Heidi Hansen skrifaði:
Jeg forstår ikke helt mønster A.2 på de to sidste pinde i mønsteret er de midterste masker blanke, det forstår jeg ikke hvordan jeg skal gøre. Er det meningen at man bare lader maskerne være eller hvordan skal man forstå det?
30.08.2012 - 15:29DROPS Design svaraði:
Over disse 11 m fortsætter du bare med hulmønsteret direkte ifølge 1.p i A.2. Snoningerne i hver side fortsætter du bare på hver 6.pind.
13.12.2012 - 12:29
Solveig#solveigset |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð húfa, hálsskjól og vettlingar úr DROPS Nepal með gatamynstri.
DROPS 142-17 |
|||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri frá réttu. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. ÚTAUKNING (á við um vettlinga): Aukið er út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki komi gat. ÚRTAKA (á við um vettlinga): Fækkið lykkjum (byrjið á 3 l á undan prjónamerki) þannig: Prjónið 2 l sl saman, 2 l sl (prjónamerkið er staðsett á milli þessa 2 l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna / sokkaprjóna. HÚFA: Fitjið upp 98 l á hringprjóna nr 3 með Nepal og prjónið 1 umf slétt. Prjónið nú stroff eftir mynsturteikningu A.1 (= 2 mynstureiningar í umf). Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er skipt yfir á hringprjóna nr 4. Prjónið MYNSTUR eftir A.2. Þegar stykkið mælist ca 21 cm – stillið af eftir heila mynstureiningu á hæðina í gatamynstri, prjónið og fækkið lykkjum á eftir A.3 (= 2 mynstureiningar í umf) – skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf. Þegar A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 24 l eftir í umf. Prjónið allar l snúnar sl saman 2 og 2. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. Húfan mælist ca 26 cm á hæðina. ------------------------------------------------------- HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. HÁLSSKJÓL: Fitjið upp 40-44 l á prjóna nr 4,5 með Nepal. Prjónið 4 umf slétt (1. umf = rétta) – JAFNFRAMT í 3. umf er aukið út um 5-5 l jafnt yfir (aukið ekki út yfir 2 síðustu l í hvorri hlið) = 45-49 l. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 2 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið A.4 (= 6 l), 2-3 l br, A.5 (= 6 l), 2-3 l br, A.6 (= 9 l), 2-3 l br, A.4, 2-3 l br, A.5 og 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur (frá röngu eru prjónaðar 2-3 l á milli mynstureininga). Þegar stykkið mælist ca 71-75 cm – stillið af eftir heila mynstureiningu á hæðina með gatamynstri fyrir miðju, prjónið 4 umf slétt JAFNFRAMT sem fækkað um 5-5 l jafnt yfir í 1. umf = 40-44 l. Fellið af með sl frá röngu. FRÁGANGUR: Leggið 2 endana yfir hvorn annan svo að hornið að framan verði tvöfalt. Saumið affellingarkant kant í kant við ytri hlið í annarri langhliðinni og uppfitjunarkant kant í kant við ytri hlið í hinni langhliðinni. ------------------------------------------------------- VETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. HÆGRI VETTLINGUR: Fitjið upp 40-40 l á sokkaprjóna nr 3 með Nepal og prjónið 1 umf slétt. Prjónið nú stroff (= 2 l sl, 2 l br). Þegar stroffið mælist 6-7 cm er næsta umf prjónuð þannig: * Prjónið 5 l sl, prjónið 2 næstu l sl saman *, endurtakið frá *-*, 2 sinnum til viðbótar, prjónið 1 l sl, 2 l br, * 2 l sl saman, 2 l sl *, endurtakið frá *-*, 1 sinni til viðbótar, 2 l sl saman, 2 l br og endið með 4 l sl = 34-34 l. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4 og prjónið næstu umf þannig: Prjónið 19 l slétt (= í lófa), A.7 (= 11 l ) og 4 l slétt. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 8-9 cm er aukið út um 1 l í hvorri hlið við fyrstu l í umf fyrir þumal – LESIÐ ÚTAUKNING! Endurtakið útaukningu í hvorri hlið við útauknu l í annarri hverri umf, 4-5 sinnum til viðbótar = 44-46 l. Setjið nú 11-13 l fyrir þumal á þráð. Haldið áfram hringinn eins og áður JAFNFRAMT sem fitjað er upp 1 ný l fyrir aftan þumal í næstu umf = 34-34 l. Þegar vettlingurinn mælist ca 21-23 cm (mátið vettlinginn, þá eru eftir ca 4 cm til loka), setjið 1 prjónamerki á eftir 16 fyrstu l í umf og 1 prjónamerki eftir næstu 17 l (þá er eftir 1 l í umf eftir seinna prjónamerki). Fækkið um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf, 2 sinnum til viðbótar og síðan í hverri umf alls 3 sinnum = 10 l eftir á prjóni – ATH: þegar ekki er pláss fyrir fleiri mynstureiningar af A.7 á hæðina endar mynstrið eftir eina heila mynstureiningu á hæðina, prjónið síðan slétt yfir þær l sem eftir eru í mynstri þar til úrtöku er lokið. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. ÞUMALL: Setjið til baka þær 11-13 þumallykkjur af þræði á sokkaprjóna nr 4. Prjónið að auki upp 4-3 l fyrir aftan þumal = 15-16 l. Prjónið slétt hringinn þar til þumallinn mælist ca 4½-5 cm (mátið vettlinginn, nú er eftir ca ½ cm að loka máli). Prjónið 2 l slétt JAFNFRAMT eru allar l prjónaðar saman 2 og 2 í báðum umf = 4-4 l eftir á prjóni. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. VINSTRI VETTLINGUR: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og hægri vettlingur, nema spegilmynd – Þ.e.a.s. byrjið á stroffi með 2 l br (í stað 2 l sl). Prjónið 1. umf eftir stroff þannig: Prjónið 4 l sl, 2 l br, * 2 l sl saman, 2 l sl *, endurtakið frá *-*, 1 sinni til viðbótar, 2 l sl saman, 2 l br, 1 l sl, * 2 l sl saman, 5 l sl *, endurtakið frá *-*, 2 sinnum til viðbótar. Aukið út fyrir þumal í hvorri hlið við síðustu l í umf. Fyrir úrtöku efst á vettlingi er sett 1 prjónamerki á eftir 1. l í umf, og prjónamerki 2 á eftir næstu 17 l (= 16 l eftir í umf eftir seinna prjónamerki). |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #solveigset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 12 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 142-17
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.