DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2288.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 162-30
DROPS Design: Mynstur nr r-684
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S/M - M/L
Höfuðmál: Ca 54/56 - 56/58 cm.

Efni:
DROPS MUSKAT frá Garnstudio
200-200 gr litur, nr 18, hvítur

DROPS HEKLUNÁL NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 20 st og 10 umf verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2288.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1- A.3.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HATTUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring, ofan frá og niður.

HATTUR:
Heklið 6-6 ll með Muskat með heklunál nr 3,5 og tengið saman í hring með 1 kl.
UMFERÐ 1: Heklið 3 ll (= 1 st), * 2 ll, 1 st um ll-boga *, endurtakið frá *-* 6 sinnum til viðbótar, 2 ll, endið á 1 kl í 3. ll í umf = 8-8 ll-bogar.
UMFERÐ 2: Heklið 1 kl í 1. ll, 3 ll (= 1 st), 2 st um ll-boga, * 1 ll, 3 st um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* 6 sinnum til viðbótar, 1 ll, 1 kl í 3. ll í umf.
UMFERÐ 3: Heklið 1 ll, 1 fl í næsta st, * 3 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 3 ll, hoppið yfir 1 st, 1 fl í næsta st *, endurtakið frá *-* 6 sinnum til viðbótar, 3 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 3 ll, 1 kl í fyrstu fl í umf = 16-16 ll-bogar.
UMFERÐ 4: Heklið 1 kl í fyrstu ll, 3 ll (= 1 st), 2 st í ll-boga, * 1 ll, 3 st um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* 15 sinnum til viðbótar, 1 ll, 1 kl í 3. ll í umf.
ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
UMFERÐ 5: Heklið 1 ll, 1 fl í næsta st, * 3 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 3 ll, hoppið yfir 1 st, 1 fl í næsta st *, endurtakið frá *-* 14 sinnum til viðbótar, 3 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 3 ll, 1 kl í fyrstu fl í umf = 32-32 ll-bogar.
UMFERÐ 6: Heklið 1 kl í fyrstu ll, 3 ll (= 1 st), 2 st í ll-boga, * 1 ll, 3 st um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* 31 sinnum til viðbótar, 1 ll, 1 kl í 3. ll í umf. Nú eru 96-96 st í umf.
UMFERÐ 7: Heklið 1 st í hvern st, JAFNFRAMT er aukið út um 1-7 st jafnt yfir = 97-103 st.
Nú er S/M lokið, haldið áfram með M/L þannig:
UMFERÐ 8: Heklið 1 st í hvern st.
Heklið nú MYNSTUR þannig:
Heklið A.1 yfir fyrstu 4 st, A.2 (= 6 st) þar til 9 st eru eftir í umf, A.3 yfir síðustu 9 st, endið umf á 1 kl eins og útskýrt er í mynstri. Haldið áfram þar til A.1-A.3 hefur verið heklað til loka á hæðina. Stykkið mælist ca 17-18 cm.

BARÐ:
Heklið nú barð með fl þannig: ATH: Í þriðju hverri umf, þ.e.a.s. hver umf án útaukninga byrja á 1 ll. Umf endar á 1 kl í 1. ll í umf l
UMFERÐ 1: 1 ll og 1 fl í fyrsta st, * 2 fl í næsta st, 1 fl í hvern af næstu 15-16 st *, endurtakið frá *-* út umf, 1 kl í fyrstu ll í umf = 103-109 fl.
UMFERÐ 2: 1 ll og 1 fl í fyrstu fl, * 2 fl í næstu fl, 1 fl í hverja af næstu 16-17 fl *, endurtakið frá *-* út umf, 1 kl í fyrstu ll í umf = 109-115 fl.
UMFERÐ 3: 1 fl í hverja fl = 109-115 fl.
UMFERÐ 4: 1 ll og 1 fl í fyrstu fl, * 2 fl í næstu fl, 1 fl í hverja af næstu 17-18 fl *, endurtakið frá *-* út umf, 1 kl í fyrstu ll í umf = 115-121 fl.
UMFERÐ 5: 1 ll og 1 fl í fyrstu fl, * 2 fl í næstu fl, 1 fl í hverja af næstu 18-19 fl *, endurtakið frá *-* út umf, 1 kl í fyrstu ll í umf = 121-127 fl.
UMFERÐ 6: 1 fl í hverja fl = 121-127 fl.
UMFERÐ 7: 1 ll og 1 fl í fyrstu fl, * 2 fl í næstu fl, 1 fl í hverja af næstu 19-20 fl *, endurtakið frá *-* út umf, 1 kl í fyrstu ll í umf = 127-133 fl.
UMFERÐ 8: 1 ll og 1 fl í fyrstu fl, * 2 fl í næstu fl, 1 fl í hverja af næstu 20-21 fl *, endurtakið frá *-* út umf, 1 kl í fyrstu ll í umf = 133-139 fl.
UMFERÐ 9: 1 fl í hverja fl = 133-139 fl.
UMFERÐ 10: 1 ll og 1 fl í fyrstu fl, * 2 fl í næstu fl, 1 fl í hverja af næstu 21-22 fl *, endurtakið frá *-* út umf, 1 kl í fyrstu ll í umf = 139-145 fl.
UMFERÐ 11: 1 ll og 1 fl í fyrstu fl, * 2 fl í næstu fl, 1 fl í hverja af næstu 22-23 fl *, endurtakið frá *-* út umf, 1 kl í fyrstu ll í umf = 145-151 fl.
UMFERÐ 12: 1 fl í hverja fl = 145-151 fl.
UMFERÐ 13: 1 ll og 1 fl í fyrstu fl, * 2 fl í næstu fl, 1 fl í hverja af næstu 23-24 fl *, endurtakið frá *-* út umf, 1 kl í fyrstu ll í umf = 151-157 fl.
UMFERÐ 14: 1 ll og 1 fl í fyrstu fl, * 2 fl í næstu fl, 1 fl í hverja af næstu 24-25 fl *, endurtakið frá *-* út umf, 1 kl í fyrstu ll í umf = 157-163 fl.
UMFERÐ 15: 1 fl í hverja fl = 157-163 fl.
UMFERÐ 16: 1 ll og 1 fl í fyrstu fl, * 2 fl í næstu fl, 1 fl í hverja af næstu 25-26 fl *, endurtakið frá *-* út umf, 1 kl í fyrstu ll í umf = 163-169 fl.
UMFERÐ 17: 1 ll og 1 fl í fyrstu fl, * 2 fl í næstu fl, 1 fl í hverja af næstu 26-27 fl *, endurtakið frá *-* út umf, 1 kl í fyrstu ll í umf = 169-175 fl.
UMFERÐ 18: 1 fl í hverja fl = 169-175 fl.
UMFERÐ 19: 1 ll og 1 fl í fyrstu fl, * 2 fl í næstu fl, 1 fl í hverja af næstu 27-28 fl *, endurtakið frá *-* út umf, 1 kl í fyrstu ll í umf = 175-181 fl.
UMFERÐ 20: 1 ll og 1 fl í fyrstu fl, * 2 fl í næstu fl, 1 fl í hverja af næstu 28-29 fl *, endurtakið frá *-* út umf, 1 kl í fyrstu ll í umf = 181-187 fl.
UMFERÐ 21: 1 fl í hverja fl = 181-187 fl.
UMFERÐ 22: 1 ll og 1 fl í fyrstu fl, * 2 fl í næstu fl, 1 fl í hverja af næstu 29-30 fl *, endurtakið frá *-* út umf, 1 kl í fyrstu ll í umf = 187-193 fl.
UMFERÐ 23: 1 ll og 1 fl í fyrstu fl, * 2 fl í næstu fl, 1 fl í hverja af næstu 30-31 fl *, endurtakið frá *-* út umf, 1 kl í fyrstu ll í umf = 193-199 fl.
UMFERÐ 24: 1 ll og 1 fl í hverja fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn og endið á 1 kl í fyrstu ll í umf = 193-199 fl. Klippið frá og festið enda.

Mynstur

symbols = fl
symbols = st í l
symbols = ll
symbols = st um ll-boga
symbols = 1 fl um ll-boga
symbols = 2 st í sömu l
symbols = 1 kl í lok umf er heklað svona
symbols = byrjið hér
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 162-30

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (23)

country flag M Fitz wrote:

After Round 7, pattern states that “Size S/M is now done”. What is the next instruction for size S/M?

02.09.2021 - 21:28

DROPS Design answered:

Dear Mrs Fitz, you just skip the row 8 and continue with Then work PATTERN as follows (with A.1, A.3, A.3). Happy crocheting!

03.09.2021 - 07:20

country flag M Fitz wrote:

Thank you for that clarification. I have not seen the instruction set out like that before. I interpreted 6-6 6 chain to be 6 times 6 chain. Thank you.

02.09.2021 - 14:30

country flag M Fitz wrote:

I must have something wrong on the foundation round before round 1.I have 6 loops of 6ch joined in a circle with a slip stitch at the base of the first loop. Is this correct?

01.09.2021 - 23:15

DROPS Design answered:

Dear Mrs Fitz, you begin the hat with a ring of chain, ie crochet 6 chains and join with a slip stitch in the first chain crocheted = you have the ring of chains you will then work around on round 1. Can this help?

02.09.2021 - 08:37

country flag M Fitz wrote:

I need help with start of 162-30.Does 1st instruction create 6by6ch loops joined in circle by sl st into base of 1st loop? Please explain Round1.I ended up with 7 chain spaces & Round 1 was tighter than the previous round. I must have misinterpreted the instructions. Please clarify. Many thanks.

31.08.2021 - 21:15

DROPS Design answered:

Dear Mrs Fitz, you should have a total of 8 chain-spaces at the end of the round, you work first 3 ch to replace 1st treble, then (2 chains, 1 treble) a total of 7 times, then end the round with 2 chains and 1 sl st in the 3rd ch from beg of round = 8 ch-space. Can this help?

01.09.2021 - 07:09

country flag Adria Vitelli wrote:

Buongiorno, avrei bisogno di un aiuto con lo schema. Nel primo giro n°6, mi ritrovo con 127 m.a. anzichè 96. Non capisco perchè. Lo schema dice: 1cat+3ma (=4 mg) per ogni arco di catenelle (31x4mg=124+3 mg inizali=127mg). Potete aiutarmi a capire dove sbaglio? Grazie

13.08.2019 - 20:17

DROPS Design answered:

Buongiorno Adria. Il conteggio delle maglie fa riferimento alle sole maglie alte. Faremo correggere un piccolo errore: le istruzioni tra * vanno lavorate in tutto 31 volte e non altre 31 volte. In questo ci sono 31 x 3 + le 2 maglie alte e le 3 cat iniziali (1 maglia alta) = 96 maglie alte. Buon lavoro!

14.08.2019 - 07:53

country flag Cathy wrote:

Bonjour, j'ai fait mon échantillon. Mon fil et un crochet 3.5 me permet d'arriver exactement aux bonnes dimensions. Mais problème: après le rang 6, mon ouvrage gondole ! J'ai le bon nombre de points (96 brides à la fin du 6ème rang). Comment est-ce possible? Merci !

30.06.2019 - 00:37

DROPS Design answered:

Bonjour Cathy, veillez bien à ce que les mailles en l'air entre les brides ne soient pas trop lâches, elles doivent toujours avoir la même largeur qu'une bride. Il est délicat de trouver ainsi pourquoi votre ouvrage gondole, il sera bien plus simple de montrer votre ouvrage (même par mail) au magasin où vous avez acheté votre fil, on pourra ainsi mieux vous renseigner. Bon crochet!

01.07.2019 - 07:09

country flag Giovanna Migliarino wrote:

Buongiorno, ho acquistato il vostro filato per realizzare questo cappello. Ho aumentato di 7 maglie alte al settimo giro e il lavoro proseguiva in modo perfetto ma era troppo grande, allora sono tornata indietro e ho aumentato di 1 maglia e nulla non mi ritrovo a fine lavoro, posso evitare di aumentare e continuare con le 96 maglie del sesto giro? Grazie.

11.03.2019 - 11:10

DROPS Design answered:

Buongiorno Giovanna. Il numero delle maglie dovrebbe restare quello indicato per consentire la corretta lavorazione dei diagrammi. Buon lavoro!

11.03.2019 - 14:15

country flag Hannelise Le Lagadec wrote:

Hi it says to crochet the gauge but I can’t see where the gauge is. Please tell me where the gauge is. Thanks and best Regards Hannelise

08.02.2019 - 00:29

DROPS Design answered:

Dear Mrs Le Lagadec, you will find the gauge under the header, together with sizes and required yarn and crochet hook size, ie 20 tr (Uk-terminology)/dc (US-terminology) x 10 rows = 10 x 10 cm. Happy crocheting!

08.02.2019 - 09:12

country flag Yolanda Villareal wrote:

I love this hat. Could it be crochet in crocheting thread maybe size 3 or a cotton yarn.

15.07.2018 - 08:57

country flag Corrie wrote:

Vraagje , blijft de rand van de hoed goed zitten, zodat deze goed als zonnehoed gebruikt kan worden ? Of is die daar te dik voor?

29.05.2017 - 15:27

DROPS Design answered:

Hoi Corrie, Je zou wat stijfsel kunnen gebruiken om de rand in vorm te houden.

29.05.2017 - 15:36