Edith |
||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||
Hekluð hringlaga motta úr 3 þráðum DROPS Paris
DROPS 147-16 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR: Mottuna er hægt að hekla stærri eða að óskaðri stærð. Við erum hér með litla mottu sem er ca 83 cm að þvermáli og aðeins stærri mottu sem er ca 125 cm að þvermáli. Í minni mottuna fer ca 700 gr Paris og í þá stærri fer ca 1300 gr Paris. HEKLLEIÐBEININGAR: Í hverri umf með st byrjar umf með 3 ll. Umferðin endar á 1 kl í 3. ll í byrjun umf (sjá útskýringu í umf MYNSTUR A.1 og A.2). MYNSTUR A.1 (deilanlegt með 4 l): Mynstrið samanstendur af 4 umf og mynsturteikningu A.1 sýnir umf 5 og 6 í mynstri. Heklið þannig: UMFERÐ 5: Heklið 4 ll (jafngilda 1 st + 1 ll), hoppið yfir 1 st, í næsta st er heklað 1 st + 7 ll + 1 st, 1 ll, hoppið yfir 1 st, 1 st í næsta st, heklið nú mynsturteikningu A.1 þannig: * Heklið 1 ll, hoppið yfir 1 st, í næsta st er heklað 1 st + 7 ll + 1 st, 1 ll, hoppið yfir 1 st **, 1 st í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn, síðasta endurtekningin endar eftir **, heklið nú 1 kl í 3. ll í byrjun umf. UMFERÐ 6: Heklið eftir mynsturteikning A.1 þannig: * Heklið 7 st í næsta ll-boga, heklið 1 fl í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn og endið á 1 kl í fyrsta st í byrjun umf = 12 st-hópar. UMFERÐ 7: Heklið 1 kl í hvorn af næstu 2 st, 1 ll, 1 fl í 4. st í st-hópinn, * 7 ll, 1 fl í 4. st á næsta st-hóp *, endurtakið frá *-* alls 11 sinnum, endið á 7 ll og 1 kl í fyrstu fl í byrjun umf = 12 ll-bogar og alls 96 l í umf. UMFERÐ 8: Heklið 3 ll (jafngilda 1 st), * 1 ll, hoppið yfir 1 l, 1 st í næstu l *, endurtakið frá *-* umf hringinn og endið á 1 ll og 1 kl í 3. ll í byrjun umf = 48 st og 1 ll á milli hverra st (= alls 96 l í umf). MYNSTUR A.2 (deilanlegt með 6 l): Mynstrið samanstendur af 4 umf og mynsturteikningu A.2 sýnir umf 14 og 15 í mynstri. Heklið þannig: UMFERÐ 14: Heklið 4 ll (jafngilda 1 st + 1 ll), hoppið yfir 2 st, í næsta st er heklað 1 st + 7 ll + 1 st, 1 ll, hoppið yfir 2 st, 1 st í næsta st, heklið nú mynsturteikningu A.2 þannig: * Heklið 1 ll, hoppið yfir 2 st, í næsta st, í næsta st er heklað 1 st + 7 ll + 1 st, 1 ll, hoppið yfir 2 st **, 1 st í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn en síðasta endurtekningin endar eftir **, heklið nú 1 kl í 3. ll í byrjun umf. UMFERÐ 15: Heklið eftir mynsturteikningu A.2 þannig: * Heklið 7 st um næsta ll-boga, heklið 1 fl í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn og endið á 1 kl í fyrsta st í byrjun umf = 26 st-hópar. UMFERÐ 16: Heklið 1 kl í hvorn af næstu 2 st, 1 ll, 1 fl í 4. st í st-hópnum, * 7 ll, 1 fl í 4. st í næsta st-hóp, 7 ll, 1 fl í 4. st í næsta st-hóp, 6 ll, 1 fl í 4 st í næsta st-hóp, 7 ll, 1 fl í 4. st í næsta st-hóp, 7 ll, 1 fl í 4. st í næsta st-hóp, 7 ll, 1 fl í 4. st í næsta st-hóp *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum, 7 ll, 1 fl í 4. st í næsta st-hóp, 7 ll o g 1 kl í fyrstu fl í byrjun umf = 26 ll-bogar og alls 204 l í umf. UMFERÐ 17: Heklið 3 ll (jafngildir 1 st), * 1 ll, hoppið yfir 1 l, 1 st í næstu l *, endurtakið frá *-* umf hringinn og endið á 1 ll og 1 kl í 3. ll í byrjun umf = 102 st og 1 ll á milli hverra st (= alls 204 l í umf). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- MOTTA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring. LÍTIL MOTTA: Heklið 4 ll með heklunál nr 8 með 3 þráðum Paris og tengið í hring með 1 kl í fyrstu ll. UMFERÐ 1: LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið 12 st í hringinn. UMFERÐ 2: Heklið 2 st í hvern st = 24 st. UMFERÐ 3: * Heklið 2 st í fyrsta st, 1 st í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 36 st. UMFERÐ 4: * Heklið 2 st í fyrsta st, 1 st í hvorn af næstu 2 st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 48 st. UMFERÐ 5-8: Heklið MYNSTUR A.1 – sjá útskýringu að ofan. UMFERÐ 9: Munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið * 2 st í fyrstu l, 1 st í hverja af næstu 7 l *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 108 st. UMFERÐ 10: * Heklið 2 st í fyrstu l, 1 st í hverja af næstu 8 l *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 120 st. UMFERÐ 11-13: Haldið áfram með útaukningu eins og í umf 9 og 10 (þ.e.a.s. að á undan hverri umf eru heklaðir 1 st fleiri í hvert skipti sem sem 2 st eru heklaðir í sömu l = 12 l fleiri í umf). Eftir umf 13 eru 156 st í umf. UMFERÐ 14-17: Heklið MYNSTUR A.2 – sjá útskýringu að ofan. UMFERÐ 18: * Heklið 2 st í fyrstu l, 1 st í hvern af næstu 16 l *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 216 st. Klippið frá og festið enda. STÆRRI MOTTA: Ef óskað er eftir því að gera mottuna stærri er haldið áfram eftir umf 18 þannig: Haldið áfram með útaukningu eins og umf 18, þ.e.a.s. að fyrir hverja umferð heklaður 1 st fleiri á milli skipta þar sem heklaðir eru 2 st í sömu l = 12 l fleiri í hverri umf. Þegar stykkið nær óskaðri lengd er hekluð mynsturteikning A.2 (= 2 umf). Eftir að A.2 eru 3 síðustu umf í mottunni heklaðar þannig: UMFERÐ 1: Heklið 1 kl í hvorn af næstu 2 st, 1 ll, 1 fl í 4. st í st-hópnum, * 7 ll, 1 fl í 4. st í næsta st-hóp *, endurtakið frá *-* umf hringinn og endið á 7 ll og 1 kl í fyrstu fl í byrjun umf. UMFERÐ 2: Heklið 3 ll (jafngilda 1 st), * 1 ll, hoppið yfir 1 l, 1 st í næstu l *, endurtakið frá *-* umf hringinn og endið á 1 ll og 1 kl í 3. ll í byrjun umf. UMFERÐ 3: Heklið 3 ll, heklið nú 1 st í hverja l umf hringinn JAFNFRAMT er aukið út um 12 st jafnt yfir (aukið er út um 1 st með því að hekla 2 st í sömu l). Klippið frá og festið enda. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (110)
Наталья wrote:
Мне очень понравился этот милый коврик! Хочу такой себе!
14.12.2012 - 05:11Liz wrote:
Is maith liom
12.12.2012 - 21:47Nadia wrote:
...ragazzi che finezza!!!
12.12.2012 - 16:03Daniela wrote:
Bellissimo
12.12.2012 - 15:07Sabine wrote:
More of those would be nice...love it
12.12.2012 - 11:46Ronda wrote:
Krásná barva a provedení)))
11.12.2012 - 15:15Birgitte Callesen wrote:
Passer fint til på badeværelset. ialle farver.
11.12.2012 - 11:44Monique wrote:
Heel lief en mooi tapijtje
11.12.2012 - 10:37Collin wrote:
Douceur du soir
11.12.2012 - 08:50Riitta wrote:
Niin kaunis.
10.12.2012 - 17:03