Bonnet Laure skrifaði:
Merci beaucoup pour votre réponse ! Je voulais être certaine de ne pas faire d’erreur, je fais rarement des torsades ! Merci de votre rapidité également, c’est très gentil !
26.02.2025 - 20:07
Bonnet Laure skrifaði:
Bonjour , j'ai une question sur la lecture des diagrammes M1 et M3. Si je compte les lignes en dessous et au dessus des torsades, en M1 cela fait 5 rangs entre chaque torsade, et pour M3 3 rangs entre chaque torsade. Est-ce bien cela ? Merci de votre aide.
25.02.2025 - 18:14DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Bonnet, tout à fait, chaque case correspondant à 1 maille x 1 rang, vous commencez la première torsade de M.1 au 3ème rang et vous aurez ensuite 5 rangs entre chaque torsade dans M.1, et dans M.3, la 1ère torsade se fait au 2ème rang et vous avez 1 rang après la torsade (soit 3 rangs entre chaque torsade de M.3 si on le répète en hauteur). Le nombre de rangs entre chaque torsade va progressivement diminuer dans M.2. Bon tricot!
26.02.2025 - 08:05
Elisabeth skrifaði:
Ich hätte eine Frage.Wenn ich statt Alpaca Baby Merino nehme muss ich da eine Andere Nadelstärke nehmen oder ist es egal lg
24.02.2025 - 08:03DROPS Design svaraði:
Liebe Elisabeth, beide Wolle gehörten zur gleichen Garngruppe, so Maschenprobe sollte diegleiche sein, passen Sie die Nadelstärke an, wenn nötig ist. Viel Spaß beim Stricken!
24.02.2025 - 15:24
Meyer, Angela skrifaði:
Die Anleitung ist für mich teils ungenau, werden wirklich 37 cm gestrickt bis zu den Armlöchern? Sind das die 8 M. kr. gestrickt? Außerdem komme ich mit Maschenanzahl überhaupt nicht hin,
29.11.2024 - 11:50
Jenny Douglas skrifaði:
Can you give advice about how to increase over stitches cast-on for the armholes. The usual way of picking up from the strand on the previous row does not work. Thank you.
23.09.2022 - 18:14DROPS Design svaraði:
Dear Jenny, you could increase by working yarn overs; you can see how to work them here: https://www.garnstudio.com/video.php?id=12&lang=en. Happy knitting!
25.09.2022 - 20:47
Judith skrifaði:
Hallo In der deutschen Anleitung fehlt mir die Angabe zu den Armlöchern. Hier müssten doch M abgekettet und wieder angeschlagen werden.
05.05.2022 - 17:33DROPS Design svaraði:
Liebe Judith, Armlöcher finden Sie hier in der Anleitung: Nach 17-18-21 (24-27) cm bei der nächsten R. von der Vorderseite die 8 M. Krausrippe auf beiden Seiten für das Armloch abk. so haben Sie 2 Armlöcher mit je 8 Maschen beidseitig. Bei der nächsten R. von der linken Seite über den 8 M. je 40-44-50 (54-60) neu M. anschlagen = 211-229-260 (281-302) M. Von hier wird die Arbeit weiter gemessen. Bei der nächsten Reihe, schlagen Sie die neuen Maschen für die Ärmel. Viel Spaß beim stricken!
06.05.2022 - 07:38
Ujhelyiné Nagy Anikó skrifaði:
Kedves Garnstudio! A minta leírásában miért nem láthatóak a diagramok? Előre is köszönöm a választ!
08.01.2021 - 16:30
Asbjørg skrifaði:
Skal jeg felle en maske på hver side på mønster M2 etter fletteomgangene ? Dette i tillegg til fellingen i vrangfeltene ?
26.03.2020 - 23:46DROPS Design svaraði:
Hei Asbjørg, Nei, du skal bare felle i vrangpartiene. God fornøyelse!
27.03.2020 - 08:14
Tatjana skrifaði:
Wie komme ich auf die 21 M? 5M Krausrippe+2 li.+M1 = 19 M wie ist das mit 21M zu verstehen?
17.03.2020 - 10:28DROPS Design svaraði:
Liebe Tatjana, meinen Sie die verkürzten Reihen über die 21 M auf beiden Seiten? Diese 21 M sind: 5 Blendemaschen + 2 M li + M.1 (= 12 M) + 3 M li (die Hälfte der 6 linken Maschen vor M.3). Viel Spaß beim stricken!
17.03.2020 - 11:44
Marianne skrifaði:
Hallo, ich komme mit den Abnahmen in der Passe nicht klar, obwohl erfahrene Strickerin. Was bedeutet: Bei jedem cm total 6 Mal wiederholen? Und wie oft werden die Abnahmen wiederholt? In jeder Reihe der Vorderseite? Ist alles ein bisschen verwirrend erklärt. Schön wäre für Anfänger auch, ob die Diagramme nur die Hinreihe zeigen und auf der Rückseite gestrickt wird wie die Maschen erscheinen.Vielen Dank für eine Hilfe!
15.01.2019 - 19:50DROPS Design svaraði:
Liebe Marianne, die Abnahmen stricken Sie jede cm x 6, dh 1 Reihe mit Abnahmen stricken, dann weiter ohne Abnahmen stricken, nach 1 cm noch 1 Reihe mit Abnahmen stricken und so stricken Sie weiter bis Sie 6 Reihen mit Abnahmen gestrickt haben. Die Diagramme zeigen alle Reihen, dh Hin sowie Rückreihen. Hier lesen Sie mehr über Diagramme. Viel Spaß beim stricken!
16.01.2019 - 08:17
Sweet Greta#sweetgretavest |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónað vesti á börn með hringlaga berustykki og köðlum og sokkar úr DROPS Alpaca
DROPS Baby 19-18 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.1 til M.5. Mynsturteikning sýnir mynstur séð frá réttu. PERLUPRJÓN (prjónað í hring): UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-*. UMFERÐ 2: Prjónið brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur og sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. Endurtakið umferð 2. HNAPPAGAT. Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = fellið af 3. og 4. kantlykkju að framan. Í næstu umf eru fitjaðar upp 2 nýjar l yfir þær l sem felldar voru af. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ 1/3 mán: 9, 14, 19 og 24 cm. STÆRÐ 6/9 mán: 8, 14, 20 og 26 cm. STÆRÐ 12/18 mán: 8, 14, 19, 25 og 30 cm. STÆRÐ 2 ára: 10, 16, 22, 28 og 34 cm. STÆRÐ 3/4 ára 10, 17, 24, 31 og 38 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 139-151-170 (183-192) l á hringprjóna nr 2,5 með Alpaca. Prjónið 4 umferðir slétt, JAFNFRAMT í 4. umferð er aukið út um 17-19-14 (15-20) l jafnt yfir = 156-170-184 (198-212) l. Næsta umferð er prjónuð (frá réttu) þannig: 5 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan (= kantur að framan), 2 lykkjur brugðið, M.1, * 6 lykkjur brugðið, M.3 *, endurtakið frá *-* yfir næstu 112-126-140 (154-168) lykkjur, endið á 6 lykkjur brugðið, M.1, 2 lykkjur brugðið og 5 lykkjur GARÐAPRJÓN (= kantur að framan). Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist 7-7-7 (8-8) cm. ATH! Munið eftir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Í næstu umferð frá réttu er prjónuð 21 lykkja í hvorri hlið eins og áður, aðrar lykkjur eru prjónaðar slétt JAFNFRAMT er fækkað um 9-13-8 (9-14) lykkjur jafnt yfir = 147-157-176 (189-198) lykkjur. Í næstu umferð frá röngu er prjónuð 21 lykkja í hvorri hlið eins og áður, aðrar lykkjur eru prjónaðar slétt. Prjónið nú (frá réttu) þannig: Prjónið 5 lykkjur garðaprjón, 2 lykkjur brugðið, M.1, 2 lykkjur brugðið, sléttprjón yfir næstu 105-115-134 (147-156) lykkjur, 2 lykkjur brugðið, M.1, 2 lykkjur brugðið og 5 lykkjur garðaprjón. Haldið áfram alveg eins þar til stykkið mælist 16-17-20 (23-26) cm. Næsta umferð er prjónuð (frá réttu) þannig: Prjónið 21 lykkju eins og áður og 14-18-24 (26-29) lykkjur sléttprjón (= hægra framstykki), garðaprjón yfir næstu 8 lykkjur, 61-63-70 (79-82) lykkjur sléttprjón (= bakstykki), garðaprjón yfir næstu 8 lykkjur, 14-18-24 (26-29) lykkjur sléttprjón og 21 lykkja eins og áður (= vinstra framstykki). Haldið nú áfram alveg eins þar til stykkið mælist 17-18-21 (24-27) cm. Í næstu umferð eru felldar af 8 lykkjur frá réttu í garðaprjóni í hvorri hlið fyrir handveg. Í næstu umferð frá röngu eru fitjaðar upp 40-44-50 (54-60) nýjar lykkjur yfir 8 lykkjur brugðiið í hvorri hlið = 211-229-260 (281-302) lykkjur. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Í næstu umferð frá röngu er prjónuð 21 lykkja inn í hvorri hlið eins og áður, hinar eru prjónaðar slétt JAFNFRAMT er aukið út um 22-27-30 (33-36) lykkjur jafnt yfir = 233-256-290 (314-338) lykkjur. Í næstu umferð frá röngu er prjónuð 21 lykkja í hvorri hlið eins og áður, aðrar lykkjur eru prjónaðar slétt. Prjónið síðan frá (réttu) þannig: Prjónið 5 lykkjur garðaprjón, 2 lykkjur brugðið, * M.1, 11-11-12 (12-12) lykkja brugðið *, endurtakið frá *-* alls 9-10-11 (12-13) sinnum og endið á M.1, 2 lykkjur brugðið og 5 lykkjur garðaprjón. JAFNFRAMT er lykkjum fækkað frá réttu til skiptis frá hægri og vinstri hlið í hverri brugðinni mynstureiningu (ATH! Ekki fækka lykkjum í 2 lykkjur brugðið yst í hvorri hlið), fækkið lykkjum með því að prjóna 2 lykkjur brugðiði saman, með eins cm millibili alls 6-7-8 (9-9) sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 1-1-2 (3-4) cm er M.2 prjónað yfir allar lykkjur í M.1 (aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður). Þegar M.2 hefur verið prjónað einu sinni á hæðina er haldið áfram með M.3. Eftir alla úrtöku eru 139-142-154 (154-165) lykkjur á prjóni. Haldið áfram þar til stykkið mælist ca 7-8-9 (10-11) cm, stillið af eftir lokinni mynstureiningu á hæðina. Prjónið síðan M.4 yfir allt M.3 (aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður) = 99-98-106 (102-109) lykkjur. Þegar M.4 hefur verið prjónað einu sinni á hæðina er prjónuð 1 umferð slétt frá réttu yfir allar lykkjur JAFNFRAMT er fækkað um 13-10-14 (6-9) lykkjur jafnt yfir (ekki fækka lykkjum yfir kant að framan) = 86-88-92 (96-100) lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu áður en fellt er laust af. FRÁGANGUR: Saumið tölur í. ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður. SOKKUR: Fitjið upp 50-50-54 (58-62) lykkjur á sokkaprjóna nr 2,5 með Alpaca. Prjónið 1 umferð sléttprjón. Prjónið nú þannig: STÆRÐ 1/3 mánaða - 6/9 mánaða - 2 ára: Prjónið 1 lykkja slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, endurtakið frá *-* yfir næstu 16-16-20 lykkjur, 2 lykkjur brugðið, M.5 (= 12 lykkjur), * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, *, endurtakið frá *-* yfir næstu 16-16-20 lykkjur, 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt. STÆRÐ 12/18 mánaða - 3/4 ára: Prjónið 1 lykkja brugðið, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* yfir næstu 20-24 lykkjur, M.5 (= 12 lykkjur), * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, endurtakið frá *-* yfir næstu 20-24 lykkjur, 1 lykkja brugðið. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 6-7-7 (8-8)cm. Prjónið 1 umferð JAFNFRAMT er fækkað um 4 lykkjur jafnt yfir í umferð, ekki fækka lykkjum yfir 16 lykkjur ofan á fæti (= M.5 + 2 lykkjur brugðið í hvorri hlið) = 46-46-50 (54-58) lykkjur. Haldið eftir 16 lykkjur ofan á fæti á prjóni, þær 30-30-34 (38-42) lykkjur eru settar á þráð. Haldið áfram með M.5 með 2 lykkjur brugðið í hvorri hlið fram og til baka í 3-3½-4 (5-6) cm. Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 4 lykkjur yfir M.5 = 12 lykkjur ofan á fæti. Prjónið nú upp 6-8-8 (10-14) lykkjur til hliðar ofan á fæti, setjið til baka lykkjur af þræði á prjóninn og prjónið upp 6-8-8 (10-14) lykkjur á hinni hliðinni ofan á fæti = 54-58-62 (70-82) lykkjur. Prjónið nú PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – hringinn yfir allar lykkjur í 1½-2-2½ (3-3½) cm og prjónið nú 1 umferð brugðið. Fellið af allar lykkjur nema 12 lykkjur við miðju að framan. Prjónið 9-10-11 (13-14) cm í perluprjóni fram og til baka og til þess að gera sóla. Fellið af og saumið sólann á sokkinn, saumið kant í kant svo að saumurinn verði ekki of þykkur. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sweetgretavest eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 21 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 19-18
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.