Marion skrifaði:
Bonjour, Concernant le diagramme A1, comment peut-on faire 1 jeté entre 2 mailles alors qu'il y a une maille glissée juste après?! Je ne sais pas comment m'y prendre... Merci pour votre réponse!
10.12.2012 - 21:44DROPS Design svaraði:
Bonjour Marion, vous placez votre fil devant l'ouvrage (entre les 2 aiguilles), glissez 1 m à l'end, tricotez les 2 m suiv à l'end et passez la m glissée par-dessus la m tricotée, votre fil s'est naturellement placé par-dessus l'aiguille droite, vous avez votre 1er jeté. Bon tricot !
10.12.2012 - 21:47
Monica skrifaði:
Elegantissimo e intrigante...
16.07.2012 - 16:38Beryl Brown skrifaði:
Hello, I would love to knit this jacket but I can't wear mohair. Can you suggest a yarn alternative that would keep the soft effect of this jacket? Thanks, Beryl
13.07.2012 - 05:24DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Brown, do not hesitate to read "alternative yarns" and request help from your Drops store ! Happy knitting !
04.12.2012 - 15:03Annette skrifaði:
Elegant, Extavagant!!!
12.07.2012 - 17:39
Anna Huizinga skrifaði:
Naam: nachtvlinder
01.07.2012 - 20:47
Ilaria skrifaði:
Bellissimo!!
30.06.2012 - 16:06
Bente skrifaði:
Nej hvor dejligt - en mere moderne model, god til os, der gerne vil følge moden. Mere af den slags! Tak :)
23.06.2012 - 10:21
Marise skrifaði:
Tres elegante!
19.06.2012 - 15:44
Helena skrifaði:
Supersnygg design! kul med modern och nyänkande form
19.06.2012 - 14:14Rebeka skrifaði:
Hi. i need this pattern, too.
19.06.2012 - 12:55
Dea#deajacket |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS BabyAlpaca Silk og DROPS Kid-Silk. Stærð S - XXXL
DROPS 141-26 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A-1. Báðar umf í mynstri sýna mynstur séð frá réttu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka í 2 stykkjum sem saumuð eru saman að lokum. Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Vinstra bakstykki og framstykki eru prjónuð í eitt frá miðju að aftan á baki. VINSTRA STYKKI: Fitjið upp 108-108-119-119-130-130 l á hringprjóna nr 5 með 1 þræði af hvorri tegund. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan! Næsta umf er prjónuð (= frá réttu) þannig: Prjónið 3 kantlykkjur í garðaprjóni, 2 l sl (prjónaðar í sléttprjóni til loka), mynstur A.1 alls 9-9-10-10-11-11 sinnum, endið með 4 kantlykkjum í garðaprjóni. Haldið áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 13-14-15-16-17-18 cm er felld af síðasta kantlykkjan í umf (séð frá réttu) = 107-107-118-118-129-129 l. Haldið áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 83-84-85-86-87-88 cm er fitjuð upp ein ný kantlykkja í lok umf (séð frá réttu) = 108-108-119-119-130-130 l. Prjónið þar til stykkið mælist 96-98-100-102-104-106 cm. Haldið áfram með mynstur, JAFNFRAMT er prjónuð stuttar umferðir (1. umf = frá réttu) þannig: Prjónið þar til 10 l eru eftir á prjóni, snúið við og prjónið til baka. Prjónið þar til 16 l eru eftir á prjóni, snúið við og prjónið til baka. Prjónið þar til 21 l er eftir á prjóni, snúið við og prjónið til baka. Haldið áfram með stuttar umferðir, fyrir hvert skipti sem prjónað er frá réttu er prjónað yfir í annað hvert skipti 5 og í annað hvert skipti 6 l færri en í fyrri umferð með stuttum umferðum. Haldið áfram með stuttar umferðir þar til prjónaðar hafa verið stuttar umferðir yfir allar l (síðasta stutta umferðin er prjónuð yfir 11 l), prjónið 4 umf garðaprjón yfir allar l, fellið af. HÆGRA STYKKI: Prjónið á sama hátt og vinstra stykki, nema spegilmynd, 1. umf með mynstri er prjónuð – frá réttu þannig: Prjónið 4 kantlykkjur í garðaprjóni, 2 l sl (prjónaðar í sléttprjóni til loka), A.1 alls 9-9-10-10-11-11 sinnum, endið með 3 kantlykkjum í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 13-14-15-16-17-18 cm er felld af fyrsta kantlykkjan í umf (séð frá réttu). Þegar stykkið mælist 83-84-85-86-87-88 cm er fitjuð upp ein ný kantlykkja í byrjun umf (séð frá réttu). Þegar prjónaðar hafa verið stuttar umferðir er prjónað með byrjun frá röngu. FRÁGANGUR: Sjá mynsturteikningu: Saumið A við A og B við B. Saumið D við D. Saumið C við C, en endið þegar 25 cm eru eftir (= klauf). |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #deajacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 3 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 141-26
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.