Adèle skrifaði:
Bonjour, je souhaiterais crocheter le bonnet (j'ai acheté la laine, 50g d'Alpaca et 50 g d'une autre laine) mais je ne comprends pas les explications à partir du moment où il est dit de "continuer avec deux fils Alpaca". Dois-je dépeloter la pelote et la diviser en deux ? Merci d'avance pour votre réponse !
25.11.2016 - 23:42DROPS Design svaraði:
Bonjour Adèle, plutôt que de diviser la pelote en 2, vous pouvez simplement utiliser les 2 extrémités de la pelote, celle de l'intérieur + celle de l'extérieur, vous crochetez ainsi avec 2 fils de la même pelote en même temps. Bon crochet!
28.11.2016 - 09:02
Manja skrifaði:
Hallo Liebs Drops-Team, Ich habe eine Frage zur Häkelanleitung der Mütze. Folgenden Absatz verstehe ich nicht: Weiter wie folgt: * 1 fM in jede der 6 ersten M., die nächsten 2 fM zusammenhäkeln – SIEHE OBEN *, von *-* wiederholen (- 8-9-10 fm). Total 5 Mal bei jeder 2. Runde = 24-27 (30) fM Was bedeutet die Angabe in der Klammer (-8-9-10 fm) und 5mal bei jeder zweiten Runde.....soll immer eine Runde mit der Abnahme pausiert werden??? Vielen Dank für eure Unterstützung Manja
29.09.2016 - 21:51DROPS Design svaraði:
Liebe Manja, also die Angaben in der Klammer betreffen sich an der Grösse, dh 8 fm in der 1. Grösse, 9 fm in der 2. Grösse und 10 fm in dere 3. Grösse. Ja genau, wenn man jede 2. Runde abnimmt, man muss eine Runde ohne Abnahme häkeln nach der Rde mit Abnahme und dann an der nächsten Runde nimmt man wieder ab (bei der 2. AbnahmenRd häkelt man dann 1 fM in jede der 5 ersen M., 2 fm zshäkeln, usw).
30.09.2016 - 10:20
Mercedes skrifaði:
Hola, ¿es posible que se hayan borrado todos mis favoritos? Gracias.
10.03.2015 - 18:24DROPS Design svaraði:
Hola Mercedes, he consultado tu duda y me dicen que si, limpiamos los favoritos cuando actualizamos la página pero hubo una notificación en los favoritos por varias semanas. Se hizo lo posible por avisar. Lamentamos que no vieras el aviso.
11.03.2015 - 09:26
Rigmor østerby skrifaði:
Har desværre ingen i den alder
23.08.2014 - 16:17
Micah#micahsweater |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir börn með köðlum og laskalínu úr 2 þráðum DROPS Alpaca.
DROPS Baby 21-40 |
|||||||||||||
-------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: -------------------------------------------------------- STROFF: * 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.1 og M.2 – mynsturteikning sýnir mynstur séð frá réttu og er endurtekið til loka. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um laskalínu án kants): Prjónið 2 lykkjur slétt saman. * Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan næsta prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman *, endurtakið frá *-* við næstu 2 prjónamerkin, prjónið síðan þar til eftir eru 4 lykkjur á prjóni, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, 2 lykkjur slétt. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um laskalínu með kanti): FÆKKIÐ LYKKJUM FRÁ RÉTTU ÞANNIG: Prjónið 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 2 lykkjur slétt saman. * Prjónið þar til eftir eru 3 lykkjur á undan næsta prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman *, endurtakið frá *-* við 2 næstu prjónamerki, prjónið síðan þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. FÆKKIÐ LYKKJUM FRÁ RÖNGU ÞANNIG: Prjónið 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 2 lykkjur brugðið saman. * Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan næsta prjónamerki, 2 lykkjur snúnar brugðið saman (þ.e.a.s. prjónið í aftari lykkjubogana í stað fremri), 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur snúnar brugðið saman, 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. ATH: Passið uppá að lykkjurnar snúi í rétta átt frá réttu. HNAPPAGAT: Fellt er af fyrir hnappagötum í kanti með laskalínu sem er staðsettur er á hluta á ermi – metið hvort þess þurfi í stærri stærðunum. Fellið af þannig: 1 lykkja slétt, 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt. Fellið af fyrir hnappagötum þegar kantur að framan mælist: Stærð 1/3 mán: 2, 5 og 8 cm. Stærð 6/9 mán: 3, 6 og 9 cm. Stærð 12/18 mán: 3, 7 og 10 cm. Stærð 2 ára: 3, 7 og 11 cm. Stærð 3/4 ára: 4, 8 og 12 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 102-114-126 (138-150) lykkjur á hringprjón 3,5 með 2 þráðum Alpaca. Prjónið 1 umferð sléttprjón, haldið síðan áfram með STROFF í 3 cm – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið 1 umferð sléttprjón. Næsta umferð er prjónuð þannig: 11-14-17 (20-23) lykkjur sléttprjón, setjið eitt prjónamerki í fyrstu af þessum lykkjum (= hlið), M.1 (= 33 lykkjur), 11-14-17 (20-23) lykkjur, setjið eitt prjónamerki í síðustu af þessum lykkjum (= hlið), 47-53-59 (65-71) lykkjur sléttprjón. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 16-17-20 (23-25) cm. Fellið nú af 5 lykkjur í hvorri hlið fyrir handveg (= lykkja með prjónamerki + 2 lykkjur hvoru megin við hana)= 49-55-61 (67-73) lykkjur á framstykki og 43-49-55 (61-67) lykkjur á bakstykki. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Fitjið upp 30-30-36 (36-36) lykkjur á sokkaprjón 3,5 með 2 þráðum Alpaca. Prjónið 1 umferð sléttprjón, haldið áfram með stroff í 3 cm. Skiptið yfir á sokkaprjón 4, haldið áfram í sléttprjóni. Jafnframt þegar stykkið mælist 6 cm er aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi, endurtakið með 3-2-3 (2,5-2,5) cm millibili alls 4-6-5 (7-9) sinnum = 38-42-46 (50-54) lykkjur. Þegar stykkið mælist 17-19-20 (25-29) cm eru felldar af 5 lykkjur mitt undir ermi = 33-37-41 (45-49) lykkjur. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handvegi = 158-178-198 (218-238) lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í allar skiptingar á milli fram- og bakstykkis og erma. Nú er hægt að prjóna stykkið með eða án kants fyrir tölur – sjá útskýringu að neðan. BERUSTYKKI MEÐ TÖLUM: Prjónið nú fram og til baka frá hægri „laskalínusaumur" að framan. Fitjið upp 4 auka lykkjur á hlutann með framstykkinu (= kantur fyrir tölur) = 162-182-202 (222-242) lykkjur. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Haldið áfram í sléttprjóni og kaðla við miðju að framan ásamt 4 lykkjum í garðaprjóni í byrjun og lok umferðar (fyrir kant með tölum). Jafnframt er lykkjum fækkað fyrir laskalínu – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA – fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð: 11-11-12 (12-13) sinnum og síðan í hverri umferð: 1-3-4 (6-7) sinnum. ATH: Fellið einnig af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Jafnframt þegar stykkið mælist 23-25-29 (32-35) cm eru miðju 13-13-13 (15-15) lykkjurnar settar á þráð fyrir hálsmáli. Fellið síðan af við hálsmál í annarri hverri umferð: 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 2-2-2 (3-3) sinnum. Eftir alla úrtöku/affellingu fyrir laskalínu og hálsmáli eru 45-49-53 (53-57) lykkjur á prjóni. BERUSTYKKI ÁN TALNA: Prjónið nú hringinn. Haldið áfram í sléttprjóni og köðlum. Jafnframt er lykkjum fækkað fyrir laskalínu – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA – fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð: 11-11-12 (12-13) sinnum og síðan í hverri umferð: 1-3-4 (6-7) sinnum. Jafnframt þegar stykkið mælist 23-25-29 (32-35) cm eru miðju 13-13-13 (15-15) lykkjur að framan settar á þráð fyrir hálsmáli. Fellið nú af við hálsmál í hvorri hlið í annarri hverri umferð: 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 2-2-2 (3-3) sinnum. Eftir alla úrtöku/affellingu fyrir laskalínu og hálsmáli eru 41-45-49 (49-53) lykkjur á prjóni. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Takið upp ca 23 til 27 lykkjur framan í hálsmáli (meðtaldar lykkjur á þræði) = 68 til 84 lykkjur. Setjið allar lykkjur á hringprjón 3,5 – prjónið 1 umferð sléttprjón jafnframt sem lykkjum er fækkað/aukið út jafnt yfir til 64-76 lykkjur. Prjónið 8 cm stroff 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, fellið laust af – brjótið kantinn saman tvöfaldan að röngu og saumið. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir höndum. Ef þú hefur prjónað kant fyrir tölur að framan: Leggið kantinn fyrir tölur yfir hvorn annan með kant fyrir hnappagötum efst og saumið niður neðri kantinn frá röngu. Saumið tölur í. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #micahsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 22 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 21-40
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.