DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS Alpaca yarn
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4950.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425
DROPS Baby 21-40

#micahsweater

DROPS Design: Mynstur Z-083-bya
Garnflokkur A og D
--------------------------------------------------------

PEYSA:
Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Stærði í cm: 56/62 - 68/74 - 80/86 (92 - 98/104)

Efni:
DROPS Alpaca frá Garnstudio
200-200-200 (250-250) gr litur nr 0100, natur

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 CM) og SOKKAPRJÓNAR NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 19 lykkjur og 25 umferðir með sléttprjóni með 2 þráðum verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.
DROPS HRINGPRJÓNAR OG SOKKAPRJÓNAR NR 3,5 – fyrir kant.
DROPS TRÉTALA LJÓS NR 503: 3 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4950.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

--------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

--------------------------------------------------------

STROFF:
* 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu M.1 og M.2 – mynsturteikning sýnir mynstur séð frá réttu og er endurtekið til loka.

LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um laskalínu án kants):
Prjónið 2 lykkjur slétt saman. * Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan næsta prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman *, endurtakið frá *-* við næstu 2 prjónamerkin, prjónið síðan þar til eftir eru 4 lykkjur á prjóni, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, 2 lykkjur slétt.

LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um laskalínu með kanti):
FÆKKIÐ LYKKJUM FRÁ RÉTTU ÞANNIG:
Prjónið 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 2 lykkjur slétt saman. * Prjónið þar til eftir eru 3 lykkjur á undan næsta prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman *, endurtakið frá *-* við 2 næstu prjónamerki, prjónið síðan þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
FÆKKIÐ LYKKJUM FRÁ RÖNGU ÞANNIG:
Prjónið 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 2 lykkjur brugðið saman. * Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan næsta prjónamerki, 2 lykkjur snúnar brugðið saman (þ.e.a.s. prjónið í aftari lykkjubogana í stað fremri), 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur snúnar brugðið saman, 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. ATH: Passið uppá að lykkjurnar snúi í rétta átt frá réttu.

HNAPPAGAT:
Fellt er af fyrir hnappagötum í kanti með laskalínu sem er staðsettur er á hluta á ermi – metið hvort þess þurfi í stærri stærðunum. Fellið af þannig: 1 lykkja slétt, 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt. Fellið af fyrir hnappagötum þegar kantur að framan mælist:
Stærð 1/3 mán: 2, 5 og 8 cm.
Stærð 6/9 mán: 3, 6 og 9 cm.
Stærð 12/18 mán: 3, 7 og 10 cm.
Stærð 2 ára: 3, 7 og 11 cm.
Stærð 3/4 ára: 4, 8 og 12 cm.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 102-114-126 (138-150) lykkjur á hringprjón 3,5 með 2 þráðum Alpaca.
Prjónið 1 umferð sléttprjón, haldið síðan áfram með STROFF í 3 cm – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið 1 umferð sléttprjón. Næsta umferð er prjónuð þannig: 11-14-17 (20-23) lykkjur sléttprjón, setjið eitt prjónamerki í fyrstu af þessum lykkjum (= hlið), M.1 (= 33 lykkjur), 11-14-17 (20-23) lykkjur, setjið eitt prjónamerki í síðustu af þessum lykkjum (= hlið), 47-53-59 (65-71) lykkjur sléttprjón. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 16-17-20 (23-25) cm. Fellið nú af 5 lykkjur í hvorri hlið fyrir handveg (= lykkja með prjónamerki + 2 lykkjur hvoru megin við hana)= 49-55-61 (67-73) lykkjur á framstykki og 43-49-55 (61-67) lykkjur á bakstykki.
Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Fitjið upp 30-30-36 (36-36) lykkjur á sokkaprjón 3,5 með 2 þráðum Alpaca.
Prjónið 1 umferð sléttprjón, haldið áfram með stroff í 3 cm. Skiptið yfir á sokkaprjón 4, haldið áfram í sléttprjóni. Jafnframt þegar stykkið mælist 6 cm er aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi, endurtakið með 3-2-3 (2,5-2,5) cm millibili alls 4-6-5 (7-9) sinnum = 38-42-46 (50-54) lykkjur. Þegar stykkið mælist 17-19-20 (25-29) cm eru felldar af 5 lykkjur mitt undir ermi = 33-37-41 (45-49) lykkjur.
Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handvegi = 158-178-198 (218-238) lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í allar skiptingar á milli fram- og bakstykkis og erma.
Nú er hægt að prjóna stykkið með eða án kants fyrir tölur – sjá útskýringu að neðan.

BERUSTYKKI MEÐ TÖLUM:
Prjónið nú fram og til baka frá hægri „laskalínusaumur" að framan. Fitjið upp 4 auka lykkjur á hlutann með framstykkinu (= kantur fyrir tölur) = 162-182-202 (222-242) lykkjur.
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
Haldið áfram í sléttprjóni og kaðla við miðju að framan ásamt 4 lykkjum í garðaprjóni í byrjun og lok umferðar (fyrir kant með tölum). Jafnframt er lykkjum fækkað fyrir laskalínu – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA – fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð: 11-11-12 (12-13) sinnum og síðan í hverri umferð: 1-3-4 (6-7) sinnum. ATH: Fellið einnig af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Jafnframt þegar stykkið mælist 23-25-29 (32-35) cm eru miðju 13-13-13 (15-15) lykkjurnar settar á þráð fyrir hálsmáli. Fellið síðan af við hálsmál í annarri hverri umferð: 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 2-2-2 (3-3) sinnum. Eftir alla úrtöku/affellingu fyrir laskalínu og hálsmáli eru 45-49-53 (53-57) lykkjur á prjóni.

BERUSTYKKI ÁN TALNA:
Prjónið nú hringinn. Haldið áfram í sléttprjóni og köðlum. Jafnframt er lykkjum fækkað fyrir laskalínu – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA – fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð: 11-11-12 (12-13) sinnum og síðan í hverri umferð: 1-3-4 (6-7) sinnum. Jafnframt þegar stykkið mælist 23-25-29 (32-35) cm eru miðju 13-13-13 (15-15) lykkjur að framan settar á þráð fyrir hálsmáli. Fellið nú af við hálsmál í hvorri hlið í annarri hverri umferð: 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 2-2-2 (3-3) sinnum. Eftir alla úrtöku/affellingu fyrir laskalínu og hálsmáli eru 41-45-49 (49-53) lykkjur á prjóni.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Takið upp ca 23 til 27 lykkjur framan í hálsmáli (meðtaldar lykkjur á þræði) = 68 til 84 lykkjur. Setjið allar lykkjur á hringprjón 3,5 – prjónið 1 umferð sléttprjón jafnframt sem lykkjum er fækkað/aukið út jafnt yfir til 64-76 lykkjur. Prjónið 8 cm stroff 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, fellið laust af – brjótið kantinn saman tvöfaldan að röngu og saumið.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir höndum. Ef þú hefur prjónað kant fyrir tölur að framan: Leggið kantinn fyrir tölur yfir hvorn annan með kant fyrir hnappagötum efst og saumið niður neðri kantinn frá röngu. Saumið tölur í.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 30.01.2023
LEIÐRÉTTING: KANTUR Í HÁLSMÁLI: Takið upp ca 23 til 27 lykkjur framan í hálsi (meðtaldar lykkjur á þræði) = 68 til 84 lykkjur. Setjið allar lykkjur á hringprjón 3,5 –

Mynstur

slétt frá réttu, brugðið frá röngu = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
brugðið frá réttu, slétt frá röngu = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
setjið 2 lykkjur á hjálparprjón fyrir aftan stykkið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt af hjálparprjóni = setjið 2 lykkjur á hjálparprjón fyrir aftan stykkið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt af hjálparprjóni
setjið 2 lykkjur á hjálparprjón fyrir framan stykkið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt af hjálparprjóni = setjið 2 lykkjur á hjálparprjón fyrir framan stykkið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt af hjálparprjóni
Diagram for DROPS Baby 21-40
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!
Ertu búin að klára þetta mynstur?
Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #micahsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery.

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 21-40

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (34)

country flag Nadine LE GUERN skrifaði:

Merci beaucoup !!!!

24.04.2025 - 17:27

country flag Nadine LE GUERN skrifaði:

Bonjour Merci de votre contact c'est le modèle 2 ans sans boutonnière !

24.04.2025 - 10:58

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Leguern et merci; en 2 ans donc, vous allez devoir diminuer pour le raglan 12 fois 8 m tous les 2 rangs puis 6 fois tous les rangs, mais en même temps, avant la fin des diminutions du raglan, vous formez l'encolure (quand l'ouvrage mesure 32 cm) ainsi: vous mettez les 15 m du milieu devant en attente et continuez en allers et retours à partir de l'encolure et vous allez rabattre au début de chaque rang à partir de l'encolure 1x 2 m et 3 x 1 m (en même temps, continuez les diminutions du raglan comme avant). Vous aviez 218 m - (12x8) -(6x8) - 15 - (2+3)x2 = il reste 49 mailles. Bon tricot!

24.04.2025 - 13:32

country flag Nadine LE GUERN skrifaði:

Bonjour Je fais actuellement le modèle Micah, j'ai fait le raglan mais je ne comprend pas comment faire pour les finir les réductions pour arriver au nombre correct de mailles pour le col? Merci pour votre réponse Cordialement

24.04.2025 - 07:55

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Le Guern, pouvez-vous nous indiquer quelle taille et quelle version (avec ou sans boutons) vous réalisez? Ce sera ainsi plus simple de vous aider. Merci pour votre compréhension.

24.04.2025 - 09:01

country flag Johanna skrifaði:

Hi! I am a confused with the Yoke without Buttons. I have one marker mid-back, then two markers for the cable pattern, and 2 markers on each sleeve (beginning and end - with the 5 stitches bind-off between. I am really confused about the decreases, I need help to continue. Can you guide me?

20.04.2025 - 14:14

DROPS Design svaraði:

Dear Johanna, you insert 4 markers, in each transition between the body and sleeves, as indicated at the beginning of the YOKE section, before it's divided into YOKE WITH BUTTONS or YOKE WITHOUT BUTTONS. The decreases are worked before and after these 4 markers. Happy knitting!

21.04.2025 - 00:55

country flag Kervarec skrifaði:

Bonjour, j'ai tricoté le modèle de pull Drops Baby 21-41 pour la taille 3/4 ans. J'aurais voulu le tricoter, maintenant, dans la taille 5/6 ans. Les explications existent-elles ? En vous remerciant Anne Marie Kervarec

17.07.2024 - 15:29

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Kervarec, ce modèle s'arrête en taille 3/4 ans, mais vous trouverez ici d'autres modèles de pulls en taille 5/6 ans avec torsades (ajoutez/retirez des filtres si besoin). Bon tricot!

02.08.2024 - 14:51

country flag Marie H skrifaði:

Struggling with the section “Yoke Without Buttons”. Making 12-18 months. My piece measures 11 3/8”. I completed the 12 rows of dec, but only 2 of the 4 every row dec I should do. I am knitting in the round. Do I place only FRONT 13 sts on a holder? And if so, would I then need to knit back and forth on remaining sts (sleeve, back and 2nd sleeve)? It sounds like I would bind off (2 sts once + 1 st twice) on each side of these front 13 sts. Correct?

28.04.2024 - 01:47

DROPS Design svaraði:

Dear Marie H, you are right, after you have slipped the 13 sts on a thread for neckline on front piece, you continue back and forth binding off stitches at the beg of each row on each side for neck. and at the same time, continue decreasing for raglan as before. Happy knitting!

29.04.2024 - 10:19

country flag Sylvie Audet skrifaði:

Je fait la grandeur 12/18 je suis rendu au 2 rang et a la fin sa ne marche pas

10.04.2024 - 20:52

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Audet, pouvez-vous nous en dire plus? Qu'est-ce qui ne marche pas à la fin? En 12/18 mois, vous avez 126 mailles que vous tricotez ainsi: 17 m jersey, les 33 m du diagramme M.1, 17 m jersey, et 59 m jersey soit: 17+33+17+59=126 mailles. Bon tricot!

11.04.2024 - 07:13

country flag Sara skrifaði:

Buonasera. Modello Micah. Devo fare il raglan ma non capisco come. Per prima cosa, da dove si parte? E poi, la diminuzione 2 insieme è sul davanti del lavoro o dopo il segnapunti sulle maglie della spalla? Mi potreste aiutare per favore? Grazie Sara

06.01.2024 - 16:25

DROPS Design svaraði:

Buonasera Sara, il raglan si lavora sullo sprone seguendo le indicazioni riportate all'inizio delle spiegazioni, nei paragrafi dedicati al raglan. Buon lavoro!

09.01.2024 - 20:14

country flag Mejer skrifaði:

Kan ikke få masketallet til at passe, hverken med rib kanten, eller mønstret?

25.12.2023 - 15:59

country flag M Radius skrifaði:

Het minderen voor de raglan begint met: 2 steken samen. Zijn dit 1 steek voorpand en 1 steek mouw? dan komt de raglan bovenop de mouw. Waar begin je met de raglan instructie 2 steken samen, daarna krijg je de *tot* instructies. Er staat herhaal het bij de volgende markeerders. Is dat voor of na de markeerders of over de markeerders heen?

10.12.2023 - 20:43

DROPS Design svaraði:

Nee de minderingen voor de raglan zitten naast de raglanlijnen welke uit 2 steken recht bestaan. Je breit tot er 3 steken over zijn voor de volgende markeerdraad, dan minder je en brei je 2 recht en dan minder je weer. Tussen die 2 steken recht zit de markeerdraad.

17.12.2023 - 17:53