DROPS Andes
DROPS Andes
65% Ull, 35% Alpakka
frá 1408.00 kr /100g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4224.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 142-27
DROPS Design: Mynstur nr an-010
Garnflokkur E
-----------------------------------------------------------

HÚFA:
Stærð: Ein stærð

Efni:
DROPS ANDES frá Garnstudio
100 gr litur nr 4300, ljós fjólublár

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (40 cm) NR 7 – eða þá stærð sem þarf til að 12 l og 16 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

HÁLSSKJÓL:
Ein stærð:
Hæð: Ca 37 cm
Vídd: Ca 65 cm

Efni:
DROPS ANDES frá Garnstudio
200 gr litur nr 4300, ljós fjólublár

DROPS PRJÓNAR NR 7 – eða þá stærð sem þarf til að 12 l og 16 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HORNATALA NR 535: 4 stk.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Andes
DROPS Andes
65% Ull, 35% Alpakka
frá 1408.00 kr /100g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4224.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A-1 og A- 2. Mynsturteikningin sýnir 1 mynstureiningu af mynstri bæði á breiddina og á hæðina.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna / sokkaprjóna.

HÚFA:
Fitjið laust upp 65 l á hringprjóna nr 7 með Andes. Prjónið 1 umf brugðið og 1 umf slétt. Prjónið nú mynstur A-1 (= 5 mynstureiningar hringinn). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar mynstrið hefur verið prjónað 2 sinnum á hæðina (stykkið mælist ca 16 cm), haldið áfram með mynstur A-2. Þegar A-2 hefur verið prjónað eru 25 l á prjóni. Næsta umf er prjónuð þannig: Prjónið 1 l sl, 2 l sl saman, * 1 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, 2 l sl saman *, endurtakið frá *-* 3 sinnum til viðbótar (nú eru 2 l eftir í umf), 1 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl (= fyrsta l í næstu umf), steypið óprjónuðu l yfir = 15 l. Síðasta umf er prjónuð þannig: * Takið 1 l óprjónaða, 2 l sl saman, steypið óprjónuðu l yfir *, endurtakið frá *-* út umf = 5 l eftir. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru og herðið að.
Húfan mælist ca 24 cm á hæðina.

-------------------------------------------------------

HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka frá hlið að hlið.

HÁLSSKJÓL:
Fitjið upp 48 l á prjóna nr 7 með Andes. Prjónið (1. umf = rétta) þannig: Prjónið 3 l GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 l sl, 3 l br *, endurtakið frá *-*, endið með 2 l sl og 3 l garðaprjón. Haldið áfram þannig í 4 umf. Í næstu umf er fellt af fyrir 4 hnappagötum þannig: Prjónið 3 l garðaprjón, 2 l sl, * 2 l br saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l br, 2 l sl, 3 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-* 3 sinnum til viðbótar, endið með 3 l í garðaprjóni. Prjónið 3 umf til viðbótar í stroffprjóni eins og áður. Haldið áfram með 2 umf slétt með 3 l garðaprjóni í hvorri hlið – JAFNFRAMT í 1. umf er fækkað um 3 l jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir 3 síðustu l í hvorri hlið) = 45 l. Haldið áfram þannig: Prjónið 3 l garðaprjón, mynstur A-1 þrisvar sinnum á breiddina og 3 l garðaprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram með mynstur þar til stykkið mælist ca 60 cm, stillið af eftir 1 heila mynstureiningu með mynstri – JAFNFRAMT í síðustu umf (= ranga) er aukið út um 3 l jafnt yfir = 48 l. Prjónið 7 umf stroff eins og í byrjun á stykkinu, áður en fellt er af frá röngu með sl yfir sl og br yfir br.
Saumið tölurnar í svo að þær passi við hnappagötin.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 142-27

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (52)

country flag Linda Wunner wrote:

How much yarn is needed for hat and neck warmer?

25.03.2024 - 18:58

DROPS Design answered:

Dear Linda, you will need 100 grams of DROPS Andes yarn for the hat and 200 grams of DROPS Andes for the neck warmer. That is all together 300 gramms. Happy Knitting!

25.03.2024 - 22:05

country flag Isabelle wrote:

Je tricote le bonnet mais je ne suis pas certaine comment faire la jeté à la fin du premier rang du diagramme A-1 et comment la tricoter au rang suivant. Lorsque je fais la jeté, dois tricoter la dernière maille au lieu de la glisser? Puis au rang suivant sur l'envers du tricot, dois-je laisser tomber la ière maille et tricoter la suivante? Merci à l'avance de bien voulor m'éclaircir à ce sujet.

03.01.2023 - 23:23

DROPS Design answered:

Bonjour Isabelle, le bonnet se tricote en rond, si vous avez choisi de le tricoter en allers et retours, montez 2 mailles en plus (mailles lisières) et tricotez ainsi: 1 m lis, répétez A.1 et terminez par 1 m lis. Ainsi, sur l'envers, vous tricoterez 1 m lis, les mailles de A.1 à l'envers, 1 m lis. Veillez à toujours bien avoir le bon nombre de mailles dans chaque A.1 (mettez des marqueurs si besoin, c'est ainsi plus simple de vérifier à chaque rang que le nombre de jetés et de diminutions sont justes). Bon tricot!

04.01.2023 - 09:09

country flag Isabelle wrote:

Bonjour, je tricote le bonnet et j'aurais besoin d'aide s.v.p. car j'ai tricoté la 1ière rangée du diagramme A-1 en le répétant 4 fois seulement au lieu de 5 et de plus il me reste 5 mailles au lieu de 0. J'ai tricoté ainsi: 2 m end, surjet simple, 4 m end., 2 m ens. env, 2 m end, 1 jeté, 1 m end et 1 jeté. Est-ce exact? Je suis supposée répéter le diagramme 5 fois mais il manque des mailles...je n'arrive pas avec les 65 mailles totales. Merci de bien vouloir clarifier.

08.12.2022 - 03:30

DROPS Design answered:

Bonjour Isabelle, le diagramme A.1 se tricote sur 13 mailles soit effectivement (2 m end, 1 surjet simple, 4 m end, 2 m ens à l'end, 2 m end, 1 jeté, 1 m end, 1 jeté = 13 m) répétez de (à) tout le tour soit 5 fois au total (5x13 = 65) - pensez à mettre un marqueur entre chaque motif/diagramme, ce peut être ainsi plus facile de vérifier votre nombre de mailles. Bon tricot!

08.12.2022 - 10:03

country flag Sharon wrote:

Thank you so much. Was missing a couple of yo. S

06.01.2022 - 08:55

country flag Sharon wrote:

Hi, have not been successful with s previous project so am trying this one out. I do not understand the the chart for the neck warmer. Red the first row right to left and I ended up with with 12 stitches is this correct if not how should I work this to get it correct? Thanks.s

05.01.2022 - 23:26

DROPS Design answered:

Dear Sharon, correct, diagrams are read bottom up and RS rows are read right to left, but A.1 is worked over 13 sts like this on 1st row: *K2, slip 1 st as if to K, K1, psso, K4, K2 tog, K2, YO, K1, YO*, repeat from *-* a total of 3 times. From WS, purl all stitches in A.1 (and knit the 3 edge sts on each side). Happy knitting!

06.01.2022 - 07:51

country flag Claudia wrote:

Buongiorno, sono ai miei primi lavori, chiedo scusa se la domanda è banale ma ho fatto il campione con un altro filato e per avere 10 x10 cm con i ferri 7 mi bastano 10 maglie e 15 giri. Come calcolo quante maglie avviare rispettando gli schemi del disegno ? Grazie

07.11.2020 - 11:06

DROPS Design answered:

Buongiorno Claudia, deve utilizzare un filato e dei ferri che le permettano di ottenere il campione indicato, altrimenti deve riprogettare il lavoro: se necessita di assistenza personalizzata può rivolgersi al suo rivenditore DROPS di fiducia. Buon lavoro!

07.11.2020 - 15:37

country flag Alessia Laudo wrote:

Lavoro inizia con" 3 m a PUNTO LEGACCIO – vedere le spiegazioni sopra, * 2 m dir, 3 m rov *, ripetere da *-*, finire con 2 m dir e 3 m a punto legaccio. Proseguire in questo modo per 4 ferri" Ma stando alla foto si vedono coste. Non è che c'è un errore e nei ferri pari/rovescio si dovrebbe lavorare *2rov,3 diritti*?

07.12.2019 - 16:37

DROPS Design answered:

Buongiorno Alessia. Nei ferri di ritorno le coste sono 2 rov , 3 dir. Buon lavoro!

16.12.2019 - 11:45

country flag Jeannine wrote:

Quelle belle surprise d'obtenir une réponse satisfaisante avec cette rapidité. Grand merci!

18.04.2019 - 17:50

country flag Jeannine Bonin wrote:

Bonjour, s.v.p. dites-moi que je comprends bien...contrairement à la lecture d’un texte, la lecture des diagrammes doit se faire à partir de la ligne du bas, au coin droit? Merci!

17.04.2019 - 13:04

DROPS Design answered:

Bonjour Jeannine. Oui, les diagrammes se lisent de bas en haut et de droite à gauche. Ici, vous trouverez plus d'information sur comment lire les diagrammes. Bon tricot !

17.04.2019 - 13:40

country flag Alexia wrote:

Hola se puede hacer el cuello sustituyendo andes por 1 hilo de big delight+1 hilo de brush alpaca silk?

23.12.2016 - 18:37

DROPS Design answered:

Hola Alexia. Dos hilos del grupo C son igual a un hilo del grupo E. No te olvides hacer una muestra antes de realizar la labor.

31.12.2016 - 19:41