Marlène skrifaði:
Ravissant ! très beau modèle
29.06.2009 - 15:49
Britt-Marie Larsson skrifaði:
Vill jag sticka, snygg!! väntar på stickbeskrivningen
29.06.2009 - 14:49Treacy skrifaði:
Very nice
28.06.2009 - 12:39
Tove Sonja Anthonsen Weum skrifaði:
Denne vesten vil jeg strikke så fort oppskriften er klar og jeg får tak i garn. helt nydelig
28.06.2009 - 08:55
Eva Westin skrifaði:
Supersnygg!!
28.06.2009 - 00:38
Kristin skrifaði:
Denne vil jeg garantert strikke!
27.06.2009 - 00:20Paulette skrifaði:
Un diseño para llamar la atención. Muy lindo! Por favor, publiquen su traducción al español.
26.06.2009 - 21:48
Anita skrifaði:
Den vil jeg glæde mig til.
26.06.2009 - 20:45
Lortet skrifaði:
Superbe,mais à quand les explications, je suis impatiente de commander la laine
26.06.2009 - 20:20Mona skrifaði:
Merci pour ce modele
26.06.2009 - 20:00
Miss Enid#missenidvest |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónað stutt vesti úr DROPS Alaska með hekluðum þríhyrningum í hliðum. Stærð XS-XXL
DROPS 117-3 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.1 til M.4 – mynsturteikningin sýnir mynstur séð frá réttu og sýnir eina mynstureiningu af mynstri. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. ÚRTAKA (hálsmál): Öll úrtaka er gerð frá réttu. Fækkið lykkjum á undan 4 kantlykkjum að framan þannig: Prjónið 2 l slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir 4 kantlykkjum að framan þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fyrst eru þríhyrningarnir heklaðir og síðan er fram- og bakstykki prjónað áður en stykkið er saumað saman. HEKLAÐUR ÞRÍHYRNINGUR: Heklið 6 ll með Alaska með heklunál nr 4,5 og tengið í hring með 1 kl í fyrstu l. UMFERÐ 1: Heklið 3 ll (= 1 st), 11 st í hringinn, endið með 1 kl í 3. ll í byrjun umf (= 12 st). UMFERÐ 2: Heklið 3 ll (= 1 st), * 5 ll, hoppið yfir 1 st, 1 st í næsta st *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum og endið með 5 ll og 1 kl í 3. ll í byrjun umf (= 6 ll-bogar í umf). UMFERÐ 3: Heklið í hvern ll-boga þannig: Heklið 1 fl, 1 ll, 1 hst, 1 ll, 1 st, 1 ll, 2 tbst, 1 ll, 1 st, 1 ll, 1 hst, 1 ll og 1 fl. Endið með 1 kl í 1. fl í byrjun umf (= 6 blöð). UMFERÐ 4: Heklið 5 ll (= 1 þbst = 1 horn), 7 ll, 1 fl efst á næsta blaði (á milli 2 tbst), 5 ll, 1 fl efst á næsta blaði, 7 ll, 1 þbst á milli 2 fl á milli 2 næstu blaða, * 7 ll, 1 fl efst á næsta blaði, 8 ll, 1 fl efst á næsta blaði, 7 ll, 1 þbst á milli 2 fl á milli 2 næstu blaða *, endurtakið frá *-* einu sinni enn meðfram síðustu hliðinni en endið með 1 kl í 5. ll í byrjun umf (í staðinn fyrir 1 þbst á milli 2 blaða) = 9 ll-bogar í kringum blómið með 1 þbst í hverju horni. Önnur hliðin (= við neðri brún) er aðeins styttri en hinar tvær. UMFERÐ 5: Í horni með þbst er heklað þannig: Heklið 3 ll (= 1 st, 2 ll, 1 tbst, 2 ll og 1 st. Meðfram fyrstu hliðinni er heklað þannig: Um fyrsta ll-bogann er heklað: Heklið 1 ll, 1 st, 1 ll, 1 st, 1 ll, 1 st (= alls 3 st), um næsta ll-boga er heklað: Heklið 1 ll, 1 st, 1 ll og 1 st (= alls 2 st), umf síðasta ll-boga er heklað: Heklið 1 ll, 1 st, 1 ll, 1 st, 1 ll, 1 st (= alls 3 st), * í þbst í horni er heklað: Heklið 1 ll, 1 st, 2 ll, 1 tbst, 2 ll og 1 st, heklið nú um alla 3 ll-bogana þannig: Heklið 1 ll, 1 st, 1 ll, 1 st, 1 ll, 1 st (= alls 3 st) *, endurtakið frá *-* einu sinni til viðbótar meðfram síðustu hliðinni, endið með 1 ll og 1 kl í 3. ll frá byrjun umf. UMFERÐ 6: Heklið 3 ll, 1 st í fyrsta ll-boga, í tbst í hverju horni er heklað þannig: Heklið 1 st, 2 ll, 1 tbst, 2 ll og 1 st, heklið nú 1 st í hvern st og 1 st í hvern ll-boga frá fyrri umf. Endið umf með 1 kl í 3. ll í byrjun umf. Meðfram styttri hliðinni eru 23 st og meðfram hinum tveimur eru 25 st (tbst í hornum eru ekki taldir með). Klippið frá. Þríhyrningurinn mælist ca 15 cm meðfram stystu hliðinni og 18 cm langur meðfram hinum tveimur hliðunum. Heklið einn þríhyrning til viðbótar á sama hátt. VINSTRA FRAMSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. Fitjið upp 17-20-24-27-31-36 l með Alaska á prjóna nr 4,5. Prjónið 2 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan! Haldið áfram (frá réttu) þannig: Prjónið 2-2-3-4-5-6 l með garðaprjóni, prjónið 2 l sl í hverja og eina af 3 næstu l (þ.e.a.s. 3 l verða 6 l), 2 l garðaprjón, 6-9-12-14-17-21 l sléttprjón og 4 kantlykkjur að framan með garðaprjóni = 20-23-27-30-34-39 l. Prjónið 1 umf til baka með sl yfir sl, br yfir br og garðaprjón yfir garðaprjón. Næsta umf er prjónuð þannig: Prjónið 2-2-3-4-5-6 l garðaprjón, M.1 (= 8 l), sléttprjón þar til 4 kantlykkjur að framan eru eftir, þessar l eru prjónaðar með garðaprjóni til loka. Haldið svona áfram (í hverri umf frá réttu er aukið út um 1 l í M.1 – þessi l er prjónið inn í sléttprjóni). Þegar aukið hefur verið út allt 19 l í M.1 er stykkið lagt til hliðar (endið á 1 umf frá réttu). Nú eru 39-42-46-49-53-58 l á prjóni og stykkið mælist ca 18 cm. HÆGRA FRAMSTYKKI: Prjónið eins og það vinstra, nema spegilmynd, þ.e.a.s. að í umf 1 á eftir garðaprjóni er prjónað þannig: Prjónið 4 kantlykkjur að framan með garðaprjóni, 6-9-12-14-17-21 l sléttprjón, 2 l garðaprjón, prjónið 2 l sl í hverja af næstu 3 l og 2-2-3-4-5-6 l garðaprjón. Prjónið 1 umf til baka með sl yfir sl, br yfir br og garðaprjón yfir garðaprjón. Næsta umf er prjónuð þannig: Prjónið 4 kantlykkjur að framan með garðaprjóni, 6-9-12-14-17-21 l sléttprjón, M.2 (= 8 l) og 2-2-3-4-5-6 l garðaprjón. Haldið svona áfram, endið eftir álíka margar umf eins og á vinstra framstykki. BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. Fitjið upp 26-33-40-47-55-64 l með Alaska á prjóna nr 4,5. Prjónið 2 umf garðaprjón. Næsta umf er prjónið frá réttu þannig: Prjónið 2-2-3-4-5-6 l garðaprjón, prjónið 2 l sl í hverja af næstu 3 l (þ.e.a.s. 3 l verða að 6 l), 2 l garðaprjón, 12-19-24-29-35-42 l sléttprjón, 2 l garðaprjón, prjónið 2 l sl í hverja af næstu 3 l og 2-2-3-4-5-6 l garðaprjón = 32-39-46-53-61-70 l. Prjónið 1 umf til baka með sl yfir sl, br yfir br og garðaprjón yfir garðaprjón. Næsta umf er prjónuð þannig: Prjónið 2-2-3-4-5-6 l garðaprjón, M.1 (= 8 l), 12-19-24-29-35-42 l sléttprjón, M.2 (= 8 l) og 2-2-3-4-5-6 l garðaprjón. Haldið svona áfram (í hverri umf frá réttu er aukið út um 1 l í M.1 og M.2, þær eru prjónaðar inn í sléttprjón). Þegar aukið hefur verið út alls 19 l í hvorri hlið, geymið stykkið (endið á 1 umf frá réttu). Nú eru 70-77-84-91-99-108 l á prjóni. FRAM- OG BAKSTYKKI: Til þess að fá pláss fyrir allar l er stykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna. Setjið inn öll þrjú stykkin á sama hringprjón nr 4,5 þannig: Hægra framstykki (= 39-42-46-49-53-58 l), bakstykki (= 70-77-84-91-99-108 l) og vinstra framstykki (= 39-42-46-49-53-58 l) = alls 148-161-176-189-205-224 l. Prjónið 1 umf frá röngu með sl yfir sl, br yfir br og garðaprjón yfir garðaprjón. LESIÐ ALLAN KAFLANN Á FRAM- OG BAKSTYKKI ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! MYNSTUR: Haldið áfram þannig: Prjónið 4 kantlykkjur að framan með garðaprjóni, 23-26-29-31-34-38 l sléttprjón, M.3 (passið uppá að það séu álíka margar umf á milli hverra umf með köðlum), 4-4-6-8-10-12 l garðaprjón, (setjið prjónamerki fyrir miðju við þessar l = hlið), M.4, 46-53-58-63-69-76 l sléttprjón, M.3, 4-4-6-8-10-12 l garðaprjón (setjið prjónamerki fyrir miðju við þessar l = hlið), M.4, 23-26-29-31-34-38 l sléttprjón og 4 kantlykkjur að framan með garðaprjóni. HÁLSMÁL: JAFNFRAMT í næstu umf frá réttu er fækkað um 1 l í hvorri hlið fyrir hálsmál – SJÁ ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf alls 8-8-9-9-9-10 sinnum og síðan í 4. hverri umf alls 4-4-4-4-5-5 sinnum. HANDVEGUR: Þegar stykkið mælist 21-22-23-24-25-26 cm frá uppfitjunarkanti eru lykkjur prjónaðar yfir alla kaðlana saman tvær og tvær (þ.e.a.s. fækkað er um 3 l yfir hvern kaðal). Í næstu umf er fellt af 4-4-6-8-10-12 l á milli kaðla í hliðum fyrir handveg (þ.e.a.s. 2-2-3-4-5-6 l hvoru megin við bæði prjónamerkin). Hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig. HÆGRA FRAMSTYKKI: Haldið áfram í garðaprjóni yfir síðustu 5 l við handveg og 2 næstu l í gataröð eins og áður. Haldið áfram með úrtöku fyrir hálsmáli, jafnframt sem fækkað er fyrir handveg í lokin á hlið. Fellið af 1 l í annarri hverri umf alls 3 sinnum. Haldið áfram með 4 síðustu l við handveg eins og áður með garðaprjón og gataröð. Þegar úrtöku er lokið fyrir handveg og hálsmáli eru 19-22-24-26-28-31 l eftir á öxl. Prjónið nú eins og áður þar til stykkið mælist 38-40-42-44-46-48 cm, fellið af. VINSTRA FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema gagnstætt. BAKSTYKKI: = 60-67-72-77-83-90 l. Fellið af fyrir handveg í hvorri hlið eins og á framstykki = 54-61-66-71-77-84 l. Haldið áfram í sléttprjóni og 2 l með garðaprjóni + gataröð í hvorri hlið eins og áður. Þegar stykkið mælist 36-38-40-42-44-46 cm prjónið 4 umf garðaprjón yfir 24-25-26-27-29-30 miðju l (aðrar l eru prjónaðar eins og áður). Fellið nú af miðju 16-17-18-19-21-22 l fyrir hálsmáli = 19-22-24-26-28-31 l eftir á hvorri öxl. Prjónið nú yfir öxl eins og áður með 4 l garðaprjón við hálsmál þar til stykkið mælist 38-40-42-44-46-48 cm, fellið af. FRÁGANGUR: Saumið einn heklaðan þríhyrning í opið á hvorri hlið – passið uppá að styttri hliðin snúi niður. Saumið kant í kant og passið uppá að saumurinn verði ekki of stífur. Saumið axlarsauma. HEKLAÐUR KANTUR: Heklið með Alaska með heklunál nr 4,5 þannig: Byrjið aftan við hnakka, haldið áfram meðfram vinstra framstykki, meðfram neðri brún, upp meðfram hægri framstykki og til baka aftur aftan við hnakka. Heklið þannig: Heklið 1 fl í fyrstu l, * 4 ll, 1 st í fyrstu ll (= 1 picot), hoppið yfir ca 1,5 cm, 1 fl í næstu l *, endurtakið frá *-*. Heklið alveg í kringum handveg. Saumið tölurnar í vinstri kant að framan með ca 6 cm millibili – notið picot í hægri kanti að framan sem hnappagat. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #missenidvest eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 117-3
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.