Mieke skrifaði:
Bedankt voor de reactie maar ik begrijp het niet goed. Als ik steken toevoeg dan wordt de kraag toch breder maar niet de hals volgens mij ?? Zou ook niet weten hoe ik de extra steken moet minderen richting schouder ?? Graag een reactie
15.09.2022 - 16:59DROPS Design svaraði:
Dag Mieke,
Je gaf aan dat je steken toe wilt voegen aan de ribbel, dus bij de kraag. Daarmee wordt het voorpand breder bij het deel van de kraag, dus de kraag zelf ook, die doorloopt naar het achterpand.
24.09.2022 - 12:34
Mieke Kouters skrifaði:
Hallo, ik ga dit vest breien met 3 draden kid silk. Heb het eerder gebreid met melody en vond toen dat de voorpanden wat breder hadden mogen zijn. Kan ik bv 2 of 3 extra steken aan de ribbel toevoegen aan elke kant? Volgens mij maakt dat verder niets uit voor het patroon. Graag advies. Groet Mieke
12.09.2022 - 15:44DROPS Design svaraði:
Dag Mieke,
Ja, dat is een goed idee. Je kan aan beide voorpanden aan de kant van midden voor steken toevoegen. Da hals wordt dan wel breder, dus kijk even of je het extra aantal steken weer wilt minderen richting de schouder om de breedte van de kraag wel hetzelfde te houden.
14.09.2022 - 11:53
Mieke skrifaði:
Hallo, ik ga dit vest breien met 3 draden kid silk. Heb het eerder gebreid met melody en vond toen dat de voorpanden wat breder hadden mogen zijn. Kan ik bv 2 of 3 extra steken aan de ribbel toevoegen aan elke kant? Volgens mij maakt dat verder niets uit voor het patroon. Graag advies. Groet Mieke
10.09.2022 - 19:20DROPS Design svaraði:
Dag Mieke,
Ja, dat zou je kunnen doen. Je maakt dan eigenlijk alleen de kraag wat breder en dit heeft verder geen invloed op het patroon.
02.10.2022 - 16:24
Eileen skrifaði:
Hello can I use one strand of drops sky and one strand of drops kid silk to obtain the same tension to follow this pattern please?
26.11.2020 - 15:32DROPS Design svaraði:
Dear Eileen, to replace Melody (a yarn of Group D), you'd need: either 2 threads of a yarn from group B (Drops Sky) or, if you work with 1 thread of Sky and 1 of Kid Silk, with the same needle as the one recommended, you can make the garment, but it will have a more open texture. You can read more detailed information in the following section: https://www.garnstudio.com/pattern.php?id=5110&cid=19#question3 Happy knitting!
26.11.2020 - 22:57
Susanne Liebe skrifaði:
Hvad er strikkefastheden? Kan ikke se den i forklaringen
28.04.2020 - 14:57DROPS Design svaraði:
Hej Susanne :) DROPS STRØMPEP OG RUNDP (80 cm) nr 8 – eller det p.nr du skal bruge for at få 12 m x 14 p glatstrik på 10 x 10 cm.
28.04.2020 - 15:15
Manja skrifaði:
Hallo, ich möchte die Jacke stricken mit der Wolle Melody, in S. Nach den ersten Reihen habe ich gemessen u. das Rückenteil ist viel zu groß, jenseits von den angegebenen cm. Gibt es da eine Korrektur? Danke für die Hilfe! 🤗
17.08.2017 - 18:15DROPS Design svaraði:
Liebe Manja, stimmt Ihre Maschenprobe? Nach Bündchen werden Sie abnehmen, so daß die Breite stimmt. Viel Spaß beim stricken!
28.08.2017 - 11:52
Coetma skrifaði:
Merci beaucoup pour ces précieux conseils. Bonne journée
24.03.2017 - 08:47
Coetma skrifaði:
Merci pour votre réponse trės rapide. Il me reste une question .....quel type de couture pour fixer le col à l'encolure ?
23.03.2017 - 16:30DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Coetma, vous assemblez les fins de rangs (col) le long des mailles de l'encolure dos, vous pouvez utiliser le même type de couture que pour des manches assemblées au dos et au devant. Bon tricot!
23.03.2017 - 17:19
Coetma skrifaði:
Bonjour Comment faut il faire pour assembler le col ?
23.03.2017 - 16:17DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Coetma, Assemblez d'abord entre elles les 2 parties du col (= les 11-13 m (cf taille) tricotées en rangs raccourcis à la fin du devant droit et du devant gauche), puis vous pouvez coudre le col le long de l'encolure dos. Bon tricot!
23.03.2017 - 16:19
Mieke skrifaði:
Ok bedankt, ik had het verkeerd begrepen maar snap het nu :-)
27.02.2017 - 19:38
DROPS Extra 0-763 |
|
|
|
Prjónuð peysa með sjalkraga úr DROPS Vienna eða DROPS Melody. Stærð S-XXXL.
DROPS Extra 0-763 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ S: 36 og 44 cm STÆRÐ M: 37 og 45 cm STÆRÐ L: 38 og 46 cm STÆRÐ XL: 40 og 48 cm STÆRÐ XXL: 42 og 50 cm STÆRÐ XXXL: 44 og 52 cm ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, neðan frá og upp. PEYSA: Fitjið upp 127-139-147-159-179-197 lykkjur á hringprjón 7 með DROPS Vienna eða DROPS Melody. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan næstu umferð frá réttu þannig: 11-11-12-12-13-13 lykkjur GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, stroff 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið þar til 14-14-15-15-16-16 lykkjur, endið með 3 lykkjur slétt, 11-11-12-12-13-13 lykkjur í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 3 cm er næsta umferð prjónuð frá réttu þannig: Skiptið yfir á hringprjón 8. Prjónið 11-11-12-12-13-13 lykkjur í garðaprjóni, prjónið sléttprjón þar til 11-11-12-12-13-13 lykkjur eru eftir, JAFNFRAMT er fækkað um 17-21-21-21-25-27 lykkjur jafnt yfir, endið umferð með 11-11-12-12-13-13 lykkjur í garðaprjóni = 110-118-126-138-154-170 lykkjur. Setjið tvö merki í stykkið, 30-32-34-37-41-45 lykkjur inn frá hvorri hlið (bakstykki = 50-54-58-64-72-80 lykkjur). Haldið áfram í sléttprjóni með 11-11-12-12-13-13 lykkjur í garðaprjóni við miðju að framan í hvorri hlið. Þær 11-11-12-12-13-13 lykkjur sem eru í garðaprjóni = kantar að framan. Kantar að framan eru prjónaðir í garðaprjóni að loka máli. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 8 cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við merki í hvorri hlið. Endurtakið úrtöku með 7-8-10-11-11-12 cm millibili alls 4 sinnum = 94-102-110-122-138-154 lykkjur. Þegar stykkið mælist 37-37-43-45-47-49 cm aukið út um 1 lykkju hvoru megin við merki. Stærð S og M: Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 47 cm. Stærð L-XL- XXL-XXXL: Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 46-48-49-51 og 49-51-51-53 cm) = 102-110-122-134-150-166 lykkjur. Þegar stykkið mælist 51-52-53-54-55-56 cm fellið af 4-6-6-6-6-6 lykkjur fyrir handveg í hvorri hlið (fellið af 2-3-3-3-3-3 lykkjur hvoru megin við merki í hvorri hlið). Síðan er hvort stykki prjónað fyrir sig. BAKSTYKKI: Haldið áfram að fella af fyrir handveg í byrjun hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: 2 lykkjur 0-1-1-2-4-5 sinnum og 1 lykkja 1-0-1-1-1-2 sinnum = 40-40-44-46-46-48 lykkjur. Þegar stykkið mælist 68-70-72-74-76-78 cm fellið af miðju 10-10-12-12-14-14 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 14-14-15-16-15-16 lykkjur eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 70-72-74-76-78-80 cm. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fellið af fyrir handveg í hlið á sama hátt og á bakstykki = 25-25-27-28-28-29 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og garðaprjóni í kanti að framan. Þegar stykkið mælist 70-72-74-76-78-80 cm fellið af ystu 15-15-15-16-15-16 lykkjur fyrir öxl = 10-10-12-12-13-13 kragalykkjur eftir á prjóni. Prjóni út umferðina. Með byrjun frá kanti að framan er nú prjónaðar stuttar umferðir yfir kantlykkjur að framan þannig: * Prjónið fram og til baka yfir ystu 5-5-6-6-6-6 lykkjur, fram og til baka yfir allar lykkjur *, endurtakið frá *-* þar til kraginn mælist ca 8-8-9-9-9-9 cm, mælt frá þar sem stykkið er styst (mælt frá öxl). Fellið af. HÆGRA FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og vinstra framstykki, nema gagnstætt. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 30-36-36-36-36-36 lykkjur á sokkaprjón 7. Prjónið 1 umferð sléttprjón. Prjónið síðan stroff 3 lykkjur slétt / 3 lykkjur brugðið yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist 3 cm er skipt yfir á sokkaprjóna 8. Prjónið 1 umferð í sléttprjóni, JAFNFRAMT er fækkað um 0-4-4-2-2-0 lykkjur jafnt yfir í umferð = 30-32-32-34-34-36 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni. Setjið eitt merki í byrjun umferðar. Þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við merki. Endurtakið útaukningu með 18-12-9-7-4½-4½ cm millibili alls 3-4-5-6-8-8 sinnum = 36-40-42-46-50-52 lykkjur. Þegar stykkið mælist 49-49-48-48-45-44 cm – ATH! Styttra mál í stærri stærðum vegna hærri ermakúpu og breiðari axla – fellið af 6 lykkjur mitt undir ermi (felldar eru af 3 lykkjur hvoru megin við merki). Prjónið síðan stykkið fram og til baka, JAFNFRAMT er haldið áfram að fella af fyrir ermakúpu í byrjun hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: 2 lykkjur 1-1-1-1-2-2 sinnum, 1 lykkja 0-1-2-3-3-4 sinnum, síðan eru felldar af 2 lykkjur í hvorri hlið þar til stykkið mælist 55-56-56-57-57-58 cm. Fellið af 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið áður en afgangur af lykkjum er felldur af. Stykkið mælist nú ca 56-57-57-58-58-59 cm. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermar í. Saumið kragann saman mitt að aftan og saumið að hnakka. Saumið tölur í. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 21 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-763
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.