DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9240.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Rachel

Prjónuð peysa úr DROPS Merino Extra Fine eða DROPS Belle með vösum með köðlum. Stærð S - XXXL

DROPS 141-36
DROPS Design: Mynstur nr me-052
Garnflokkur B
--------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio
500-550-600-650-750-850 gr litur nr 26, ljós grænn

Eða notið:
DROPS BELLE frá Garnstudio
450-500-550-600-700-750 gr litur nr 10, mosagrænn

DROPS PRJÓNAR NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l og 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS PRJÓNAR NR 3,5 – fyrir kant með garðaprjóni.
DROPS SILFURTALA nr 534: 6-6-7-7-7-7 stk.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9240.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2 fyrir mynstur á vösum. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 86-94-102-114-126-138 l (meðtalin er 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjóna nr 3,5 með Merino Extra Fine eða Belle. Prjónið 8 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan! Skiptið yfir á prjóna nr 4 og haldið áfram í sléttprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 4-4-5-5-6-6 cm, fellið af 1 l í hvorri hlið. Endurtakið úrtöku með 4 cm millibili 3 sinnum til viðbótar = 78-86-94-106-118-130 l. Þegar stykkið mælist 20-20-21-21-22-22 cm, er aukið út um 1 l í hvorri hlið. Endurtakið útaukningu með 4 cm millibili 3 sinnum til viðbótar = 86-94-102-114-126-138 l. Þegar stykkið mælist 37-38-39-40-41-42 cm, er fellt af fyrir handveg í byrjun hverrar umf í hvorri hlið 4 l 0-0-1-1-1-1 sinnum, 3 l 1-1-0-1-2-3 sinnum, 2 l 0-1-2-3-3-3 sinnum og 1 l 1-2-2-2-3-4 sinnum = 78-80-82-84-88-92 l. Þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm, fellið af miðju 30-30-32-32-34-34 l af fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið nú af 2 l í næstu umf frá hálsmáli = 22-23-23-24-25-27 l eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 49-53-57-63-69-75 l (meðtalin er 1 kantlykkja í hvorri hlið og 6 kantlykkjur við miðju að framan) á prjóna nr 3,5 með Merino Extra Fine eða Belle. Prjónið 8 umf garðaprjón. Skiptið yfir á prjóna nr 4 og haldið áfram í sléttprjóni, nema 1 kantlykkju í hliðum og 6 kantlykkjur við miðju að framan eru prjónaðar í garðaprjóni til loka. Þegar stykkið mælist 4-4-5-5-6-6 cm, byrjar úrtaka í hliðum eins og á bakstykki = 45-49-53-59-65-71 l. Þegar stykkið mælist 20-20-21-21-22-22 cm, byrjar útaukning í hliðum eins og á bakstykki = 49-53-57-63-69-75 l. Þegar stykkið mælist 37-38-39-40-41-42 cm, er fellt af fyrir handveg í hliðum eins og á bakstykki = 45-46-47-48-50-52 l. Þegar stykkið mælist 47-49-51-52-54-56 cm, setjið síðustu 11-11-12-12-13-13 l við miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli (setjið lykkjur á þráðinn í lok umf án þess að prjóna þær fyrst). Fellið af í byrjun hverrar umf frá hálsmáli: 3 l 1 sinni, 2 l 3 sinnum og 1 l 3 sinnum = 22-23-23-24-25-27 l eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og vinstra framstykki, nema spegilmynd. Að auki er fellt af fyrir hnappagötum í kanti að framan frá réttu. 1 hnappagat = prjónið þriðju og fjórðu l frá miðju að framan slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
STÆRÐ S: 2, 11, 20, 29 og 38 cm.
STÆRÐ M: 2, 11, 21, 30 og 40 cm.
STÆRÐ L: 2, 11, 19, 27, 35 og 43 cm.
STÆRÐ XL: 3, 12, 20, 28, 36 og 44 cm.
STÆRÐ XXL: 3, 12, 20, 29, 37 og 46 cm.
STÆRÐ XXXL: 3, 12, 21, 30, 39 og 48 cm.
Fellið líka af fyrir 1 hnappagati í hálsmáli.

ERMI:
Stykkið er prjónað fram og til baka.
Fitjið upp 48-50-52-54-56-60 l (meðtalin er 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjóna nr 3,5 með Merino Extra Fine eða Belle. Prjónið 6 umf garðaprjón. Skiptið yfir á prjóna nr 4 og haldið áfram æi sléttprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 10-8-10-10-8-8 cm, aukið út um 1 l í hvorri hlið.
Endurtakið útaukningu með 3-3-2½-2-2-2 cm millibili 12-13-14-16-17-17 sinnum til viðbótar = 74-78-82-88-92-96 l. Þegar stykkið mælist 50-49-48-47-46-45 cm (styttri mál í stærri stærðum vegna víðari handvegs og breiðari axla), fellið af fyrir handveg í byrjun hverrar umf í hvorri hlið: 4 l 1 sinni, 2 l 3 sinnum, 1 l 2-3-5-6-7-9 sinnum og síðan 2 l í hvorri hlið þar til stykkið mælist 56 cm. Fellið nú af 3 l 1 sinni í hvorri hlið, fellið af þær l sem eftir eru. Stykkið mælist ca 57 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

VASI:
Fitjið upp 27-27-27-29-29-29 l á prjóna nr 3,5 með Merino Extra Fine eða Belle. Prjónið 4 umf garðaprjón (1. umf = rétta): Skiptið yfir á prjóna nr 4. Næsta umf er þannig (frá réttu) þannig: Prjónið 2 l garðaprjón, * 1 l sl, 2 l sl í hvora af næstu 2 l, 1 l sl, 3-3-3-4-4-4 l br, 1 l sl, 2 l sl í hvora af næstu 2 l, 1 l sl *, 1 l br, endurtakið frá *-* einu sinni til viðbótar, endið með 2 l garðaprjón = 35-35-35-37-37-37 l. Prjónið sl yfir sl og br yfir br í umf til baka í 2 l garðaprjóni í hvorri hlið. Haldið áfram þannig: Prjónið 2 l garðaprjón, mynstur A.1, 3-3-3-4-4-4 l br, mynstur A.1, 1 l br, mynstur A.2, 3-3-3-4-4-4 l br, mynstur A.2 og 2 l garðaprjón. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist alls ca 10-10-11-11-12-12 cm á hæðina – endið eftir 1 umf frá röngu. Næsta umf er prjónuðu (frá réttu) þannig: Prjónið 2 l sl, * 1 l sl, 2 l sl saman, 2 l sl saman, 1 l sl, 3-3-3-4-4-4 l br, 1 l sl, 2 l sl saman, 2 l sl saman, 1 l sl *, 1 l br, endurtakið frá *-* einu sinni til viðbótar, endið með 2 l sl = 27-27-27-29-29-29 l. Skiptið yfir á prjóna nr 3,5, Prjónið nú 4 umf garðaprjón yfir allar l (1. umf = ranga), fellið síðan af með sl frá röngu. Vasinn mælist ca 11-11-12-12-13-13 cm.
Prjónið annan vasa til viðbótar á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlarsauma.
Hálsmál: Prjónið upp ca 90 til 105 l kringum hálsmál meðtaldar eru l af þræði á hringprjóna nr 3,5. Prjónið 1 umf slétt frá röngu, síðan 1 umf slétt frá réttu jafnframt sem fellt er af fyrir 1 hnappagati yfir hin í kanti að framan. Prjónið 4 umf slétt til viðbótar, fellið síðan af með sl frá röngu.
Saumið ermar í. Saumið erma- og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju.
Saumið vasa á ca 4-5-5-6-6-6 cm frá neðri brún og 7-8-9-10-11-12- cm frá miðju að framan. Saumið tölur í.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = setjið 3 lykkjur á hjálparprjón aftan við stykkið, 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur slétt af hjálparprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur á hjálparprjón framan við stykkið, 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur slétt af hjálparprjóni
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 141-36

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (25)

country flag Christine Carr wrote:

On the right front piece, after the 8 rows in garter stitch do I knit 1 edge stitch, purl to the last 6 stitches, knit 2 stitches, knit the third and fourth stitches together, make a yarn over and knit the last two stitches?

13.06.2022 - 22:05

DROPS Design answered:

Dear Mrs Carr, the right front piece starts from RS with the front band stitches and ends with the edge stich on the side, ie after the 8 rows in garter stitch, work from RS as follows: 6 front band sts in garter stitch, stocking stitch until 1 stitch remain, 1 edge stitch. Happy knitting!

14.06.2022 - 09:12

country flag Margaret Horan wrote:

When casting off for sleeve cap(I'm doing 2nd size) itsays cast off 4 once - does this mean that the two sides will not be symmetrical?

18.01.2021 - 18:28

DROPS Design answered:

Dear Mrs Horan, they will be symetrical since you have to cast off at the beginning of every row in each side the same number of stitches, ie both from right side and from wrong side. Happy knitting!

19.01.2021 - 07:07

country flag Hazel wrote:

Another question please. For the bust measurement and hips, I certainly have to do the XL but can I take the "waist" decreases for the lower size as my measurements are smaller??? Will the knitting be off centre??? This will be for my second cardigan. I haven't finished it yet, but so far, it's looking rather good.

20.03.2019 - 19:30

DROPS Design answered:

Dear Hazel, feel free to adjust the pattern to your own measurements, should you need any individual assistance, you are welcome to contact the store where you bought the yarn - even per mail or telephone. Happy knitting!

21.03.2019 - 16:19

country flag Hazel wrote:

So far, so good, except for the buttonholes which, for me, are on the "wrong" side according to your pattern, unless I misunderstood it. If you follow the instructions, the "left side" is actually the "right" side or have I misread something somewhere? It doesn't matter so much because now I have the buttonholes the reverse side to what I'm used to, and will change it next time. Do you have any comments on this???

20.03.2019 - 19:27

DROPS Design answered:

Dear Hazel, buttonholes are on the front band sts on the right front piece - you work the right front piece reversed / mirrored, ie from RS you will start with 6 front band sts (towards mid front) and finish with 1 edge st (towards back piece). So that the buttonholes should be as shown on the picture. Happy knitting!

21.03.2019 - 10:06

country flag Krista De Backer wrote:

Is de kleur van het vest zeker pistache nr. 26. Lijkt mij kleur nr. 15 licht grijsgroen? Zou graag zeker zijn van de kleur. Groetjes

06.09.2018 - 15:20

DROPS Design answered:

Dag Krista, Ja, het is pistache hoor. Door de lichtwerking kan het er altijd ietsje anders uitzien met fotografie (en dat geldt overigens ook voor de garensamples op de site)

07.09.2018 - 18:01

Kerstin Winchester wrote:

According to the pattern on the pocket, after I have increased st. to 35 on the right side, do. I start the cable pattern next row which is the wrong side? Also, do I knit and purl on every wrong side and do the cable pattern only on the right side? Thank you

01.04.2018 - 13:23

DROPS Design answered:

Dear Mrs Winchester, on next row after increasing work 1 row from WS with K over K andn P over P and 2 sts in garter st in each side. Then start cable pattern on next row from RS. Happy knitting!

03.04.2018 - 08:45

country flag Kerstin Winchester wrote:

How do I make the steve shorter, like 54 cm instead of 57?

14.03.2018 - 15:59

DROPS Design answered:

Dear Mrs Winchester, you will have to start the dec for sleeve cap 3 cm earlier, adjust so that all increase have been done, and bind off for sleeve cap as described, binding off 2 sts until sleeve measures 53 cm and then finish binding off 3 sts on each side and then all sts. Happy knitting!

14.03.2018 - 16:03

country flag Annie Gärtner wrote:

Bonjour, Je ne comprends pas où et pourquoi il faut mettre des mailles en attente pour l'encolure des devants. Merci pour votre réponse Annie

17.12.2015 - 19:27

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Gartner, ce sont les 11-13 premières m côté encolure que l'on met en attente soit 6 m de bordure + 5-7 m jersey. On rabat ensuite les mailles de l'encolure: 1x3m, 3x2 m et 3x1 m tous les 2 rangs. Quand on tricote le col, on reprend les mailles en attente et on relève les mailles autour de l'encolure. Bon tricot!

18.12.2015 - 09:56

country flag Diana wrote:

Habe diese Jacke in schwarz gestrickt, einfach herrlich sie gerhört zu meinen absoluten Lieblingsstücken!

21.02.2014 - 08:52

country flag Ellen wrote:

Waar kan ik een instructie vinden voor het juist naaien van de zakken op het vest? Met dank!

16.02.2014 - 18:57

DROPS Design answered:

Beste Ellen. We hebben helaas (nog) geen video van het vastnaaien van de zakken. Je kan eventueel kijken op YouTube.

17.02.2014 - 11:32