Ekisabeth skrifaði:
Herlige! :)
29.06.2011 - 20:25Linda Nys skrifaði:
Deze zijn gewoon geweldig, zullen zeker intrek zijn
29.06.2011 - 20:09
Jean skrifaði:
Very cool for teens!
28.06.2011 - 19:59
Pamela skrifaði:
So cool...really beautiful and looks like warm..
28.06.2011 - 05:31
Jo skrifaði:
Fantastic!!
22.06.2011 - 15:24
Zao skrifaði:
J'adore le style ethnique, j'attends les explications
21.06.2011 - 19:09
DOMINIQUE skrifaði:
J'attends les explications avec impatience.
21.06.2011 - 18:11
Kristin Halvorsrud skrifaði:
Disse var såå tøffe! Gleder meg til å varme bena mine med disse..
21.06.2011 - 11:32
Geesje skrifaði:
Doet me denken aan lapland heel apart
18.06.2011 - 11:50
Michaela skrifaði:
WOW... das ist ein "will-ich-haben" Modell. Ich freu mich schon drauf :-)
16.06.2011 - 19:32
Pocahontas#pocahontasslippers |
|
|
|
Heklaðar tátiljur úr DROPS Symphony og DROPS Snow eða DROPS Melody. Stærð 35-43.
DROPS 133-9 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LYKKJUR HEKLAÐAR SAMAN: Heklið 2 l saman þannig: Stingið heklunálinni í gegnum lykkjuna og sækið þráðinn í gegnum fyrstu lykkju og síðan í gegnum aðra lykkju, dragið síðan þráðinn í gegnum báðar lykkjurnar. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TÁTILJUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað fram og til baka, ofan frá og niður að tá. TÁTILJA: Heklið 32-34-36 lausar ll með heklunál nr 8 og 2 þræði af Symphony (1 þráður brúnn og 1 þráður ljós beige) eða 2 þráðum Melody (2 þræðir beige). Snúið stykkinu. Heklið 1 fl í 2. ll frá heklunálinni, heklið nú 1 fl í hverja ll út umf = 31-33-35 fl. Heklið nú þannig: * Heklið 2 ll, snúið við, heklið 1 st í hverja l, 1 ll, snúið við, heklið 1 fl í hverja l *, endurtakið frá *-* ATHUGIÐ HEKLFESTUNA – heklfestan er mikilvæg til að tátiljan passi. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 10-10-10 cm fækkið um 2 l í umf þannig: Heklið 2 fyrstu l saman – sjá útskýringu að ofan – og 2 miðjulykkjur saman = 29-31-33 l í umf. Haldið nú áfram þar til stykkið mælist 19-20-21 cm. Nú er fótstykkið heklað með fl – setjið prjónamerki í miðjulykkju þannig: UMFERÐ 1: Heklið 1 fl í hverja l fram að l á undan miðjulykkju, 2 fl í næstu l, 1 ll (= miðjulykkja), hoppið yfir næstu l, 2 fl í næstu l, 1 fl í hverja af síðustu l, snúið við. UMFERÐ 2: Heklið 1 fl í hverja af fyrstu l fram að ll, heklið 7 st í miðjulykkju (miðjulykkja af þeim 7 l er nú miðjulykkja) og 1 fl í hverja af síðustu l, snúið við. UMFERÐ 3: Heklið 1 fl í hverja af næstu l fram að lykkju sem er á undan miðjulykkju, heklið 2 fl í næstu l, 1 ll (= miðjulykkju), hoppið yfir næstu l, heklið 2 fl í næstu l, 1 fl í hverja af síðustu l, snúið við. UMFERÐ 4: Heklið 1 fl í hverja l fram að miðjulykkju, 7 st í ll og 1 fl í hverja af síðustu l, snúið við. Endurtakið umf 3 og 4 þar til fóturinn mælist ca 22-24-27 cm á lengd – mælt þar sem stykkið er brotið saman tvöfalt. Skiptið nú yfir í Snow og HÉÐAN ER NÚ MÆLT! * Heklið 1 umf fl endið umf á 1 ll og snúið við *, endurtakið frá *-* þar til stykkið mælist ca 4-4,5-5 cm – jafnframt í síðustu umf eru 2 fyrstu og 2 síðustu l heklaðar saman – sjá LYKKJUR HEKLAÐAR SAMAN. Klippið frá. FRÁGANGUR: Brjótið tátiljuna saman tvöfalda, saumið kant í kant yst í lykkjubogann svo að saumurinn verði ekki of þykkur. Heklið eina lausa umf með fl efst ofan við ökkla með Snow. Heklið snúru ll-umferðir ca 150 cm með Snow, gerið smá dúsk á hvorn enda – ATH: Áður en síðasti dúskurinn er gerður er ll-snúran dregin í gegnum lykkjurnar neðst við ökklann aftan við skiptinguna frá Symphony eða Melody að Snow, þá situr hún föst. Hnýtið þessa ll-snúru utan um legginn. Heklið aðra tátilju á sama hátt. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #pocahontasslippers eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 7 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 133-9
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.