Gro skrifaði:
På felling på forstykket (i str S) skal det ikke være "deretter på hver 4. pinne 4 ganger, ikke 6 ganger, hvis man skal ende opp med 15 masker igjen etter alle felliger?
04.08.2012 - 21:27DROPS Design svaraði:
Mönsteret er korrekt. Jeg har regnet str S efter og med alle økninger og fellinger skulle du ende med 15 m
19.12.2012 - 15:41
Rachel skrifaði:
Oh, someone please recreate this in crochet! I love it =D
04.07.2012 - 05:51Hayley skrifaði:
WoW! I can't wait for the pattern! It's adorable!!!
21.06.2012 - 21:26
Nath skrifaði:
J'adore, simple et elegant
20.06.2012 - 10:45
Sarah skrifaði:
Wow, I've always looked for such a vest! This will look classy with everything.
18.06.2012 - 22:32
Anne skrifaði:
Simpel, maar perfect combineerbaar.
17.06.2012 - 22:06
C. Van Leeuwen skrifaði:
Erg leuk vooral op een eenvoudig T-shirt
13.06.2012 - 18:11
Michelle skrifaði:
Like this one, too. Very versatile piece.
04.06.2012 - 09:31
Elena Sophocleous Toth skrifaði:
Mera västmönster i allmänhet pleaze! Är ju ett sånt perfekt plagg, och relativt snabbt att sticka. Mer av sånt här.
02.06.2012 - 07:13Marie skrifaði:
Nice
01.06.2012 - 11:11
Tennessee#tennesseevest |
|
![]() |
![]() |
Prjónað vesti úr DROPS Nepal. Stærð S - XXXL
DROPS 143-39 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. PERLUPRJÓN: Prjónið sl yfir br og br yfir sl. ÚTAUKNING: Aukið er út um 1 l innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið þar til 1 l er eftir á prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn (þ.e.a.s. prjónað er aftan í lykkjubogann í stað framan, svo ekki myndist gat). ÚRTAKA 1 (á við um handveg): Fækkið lykkjum fyrir handveg innan við 3 síðustu l í perluprjóni í hvorri hlið. Fækkið lykkjum frá réttu í byrjun umf þannig: Prjónið 3 l í perluprjóni, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. Fækkið lykkjum frá réttu í lok umf þannig: Prjónið þar til 5 l eru eftir á prjóni, prjónið næstu 2 l slétt saman, 3 l í perluprjóni. Fækkið lykkjum frá röngu í byrjun umf þannig: Prjónið 3 l í perluprjóni, prjónið næstu 2 l snúnar br saman. Fækkið lykkjum frá röngu í lok umf þannig: Prjónið þar til 5 l eru eftir á prjóni, prjónið næstu 2 l br saman, 3 l í perluprjóni. ÚRTAKA 2 (á við um framstykki): Fækkið um 1 l fyrir hálsmáli í hverri umf frá réttu – með því að prjóna síðustu 2 l saman í perluprjóni við miðju að framan (stillið af þannig að næsta l er prjónuð brugðið, svo næsta l verði prjónuð slétt) – alls 8 sinnum = 3 l í perluprjóni eftir við miðju að framan. Prjónið nú 1 l á undan 3 síðustu l í perluprjóni í 4. hverri umf þannig: Fækkið lykkjum frá réttu á hægra framstykki þannig: Prjónið 3 l í perluprjóni, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, prjónið sl út umf. Fækkið lykkjum frá réttu á vinstra framstykki þannig: Prjónið þar til 5 l eru eftir á prjóni, prjónið næstu 2 l slétt saman, prjónið 3 l í perluprjóni. HNAPPAGAT: Fellt er af frá réttu fyrir 1 hnappagati í hægra framstykki. 1 hnappagat = prjónið 3. og 4. l frá miðju að framan slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. BAKSTYKKI: Fitjið upp 64-70-78-86-96-106 l (meðtalin er 1 kantlykkja hvoru megin) á prjóna nr 5 með Nepal. Umf 1 (= rétta) er prjónuð þannig: Prjónið 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 l sl, 1 l br*, endurtakið frá *-*, endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið nú PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 3 cm er prjónað áfram í sléttprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 4-4-4-5-5-5 cm er aukið út um 1 l hvoru megin – LESIÐ ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu 2 sinnum til viðbótar með 4½-5-5-5-5-5½ cm millibili (alls 3 sinnum) = 70-76-84-92-102-112 m. Haldið áfram þar til stykkið mælist 17-18-19-20-21-22 cm (síðasta umf = ranga). Í byrjun næstu 2 umf er prjónað perluprjón yfir síðustu 9-9-9-10-11-12 l í hvorri hlið. Í byrjun á næstu 2 umf eru felldar af fyrstu 6-6-6-7-8-9 l fyrir handveg í hvorri hlið = 3 l perluprjón í hvorri hlið. Haldið áfram með síðustu 3 l í hvorri hlið í perluprjóni – JAFNFRAMT er fækkað um 1 l innan við 3 l – LESIÐ ÚRTAKA 1 – þannig: Fækkið um 1 l í hvorri hlið í umf (þ.e.a.s. frá réttu og frá röngu) alls 4-4-6-6-8-10 sinnum í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hverri umf frá réttu) 1-2-3-4-4-5 sinnum alls = 48-52-54-58-62-64 l. Þegar úrtöku er lokið er haldið áfram í perluprjón yfir 3 síðustu l til loka (= kantur að framan við handveg). Þegar stykkið mælist 30-32-34-36-38-40 cm er prjónað perluprjón yfir miðju 24-26-26-28-28-30 l til loka. Þegar stykkið mælist 32-34-36-38-40-42 cm eru felldar af miðju 18-20-20-22-22-24 l við hálsmál = 15-16-17-18-20-20 l eftir á öxl (3 l perluprjón eftir við háls í hvorri hlið), og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram í sléttprjón og 3 l í perluprjón í hvorri hlið (handvegur og hálsmál) þar til stykkið mælist 34-36-38-42-42-44 cm, fellið laust af allar l. HÆGRA FRAMSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. Fitjið upp 21-24-28-32-37-42 l (meðtalin er 1 kantlykkja í hlið) á prjóna nr 5 með Nepal. Umf 1(= rétta) er prjónuð þannig: * Prjónið 1 l sl, 1 l br * , endurtakið frá *-*, endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Prjónið perluprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hlið – JAFNFRAMT eru fitjaðar upp nýjar l við miðju að framan í lok hverrar umf frá röngu þannig: Fitjið upp 4 l 3 sinnum, 2 l 2 sinnum – nýju l eru prjónaðar jafnóðum í perluprjóni. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 3 cm er prjónað frá réttu þannig: Prjónið fyrstu 11 l í umf í perluprjóni (= kantur við miðju að framan), prjónið sl út umf. Prjónið nú sléttprjón – en síðustu 11 l við miðju að framan eru prjónaðar í perluprjóni – þ.e.a.s. kantur með 11 l í perluprjóni færist til þar sem fitjaðar eru upp nýjar l við miðju að framan. Þegar stykkið mælist 4-4-4-5-5-5 cm er aukið út um 1 l í hlið eins og á bakstykki. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 10-10-11-11-12-12 cm frá uppfitjunarkanti er fellt af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan! Þegar stykkið mælist 12-12-13-13-14-14 cm er felld 1 l fyrir hálsmáli frá réttu – LESIÐ ÚRTAKA 2. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf alls 8 sinnum (í kanti að framan), síðan er fellt af í 4. hverri umf alls 6-7-7-8-8-9 sinnum (innan við 3 síðustu l í perluprjóni). Þegar úrtöku fyrir hálsmáli er lokið er haldið áfram í perluprjón yfir 3 síðustu l til loka (= kantur við miðju að framan). JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 17-18-19-20-21-22 cm er prjónað perluprjón yfir 9-9-9-10-11-12 l við handveg eins og á bakstykki og fellt er af fyrir handveg á sama hátt og á bakstykki. Þegar úrtöku er lokið eru 15-16-17-18-20-20 l eftir á öxl. Haldið áfram með 3 l í perluprjóni í hvorri hlið (handvegur og hálsmál) þar til stykkið mælist 34-36-38-40-42-44 cm. Fellið laust af. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema spegilmynd og án hnappagata. FRÁGANGUR: Saumið axlir saman. Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #tennesseevest eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 11 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 143-39
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.