Tatiana skrifaði:
Belíssimo trabalho. borda simples e muito delicada. amei!
10.06.2012 - 00:09
Lisbeth skrifaði:
Skønt garn glæder mig til opskrifter på trøjer
09.06.2012 - 18:43
Monique Ooms skrifaði:
Heel mooi fijn,wordt ik blij van.
09.06.2012 - 10:31
Pia skrifaði:
Meget fint sjal. Det skal da med-
04.06.2012 - 20:10
Largeaud skrifaði:
Trés joli le nom que je donnerais: voile d'un soir:
02.06.2012 - 13:57
Anja skrifaði:
Ein Hauch - einfach klasse
01.06.2012 - 11:57
Alike Baaij skrifaði:
Moet toch maar eens een cursus breien gaan volgen met al die mooie breipatronen.....
01.06.2012 - 09:13
Aire#aireshawl |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónað sjal með mynstri úr DROPS Lace.
DROPS 143-5 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. AFFELLING MEÐ UPPSLÆTTI: * Fellið af 3 lykkjur, sláið 1 sinni uppá hægri prjón, fellið uppsláttinn af *, endurtakið frá *-* út umf. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna til að fá pláss fyrir allar lykkjur. SJAL: Fitjið upp 9 l á hringprjóna nr 3,5 með Lace. Setjið 1 prjónamerki í 5. l (miðjulykkja – merkir miðju aftan á sjalinu). Prjónið 1 umf þannig (= rétta): Prjónið 3 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 l sl = 11 l. Prjónið nú sl í hverri umf JAFNFRAMT sem aukið er út um 4 l í hverri umf frá réttu þannig: Sláið uppá 1 sinni prjóninn innan við 3 l í garðaprjóni í hvorri hlið og sláið 1 sinni upp á prjóninn hvoru megin við l með prjónamerki. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat. Þegar stykkið mælist ca 40 cm fyrir miðju, þá er prjónað þannig – frá réttu: Prjónið 2 l garðaprjón, prjónið fyrstu 3 l í A.1, endurtakið næstu 2 l við miðjulykkju (prjónið sléttprjón), endurtakið fyrstu 2 l í A.2 þar til 5 l eru eftir, prjónið síðustu 3 l í A.2 og endið með 2 l garðaprjón. Haldið svona áfram með mynstur og útaukningu. Þegar stykkið mælist ca 63 cm við miðju er prjónað garðaprjón yfir allar l í 2 cm. Fellið að með uppslætti – sjá AFFELLING MEÐ UPPSLÆTTI í útskýringu að ofan. KANTUR: Fitjið upp 8 l á prjóna nr 3,5 með Lace. Prjónið fram og til baka eftir A.3, JAFNFRAMT er kanturinn prjónaður saman við sjalið – byrjið efst á sjalinu og prjónið kant fastan meðfram hægri hallanum niður að horni. Kanturinn er prjónaður fastur við sjalið – í hverri umf frá röngu þannig: Takið upp síðustu l yst í lykkjubogann á sjalinu með hægri prjóni, prjónið fyrstu l af vinstri prjóni (A.3), steypið nýju l yfir, prjónið út umf. Þegar oddlaga kanturinn hefur verið prjónaður alveg niður að horni á sjalinu er fellt af. Endurtakið meðfram vinstri hlið á sjalinu, en nú er prjónað eftir A.4. Kanturinn er prjónaður fastur á sjalið – í hverri umf frá réttu þannig: Takið upp síðustu l yst í lykkjubogann á sjalinu með hægri prjóni, prjónið fyrstu l af vinstra prjóni (A.4), steypið nýju l yfir, prjónið út umf. Saumið saman affellingarkantinn á A.3 og A.4 neðst niðri við hornið. STREKKING: Leggið sjalið í volgt vatn þar til það er orðið blautt í gegn. Pressið varlega vatnið úr sjalinu – það má ekki vinda það. Sjalinu er nú rúllað inn í handklæði og pressað til að ná enn meira vatni úr sjalinu – sjalið á nú að vera aðeins rakt. Leggið sjalið á mottu eða dýnu – dragið það varlega út í rétta stærð og notið nálar til þess að festa það með. Látið sjalið þorna. Endurtakið þetta í hvert skipti sem sjalið er þvegið. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #aireshawl eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 9 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 143-5
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.