Darlene skrifaði:
I do not understand the instructions for the joining of the two halves of the heart. Which of the halves goes on the top? Or am I completely lost?
26.01.2014 - 23:37DROPS Design svaraði:
Dear Darlene, heart is worked from top down, you first crochet both "arches" then put them together and continue in the round with dec until the bottom tip. Happy crocheting!
27.01.2014 - 09:31
Stephanie skrifaði:
Hoe kan je dit patroon verkleinen? Ik zou een kleinere versie willen maken.
04.02.2013 - 12:44DROPS Design svaraði:
Ik kan je helaas niet helpen met aanpassen van het patroon. Maar je zou het eventueel kunnen doen door minder v te haken voor de 2 helften. Maak een proefje en pas aan. Of ga naar de winkel en vraag of ze jou kan helpen.
06.02.2013 - 18:23
Hooked On You#hookedonyoupillow |
|
![]() |
![]() |
Heklað hjarta / púði úr DROPS Snow.
DROPS Extra 0-760 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GALDRAHRINGUR: Til þess að koma í veg fyrir göt í miðju er heklað með þessari aðferð. Haldið í endann með vinstri hendi og gerið lykkju utan um vinstri vísifingur (frá vinstri að hægri). Haldið í lykkjuna með vinstri þumli og vísifingri. Heklunálinni er stungið inn í hringinn, þræðinum er brugðið um heklunálina og dregið upp úr hringnum, heklið 1 ll, heklið nú fl utan um galdrahringinn. Þegar sá fjöldi fl er kominn sem þú óskar eftir, dragið í endann á þræðinum þannig að lykkjan dragist saman og gatið hverfi. Festið endann á bakhlið. Haldið áfram að hekla í hring. HEKLAÐ Í HRING: Eftir síðustu fl í umf, haldið áfram að næstu umf með 1 fl í næstu fl (= fyrsta fl frá fyrri umf). ATH: Merkið byrjun umf með prjónamerki á milli síðustu fl í umf og fyrstu fl í næstu umf, látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. 2 FL HEKLAÐAR SAMAN: * Stingið heklunálinni í næstu l, sækið þráðinn *, endurtakið frá *-* einu sinni til viðbótar, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 l á heklunálinni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HJARTA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Hjartað er heklað ofan frá og niður. Fyrst eru gerðir tveir helmingar hvor fyrir sig, síðan eru stykkin sett saman og síðan heklað hringinn að botni á hjartanu. HJARTA: Byrjið á að gera GALDRAHRINGUR – sjá útskýringu að ofan með Snow og heklunál nr 5. UMFERÐ 1: Heklið 7 fl um galdrahringinn. LESIÐ HEKLAÐ Í HRING! UMFERÐ 2: Heklið 2 fl í hverja fl = 14 fl. UMFERÐ 3: * Heklið 1 fl í næstu fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 21 fl. UMFERÐ 4: * Heklið 1 fl í næstu 2 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 28 fl. UMFERÐ 5: * Heklið 1 fl í næstu 3 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 35 fl. UMFERÐ 6: Heklið 1 fl í hverja fl = 35 fl. UMFERÐ 7: * Heklið 1 fl í næstu 4 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 42 fl. UMFERÐ 8: Heklið 1 fl í hverja fl = 42 fl. UMFERÐ 9: * Heklið 1 fl í næstu 5 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 49 fl. UMFERÐ 10-11: Heklið 1 fl í hverja fl = 49 fl. UMFERÐ 12: * Heklið 1 fl í næstu 6 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 56 fl. UMFERÐ 13-18: Heklið 1 fl í hverja fl = 56 fl í umf. Klippið frá og haldið eftir 40 cm fyrir frágang. Heklið hinn helminginn af hjartanu alveg eins, en klippið ekki þráðinn frá heldur haldið áfram í næstu umf. Setjið saman báða helmingana þannig að síðasta fl frá síðustu umf á báðum stykkjum liggja á móti hvorri annarri. Saumið saman 8 næstu fl á báðum stykkjum með spori í hverja lykkju, klippið frá og festið enda. Takið upp þráðinn frá síðustu fl frá umf 18 frá hinum helmingnum af hjartanu (= nú ertu í miðju hjarta) og haldið áfram að hekla hringinn á báðum helmingunum þannig: UMFERÐ 19: Heklið 1 fl í hverja fl = 96 fl. UMFERÐ 20: * Heklið 1 fl í næstu 11 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 104 fl. UMFERÐ 21: Heklið 1 fl í hverja fl = 104 fl. UMFERÐ 22: * Heklið 1 fl í næstu 12 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 112 fl. UMFERÐ 23-24: Heklið 1 fl í hverja fl = 112 fl í umf. UMFERÐ 25: * Heklið 1 fl í næstu 26 fl, heklið nú 2 næstu fl saman * - sjá skýringu að ofan. Endurtakið frá *-* umf hringinn = 108 fl. UMFERÐ 26: Heklið 1 fl í hverja fl = 108 fl. UMFERÐ 27: * Heklið 1 fl í næstu 25 fl, heklið nú 2 næstu fl saman * , endurtakið frá *-* umf hringinn = 104 fl. UMFERÐ 28: Heklið 1 fl í hverja fl = 104 fl. UMFERÐ 29: * Heklið 1 fl í næstu 24 fl, heklið nú 2 næstu fl saman * , endurtakið frá *-* umf hringinn = 100 fl. UMFERÐ 30: Heklið 1 fl í hverja fl = 100 fl. UMFERÐ 31: * Heklið 1 fl í næstu 23 fl, heklið nú 2 næstu fl saman * , endurtakið frá *-* umf hringinn = 96 fl. UMFERÐ 32: Heklið 1 fl í hverja fl = 96 fl. UMFERÐ 33: * Heklið 1 fl í næstu 10 fl, heklið nú 2 næstu fl saman * , endurtakið frá *-* umf hringinn = 88 fl. UMFERÐ 34: Heklið 1 fl í hverja fl = 88 fl. UMFERÐ 35: * Heklið 1 fl í næstu 9 fl, heklið nú 2 næstu fl saman * , endurtakið frá *-* umf hringinn = 80 fl. UMFERÐ 36: Heklið 1 fl í hverja fl = 80 fl. UMFERÐ 37: * Heklið 1 fl í næstu 8 fl, heklið nú 2 næstu fl saman * , endurtakið frá *-* umf hringinn = 72 fl. UMFERÐ 38: Heklið 1 fl í hverja fl = 72 fl. UMFERÐ 39: * Heklið 1 fl í næstu 7 fl, heklið nú 2 næstu fl saman * , endurtakið frá *-* umf hringinn = 64 fl. UMFERÐ 40: Heklið 1 fl í hverja fl = 64 fl. UMFERÐ 41: * Heklið 1 fl í næstu 6 fl, heklið nú 2 næstu fl saman * , endurtakið frá *-* umf hringinn = 56 fl. UMFERÐ 42: Heklið 1 fl í hverja fl = 56 fl. UMFERÐ 43: * Heklið 1 fl í næstu 5 fl, heklið nú 2 næstu fl saman * , endurtakið frá *-* umf hringinn = 48 fl. UMFERÐ 44: Heklið 1 fl í hverja fl = 48 fl. UMFERÐ 45: * Heklið 1 fl í næstu 4 fl, heklið nú 2 næstu fl saman * , endurtakið frá *-* umf hringinn = 40 fl. UMFERÐ 46: Heklið 1 fl í hverja fl = 40 fl. UMFERÐ 47: * Heklið 1 fl í næstu 3 fl, heklið nú 2 næstu fl saman * , endurtakið frá *-* umf hringinn = 32 fl. UMFERÐ 48: Heklið 1 fl í hverja fl = 32 fl. UMFERÐ 49: * Heklið 1 fl í næstu 2 fl, heklið nú 2 næstu fl saman * , endurtakið frá *-* umf hringinn = 24 fl. UMFERÐ 50: Heklið 1 fl í hverja fl = 24 fl. UMFERÐ 51: * Heklið 1 fl í næstu fl, heklið síðan 2 næstu fl saman *, endurtakið frá *-* hringinn = 16 fl. Fyllið hjartað með vatti að ca 1 cm frá kanti. UMFERÐ 52: Heklið 1 fl í hverja fl = 16 fl. UMFERÐ 53: Heklið saman allar fl tvær og tvær = 8 fl. UMFERÐ 54: Heklið saman allar fl tvær og tvær = 4 fl. Fyllið með vatti í gegnum gatið. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum allar l. Festið enda. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #hookedonyoupillow eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 5 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-760
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.