DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24
DROPS 141-18
DROPS Design: Mynstur nr bs-025
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS BABY ALPACA SILK frá Garnstudio
400-450-500-550-600-650 gr litur nr 8465, milligrár

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (60 og 80 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til þess að 24 l og 32 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm, 31 l með mynstri eftir A.1 verði 10 cm á breiddina og 18 l með mynstri eftir A.3 verði 10 cm á breiddina.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

LEIÐBEININGAR:
Vegna mismunandi gatamynstra í peysunni, sameinað í sléttprjóni verður prjónfestan mismunandi í hverjum kafla. Sjáið til þess að prjónfestan haldist í hverjum kafla.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring. LESIÐ LEIÐBEININGAR!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 258-288-312-342-372-408 l á hringprjóna nr 3 með Baby Alpaca Silk.
Prjónið 1 umf slétt. Prjónið nú stroff (= 2 l sl, 4 l br). Þegar stroffið mælist 5 cm er prjónað mynstur eftir A-1. (sjáið til þess að sl l í mynstri passi yfir sl l í stroffi). Þegar stykkið mælist 15 cm er prjónuð 1 umf slétt. JAFNFRAMT er fækkað um 56-68-72-78-84-92 l jafnt yfir = 202-220-240-264-288-316 l. Prjónið A.2 . Eftir A.2 er prjónað sléttprjón. Þegar stykkið mælist 21 cm er prjónuð 1 umf slétt JAFNFRAMT er fækkað um 14 l jafnt yfir = 188-206-226-250-274-302 l. Prjónið aftur A.2 JAFNFRAMT er fækkað um 46-52-56-64-68-76 l jafnt yfir í síðustu umf = 142-154-170-186-206-226 l. Setjið 2 prjónamerki í stykkið þannig: Setjið 1 prjónamerki í 1. l í umf og 1 prjónamerki í 72.- 78.- 86.- 94.- 104.- 114. l í umf (70-76-84-92-102-112 l á milli 2 l með prjónamerki í). Prjónið mynstur eftir A.3, en l með prjónamerki í eru prjónaðar slétt. Þegar stykkið mælist 24 cm er aukið út um 1 l í hvorri hlið við l með prjónamerki – útauknar lykkjur eru prjónaðar slétt þar til þær ganga upp í mynstur, l sem ekki ganga upp í mynstur + l með prjónamerki, eru prjónaðar slétt í hverri umf. Endurtakið útaukningu með 4-4-4-5-5-5 cm millibili, 2 sinnum til viðbótar = 154-166-182-198-218-238 l (takið burtu prjónamerki í hliðum). Þegar stykkið mælist 33-34-34-35-35-36 cm – stillið af eftir 1 umf með gati – prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT er aukið út um 52-54-62-66-74-78 l jafnt yfir = 206-220-244-264-292-316 l. Prjónið A.2, JAFNFRAMT er aukið út um 58-68-74-78-86-92 l jafnt yfir í síðustu umf = 264-288-318-342-378-408 l – setjið 1 nýtt prjónamerki í hvora hlið (= 132-144-159-171-189-204 l á fram- og bakstykki). Prjónið mynstur eftir A.1. Þegar stykkið mælist 38-39-40-41-42-43 cm fellið af 12 l í hvorri hlið (þ.e.a.s. 6 l hvoru megin við bæði prjónamerkin) = 120-132-147-159-177-192 l eftir á fram- og bakstykki. Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Fitjið upp 66-72-72-72-78-78 l á prjóna nr 3 með Baby Alpaca Silk. Prjónið 1 umf slétt. Prjónið nú stroff (= 2 l sl, 4 l br). Þegar stroffið mælist 5 cm er prjónað mynstur eftir A.1 (sjáið til þess að sl l í mynstri passi yfir sl l í stroffi). Þegar stykkið mælist 15 cm er prjónuð 1 umf slétt JAFNFRAMT er fækkað um 10-14-12-10-16-14 l jafnt yfir = 56-58-60-62-62-64 l. Setjið 1 prjónamerki í 1. l í umf.
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
MYNSTUR:
Prjónið nú mynstur A.2. Eftir A.2 er prjónað sléttprjón. Þegar stykkið mælist 21 cm er aftur prjónað mynstur A.2 JAFNFRAMT er fækkað um 14 l jafnt yfir í síðustu umf. Prjónið mynstur eftir A.3. Þegar stykkið mælist 41-41-39-39-37-37 cm prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT er aukið út um 14-14-14-18-18-18 l jafnt yfir. Prjónið mynstur A.2 JAFNFRAMT er aukið út í síðustu umf 18-18-18-22-22-22 l jafnt yfir. Prjónið nú mynstur A.1 – sjáið til þess að 2 l sl verði við miðju á ermi og teljið síðan út frá hlið í mynstri hvar þú byrjar.
ÚTAUKNING VIÐ MIÐJU UNDIR ERMI:
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 16-19-16-15-19-17 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við l með prjónamerki í við miðju undir ermi (= 2 l fleiri) – útauknar lykkjur eru prjónaðar inn í mynstur, þær l sem ekki ganga upp í mynstur eru prjónaðar slétt þar til þær ganga inn í mynstur. Endurtakið útaukningu með 2-1½-1½-1½-1-1 cm millibili, 13-15-17-18-21-23 sinnum til viðbótar (= 28-32-36-38-44-48 l fleiri).
Þegar stykkið mælist 46-46-45-45-44-44 cm (styttir mál í stærri stærðum vegna víðari handvegs og breiðari axla), mælist A.1 efst á ermi næstum eins og A.1 efst á fram- og bakstykki, þ.e.a.s. 5-5-6-6-7-7 cm. Þegar öll útaukning og úrtaka er lokið eru 102-108-114-126-132-138 l á prjóni. Fellið nú af 12 l við miðju undir ermi = 90-96-102-114-120-126 l eftir á ermi. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 420-456-498-546-594-636 l. Prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT er fækkað um 96-104-114-124-136-144 l jafnt yfir (prjónið ca 3. og 4. l slétt saman) = 324-352-384-422-458-492 l. Setjið 1 prjónamerki – HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Prjónið mynstur A.2. Eftir A.2 er haldið áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 5-5-5-6-6-6 cm frá prjónamerki er prjónuð 1 umf slétt. JAFNFRAMT er fækkað um 52-64-76-88-100-110 l jafnt yfir = 272-288-308-334-358-382 l. Prjónið A.2 JAFNFRAMT er fækkað um 62-72-82-90-98-106 l jafnt yfir í síðustu umf = 210-216-226-244-260-276 l. Prjónið mynstur eftir A.3. Þegar stykkið mælist 12-13-14-15-16-17 cm frá prjónamerki – stillið af eftir umf með gati – prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT er fækkað um 42-46-50-56-62-68 l jafnt yfir = 168-170-176-188-198-208 l. Prjónið mynstur A.2 JAFNFRAMT er aukið út um 48-46-46-34-30-20 l jafnt yfir í síðustu umf = 216-216-222-222-228-228 l. Nú er prjónað mynstur eftir A.1. Þegar stykkið mælist 16-17-18-19-20-21 cm er prjónað stroff (= 2 l sl, 4 l br – sjáið til þess að sl l í stroffi verði yfir sl l í mynstri). Eftir 1 cm með stroff er fækkað öllum 4 l br til 3 l br (prjónið 2 fyrstu l br saman) = 180-180-185-185-190-190 l. Setjið 1 prjónamerki við miðju að framan. Klippið frá og byrjið umf við miðju að aftan. Prjónið nú hækkun að aftan við hnakka (haldið áfram með stroff) þannig: Prjónið þar til 18 l eru eftir á undan prjónamerki að framan, snúið við, herðið á þræði og prjónið til baka þar til 18 l eru eftir á undan prjónamerki að framan, snúið við, herðið á þræði og prjónið til baka þar til 18 l eru eftir á undan prjónamerki í hinni hliðinni. Snúið við, herðið á þræði og prjónið þar til eftir eru 30-30-30-30-36-36 l á undan prjónamerki að framan, snúið við, herðið á þræði og prjónið þar til eftir eru 30-30-30-30-36-36 l á undan prjónamerki í hinni hliðinni. Haldið svona áfram fram og til baka með því að snúa við 12-12-12-12-18-18 l fyrr í hvert skipti í hvorri hlið þar til prjónaðar hafa verið alls 8 umf með hækkun að aftan. Snúið við og prjónið aftur að miðju að aftan. Haldið nú áfram með stroff í hringinn yfir allar l JAFNFRAMT sem fækkað er öllum 3 l br til 2 l br í 1. umf = 144-144-148-148-152-152 l. Eftir auka 1 cm fækkið öllum 2 l br til 1 l br = 108-108-111-111-114-114 l. Þegar stykkið mælist 18-19-20-21-22-23 cm frá prjónamerki, mælt við miðju að framan (stykkið mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá neðri kanti og upp), fellið laust af með sl yfir sl og br yfir br.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu
symbols = brugðin lykkja frá réttu
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja
symbols = 2 lykkjur snúnar slétt saman
symbols = 2 lykkjur slétt saman
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 141-18

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (57)

country flag Shosho wrote:

Hi, i work this pattern XXL size but when i cut threat and work in back i work only 4 rows and remain only 5 sts and you says work 8 rows what should i do now 🤔🤔?

20.07.2022 - 23:42

DROPS Design answered:

Dear Shosho, continue working like this working 18 sts less at the end of each row = leaving unworked 18 sts more at the end of each row until you have worked a total of 8 rows. Happy knitting!

02.08.2022 - 10:56

country flag Monika wrote:

Hallo Drops Team, Ich weiß an der Stelle „ Zunahmen an der unteren Ärmelmitte“ nicht weiter. Im welchen Muster wird hier weitergeschickt? Im Muster A2 und dann 16cm rechts und wieder A2? Gruß Monika

17.07.2020 - 20:05

DROPS Design answered:

Liebe Monika, Muster ist zuerst erklärt, dh in 1. Grösse stricken Sie zuerst A.2 dann glatt rechts. nach 21 cm stricken Sie A.2 (mit Abnahmen) und dann A.3. Nach 41 cm stricken Sie 1 Runde rechts mit zunahmen dann stricken Sie A.2 usw... gleichzeitig nach 16 cm beginnen Sie die Zunahmen, es wird also in einem glatt rechts Partie sein, und dann werden die Maschen gestrickt, wie zuvor erklärt. dh Muster und Zunahmen gleichzeitig stricken. Viel Spaß beim stricken!

20.07.2020 - 08:47

country flag Claudine Charette wrote:

1.Quand vous indiquez après A2 continuer en jersey, est ce du jersey endroit ou du jersey envers? 2. Sur les rangs envers est ce qu'on tricote les mailles comme elles se présentent? Merci à l'avance!

17.09.2019 - 05:27

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Charette, on tricote en jersey endroit (= tous les tours à l'endroit). Le pull se tricote entièrement en rond (sauf la réhausse pour l'encolure dos), on va donc toujours tricoter sur l'endroit, tous les rangs des diagrammes vont se lire de droite à gauche. Bon tricot!

17.09.2019 - 10:10

country flag Sandrine wrote:

Bonjour, Je n'arrive pas à comprendre, sur la fin de la réalisation, comment "Couper le fil et commencer le tour au milieu dos". Que faire alors des mailles qui sont sur mon aiguille circulaire entre mon début de rang actuel et le milieu dos, où je suis censée désormais faire commencer mon rang? Merci!

10.03.2017 - 20:19

DROPS Design answered:

Bonjour Sandrine, quand vous avez tricoté le dernier rang, coupez votre fil. Glissez les mailles sur l'aiguille droite sans les tricoter jusqu'à ce que vous arriviez au milieu dos, puis joignez le fil et commencez à nouveau ici. Les rangs se commencent maintenant au milieu dos pour la ré-hausse dos, et quand on continue en rond, les tours commencent et se terminent au milieu dos. Bon tricot!

13.03.2017 - 09:41

country flag Cindy wrote:

Hallo! Mijn proeflapje valt iets kleiner uit dus ik wil het graag doorrekenen om te zien welke maat ik dan moet breien. Als ik naar het plaatje kijk zie ik dat een S onderin 42 cm is , dus de volledige omtrek is 84 cm. Echter als je kijkt naar het proeflapje (24 st = 10 cm) en het aantal steken dat wordt opgezet (258) dan zou het ((258/24) *10) = 107.5 cm zijn. Reken ik het nou verkeerd?

20.08.2015 - 09:03

DROPS Design answered:

Hi Cindy. Je begint met breien van een boordsteek (2 r, 4 av) en dat trekt veel meer samen dan tricotsteek. En na 15 cm minder je naar 202 en breit het motief en dan weer tricotsteek en dan zit je ca op 84 cm. Dus met 24 st in tricotsteek (of 31 in A.1 en 18 in A.3) kom je goed uit.

24.08.2015 - 14:54

country flag Sandrine wrote:

Merci pour votre rapidité :) Une (dernière j'espère) question : Pour insérer un marqueur au milieu devant,, on détermine le mileu au jugé? Car si je n'ai pas fait d'erreur de montage, mon tour ne commence pas au milieu épaule, mais au "bord épaule". Merci encore...

14.02.2015 - 15:32

DROPS Design answered:

Bonjour Sandrine, posez l'ouvrage à plat et pliez le en double si nécessaire pour localiser le milieu devant et le milieu dos - vérifiez bien que vous avez le même nombre de mailles entre chacun des marqueurs. Bon tricot!

16.02.2015 - 08:56

country flag Sandrine wrote:

Bonjour! Je tricote ce modèle en taille M. J'en suis à l'empiècement, à 17cm à partir du maqueur. Je ne comprend pas l'explication sur les diminutions après les côtes 2/4. "Diminuer 1 m env dans toutes les sections 3 m env". Il n'y a pas de section 3m env...! Merci pour votre réponse.

13.02.2015 - 12:55

DROPS Design answered:

Bonjour Sandrine, il fallait bien lire "dans toutes les sections 4 m env": il reste 3 m env dans chaque section env, la correction a été faite, merci. Bon tricot!

13.02.2015 - 13:40

country flag Frederique wrote:

Bonjour Je n'ai jamais fais de réhausse et je suis un peu perdue. Vous dites : Insert 1 marqueur milieu devant. Couper le fil . où je coupe le fil ; à la fin du rang que je viens de faire? A priori la ré-hausse permet que le dos soit plus long que le devant. Dans ce cas pourquoi placer les marqueurs au milieu du dos et du devant et pas au niveau des manches? En espérant que vous pourrez m'aider. Merci pour votre site riche en explications et superbes modèles. Frederique

07.02.2015 - 08:01

DROPS Design answered:

Bonjour Frédérique, tricotez votre dernier tour comme avant avant de couper le fil et commencez le nouveau tour à partir du milieu dos. On tricote ensuite la ré-hausse en allers et retours à partir du milieu dos: tricotez le 1er rang jusqu'à ce qu'il reste 18 m avant le marqueur du milieu devant, tournez et tricotez le rang suivant sur l'envers jusqu'à ce qu'il reste 18 m avant le marqueur du milieu devant (= 18 m non tricotées de chaque côté du marqueur milieu devant). Continuez ainsi en allers et retours en laissant toujours plus de mailles non tricotées avant le marqueur milieu devant qui sert de repère soit 8 rangs au total (4 rangs sur l'end et 4 rangs sur l'envers). Bon tricot!

07.02.2015 - 09:51

country flag Stephanie Hoffmann wrote:

Hallo! Bin fast am Ende, also beim Halsausschnitt und habe gerade aus den 4 linken Maschen 3 gemacht....was und wie komme ich jetzt zur vorderen Mitte??? Das Rundenende ist ja nicht mal mittig auf den Schultern, sondern leicht nach vorne oder hinten? versetzt. Gibt es da ein Trick? Vielen Dank schon mal für die Hilfe!

29.01.2015 - 21:47

DROPS Design answered:

Wie in der Anleitung beschrieben müssen Sie den Faden abschneiden und an der hinteren Mitte neu ansetzen. An der vorderen Mitte befindet sich der Markierer. Sie stricken dann ab der hinteren Mitte (mit neuem Fadenansatz also) im Rippenmuster bis 18 M vor den Markierer an der vorderen Mitte, wenden und stricken zurück, bis 18 M an der anderen Seite vor dem Markierer übrig sind usw. Falls Sie Hilfe zu verkürzten R benötigen: Unter Videos oben im Kopf neben dem Foto finden Sie ein Video über die Grundlagen.

30.01.2015 - 10:12

country flag Floor wrote:

Nog nooit een trui gebreid en dit patroon gekozen als eerste project. Gebreid van Bergen Botter sokkenwol en ik heb er, dankzij het niet juist lezen van het patroon, 1,5 maand over gedaan. Maar de trui is erg mooi geworden en hij zit heerlijk! Nu eerst maar een ander projectje maar wie weet brei ik er nog wel een..

21.11.2014 - 14:48