Lena Bergquist skrifaði:
Ska jag använda 1 eller 2 trådar Melody?
03.10.2018 - 10:57DROPS Design svaraði:
Hei Lena. Du skal du strikke med 1 tråd, vi spesifiserer alltid om det skal brukes 2 tråder. God fornøyelse.
03.10.2018 - 11:22Margaret skrifaði:
I am knitting the hat 140-15 and would love to knit the wrist warmers also shown in the pictures. Where can i find instructions for these matching items. Thank you
09.11.2013 - 15:40DROPS Design svaraði:
Dear Margaret, wrist warmers have been now added to this page. Happy knitting!
12.11.2013 - 08:38
Ivana skrifaði:
Elegantní jednoduché
11.06.2012 - 18:06Jenny skrifaði:
Wow!!!!!! fantastic
08.06.2012 - 19:08
Cajito skrifaði:
Jednoduché a krásné
08.06.2012 - 17:15
Vtana skrifaði:
Love the hat, :D
07.06.2012 - 22:42
Garnteufelchen skrifaði:
Das hat was! Sehr niedlich, aber nicht zu niedlich, finde ich... sehr hübsch!
01.06.2012 - 14:50
Ruth Jensen skrifaði:
Jeg kan rigtig godt lide huen, den ser ud til at have en god pasform.
01.06.2012 - 08:41
Serenas Comfort#serenascomfortset |
|
![]() |
![]() |
Settið samanstendur af: Prjónaðri húfu, hálsskjóli og handstúkum úr DROPS Symphony eða DROPS Melody og DROPS Nepal.
DROPS 140-15 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna): *1 umf slétt og 1 umf brugðið*, endurtakið frá *-*. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring. HÚFA: Fitjið laust upp 88-92 l á sokkaprjóna nr 4,5 með Nepal. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – í 3 cm. Í næstu umf er skipt yfir í Symphony eða Melody og sokkaprjóna nr 7 – JAFNFRAMT er fækkað um 18 l jafnt yfir = 70-74 l. Haldið áfram með Symphony og sléttprjóni þar til stykkið mælist ca 17-19 cm. Fækkið um 10-12 l jafnt yfir í annarri hverri umf alls 5-4 sinnum = 20-26 l eftir. Í næstu umf eru allar l prjónaðar saman 2 og 2, klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum allar l, herðið að. Stykkið mælist ca 22-23 cm á hæðina. SLAUFA: STYKKI 1: Fitjið laust upp 16 l á sokkaprjóna nr 4,5 með Nepal. Prjónið sl í öllum umf ca 5 cm, fellið laust af. STYKKI 2: Fitjið laust upp 9 l á sokkaprjóna nr 4,5 með Nepal. Prjónið sl í öllum umf ca 3 cm, fellið laust af. Saumið saman styttri hliðarnar á STYKKI 2 (ekki uppfitjunar- og affellingarkantinn) yst í lykkjubogann. Þræðið STYKKI 1 í gegnum STYKKI 2. Saumið slaufuna niður á húfuna. ------------------------------------------------------- HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring. HÁLSSKJÓL: Fitjið laust upp 104 l á hringprjóna nr 4,5 með Nepal. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – í 3 cm. Í næstu umf er skipt yfir í Symphony eða Melody og hringprjóna nr 7 – JAFNFRAMT er fækkað um 20 l jafnt yfir = 84 l. Haldið áfram með Symphony eða Melody og sléttprjón þar til stykkið mælist ca 23 cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4,5 og Nepal – JAFNFRAMT er aukið út um 20 l jafnt yfir umf = 104 l. Prjónið garðaprjón í 3 cm, fellið laust af. Stykkið mælist ca 26 cm á hæðina. ------------------------------------------------------- HANDSTÚKUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring. HANDSTÚKA: Fitjið laust upp 30-31 l á sokkaprjóna nr 4,5 með Nepal. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – í 3 cm. Í næstu umf er skipt yfir í Symphony og sokkaprjóna nr 7 – JAFNFRAMT er fækkað um 6 l jafnt yfir = 24-25 l. Haldið áfram með Symphony eða Melody og sléttprjóni þar til stykkið mælist 12-13 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4,5 og Nepal – JAFNFRAMT er aukið út um 6 l jafnt yfir = 30-31 l. Prjónið garðaprjón í 3 cm, fellið laust af. Stykkið mælist ca 15-16 cm á hæðina. SLAUFA: STYKKI 1: Fitjið laust upp 10 l á sokkaprjóna nr 4,5 með Nepal. Prjónið sl í öllum umf ca 3½ cm, fellið laust af. STYKKI 2: Fitjið laust upp 6 l á sokkaprjóna nr 4,5 með Nepal. Prjónið sl í öllum umf ca 2 cm, fellið laust af. Saumið saman styttri hliðarnar á STYKKI 2 (ekki uppfitjunar- og affellingarkantinn) yst í lykkjubogann. Þræðið STYKKI 1 í gegnum STYKKI 2. Saumið slaufuna fasta á handstúkuna. Prjónið aðra handstúku og slaufu til viðbótar á sama hátt. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #serenascomfortset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 7 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 140-15
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.