DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS Karisma yarn
DROPS Karisma
100% Ull
frá 610.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9760.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
Velja stærð:
DROPS 134-1

#bluebirdcardigan

DROPS Design: Mynstur nr U-619
Garnflokkur B
--------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio
750-800-900-1000-1100-1200 gr litur nr 65, gallabuxnablár:

DROPS PRJÓNAR NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l og 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS PRJÓNAR NR 3,5 – fyrir kant.
DROPS TALA NR 538: 5 stk.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 610.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9760.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu M.1 til M.4 – mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu (umf 1 = rétta).

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

LEIÐBEININGAR (á við um kant að framan):
Þær 5 kantlykkjur í kanti að framan eru prjónaðar með tvöföldum þræði alla leið, þ.e.a.s. að nauðsynlegt er að hafa litla dokku við hliðina sem einungis er prjónað úr þegar kantur að framan er prjónaður. Þegar auka á út fyrir kraga eru útauknu l einnig prjónaðar með tvöföldum þræði. Þetta er gert til þess að kanturinn að framan og kraginn verði þykkari og þéttari.

HNAPPAGAT:
Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan.
1 hnappagat = fellið af 3. og 4. l á kant að framan frá kanti. Í næstu umf eru fitjaðar upp 2 nýjar l yfir þær l sem felldar voru af.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
STÆRÐ S: 18, 25, 32, 39 og 46 cm.
STÆRÐ M: 19, 26, 33, 40 og 47 cm.
STÆRÐ L: 20, 27, 34, 41 og 48 cm.
STÆRÐ XL: 21, 28, 35, 42 og 49 cm.
STÆRÐ XXL: 22, 29, 36, 43 og 50 cm.
STÆRÐ XXXL: 23, 30, 37, 44 og 51 cm.

ÚTAUKNING (á við um kraga):
Aukið er út um 1 l á undan síðustu l á kanti að framan með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn til að koma í veg fyrir göt (þ.e.a.s. prjónað er aftan í lykkjubogann í stað framan).

ÚRTAKA (á við hálsmál):
Fækkið lykkjum frá réttu innan við þá l sem aukin var út fyrir kraga + þær 5 kantlykkjur að framan + þær 3 fyrstu l í sléttprjóni innan við kant að framan.
Fækkið lykkjum Á EFTIR þessa l þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.
Fækkið lykkjum Á UNDAN þessa l þannig: Prjónið 2 l sl saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 126-136-146-156-174-184 l á prjóna nr 3,5 með Karisma.
Prjónið 2 umf slétt (umf 1 = rétta), skiptið yfir á prjóna nr 4.
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM:
MYNSTUR: Haldið áfram (frá réttu) þannig: Prjónið 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, 12-17-22-27-16-21 l í sléttprjóni með röngu út, M.2 (= 20 l) 1-1-1-1-2-2 sinnum, M.1A (= 60 l), M.2 (= 20 l) 1-1-1-1-2-2 sinnum, 12-17-22-27-16-21 l í sléttprjóni með röngu út og 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Þegar stykkið mælist 29-30-31-32-33-34 cm, er prjónað M.1B yfir M.1A, aðrar l eru prjónaðar eins og áður (fækkað er um 12 l í M.1B eins og útskýrt er í mynstri). Eftir M.1B er prjónað M.1A áfram yfir M.1B.
ÚRTAKA Í HLIÐ og ÚTAUKNING Í HLIÐ:
Þegar stykkið mælist 12 cm, fækkið um 1 l í hvorri hlið. Endurtakið úrtöku með 2½ cm millibili alls 10 sinnum. Þegar stykkið mælist 40 cm, aukið út um 1 l í hvorri hlið. Endurtakið útaukningu með 3 cm millibili alls 4 sinnum (útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni með röngu út).
Eftir alla úrtöku og útaukningu eru 102-112-122-132-150-160 l á prjóni.
HANDVEGUR: Þegar stykkið mælist 55-56-57-58-59-60 cm, fellið af fyrir handvegi í byrjun hverrar umf í hvorri hlið: 5 l 1 sinni í öllum stærðum, 3 lykkjur 0-1-1-2-3-4 sinnum, 2 lykkjur 1-2-4-4-5-5 sinnum og 1 lykkja 3-2-2-3-5-5 sinnum = 82-84-86-88-92-96 l. Haldið áfram með mynstur eins og áður með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 70-72-74-76-78-80 cm, prjónið 4 umf slétt yfir miðju 40 l (aðrar l eru prjónaðar eins og áður). Fellið nú af miðju 30 l fyrir hálsmáli. Prjónið hvora öxl (= 26-27-28-29-30-31 l) til loka fyrir sig. Haldið áfram með mynstur með 5 l í garðaprjóni við hálsmál. Þegar stykkið mælist 74-76-78-80-82-84 cm, prjónið nú 8 l yfir kaðal í M.2 saman 2 og 2 = 22-23-24-25-26-27 l eftir á prjóni. Í næstu umf eru felldar allar lykkjur af með sl yfir sl og br yfir br.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka.
Fitjið upp 68-73-78-83-92-97 l (meðtaldar eru 5 kantlykkjur við miðju að framan og 1 kantlykkja í hlið) á prjóna nr 3,5 með Karisma. LESIÐ LEIÐBEININGAR!
Prjónið 2 umf slétt (umf 1 = rétta), skiptið yfir á prjóna nr 4.
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
MYNSTUR: Haldið áfram (= frá réttu) þannig:
STÆRÐ S, M, L, og XL: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 4 l sléttprjón með réttu út, 6 l sléttprjón með röngu út, M.3A (= 40 l), 12-17-22-27 l sléttprjón með röngu út og 1 kantlykkju í garðaprjóni.
STÆRÐ XXL og XXXL: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 4 l í sléttprjóni með réttu út, 6 l í sléttprjóni með röngu út, M.3A (= 40 l), M.2 (= 20 l), 16-21 l í sléttprjóni með röngu út og 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Þegar stykkið mælist 29-30-31-32-33-34 cm, prjónið M.3B yfir M.3A, aðrar l eru prjónaðar eins og áður (það fækkar um 6 l í M.3B eins og útskýrt er í mynstri). Eftir M.3B er prjónað M.3C áfram yfir þessar l.
ÚRTAKA Í HLIÐ og ÚTAUKNING Í HLIÐ:
Þegar stykkið mælist 12 cm, er fækkað um 1 l á hlið. Endurtakið úrtöku með 2½ cm millibili alls 10 sinnum. Þegar stykkið mælist 40 cm, er aukið út um 1 l í hlið. Endurtakið útaukningu með 3 cm millibili alls 4 sinnum (útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni með röngu út).
HNAPPAGAT: Jafnframt þegar stykkið mælist 18-19-20-21-22-23 cm, byrjar úrtaka fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan.
KRAGI: Jafnframt þegar stykkið mælist 47-48-49-50-51-52 cm, er aukið út um 2 l fyrir kraga þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn á undan fyrstu l og sláið 1 sinni uppá prjóninn á undan næstu l, í næstu umf eru báðir uppslættirnir prjónaðir snúnir sl til þess að koma í veg fyrir göt. Aukið nú út um 1 l fyrir kraga í annarri hverri umf alls 12 sinnum og síðan í 4 hverri umf alls 6 sinnum – Sjá ÚTAUKNING! Eftir að útaukningu er lokið eru 20 fleiri l fyrir kraga og 25 l í garðaprjóni alls (allar þessar eru prjónaðar með tvöföldum þræði).
ÚRTAKA FYRIR HÁLSMÁLI: Jafnframt þegar stykkið mælist 49-50-51-52-53-54 cm, er felld af 1 l við háls – Sjá ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf alls 12 sinnum og síðan í 4. hverri umf alls 8 sinnum.
HANDVEGUR: Jafnframt þegar stykkið mælist 55-56-57-58-59-60 cm, fellið af fyrir handveg í hlið eins og á bakstykki. Eftir útaukningu og úrtöku eru 46-47-48-49-51-53 l á prjóni. Prjónið áfram þar til stykkið mælist ca 74-76-78-80-82-84 cm, passið uppá að næsta umf sé prjónuð frá réttu. Prjónið nú 8 l yfir kaðalinn saman 2 og 2 = 42-43-44-45-47-49 l á prjóni. Í næstu umf (= ranga) eru felldar af fyrstu 22-23-24-25-27-29 l fyrir öxl, prjónið umf út. Haldið áfram yfir 20 lykkjur í kraga sem eftir eru þannig: * Prjónið 2 umf slétt yfir allar l, 2 umf slétt yfir einungis síðustu 14 l (við miðju að framan) *, endurtakið frá *-* þar til kraginn mælist ca 7-8 cm innst (hann mælist ca 14-16 cm í lokin). Fellið af.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið eins og hægra framstykki, nema spegilmynd. Þ.e.a.s. að eftir 2 umf slétt er prjónað mynstur (frá réttu) þannig:
STÆRÐ S, M, L og XL: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 12-17-22-27 l br, M.4A (= 40 l), 6 l br, 4 l sl og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
STÆRÐ XXL og XXXL: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 16-21 l br, M.2 (= 20 l), M.4A (= 40 l), 6 l br, 4 l sl og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
Prjónið nú M.4B og M.4C í stað M.3B og M.3C.
Lykkjur yfir kaðal á öxl eru felldar af frá röngu og axlarlykkjur frá réttu, þetta er gert öfugt á hægra framstykki, til þess að sleppa við að klippa frá þegar kraginn er prjónaður.

ERMI:
Stykkið er prjónað fram og til baka.
Fitjið upp 100-100-100-116-116-132 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjóna nr 3,5 með Karisma. Prjónið 1 umf slétt (umf 1 = rétta) og 1 umf brugðið, síðan eru allar l prjónaðar 2 og 2 slétt saman = 50-50-50-58-58-66 l. Prjónið 1 umf slétt til baka frá röngu.
Prjónið nú stroff = 4 l sl, 4 l br með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 10 cm, skiptið yfir á prjóna nr 4 og haldið áfram í sléttprjóni með röngu út.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 13-13-13-13-11-11 cm er aukið út um 1 l í hvorri hlið, endurtakið útaukningu með 3-2½-2-2-2-2 cm millibili alls 12-14-16-15-17-16 sinnum = 74-78-82-88-92-98 l. Þegar stykkið mælist 49-48-47-46-45-44 cm (styttri mál í stærri stærðum vegna víðari handvegs og breiðari axla), fellið nú af fyrir ermakúpu í byrjun hverrar umf í hvorri hlið: 4 l 1 sinni, 2 l 3 sinnum, 1 l 5-6-7-9-10-12 sinnum og síðan 2 l í hvorri hlið þar til stykkið mælist 57 cm. Að lokum eru felldar af 3 l 1 sinni í hvorri hlið, fellið nú af þær l sem eftir eru. Ermin mælist ca 58 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlarsauma. Saumið kragann saman við miðju að aftan, saumið kant í kant svo að saumurinn verði ekki of þykkur. Saumið kragann fastan við hálsmálið að aftan. Saumið ermar í og saumið erma- og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju. Saumið tölur í.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 12.09.2011
Nýtt mynstur M.1B
Yfirfarið á vefsvæði: 26.09.2011
VINSTRA FRAMSTYKKI: STÆRÐ XXL og XXXL: Prjónið 1 kantlykkju með garðaprjóni, 16-21 l br, M.2 (= 20 l), M.4A (= 40 l), 6 l br, 4 l sl og 5 kantlykkjur að framan með garðaprjóni....
Yfirfarið á vefsvæði: 20.03.2014
Nýtt mynstur M.3B og M.4B

Mynstur

slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
setjið 4 lykkjur á hjálparprjón framan við stykkið, 2 lykkjur brugðið, 4 lykkjur slétt af hjálparprjóni = setjið 4 lykkjur á hjálparprjón framan við stykkið, 2 lykkjur brugðið, 4 lykkjur slétt af hjálparprjóni
setjið 2 lykkjur á hjálparprjón aftan við stykkið, 4 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið af hjálparprjóni = setjið 2 lykkjur á hjálparprjón aftan við stykkið, 4 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið af hjálparprjóni
setjið 4 lykkjur á hjálparprjón aftan við stykkið, 4 lykkjur slétt, 4 lykkjur slétt af hjálparprjóni = setjið 4 lykkjur á hjálparprjón aftan við stykkið, 4 lykkjur slétt, 4 lykkjur slétt af hjálparprjóni
setjið 4 lykkjur á hjálparprjón framan við stykkið, 4 lykkjur slétt, 4 lykkjur slétt af hjálparprjóni = setjið 4 lykkjur á hjálparprjón framan við stykkið, 4 lykkjur slétt, 4 lykkjur slétt af hjálparprjóni
2 lykkjur brugðið saman = 2 lykkjur brugðið saman
Diagram for DROPS 134-1
Diagram for DROPS 134-1
Diagram for DROPS 134-1
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 134-1

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (645)

country flag Perle skrifaði:

Bonjour,ma question c'est comment faire à 49cm après avoir fait les deux augmentations avec les jetés et 1 augmentation, ce qui fait 8 points mousses. comment faire les diminutions: après les 8 points mousses + les 3 premières m en jers end , je fais le surjet simple, mais à quel moment je dois faire 2 m ens à l'endroit? je ne comprends pas ce que vous voulez dire par APRES/AVANT? je ne me décourage pas ça ne fait que deux mois et demie que je suis sur cette veste. Avec mes remerciments

29.01.2013 - 15:02

DROPS Design svaraði:

Bonjour Perle, les mailles de l'encolure sont diminuées sur l'endroit, après toutes les mailles suivante pour le devant droit : les mailles augmentées pour le col + les 5 m de bordure devant + les 3 premières m end de la bordure. Pour le devant gauche, les diminutions se feront avant ces mailles (sur l'endroit aussi). Bon tricot !

29.01.2013 - 15:28

country flag Annie DE VOS skrifaði:

BETREFT: NIEUWE teltekeningen nrs. M.1 B - M.3 B en M.4 B Deze teltekeningen werden 09.2011 online gewijzigd. Waar kan ik deze nieuwe tekeningen online terugvinden ? Met dank

16.01.2013 - 15:06

DROPS Design svaraði:

Ze staan hier op het patroon online. Dus print dit patroon en je hebt de juiste teltekeningen.

16.01.2013 - 15:56

country flag Ellen.Hartmann skrifaði:

Ik ben dit vest aan het breien. Ik heb het achterpand af. Maar het patroon in het midden van de rug ziet er niet zo mooi uit. De kabels die kruisen liggen er niet boven op. Het lijkt meer een rommeltje. Het patroon heb i netjes gevolgd.Wat doe ik fout?

16.01.2013 - 11:01

DROPS Design svaraði:

Ik kan helaas hier niet zien wat er eventueel fout is gegaan met je kabeltje. Neem het werk mee naar je winkel en vraag voor persoonlijke ondersteuning. Ze kunnen waarschijnlijk zien waar het mis is gegaan.

16.01.2013 - 16:06

country flag Marie skrifaði:

Bon je me lance et qui le veut me suive!!!!!

10.01.2013 - 17:05

country flag Saskia skrifaði:

Ik snap hier helemaal niks van. HELP. Ik snap de beschrijving van de kraag en hals niet. Wie kan mij dit uitleggen op een makkelijke manier?

16.12.2012 - 19:42

DROPS Design svaraði:

Voor de kraag meerder je 2 st per keer: 1 omsl naast de buitenste st (= 1e st middenvoor) en nog een omslag na de 2e st middenvoor. Daarna meerder je 1 st naast de buitenste st (LEES TIP VOOR HET MEERDEREN) totaal 12 keer om de nld (elke 2e nld) en dan 6 keer in iedere 4e nld. Tegelijkertijd moet je minderen bij de hals naast de voorbiesst (LEES TIP VOOR HET MINDEREN).

19.12.2012 - 12:01

country flag Ruth skrifaði:

Jetzt ist alles klar. Herzlichen Dank für die promte Antwort.

09.12.2012 - 18:55

country flag Ruth skrifaði:

Ich bin gerade daran, diese Jacke zu stricken. Nun habe ich eine Frage zur Grösse. Bei 31 cm fange ich mit dem Muster 1B an. Nach 12 cm beginnen die Abnahmen. Nach 40 cm beginnen die Aufnahmen. Von wo messe ich die 40 cm? Bei 57 cm (über alles gemessen) muss ich ja mit dem Armloch beginnen?

08.12.2012 - 16:49

DROPS Design svaraði:

Liebe Ruth, die Angaben beziehen sich alle auf die Gesamthöhe. Sie beginnen also schon während M1A mit den seitlichen Abnahmen (nach 12 cm Gesamthöhe) und nehmen dann nach 40 cm seitlich wieder auf. Unabhängig davon wird nach 31 cm das Muster M1B gestrickt. Viel Spass beim Stricken!

09.12.2012 - 08:32

country flag Sheila Tunstall skrifaði:

Hi, oh dear I’m not making myself very clear, so must appear to be a bit dim. Regarding the cables, I realise that the white squares correspond to knit stitches and that sloping lines show when cabling should be performed, however, despite following the pattern, ( cabling on odd rows) my cabling pattern is very pronounced on the wrong side of my garment .Am I doing something wrong, or is this correct for this particular pattern.

04.12.2012 - 21:41

Tom svaraði:

Of course you knit cables on right side only as always!

05.12.2012 - 10:10

country flag Sheila Tunstall skrifaði:

Hello, I would like to clarify my problem with cabling in block M1b. I am performing the cables on the right side of the garment ( odd rows), yet they are appearing more pronounced on the wrong side, so wish to know if this is correct, or am I doing something very wrong, despite watching the tutorial many times.

03.12.2012 - 13:46

DROPS Design svaraði:

Dear Mrs Tunstall, the white squares in the diagramm should be K from RS and cables are made on these sts, on odd rows. Happy knitting!

04.12.2012 - 09:30

country flag Linda skrifaði:

Mijn vest is af en is echt mooi en comfortabel om te dragen!

30.11.2012 - 12:22