Iris Acker skrifaði:
Liebe Eva, in Größe S strickt man laut Anleitung nur 11 Mustersätze, also nur bis Reihe 11. Daher nimmt man auch keine Maschen ab.
01.01.2014 - 16:27DROPS Design svaraði:
Hallo Iris, dies ist Ihr Missveständnis, man strickt 11 Mustersätze in der Breite, aber das Muster wird in der Höhe komplett gestrickt. Siehe Anleitung: "Wenn A-1 ZU ENDE gestrickt wurde, verbleiben 154-168-182-196-210-224 M auf der Nadel".
01.01.2014 - 16:52
Rebecca Lofft skrifaði:
Hei! Eg vil strikke denne genseren i Drops
31.12.2013 - 01:28
Eva skrifaði:
In det 13. Reihe sind es doch nur noch 14 Maschen übrig, oder? 14 X 11= 154.
25.12.2013 - 15:28
Iris Acker skrifaði:
Liebe Eva, in der letzten Reihe 11 des Musters A1 in Größe S besteht ein Mustersatz aus 16 Maschen. Wenn du diesen nach Anleitung 11x strickst, kommst du nun mal auf 176 Maschen und nicht 154. So what?
25.12.2013 - 14:30Eva skrifaði:
11 X 2=22 Maschen. 176-22=154! Was noch?
23.12.2013 - 12:37
Iris Acker skrifaði:
Danke für die Hinweise ihr Lieben. Nur, dass bei lauat Anleitung bei Größe S eben nur 11 Mustersätze anstatt 13 zu stricken sind. So kommt es nicht zur Abnahme. Insoweit müsste die Anleitung für Größe S wohl korrigiert werden. Frohe Weihnachten an alle Leserinnen
23.12.2013 - 10:52
Eva skrifaði:
Hallo Iris! Es werden ja 2 Maschen per Diagramm abgenommen; in der obersten ( 13en)Reihe.
22.12.2013 - 14:34
Iris Acker skrifaði:
Ich stricke gerade das Modell 143-15. Bei Größe S beginnt man mit 176 Maschen. Nach dem Mustersatz A-1 sollen es nur noch 154 Maschen sein. Es sind aber nach den angegebenen 11 Mustersätzen nach wie vor 176 Maschen. Fehlt in der Anleitung ein Abnehmvorgang?
22.12.2013 - 14:05DROPS Design svaraði:
Liebe Iris, in der letzten R von A.1 wird eine 3er-Abnahme gemacht, ohne dass die Abnahme durch Umschläge ausgeglichen wird (siehe Diagramm). Dort findet die Abnahme der Maschenzahl statt.
23.12.2013 - 07:48
Päivi skrifaði:
Modellen passar bra till mig, färjer är läckerta och jag tror denna blir min favorit stycke.
04.10.2013 - 17:40
Helene skrifaði:
Hur är storlekarna? Bröstmåttet i stl L. Någon som vet?
04.10.2013 - 07:48
Elena#elenasweater |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Nepal með löngum ermum, berustykki og mynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 143-15 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A-1 til A-5, mynsturteikningin sýnir 1 mynstureiningu af mynstri. Mynsturteikningar A-2 til A-5 eru prjónaðar í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna. FRAM- OG BAKSTYKKI. Fitjið LAUST upp 176-192-208-224-240-256 l á hringprjóna nr 5 með litnum kamel (mikilvægt er að uppfitjunarkanturinn sé ekki of stífur). Prjónið 1 umf brugðið, 1 umf slétt og 1 umf brugðið. Haldið áfram með mynstur A-1 (= 11-12-13-14-15-16 mynstureiningar hringinn). Þegar A-1 hefur verið prjónað eru 154-168-182-196-210-224 l á prjóni. Haldið áfram í sléttprjóni – JAFNFRAMT er sett 1 prjónamerki í byrjun umf og 1 prjónamerki eftir 77-84-91-98-105-112 l (þetta merkir hliðar). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 15 cm, er fækkið um 1 l hvoru megin við hvort prjónamerki, endurtakið úrtöku með 6-6-6-8-12-19 cm millibili 4-4-4-3-2-1 sinni til viðbótar = 134-148-162-180-196-216 l. Þegar stykkið mælist 43-45-46-47-48-49 cm, prjónið mynstur A-2 einu sinni á hæðina – JAFNFRAMT, jafnt yfir í 1. umf, er fækkað um 2 l í stærð S og aukið út um 2 l í stærð M = 132-150-162-180-198-216 l. JAFNFRAMT í síðustu umf eru felldar af 8 l í hvorri hlið í öllum stærðum (þ.e.a.s. 4 l hvoru megin við hvort prjónamerki) = 116-134-146-164-182-200 l, klippið frá. Stykkið mælist ca 49-51-52-53-54-55 cm. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 44-48-48-52-52-56 l á sokkaprjóna nr 4 með litnum kamel. Prjónið 1 umf sléttprjón, haldið áfram með stroff = 2 l sl, 2 l br í 6 cm. Prjónið nú 1 umf sléttprjón jafnframt er fækkað um 4 l jafnt yfir = 40-44-44-48-48-52 l. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 5, setjið 1 prjónamerki í byrjun umf. Prjónið 1 umf sléttprjón, prjónið nú mynstur A-5 einu sinni á hæðina, haldið áfram í sléttprjóni og litnum kamel. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 11 cm, er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki undir ermi. Endurtakið útaukningu með 3-4-4-3½-3½-3 cm millibili 9-7-7-8-8-9 sinnum til viðbótar = 60-60-60-66-66-72 l. Þegar stykkið mælist 40 cm, er prjónað mynstur A-2 einu sinni á hæðina – JAFNFRAMT í síðustu umf í mynstri A-2 eru felldar af 8 l við miðju undir ermi, þ.e.a.s. 4 l hvoru megin við prjónamerki = 52-52-52-58-58-64 l. Ermin mælist ca 46 cm, geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið ermarnar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 220-238-250-280-298-328 l. Hver umf byrjar frá miðju að aftan – setjið 1 prjónamerki hér. Prjónið 1 umf með litnum kamel jafnframt sem lykkjufjöldinn er jafnaður út að 220-242-242-264-286-308 l. Haldið áfram með 0-0-2-4-6-9 umf með litnum kamel áður en mynstur A-3 er prjónað (= 10-11-11-12-13-14 mynstureiningar hringinn). Eftir A-3 eru 200-220-220-240-260-280 l á prjóni. Prjónið 1 umf með litnum kamel jafnframt er fækkað um 10-20-10-20-30-40 l jafnt yfir = 190-200-210-220-230-240 l. Haldið áfram með mynstur A-4. Þegar A-4 hefur verið prjónað eru 76-80-84-88-92-96 l á prjóni. Stykkið er prjónað til loka með litnum kamel. Berustykkið mælist nú ca 21-21-22-23-24-25 cm á hæðina. Prjónið nú upphækkun að aftan við hálsmál með litnum kamel og sléttprjóni þannig: Prjónið 7 l sl framhjá prjónamerki við miðju að aftan, snúið við, herðið þræði og prjónið 14 l br til baka, snúið við, herðið þræði og prjónið 21 l sl, snúið við, haldið áfram að prjóna yfir 7 l fleiri í hverri umf áður en snúið er við þar til prjónaðar hafa verið alls 56-56-56-70-70-70 l, snúið við og prjónið 1 umf sl fram að miðju að aftan. KRAGI: Skiptið yfir á hringprjóna nr 4. Prjónið 1 umf slétt með litnum kamel jafnframt er aukið út um 8 l jafnt yfir = 84-88-92-96-100-104 l. Haldið áfram með stroff = 2 l sl,2 l br í 3 cm, fellið af með sl yfir sl og br yfir br. FRÁGANGUR: Saumið saman op við handveg. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #elenasweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 12 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 143-15
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.