DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2970.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS Baby 19-18
DROPS design: Modell nr Z-078-by-Z-079-by
Garnflokkur A
--------------------------------------------------------

VESTI:
Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Stærð í cm: 50/56 - 62/68 - 74/80 (86/92 -98/104)
Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
100-100-100 (150-150) nr 3720, millibleikur

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 cm) NR 2,5 – eða þá stærð sem þarf til að 26 lykkjur og 34 umferðir í sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS TRÉTALA BRENND, NR 513: 4-4-5 (5-5) stk.

SOKKAR:
Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mánaða (2 - 3/4) ára
Lengd fótar: 10 - 11 - 12 (14 - 16) cm
Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
50 gr í allar stærðir litur nr 3720, millibleikur

DROPS PRJÓNAR og SOKKAPRJÓNAR NR 2,5 – eða þá stærð sem þarf til að 26 lykkjur og 34 umferðir í sléttprjóni verði 10 x 10 cm
--------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2970.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

VESTI:

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka á hringprjón):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu M.1 til M.4. Mynsturteikning sýnir mynstur séð frá réttu.

HNAPPAGAT.
Fellt er af fyrir hnappagötum á hægri kant að framan.
1 hnappagat = fellið af 3. og 4. kantlykkju að framan. Í næstu umf eru fitjaðar upp 2 nýjar l yfir þær l sem felldar voru af.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
STÆRÐ 1/3 mán: 9, 14, 19 og 24 cm.
STÆRÐ 6/9 mán: 8, 14, 20 og 26 cm.
STÆRÐ 12/18 mán: 8, 14, 19, 25 og 30 cm.
STÆRÐ 2 ára: 10, 16, 22, 28 og 34 cm.
STÆRÐ 3/4 ára 10, 17, 24, 31 og 38 cm.
--------------------------------------------------------

VESTI:

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan.
Fitjið upp 139-151-170 (183-192) l á hringprjóna nr 2,5 með Alpaca. Prjónið 4 umferðir slétt, JAFNFRAMT í 4. umferð er aukið út um 17-19-14 (15-20) l jafnt yfir = 156-170-184 (198-212) l. Næsta umferð er prjónuð (frá réttu) þannig: 5 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan (= kantur að framan), 2 lykkjur brugðið, M.1, * 6 lykkjur brugðið, M.3 *, endurtakið frá *-* yfir næstu 112-126-140 (154-168) lykkjurnar, endið á 6 lykkjur brugðið, M.1, 2 lykkjur brugðið og 5 lykkjur GARÐAPRJÓN (= kantur að framan). Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist 7-7-7 (8-8) cm. ATH! Munið eftir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Í næstu umferð frá réttu er prjónuð 21 lykkja í hvorri hlið eins og áður, aðrar lykkjur eru prjónaðar slétt JAFNFRAMT er fækkað um 9-13-8 (9-14) lykkjur jafnt yfir = 147-157-176 (189-198) lykkjur. Í næstu umferð frá röngu er prjónuð 21 lykkja í hvorri hlið eins og áður, aðrar lykkjur eru prjónaðar slétt.
Prjónið nú (frá réttu) þannig: Prjónið 5 lykkjur garðaprjón, 2 lykkjur brugðið, M.1, 2 lykkjur brugðið, sléttprjón yfir næstu 105-115-134 (147-156) lykkjur, 2 lykkjur brugðið, M.1, 2 lykkjur brugðið og 5 lykkjur garðaprjón.
Haldið áfram alveg eins þar til stykkið mælist 16-17-20 (23-26) cm.
Næsta umferð er prjónuð (frá réttu) þannig: Prjónið 21 lykkju eins og áður og 14-18-24 (26-29) lykkjur sléttprjón (= hægra framstykki), garðaprjón yfir næstu 8 lykkjur, 61-63-70 (79-82) lykkjur sléttprjón (= bakstykki), garðaprjón yfir næstu 8 lykkjur, 14-18-24 (26-29) lykkjur sléttprjón og 21 lykkja eins og áður (= vinstra framstykki).
Haldið nú áfram alveg eins þar til stykkið mælist 17-18-21 (24-27) cm. Í næstu umferð eru felldar af 8 lykkjur frá réttu í garðaprjóni í hvorri hlið fyrir handveg. Í næstu umferð frá röngu eru fitjaðar upp 40-44-50 (54-60) nýjar lykkjur yfir 8 lykkjur brugðiið í hvorri hlið = 211-229-260 (281-302) lykkjur. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Í næstu umferð frá röngu er prjónuð 21 lykkja inn í hvorri hlið eins og áður, hinar eru prjónaðar slétt JAFNFRAMT er aukið út um 22-27-30 (33-36) lykkjur jafnt yfir = 233-256-290 (314-338) lykkjur. Í næstu umferð frá röngu er prjónuð 21 lykkja í hvorri hlið eins og áður, aðrar lykkjur eru prjónaðar slétt. Prjónið síðan frá (réttu) þannig: Prjónið 5 lykkjur garðaprjón, 2 lykkjur brugðið, * M.1, 11-11-12 (12-12) lykkja brugðið *, endurtakið frá *-* alls 9-10-11 (12-13) sinnum og endið á M.1, 2 lykkjur brugðið og 5 lykkjur garðaprjón. JAFNFRAMT er lykkjum fækkað frá réttu til skiptis frá hægri og vinstri hlið í hverri brugðinni mynstureiningu (ATH! Ekki fækka lykkjum í 2 lykkjur brugðið yst í hvorri hlið), fækkið lykkjum með því að prjóna 2 lykkjur brugðiði saman, með eins cm millibili alls 6-7-8 (9-9) sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 1-1-2 (3-4) cm er M.2 prjónað yfir allar lykkjur í M.1 (aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður).
Þegar M.2 hefur verið prjónað einu sinni á hæðina er haldið áfram með M.3. Eftir alla úrtöku eru 139-142-154 (154-165) lykkjur á prjóni. Haldið áfram þar til stykkið mælist ca 7-8-9 (10-11) cm, stillið af eftir lokinni mynstureiningu á hæðina. Prjónið síðan M.4 yfir allt M.3 (aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður) = 99-98-106 (102-109) lykkjur. Þegar M.4 hefur verið prjónað einu sinni á hæðina er prjónuð 1 umferð slétt frá réttu yfir allar lykkjur JAFNFRAMT er fækkað um 13-10-14 (6-9) lykkjur jafnt yfir (ekki fækka lykkjum yfir kant að framan) = 86-88-92 (96-100) lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu áður en fellt er laust af.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í.

--------------------------------------------------------
SOKKAR:

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu M.5. Mynsturteikning sýnir mynstur séð frá réttu.

PERLUPRJÓN:
UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-*.
UMFERÐ 2: slétt yfir brugðið og brugðið yfir slétt. Endurtakið umferð 2.
--------------------------------------------------------

SOKKUR:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður.
Fitjið upp 50-50-54 (58-62) lykkjur á sokkaprjóna nr 2,5 með Alpaca. Prjónið 1 umferð sléttprjón. Prjónið nú þannig:
STÆRÐ 1/3 mánaða - 6/9 mánaða - 2 ára:
Prjónið 1 lykkja slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, endurtakið frá *-* yfir næstu 16-16-20 lykkjur, 2 lykkjur brugðið, M.5 (= 12 lykkjur), * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, *, endurtakið frá *-* yfir næstu 16-16-20 lykkjur, 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt.
STÆRÐ 12/18 mánaða - 3/4 ára:
Prjónið 1 lykkja brugðin, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* yfir næstu 20-24 lykkjur, M.5 (= 12 lykkjur), * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, endurtakið frá *-* yfir næstu 20-24 lykkjur, 1 lykkja brugðið.
Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 6-7-7 (8-8)cm.
Prjónið 1 umferð JAFNFRAMT er fækkað um 4 lykkjur jafnt yfir í umferð, ekki fækka lykkjum yfir 16 lykkjur ofan á fæti (= M.5 + 2 lykkjur brugðið í hvorri hlið) = 46-46-50 (54-58) lykkjur. Haldið eftir 16 lykkjur ofan á fæti á prjóni, þær 30-30-34 (38-42) lykkjur eru settar á þráð. Haldið áfram með M.5 með 2 lykkjur brugðið í hvorri hlið fram og til baka í 3-3½-4 (5-6) cm. Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 4 lykkjur yfir M.5 = 12 lykkjur ofan á fæti. Prjónið nú upp 6-8-8 (10-14) lykkjur til hliðar ofan á fæti, setjið til baka lykkjur af þræði á prjóninn og prjónið upp 6-8-8 (10-14) lykkjur á hinni hliðinni ofan á fæti = 54-58-62 (70-82) lykkjur. Prjónið nú PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – hringinn yfir allar lykkjur í 1½-2-2½ (3-3½) cm og prjónið nú 1 umferð brugðið. Fellið af allar lykkjur nema 12 lykkjur við miðju að framan. Prjónið 9-10-11 (13-14) cm í perluprjóni fram og til baka og til þess að gera sóla.
Fellið af og saumið sólann á sokkinn, saumið kant í kant svo að saumurinn verði ekki of þykkur.

Prjónið annan sokk alveg eins.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = setjið 3 lykkjur á hjáparprjón aftan við stykkið, 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur slétt af hjálparprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur á hjálparprjón framan við stykkið, 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur slétt af hjálparprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur á hjálparprjón aftan við stykkið, 3 lykkjur sle´tt, 2 lykkjur slétt saman og 1 lykkja af hjálparprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur á hjálparprjón framan við stykkið, 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, 3 lykkjur slétt af hjálparprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur á hjálparprjón aftan við stykkið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman og 1 lykkja slétt af hjálparprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á hjálparprjón framan við stykkið, 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, 2 lykkjur slétt af hjálparprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á hjálparprjón aftan við stykkið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt af hjálparprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á hjálparprjón framan við stykkið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt af hjálparprjóni
symbols = takið 1 lykkju óprjónaða, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir
symbols = 2 lykkjur slétt saman
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 19-18

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (59)

country flag Loes wrote:

Ik hen nu 290 steken en moet minderen naar 154. Ik mag alleen minderen in averechts en moet dat 8 x doen dan kom ik niet uit met mijn telling ( maat 12-18 maanden) En moet ik 1 steek per averechtse delen minderen en wat wordt er bedoelt met afwisselend rechts en links

18.03.2014 - 05:59

DROPS Design answered:

Hoi Loes. Je hebt 11 av-gedeelten a 12 st waarin je mindert. Je mindert in totaal 8 keer. Tegelijkertijd minder je ook automatisch in M.2 (= 12 keer M.2 in de breedte - 4 st per herhaling in de hoogte = 48 st minder). 290-88-48 = 154 st. Afwisselend betekent dat je eerst aan de rechterkant van het av-gedeeldte mindert, dan aan de linkerkant, rechterkant enzovoort.

18.03.2014 - 16:14

country flag Jacqueline Moore wrote:

I cannot understand the instructions on how to decrease for this pattern. I am knitting the 12/18 month size and at the point where I have 290 stitches on the needles and have to decrease down to 154. How many stitches do I decrease per row?

16.03.2014 - 04:20

DROPS Design answered:

Dear Mrs More, you dec P1 in each P-section (except the 2-P section each side) a total of 8 times (= 88 P-sts dec), then work M.2 over M.1 (4 sts dec in each M.2, there are 12 repeat of M.2 = 48 sts dec). 290 - 88 - 48 = 154 sts. Happy knitting!

17.03.2014 - 09:15

country flag Subkutan wrote:

Wie lese ich die Zopfmuster? Immer von Links nach rechts? Im Zick-Zack? Von oben nach unten oder umgekehrt?

08.02.2014 - 21:34

DROPS Design answered:

Liebe Subkutan, eine Antwort hierzu finden Sie auf unserer FAQ (häufig gestellte Fragen) Seite.

14.02.2014 - 10:55

country flag Silke wrote:

Vielen Dank, hat jetzt prima geklappt und sieht wirklich schön aus. Wird ein tolles Geschenk werden.

21.11.2013 - 11:42

country flag Silke wrote:

Ich habe ein Problem bei den Abnahmen der Rundpasse. Soll ich jeden cm links und rechts eine Mache in der Linkspartie abnehmen, oder bei cm 1 eine und dann bei cm 2 die andere? Habe schon alle möglichen Varianten probiert komme mit den Maschen aber nicht hin. Und wie stricke ich die "fehlenden" Maschen wenn ich M2 hochstricke, werden die dann in die linkspartie integriert?

03.11.2013 - 14:04

DROPS Design answered:

Liebe Silke, die Abnahmen werden abwechselnd auf der linken und auf der rechten Seite gemacht. Und die li Maschen sind im Muster M2 nicht abgebildet.

05.11.2013 - 08:11

country flag Anna wrote:

Vielen Dank, hat super geklappt. Die Weste ist echt toll, ich hätte mir das fast nicht zugetraut...

26.10.2013 - 22:59

country flag Anna wrote:

Wann genau starte ich in der Rundpasse mit M2? Sricke ich M1 einmal in der Höhe fertig oder einfach blind bis zur cm-Angabe?

26.09.2013 - 14:46

DROPS Design answered:

Liebe Anna, der Abstand der Verzopfungen ist ja bei M1 und M2 zunächst gleich. Stricken Sie also etwa die cm-Zahl, achten aber darauf, dass nach M1 gleich mit M2 weitergestrickt wird, damit das Muster korrekt bleibt.

27.09.2013 - 08:37

country flag Hanne Krog wrote:

Jeg strikker str. 2 år. Indtagningen i hvert vrangparti forstår jeg ikke. Jeg kan ikke få antallet af masker til at passe efter indtagninger. Der er 12 vrangpartier og der skal tages ind 9 gange, det giver 108 masker, men der skal tages 160 masker ind for at slutte med 154 m.

13.11.2012 - 19:52

DROPS Design answered:

Jo men samtidig tager du også ind ifølge diagram M2. God fornøjelse!

15.11.2012 - 10:31

country flag Anna Carin Andersson wrote:

Tack! Innebär det att man läser mänsterdiagrammen från höger till vä från rätsidan och vä till hö när man stickar avigsidan?

13.05.2012 - 21:56

country flag Anna Carin Andersson wrote:

Hej! Hur ska man sticka efter varv 5 där det står att man ska fortsätta i samma mönster? Man ska väl inte vrida varje varv?

08.05.2012 - 16:48

DROPS Design answered:

På v 4 etableras mönstret, du stickar från räts: 5 rm, 2 am, varv 1 i diagr M.1, *6 am, M.3* upprepa *-* över de nästa 112-126-140 (154-168) m, 6 am, varv 1 i diagr M.1, 2 am och 5 rm. Nästa v från avigs stickas: 5 rm, 2 rm, varv 2 i diagr M.1 (läses från vä till hö), 6 rm, *M.3, 6 rm*, upprepa *-* över de nästa 112-126-140 (154-168) m, varv 2 i diagr M.1 (läses från vä till hö), Nästa v från räts samma som v 4 men rad 3 i diagr, osv.

08.05.2012 - 23:54