálsmál. Fellið nú af fyrir hálsmáli í byrjun hverrar umf við miðju að framan: Fellið af 1 l 2 sinnum = 14-16-18-19-21-23 l eftir á prjóni. Prjónið nú áfram þar til stykkið mælist 70-73-76-79-82-85 cm, prjónið 1 umf slétt frá réttu og 1 umf slétt frá röngu áður en fellt er LAUST af með sl frá réttu. VINSTRA FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema spegilmynd. FRÁGANGUR: Saumið axlarsauma með lykkjuspori innan við affellingarkantinn. ERMI: Prjónið upp 24-26-28-30-30-32 l frá réttu innan við kantlykkju meðfram handveg á prjóna nr 12 með 1 þræði af hverri tegund (ef prjónaðar eru upp fleiri eða færri l en þetta verður að auka/fækka jafnt yfir í fyrstu umf). Prjónið 1 umf slétt frá röngu. Prjónið nú mynstur eftir A.2 með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið – munið eftir LEIÐBEININGAR. Þegar ermin mælist 4-4-2-2-2-2 cm – munið eftir MÆLING, fellið af 1 l í hvorri hlið. Endurtakið úrtöku með 11-11-9-8-8-6 cm millibili, 3-3-4-4-4-5 sinnum til viðbótar (= 4-4-5-5-5-6 l færri alls) = 16-18-18-20-20-20 l eftir á prjóni. Haldið áfram með mynstur þar til ermin mælist 44-42-41-39-38-36 cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 10 og prjónið garðaprjón fram og til baka þar til ermin mælist 49-47-46-44-43-41 cm (styttri mál í stærri stærðum vegna breiðari axla). Fellið laust af. Prjónið hina ermina á sama hátt. MEIRI FRÁGANGUR: Saumið erma- og hliðarsauma í eitt yst í lykkjubogann – passið uppá að saumurinn verði ekki of stífur. HÁLSMÁL: Prjónið upp frá réttu ca 34 til 42 l í kringum hálsmál á hringprjóna nr 10 með 1 þræði af hverri tegund (= 3 þræðir). Prjónið 1 umf slétt frá röngu, 1 umf slétt frá réttu og 1 umf slétt frá röngu áður en fellt er LAUST af með sl frá réttu. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan – efsta talan á að vera ca 2 cm frá hálsmáli og sú neðsta á að vera ca 16 cm (í öllum stærðum) fyrir neðan hálsmál (passið uppá að sauma tölurnar ekki í langar lykkjur). Hneppið tölum í lykkju í hægra framstykki. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #doucejacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 17 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 146-20
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.