Petra skrifaði:
2 Fäden Paris und eine Häkelnadel Nr. 3 stimmt wirklich? Paris hätte dann eine Lauflänge von 38m/50g... Bei einfädig wäre 3 ok, aber bei 2fädig?
10.04.2013 - 20:51DROPS Design svaraði:
Liebe Petra, wir haben in der Designabteilung nachgefragt, es ist wirklich Nadelstärke 3, ansonsten würde der Hut nicht die nötige Standfestigkeit bekommen (besonders für die Krempe).
14.04.2013 - 08:28
Theresa Kasdorf skrifaði:
Lovely, sweet, love it!
09.03.2013 - 04:43
Fanny skrifaði:
Was soll 2 fädig heissen? Das man mit 2 knäulen wolle auf einmal stricken soll.
06.03.2013 - 21:04DROPS Design svaraði:
Liebe Fanny, ja genau das bedeutet es.
07.03.2013 - 08:42
Annie skrifaði:
Vite. je m'y mets, en attendant le soleil
06.02.2013 - 17:18
Elsa De Pater skrifaði:
Even een vraagje: om een beetje stevig exemplaar te krijgen, adviseren jullie dan Paris of Bomull-Lin? Laatste garen ken ik niet uit ervaring, dus ik weet niet of dit garen de hoed een beetje slap maakt. Ik wil liever een stevige.
02.02.2013 - 21:11DROPS Design svaraði:
Beide garens zijn geschikt, maar Paris vind ik persoonlijk steviger en de kleuren wat "heldere", maar dat is een kwestie van smaak. Neem contact op met je verkooppunt voor meer informatie.
04.02.2013 - 14:16
Elsa De Pater skrifaði:
Even een vraagje: om een beetje stevig exemplaar te krijgen, adviseren jullie dan Paris of Bomull-Lin? Laatste garen ken ik niet uit ervaring, dus ik weet niet of dit garen de hoed een beetje slap maakt. Ik wil liever een stevige.
01.02.2013 - 14:52
Schahl, Eva-Maria skrifaði:
Bitte, bitte endlich freischalten, die Sonne kommt hoffentlich bald, sieht toll aus, genau mein Stil!
23.01.2013 - 06:13Mirta skrifaði:
Nombre "JUVENILLA"
22.01.2013 - 18:39
CRISTINA RUBIO skrifaði:
Diseño estupendo divertido, alegre y elegante
18.01.2013 - 15:58
Tine skrifaði:
Wunder,wunder,wunderschön!
18.01.2013 - 07:29
Marlene#marlenehat |
|
![]() |
![]() |
Heklaður hattur úr 2 þráðum DROPS Bomull-Lin eða 2 þráðum DROPS Paris.
DROPS 146-32 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Eftir síðustu fl í umf, haldið áfram að næstu umf með 1 fl í næstu fl (= 1. fl frá fyrri umf). ATH: Setjið prjónamerki í byrjun umf á milli síðustu fl í umf og 1. fl í næstu umf, látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HATTUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring ofan frá og niður. HATTUR: Heklið 4 ll með heklunál nr 3 með 2 þráðum af Bomull-Lin eða 2 þráðum af Paris og tengið saman í hring með 1 kl í fyrstu ll. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! UMFERÐ 1: Heklið 1 ll, 5 fl um hringinn – lesið HEKLLEIÐBEININGAR. UMFERÐ 2: Heklið 2 fl í hverja fl = 10 fl. UMFERÐ 3: * Heklið 2 fl í fyrstu fl, 1 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* = 15 fl. UMFERÐ 4: * Heklið 2 fl í fyrstu fl, 1 fl í næstu fl, 1 fl í næstu l *, endurtakið frá *-* = 20 fl. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf. Aukið nú út um 5 fl í hverri umf, aukið út á sama stað eins og í fyrri umf, þ.e.a.s. að það verða 1 fl fleiri á milli hverra útaukninga í hverri umf. Hringurinn verður að fimmhyrningi. Haldið áfram svona þar til heklaðar hafa verið alls 16-17 umf = 80-85 fl í umf. Heklið nú hring með 1 fl í hverja fl þar til stykkið mælist 15-16 cm frá miðju. Heklið nú barðið þannig: UMFERÐ 1: Heklið 1 fl í hverja fl jafnframt er aukið út um 8 fl jafnt yfir = 88-93 l. UMFERÐ 2: Heklið 1 fl í hverja fl. UMFERÐ 3- 19: Haldið áfram eins og umf 1 og 2, þar sem aukið var út um 8 fl í odda umf á meðan hekluð er 1 fl í hverja fl í jöfnum umf. UMFERÐ 20: Heklið 1 fl í hverja fl, endið með 1 kl í fyrstu fl = 160-165 fl. Klippið frá og festið enda. SNÚRA: Heklið ll með Safran lit nr 26 á heklunál nr 3 þar til snúran mælist ca 180 cm, klippið frá og festið enda. LÍTIÐ BLÓM: Heklið 4 ll með Safran lit nr 11 með heklunál nr 3 og tengið í hring með 1 kl í fyrstu ll. UMFERÐ 1: Heklið 1 ll, 5 fl um hringinn, 1 kl í fyrstu ll í byrjun umf. UMFERÐ 2 (skiptið yfir í lit nr 23): Í hverja fl er heklað þannig: * Heklið 3 ll, 2 st, 1 ll, 1 fl *, endurtakið frá *-* út umf og endið með 1 kl í 1. ll í byrjun umf (= 5 blöð). Klippið frá og festið enda. STÓRT BLÓM: Heklið 4 ll með Safran lit nr 21 með heklunál nr 3 og tengið í hring með 1 kl í fyrstu ll. UMFERÐ 1: Heklið 1 ll, 5 fl um hringinn, 1 kl í fyrstu ll í byrjun umf. UMFERÐ 2 (skiptið yfir í lit nr 18): Í hverja fl er heklað: * 4 ll, 3 tbst, 1 ll, 1 fl *, endurtakið frá *-* út umf og endið með 1 kl í 1. ll í byrjun umf (= 5 blöð). Klippið frá og festið enda. BLAÐ: Blaðið er heklað með lykkjum á báðum hliðum á loftlykkjuumferð. Hekluð eru 2 blöð með lit nr 26 og heklað er 1 blað með lit nr 14. Heklið þannig: Heklið 8 ll, snúið við og hoppið yfir fyrstu ll, haldið áfram með 2 fl í 3 st, 2 fl. Heklið 1 ll í lok umf, haldið áfram á hinni hliðinni á umf með 2 fl, 3 st, 2 fl, endið með 1 kl í 1. fl. Klippið frá og festið enda. GREINAR: Hekluð er 1 grein með lit nr 26 og heklaðar eru 2 greinar með lit nr 14. Heklið þannig: Heklið 8 ll, 1 fl í snúruna þar sem óskað er eftir staðsetningu á grein, 8 ll, klippið frá og hnýtið hnút neðst í byrjun og endið loftlykkjuumferðir. Heklið 2 greinar til viðbótar. FRÁGANGUR: Saumið blómin og blöðin föst á snúruna. Vefjið snúruna 2 hringi í kringum hattinn áður en bundið er saman með slaufu. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #marlenehat eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 6 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 146-32
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.