Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
![]() |
= slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu |
![]() |
= brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu |
![]() |
= sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja |
![]() |
= setjið 3 lykkjur á hjálparprjón framan við stykkið, 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur slétt af hjálparprjóni |
![]() |
= setjið 3 lykkjur á hjálparprjón aftan við stykkið, 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur slétt af hjálparprjóni |
![]() |
= lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjurnar |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Champagne |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Lima með köðlum og gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 140-1 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. HNAPPAGAT: Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan frá réttu. 1 hnappagat = prjónið 3. og 4 l frá miðju að framan slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ S: 8, 16, 24, 31, 38 og 45 cm. STÆRÐ M: 8, 16, 24, 32, 40 og 47 cm. STÆRÐ L: 8, 17, 25, 33, 41 og 49 cm. STÆRÐ XL: 8, 17, 26, 35, 43 og 51 cm. STÆRÐ XXL: 8, 16, 24, 32, 39, 46 og 53 cm. STÆRÐ XXXL: 8, 16, 24, 32, 40, 48 og 55 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. BAKSTYKKI: Fitjið upp 86-94-102-116-124-136 l á prjóna nr 4 með Lima. Prjónið 8 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á prjóna nr 4,5. Prjónið 1 umf slétt frá réttu JAFNFRAMT er aukið út um 20-20-20-28-28-28 l jafnt yfir = 106-114-122-144-152-164 l. Prjónið 1 umf slétt frá röngu. Prjónið nú rá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 9-13-17-9-13-19 l í garðaprjóni, * A.1, A.2 *, endurtakið frá *-* alls 2-2-2-3-3-3 sinnum, endið með 10 fyrstu l í A.1, 9-13-17-9-13-19 l í garðaprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 6 cm er fækkað um 1 l í hvorri hlið, endurtakið úrtöku með 2 cm millibili 5 sinnum til viðbótar = 94-102-110-132-140-152 l. Þegar stykkið mælist 22 cm er aukið út um 1 l í hvorri hlið, endurtakið útaukningu með 2½-2½-2½-2½-3-3 cm millibili 5 sinnum til viðbótar - útauknar lykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni = 106-114-122-144-152-164 l. Þegar stykkið mælist 36-37-38-39-40-41 cm fellið af fyrir handveg í hvorri hlið þannig: 3 l 1 sinni, 2 l 2-3-5-2-3-5 sinnum og 1 l 3-5-5-3-5-7 sinnum = 86-86-86-124-124-124 l. Haldið áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 53-55-57-59-61-63 cm er fækkað um 4 l yfir hvern af 1-1-1-3-3-3 miðju köðlunum = 82-82-82-112-112-112 l. Þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm fellið af miðju 26-26-26-34-34-34 l af fyrir hálsmáli = 28-28-28-39-39-39 l eftir á hvorri öxl. Þegar stykkið mælist 55-57-59-61-63-65 cm fellið af 4 l yfir hvern og einn af þeim 2 köðlum á öxl = 20-20-20-31-31-31 l. Fellið af þegar stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 52-56-60-67-71-77 l á prjóna nr 4 með Lima. Prjónið 8 umf garðaprjón. Skiptið yfir á prjóna nr 4,5. Prjónið 1 umf frá réttu og aukið út 12-12-12-16-16-16 l jafnt yfir = 64-68-72-83-87-93 l. Prjónið 1 umf slétt frá röngu. Prjónið frá réttu þannig: Prjónið 6 l garðaprjón (= kantur að framan), A.1 yfir næstu 38-38-38-57-57-57 l, endið með þær 10 fyrstu l í A.1, 9-13-17-9-13-19 l garðaprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 6 cm byrjar úrtaka í hliðum eins og á bakstykki = 58-62-66-77-81-87 l. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 8 cm byrjar úrtaka fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 22 cm byrjar útaukning í hliðum eins og á bakstykki – útauknu l eru prjónaðar í garðaprjóni = 64-68-72-83-87-93 l. Þegar stykkið mælist 36-37-38-39-40-41 cm fellið af fyrir handveg í hliðum eins og á bakstykki = 54-54-54-73-73-73 l. Haldið áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm fellið af 4 l yfir kaðal við miðju að framan, í næstu umf frá réttu eru settar 12-12-12-16-16-16 l við miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli (prjónið þær fyrst), fellið nú af í hverri umf frá hálsmáli þannig: 2 l 4 sinnum og 1 l 2 sinnum. ATH! Í stærð XL-XXL-XXXL eru felldar af 4 l yfir seinni kaðal við miðju að framan áður en l eru felldar af = 28-28-28-39-39-39 l eftir á öxl. Þegar stykkið mælist 55-57-59-61-63-65 cm fellið af 4 l yfir hvern og einn þeim 2 köðlum á öxl = 20-20-20-31-31-31 l. Fellið af þegar stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema spegilmynd. Í stað fyrir A.1 er prjónað A.2. Ekki er fellt af fyrir hnappagötum. ERMI: Stykkið er prjónað fram og til baka á prjóna. Fitjið upp 47-49-51-53-55-57 l á prjóna nr 4 með Lima. Prjónið 12 umf garðaprjón. Skiptið yfir á prjóna nr 4,5 og prjónið – frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 5-6-7-8-9-10 l sléttprjón * A.3, 5 l slétt *, endurtakið frá *-* 4 sinnum og endið með A.3, 5-6-7-8-9-10 l sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 1 l í hvorri hlið, endurtakið útaukningu með 3½-3-2½-2-2-1½ cm millibili 11-13-15-16-18-19 sinnum til viðbótar = 71-77-83-87-93-97 l. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 49-49-49-46-46-44 cm (styttri mál í stærri stærðum vegna víðari handvegs og breiðari axla) fellið af fyrir handveg í byrjun hverrar umf í hvorri hlið þannig: 4 l 1 sinni, 2 l 3 sinnum, 1 l 1-2-3-3-4-7 sinnum, síðan er fellt af 2 l í hvorri hlið þar til stykkið mælist 57-58-59-56-57-58 cm, fellið af 3 l í hvorri hlið, fellið nú af þær l sem eftir eru, styttið mælist nú ca 58-59-60-57-58-59 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlarsauma. Saumið ermar í og saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju. HÁLSMÁL: Prjónið upp ca 100-120 l kringum hálsmálið (meðtaldar eru l af þræði) á prjóna nr 4. Prjónið 6 umf garðaprjón, fellið af. Saumið tölur í. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11428 mynstur - 6942 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (232)
Vielen Dank für die schnelle Rückmeldung. Leider hilft sie mir noch nicht wirklich weiter. Dass identische Maschenproben diesselbe Maschenzahl geben, ist mir auch klar - die Frage bezog sich darauf, ob Ihr die Maschenprobe im Muster für diese Jacke im gespannten oder wie gestrickt also im zusammen gezogenen Zustand gemessen habt...
13.10.2017 - 08:37DROPS Design answered:
Liebe Gabi, die Maschenprobe ist glatt rechts (10 x 10 cm = 20 M und 26 R glatt re) und nicht im Muster gestrickt, wegen Zöpfte braucht man dann mehr Maschen in der Breite um die richtigen breite zu bekommen. Aber die Maschenprobe können Sie immer zuerst waschen und flach trocken lassen bevor Sie weiter stricken, so können Sie eventuel wenn nötig die Nadelgrösse anpassen. Viel Spaß beim stricken!
13.10.2017 - 09:56Ich musste leider auf eine andere Wolle ausweichen und daher nach Maschenprobe die Maschenanzahl und das Muster neu berechnen. Soweit kein Problem. Jetzt bin ich nur unsicher, weil sich durch die Zöpfe ja das Stickstück sehr zusammenzieht, ob ich die Maschenprobe am zusammengezogenen Stück messen sollte oder ob sich das Muster (ich verwende die Drops Wolle Karisma) spannen lässt und ich dann an der vorgespannten Probe messen sollte. Vielen Dank für Euren Rat!
11.10.2017 - 12:19DROPS Design answered:
Liebe Gabi, wenn Sie die richtige Maschenprobe glatt rechts mit Karisma wie mit Lima haben, dann wird die Jacke die genaue Maßnahmen wie in der Skizze haben, bitte beachten. Mehr über die Größen lesen Sie hier. Viel Spaß beim stricken!
11.10.2017 - 13:46Hola,como se disminuyen los 4 puntos sobre la trenza central.Gracias
15.07.2017 - 19:34DROPS Design answered:
Hola Dori. Para disminuir en la trenza central trabajamos 3 puntos juntos de derecho 2 veces (= 4 puntos disminuidos sobre los 6 puntos de la trenza)
16.07.2017 - 13:46Bonjour, Y aurait-il sur votre site un guide des tailles car j'hésite un peu. Je fais 84 de tour de poitrine et 65 de tour de taille. Ma mère qui aimerait aussi le tricoter mesure 108 de tour de poitrine et 88 de tour de taille. Un grand merci d'avance.
07.01.2017 - 16:50DROPS Design answered:
Bonjour Mme Jardé, vous trouverez en bas de page un schéma avec toutes les mesures pour chaque taille, en cm, prises à plat d'un côté à l'autre. Comparez ces mesures avec un vêtement similaire que vous avez et dont vous aimez la forme pour trouver la taille idéale. (cf ici). Bon tricot!
09.01.2017 - 09:06Oups ! une erreur s'est glissée dans mon message. Il ne s'agit pas de 14 mais de 6 . Cordialement
03.10.2016 - 21:46Bonjour, Il me semble avoir trouvé une erreur. Pour le devant droit vous dites : " À 6 cm de hauteur totale, commencer les diminutions sur le côté comme pour le dos = 58-62-66-77-81-87 m. " sauf que pour le dos il faut faire 12 ( v6 * 2 diminution par rang ) diminutions seulement et non 14. Merci de m'éclairer
03.10.2016 - 21:39DROPS Design answered:
Bonjour Mme Jardé, pour le dos, on diminue de chaque côté, mais pour les devants, on ne diminue que d'un seul côté (= celui qui sera assemblé au dos, pas côté bordure devant). On aura ainsi bien 6 diminutions au total pour les devants. Bon tricot!
04.10.2016 - 09:16Je ne parlais pas du "rabattage" des mailles car je vous ai déjà posé la question et la réponse m'est tout à fait clair. Je vous demandais comment il faut diminuer et/ ou augmenter quand il s'agit de le faire au début et à la fin d'un rang. 1): faut-il faire l'aug ou la dim sur le même rang à chaque fois. 2) sur un rang endroit ou sur un rang envers ? 3) la technique pour aug ou dim ? merci
03.10.2016 - 16:54DROPS Design answered:
Bonjour Mme Brenner, désolée pour la réponse précédente, j'avais effectivement mal lu. Pour diminuer, vous pouvez tricoter 2 m ens à l'end/1 surjet simple au choix et pour augmenter, utilisez votre méthode préférée - retrouvez ces techniques dans les vidéos du modèle. Les diminutions/augmentations se font en général sur l'endroit. Quand on diminue/augmente 1 m de chaque côté (= dos), on dim/augm. 1 m au début + 1 m à la fin du rang. Bon tricot!
03.10.2016 - 17:08Merci pour votre réponse précédente. Les diminutions et les augmentations en début et fin de rangs se font-elles également sur deux rangs ou sur un seul rang ( endroit ou envers ?) ? d'ailleurs lorsqu"il s'agit d'augmenter ou de diminuer en début et fin de rang quelle technique faut-il utiliser ? merci bien
03.10.2016 - 14:38DROPS Design answered:
Bonjour Mme Brenner, pour les emmanchures du dos, on doit rabattre des 2 côtés, au début du rang sur l'endroit, puis au début du rang suivant sur l'envers, ainsi, quand on doit rabattre 1 x 3 m de chaque côté: on rabat 3 m en début de rang sur l'endroit, on termine ce rang et, au début du rang suivant sur l'envers, on rabat 3 m (= 1 x 3 m a été rabattu de chaque côté). Bon tricot!
03.10.2016 - 14:44Bonjour, Je voudrais savoir si pour le "rabattage" des mailles pour les emmanchures il faut bien le faire en 3 fois seulement (XL): 1er rang = 3 mailles de chaque côté ( = 6 m), 2ème rang = 4 mailles de chaque côté ( = 8 m), 3 ème rang = 3 mailles de chaque côté ( = 6 m). Je précise que les diminutions se feraient sur 3 rangs endroits uniquement ce qui correspondrait à 6 rangs. Merci d'avance pour votre réponse.
02.10.2016 - 17:58DROPS Design answered:
Bonjour Mme Brenner, en XL on rabat les mailles sur plus de rangs: 1 x 3 m (= 2 rangs au total) + 2 x 2 m (= 4 rangs au total) + 3 x 1 m (= 6 rangs au total) pour que les mailles soient bien rabattues de chaque côté: en début de rang sur l'endroit + en début de rang sur l'envers. Bon tricot!
03.10.2016 - 09:51Buongiorno, non riesco a capire cosa significa diminuire 4 maglie SOPRA la treccia. Grazie per la disponibilità.
18.07.2016 - 21:52DROPS Design answered:
Buonasera Donatella, in questo punto deve diminuire 4 m delle 6 m della treccia, rimanendo con 2 m. Buon lavoro!
18.07.2016 - 22:02