DROPS Alpaca Bouclé
DROPS Alpaca Bouclé
80% Alpakka, 15% Ull, 5% Polyamide
frá 1034.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7238.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 146-22
DROPS Design: Mynstur nr ab-035
Garnflokkur C
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS Alpaca Bouclé frá Garnstudio
300-350-400-400-450-500 gr litur nr 2020, ljós beige

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) nr 6 – eða þá stærð sem þarf til að 15 l og 19 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) nr 5 – fyrir stroff.
DROPS HRINGPRJÓNN (40 cm) nr 5 – fyrir hálsmál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca Bouclé
DROPS Alpaca Bouclé
80% Alpakka, 15% Ull, 5% Polyamide
frá 1034.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7238.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna):
*1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikningin sýnir mynstur séð frá réttu.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 192-204-220-236-256-276 l á hringprjóna nr 5 með Alpaca Bouclé.
Prjónið stroff þannig: * Prjónið 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* umf hringinn. Prjónið stroff í 6 cm. Í næstu umf er prjónað sl yfir allar l – JAFNFRAMT er fækkað um 32-32-36-36-36-40 l jafnt yfir umf = 160-172-184-200-220-236 l. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf og 1 prjónamerki eftir 80-86-92-100-110-118 l (= miðja í hlið), látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Skiptið nú yfir á hringprjóna nr 6 og prjónið A.1 hringinn.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist ca 50-51-52-53-54-55 cm (endið á 8. eða 18. umf í A.1) prjónið 4 umf með GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið nú A.2 hringinn.
Þegar stykkið mælist 54-55-56-57-58-59 cm fellið af 3-4-5-5-6-6 l hvoru megin við hvort prjónamerki fyrir handveg (= það eru þá 6-8-10-10-12-12 l færri í hvorri hlið), skiptið nú stykkinu og hvor hluti er prjónaður til loka fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 74-78-82-90-98-106 l. Haldið áfram með A.2 fram og til baka á prjóni – en síðasta l í hvorri hlið er prjónuð í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – til loka. Þegar stykkið mælist 68-70-72-74-76-78 cm fellið af miðju 18-20-20-22-22-24 l við háls og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið nú af 2 l í næstu umf frá hálsi = 26-27-29-32-36-39 l eftir á öxl. Fellið laust af allar l þegar stykkið mælist 70-72-74-76-78-80 cm.

FRAMSTYKKI:
= 74-78-82-90-98-106 l. Haldið áfram með A.2 fram og til baka á prjóni – en síðasta l í hvorri hlið er prjónuð í garðaprjóni til loka. Þegar stykkið mælist 61-63-65-66-68-70 cm fellið af við háls þannig: Fellið af miðju 8-8-8-10-10-10 l í næstu umf frá réttu. Fellið nú af í hverri umf frá hálsi þannig: Prjónið 2 l 2 sinnum, 1 l 3-4-4-4-4-5 sinnum = 26-27-29-32-36-39 l eftir á öxl. Fellið laust af allar l þegar stykkið mælist 70-72-74-76-78-80 cm.

FRÁGANGUR:
Saumið axlarsauma innan við affellingarkantinn.

ERMI:
Stykkið er prjónað fram og til baka.
Prjónið upp frá réttu ca 50-60 l á hringprjóna nr 6 innan við 1 kantlykkju meðfram handveg (ekki yfir þær l sem felldar voru af). Í næstu umf frá röngu er prjónað br – JAFNFRAMT sem lykkjufjöldinn jafnast út til 50-52-56-58-62-64 l. Prjónið A.1 (byrjið á 3. umf í mynstri) með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 2-3-3-3-4-4 cm setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á ermi (fyrir frágang). Þegar stykkið mælist 12-11-10-9-8-7 cm prjónið síðustu umf frá röngu slétt – JAFNFRAMT er aukið út um 4-6-6-4-4-6 l jafnt yfir í umf = 54-58-62-62-66-70 l. Í næstu umf er skipt yfir á hringprjóna nr 5 og prjónað stroff (2 l sl, 2 l br) með 1 l með garðaprjóni í hvorri hlið. Fellið laust af allar l með br yfir sl og sl yfir br þegar stykkið mælist 15-14-13-12-11-10 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla).
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið ermasauma innan við 1 kantlykkju - ATH: Sú eining sem prjónuð var á undan prjónamerki efst á ermi á að passa inn við úrtöku fyrir handveg.

HÁLSMÁL:
Stykkið er prjónað í hring. Prjónið upp frá réttu ca 90-100 l kringum hálsmál á hringprjóna nr 5 (40 cm). Í næstu umf er prjónað sl – JAFNFRAMT sem lykkjufjöldinn er jafnaður út til 84-92-92-100-108-108 l. Prjónið nú stroff (2 l sl, 2 l br) þar til kantur mælist ca 3 cm, fellið laust af allar l með br yfir sl og sl yfir br.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 06.03.2013
Mynsturtexti 3 röð: Sláið tvisvar uppá prjóninn á milli 2 l, í næstu umf er 1. uppslátturinn prjónaður br frá réttu eða sl frá röngu, sleppið niður 2. uppslætti (þ.e.a.s. hann er ekki prjónaður)

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = sláið 2 sinnum uppá prjóninn á milli 2 lykkja, í næstu umf er 1. uppslátturinn prjónaður brugðið frá réttu eða slétt frá röngu, sleppið niður 2. uppslætti (þ.e.a.s. hann er ekki prjónaður)
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 146-22

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (44)

country flag Carol C wrote:

What type of yarn do you suggest I use to make this as a beach coverup? I can't wear wool. thank you.

20.06.2023 - 15:39

DROPS Design answered:

Hello Carol C! You can always alternate yarns in the same yarn group. Read how to do it HERE . You can substitute DROPS Alpaca Bouclé with DROPS Bomull-Lin or DROPS Paris. Use links next to the pattern photo to check how much yarn you need for your size. I hope it helps!

20.06.2023 - 20:38

country flag Paula wrote:

Är detta mönster lämpligt även för ett mer vanligt alpacka-garn, utan ”boucle”, eller blir det konstigt?

07.12.2022 - 22:18

DROPS Design answered:

Hej Paula. Du kan sticka detta mönster i ett annat alpacagarn, men det kommer bli en lite annan struktur i plagget. Se bara till att använda ett garn som ger den stickfasthet som uppges på mönstret. Mvh DROPS Design

08.12.2022 - 12:10

country flag Gudrun wrote:

Ich verstehe die Strickschrift irgendwie nicht. Die Zeichen im Diagramm sind andere wie in den Erläuterungen drin, or allem in der Bordüre. Ist mir unklar. Kann jemand helfen?

03.01.2020 - 16:42

DROPS Design answered:

Liebe Gudrun, die Zeichen sind dieselben in den Diagramme und bei der Erklärung, dh: die weisse Quadraten in A.1 sind glatt rechte Maschen (hinreihen rechts und Rückreihen links) (= 1. Symbol), bei der 8. Reihe stricken Sie rechts bei der Rückreihe (2. Symbol); und bei der 9. Reihe stricken Sie: 2 M re zusammen, 2 Umschläge (3. Symbol). Hoffentlich hilft es Ihnen. Viel Spaß beim stricken!

06.01.2020 - 07:27

country flag Leslie Ackerson wrote:

How to read the charts? There is no direction arrow, for instance with A1, am I reading from bottom right to left?

23.12.2014 - 13:39

DROPS Design answered:

Dear Mrs Ackerson, when you work in the round, always read diagrams from the right towards the left, when working back and forth work RS rows from the right towards the left and WS rows from the left towards the right. Read more about diagrams here. Happy knitting!

23.12.2014 - 19:07

country flag Ans wrote:

Als ik gaatjes brei, moet ik ook weer meerderen. Moet ik dat met een omslag doen of uit een steek breien?

23.06.2013 - 15:24

DROPS Design answered:

Hoi Ans. Als je moet meerderen bij de gaatjes, dan zou ik waarschijnlijk een steek opnemen en geen omslag maken. Maar kijk wat jij het mooiste en makkelijkste vindt.

24.06.2013 - 12:13

country flag Marijke wrote:

Gisteren afgemaakt, vandaag direct aan en al helemaal aan verknocht. Ideaal voor die tussendoordagen die we zoveel hebben in Nederland (niet warm niet koud) als je niet weet wat je aan moet.

04.06.2013 - 15:08

country flag Anna wrote:

Det är en otydlig teckning: 2m ihop, 1 "klump" osv. Klumpen betyder 2 omslag, varav ett stickas och ett släpps på följande varv.

03.03.2013 - 10:57

country flag Sunniva Holmbek wrote:

M1 ser ikke ut til å inneholde noen kast, kun to og to sammen ?

03.03.2013 - 10:48

DROPS Design answered:

Jo, det er. De er den sorte oval som du se efter de 2 m sammen i pind 9 og 19 (2 kast mellom 2 m).

03.03.2013 - 17:42

country flag Susnne wrote:

Wer hat das teil schon gestrickt?

16.02.2013 - 19:51

Svenja answered:

At Susanne: Ja ich. Was möchtest Du denn wissen?

01.03.2013 - 08:57

country flag Cnh wrote:

Tolles Teil. Das werde ich stricken.

01.02.2013 - 20:44