Lily skrifaði:
Pattern, please!
29.01.2013 - 05:09Nina skrifaði:
Super
28.01.2013 - 09:34
Chocolat Belge skrifaði:
Très sympa,confortable et adapté à toutes les morphologies
28.01.2013 - 06:51
VALE skrifaði:
STUPENDO!!! a quando le spiegazioni? non vedo l'ora di iniziarlo!!
24.01.2013 - 13:32
Helle skrifaði:
Denne her glæder jeg til at lave i hvid - bliver helt sikker et sommer hit
24.01.2013 - 10:30
Gunn skrifaði:
Når kommer denne oppskriften?
23.01.2013 - 10:52
Hallgunnur skrifaði:
Dejlig
22.01.2013 - 11:10
MAILLARD skrifaði:
Doux tant par la couleur que par la laine utilisée, en apparence...
18.01.2013 - 03:10
Anne Mona skrifaði:
Super lekker!
15.01.2013 - 20:52
Ingunn skrifaði:
Må bare ha denne, gleder meg..
15.01.2013 - 14:51
Hugs and kisses#hugsandkissessweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa með ferhyrningum úr DROPS Paris í garðaprjóni. Stærð S - XXXL.
DROPS 146-2 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna): *1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MÆLING: Stykkið er mælt þegar því er haldið uppi. Vegna garðaprjóns og þyngdar á garninu kemur ermin til með að teygjast. Ef óskað er eftir léttari ermi eru prjónaðar 8 umf garðaprjón neðst niðri á ermi, síðan er prjónað sléttprjón með rönguna út. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í 2 stykkjum frá miðju baki/miðju að framan í ferhyrning. Fitjið upp og prjónið á sokkaprjóna, skiptið yfir á hringprjón eftir þörf. +Í lokin eru ermar prjónaðar. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 8 l með Paris og skiptið þeim niður á 4 sokkaprjóna nr 6 )= 2 l á hvern prjón). Setjið 1 prjónamerki í fyrstu, þriðju, fimmtu og sjöundu l (= 4 prjónamerki). Prjónið nú í hring með GARÐAPRJÓN – yfir allar l – sjá útskýringu að ofan. JAFNFRAMT í annarri hverri umf er slegið 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við hvert prjónamerki (= 8 útaukningar í annarri hverri umf), í næstu umf er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Haldið svona áfram þar til 240-264-288-320-344 l eru á prjóni (= 29-32-35-39-42 útaukningar og 60-66-72-80-86 l á öllum 4 hliðunum). Endið á 1 umf brugðið. Setjið nú miðju 16-16-18-18-18 l á milli 1. og 2. prjónamerkis á þráð fyrir hálsmáli, prjónið nú stykkið fram og til baka. Haldið áfram með garðaprjón og útaukningu, JAFNFRAMT er lykkjum fækkað við hálsmáli í annarri hverri umf þannig: Fellið af 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkju 2 sinnum. Haldið áfram með útaukningu þar til 284-308-330-362-386 l eru á prjóni (= 38-41-44-48-51 útaukningar, 78-84-90-98-104 l á milli prjónamerkja, 25-28-30-34-37 l hvoru megin við hálsmál). Haldið eftir lykkjum á milli 3. og 4. prjónamerkis á prjóni, fellið af þær l sem eftir eru = 78-84-90-98-104 l á prjóni. Prjónið 4 umf garðaprjón fram og til baka yfir þessar l. Fellið af. Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið, 17-18-19-20-21 cm niður frá öxl. Þetta merkir hvar sauma á ermina í. BAKSTYKKI: Fitjið upp 8 l með Paris og skiptið þeim niður á 4 sokkaprjóna nr 6 (= 2 l á hvern prjón). Setjið 1 prjónamerki í fyrstu, þriðju, fimmtu og sjöundu l (= 4 prjónamerki). Prjónið nú í hring með garðaprjón yfir allar l, JAFNFRAMT í annarri hverri umf er slegið 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við prjónamerki (= 8 útaukningar í annarri hverri umf), í næstu umf er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Haldið svona áfram þar til 288-312-336-368-392 l á prjóni (= 35-38-41-45-48 útaukningar og 72-78-84-92-98 l á milli prjónamerkja). Fellið nú af miðju 28-28-30-30-30 l á milli 1. og 2. prjónamerkis fyrir hálsmál, prjónið nú stykkið fram og til baka = 260-284-306-338-362 l. Haldið áfram með útaukningu þar til 284-308-330-362-386 l eru á prjóni (= 38-41-44-48-51 útaukningar, 78-84-90-98-104 á milli prjónamerkja, 25-28-30-34-37 l hvoru megin við hálsmál). Haldið eftir lykkjum á milli 3. og 4. prjónamerki á prjóni, fellið af þær l sem eftir eru = 78-84-90-98-104 l á prjóni. Prjónið 30 umf garðaprjón fram og til baka yfir þessar l. Fellið af. Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið, 17-18-19-20-21 cm niður frá öxl. Þetta merkir hver sauma á ermina í. ERMI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. LESIÐ MÆLING! Fitjið upp 37-38-41-44-45 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 6 með Paris. Prjónið garðaprjón. Þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 1 l í hvorri hlið. Endurtakið útaukningu með 5-4½-4½-4-3½ cm millibili 7-8-8-8-9 sinnum til viðbótar (alls 8-9-9-9-10 útaukningar) = 53-56-59-62-65 l. Fellið af þegar stykkið mælist 49-48-47-45-44 cm (styttri mál í stærri stærðum vegna breiðari axla). Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlarsauma. Saumið ermar í niður að prjónamerki á fram/bakstykki. Saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju, skiljið eftir neðstu 10 cm á bakstykki = klauf. HÁLSMÁL: Prjónið upp ca 66 til 74 l (meðtaldar l af þræði) á stutta hringprjóna (40 cm) í kringum hálsmál. Prjónið 4 umf garðaprjón. Fellið af. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #hugsandkissessweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 17 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 146-2
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.