DROPS Children 50 · Fullt af nýrri hönnun fyrir börn!
DROPS Snow
100% Wełna
frá 490.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7840.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2526
Velja stærð:
DROPS 116-38
DROPS Design Mynstur nr EE-272
Garnflokkur E
----------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL – XXXL

GARN:
DROPS SNOW frá Garnstudio
800-900-1000-1050-1150-1300 gr litur nr 47, ljós beige

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 8: Lengd 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 7: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS KAÐLAPRJÓNN

PRJÓNFESTA:
11 lykkjur á breidd og 15 umferðir á hæð með sléttprjóni með prjóna nr 8 = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

DROPS Snow
100% Wełna
frá 490.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7840.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu M.1 til M.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Í M.2 er lykkjufjöldinn aukinn út frá 31 lykkju til 37 lykkjur.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka í stykkjum neðan frá og upp. Í lokin eru stykkin saumuð saman.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 69-75-81-87-93-99 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 7 með DROPS Snow eða DROPS Andes.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig:
STÆRÐ S + L + XXL: 1 kantlykkja, * 3 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt *, endurtakið frá *-* alls 3-4-5 sinnum, M.1 (= 31 lykkja), * 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* alls 3-4-5 sinnum og endið með 1 kantlykkju.
STÆRÐ M + XL + XXXL: 1 kantlykkja, 3 lykkjur slétt, * 3 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt * endurtakið frá *-* alls 3-4-5 sinnum, M.1 (= 31 lykkja), *3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* alls 3-4-5 sinnum og endið með 3 lykkjur slétt og 1 kantlykkju.
Haldið svona áfram með þetta mynstur. Þegar stykkið mælist 11 cm – næsta umferð er prjónuð frá röngu – prjónið 1 umferð með M.2 í stað M.1 – aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður. Nú hafa verið auknar út 6 lykkjur við miðju að framan = 75-81-87-93-99-105 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 8. Prjónið sléttprjón en prjónið miðju 37 lykkjur í M.3, JAFNFRAMT sem í umferð 1 sléttprjón/M.3 er fækkað um 6-7-8-8-8-7 lykkjur jafnt yfir hvoru megin við M.3 í sléttprjóns lykkjum = 63-67-71-77-83-91 lykkjur. Haldið áfram með 12-14-16-19-22-26 lykkjur sléttprjón og 1 kantlykkju í hvorri hlið.
Munið að fylgja prjónfestunni.
Þegar stykkið mælist 53-55-57-59-61-62 cm fellið af fyrir handveg í hvorri hlið. Fellið af í byrjun á hverri umferð þannig: 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 0-0-1-1-2-3 sinnum og 1 lykkja 1-2-1-3-3-4 sinnum = 55-57-59-61-63-65 lykkjur. Þegar stykkið mælist 65-68-71-73-76-78 cm prjónið lykkjur í köðlum að framan 2 og 2 slétt saman. Að auki er fækkað um 1 lykkju í hverri brugðinni einingu utan með þessum tveimur köðlum = 10 lykkjur færri. Í næstu umferð eru miðju 11-11-11-13-13-13 lykkjur settar á þráð fyrir hálsmáli. Hvor öxl er nú prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af lykkjur við hálsmál í byrjun á umferð: 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 2 sinnum = 13-14-15-15-16-17 lykkjur eftir á hvorri öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 73-76-79-82-85-87 cm.


BAKSTYKKI:
Fitjið upp 65-71-77-83-89-95 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 7 með DROPS Snow.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig:
STÆRÐ S + L + XXL: 1 kantlykkja, * 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-*, endið með 3 lykkjur slétt og 1 kantlykkjur.
STÆRÐ M + XL + XXXL: 1 kantlykkja, * 3 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt * endurtakið frá *-* og endið með 3 lykkjur brugðið og 1 kantlykkju.
Þegar stykkið mælist 12 cm er skipti yfir á hringprjón 8. Haldið áfram í sléttprjóni JAFNFRAMT sem í umferð 1 er fækkað um 12-14-16-16-16-14 lykkjur jafnt yfir = 53-57-61-67-73-81 lykkjur. Þegar stykkið mælist 53-55-57-59-61-62 cm fellið af fyrir handveg í hvorri hlið á sama hátt og á framstykki = 45-47-49-51-53-55 lykkjur. Þegar stykkið mælist ca 71-74-77-80-83-85 cm (stillið af að það séu eftir ca 2 cm að loka máli á framstykki) fellið af miðju 17-17-17-19-19-19 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umferð er felld af að auki 1 lykkja inn við hálsmál = 13-14-15-15-16-17 lykkjur eftir á hvorri öxl. Fellið af þegar stykkið er orðið jafn langt og framstykki.

ERMI:
Fitjið upp 32-32-38-38-38-38 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 7 með DROPS Snow.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið stroff (= 3 lykkjur slétt / 3 lykkjur brugðið) með 1 kantlykkju í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 10 cm er skipt yfir á hringprjón 8, haldið áfram í sléttprjóni – JAFNFRAMT í umferð 1 er fækkað um 2-0-4-2-0-0 lykkjur jafnt yfir = 30-32-34-36-38-38 lykkjur. Þegar stykkið mælist 12 cm er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið. Endurtakið útaukningu með 6½-6½-5½-5-5-4 cm millibili alls 6-6-7-7-7-8 sinnum = 42-44-48-50-52-54 lykkjur. Þegar stykkið mælist 49-48-48-46-45-43 cm – ATH! Styttra mál í stærri stærðum vegna hærri ermakúpu og breiðari axla – fellið af fyrir ermakúpu í byrjun hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: 4 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 0-1-1-2-2-3 sinnum. Fellið síðan af 2 lykkjur í hvorri hlið þar til stykkið mælist 54 cm í öllum stærðum. Fellið síðan af 4 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið áður en allar lykkjur eru felldar af. Stykkið mælist ca 55 cm í öllum stærðum.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma.

KRAGI:
Prjónið upp ca 56 til 80 lykkjur (deilanlegt með 6 + 2 lykkjur, meðtaldar lykkjur af þræði að framan) í kringum hálsmál á hringprjón 7. Prjónið stroff = 3 lykkjur slétt / 3 lykkjur brugðið – passið uppá að sléttar lykkjur passi yfir sléttar lykkjur í M.3 við miðju að framan – ATH! Það eru prjónaðar 4 lykkjur slétt í stað 3 lykkjur slétt yfir hvorn af tveimur köðlunum við miðju að framan.
Þegar kraginn mælist 14-14-14-16-16-16 cm fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

FRÁGANGUR:
Saumið ermar í, saumið erma- og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju.

Mynstur

Slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu = Slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
Brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu = Brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
Prjónið 2 lykkjur í þessa lykkju = Prjónið 2 lykkjur í þessa lykkju
Setjið 4 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, 4 lykkjur slétt, 4 lykkjur slétt af kaðlaprjóni = Setjið 4 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, 4 lykkjur slétt, 4 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
Setjið 4 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, 4 lykkjur slétt, 4 lykkjur slétt af kaðlaprjóni = Setjið 4 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, 4 lykkjur slétt, 4 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
Diagram for DROPS 116-38
Diagram for DROPS 116-38
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!
Ertu búin að klára þetta mynstur?
Merktu myndirnar þínar með #dropspattern eða sendu þær inn í #dropsfan gallery.

Skrifaðu athugasemd um DROPS 116-38

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (13)

country flag Gun Wallenmark skrifaði:

Hej blir det samma storlek om jag väljer att sticka helt i slätstickning ? Stickas den på vanliga (två) stickor, eller kan jag ha rundsticka och sticka fram och tillbaka?

21.02.2024 - 13:38

DROPS Design svaraði:

Hej Gun, om du vil at hele tröjan stickas i slätstickning, kan du följa bakstycket. Kom ihåg att du skall ha 11 m på 10 cm :)

22.02.2024 - 11:51

country flag Annie skrifaði:

Hi, what measurements or UK dress sizes are the small, medium, XL and xxl please?

15.01.2021 - 07:32

DROPS Design svaraði:

Dear Annie, measure a similar garment you have and like the shape and compare these to the measurements in the chart, this is the best way to find the matching sizee - read more about chart here. Happy knitting!

15.01.2021 - 07:35

country flag Linda skrifaði:

Hej igen! Jag har kommit till slutet av framstycket men förstå inte hur jag ska sticka de maskor som inte är på restgarnet, då det kommer bli ett hål mellan axelmaskorna och halsingsmaskorna. Eller ska jag sticka de var för sig, alltså att jag tar andra stickor+garn till den andra axeln? Tack för svar.

29.04.2020 - 16:25

DROPS Design svaraði:

Hej Ja efter att du har satt maskorna på restgarn till halsringning så stickar du först den ena axeln färdig och sedan stickar du den andra. Mvh DROPS Design

30.04.2020 - 08:15

country flag Linda skrifaði:

Hej! Jag förstår bara inte varför jag ska sticka aviga maskor i M2. där mina flätor kommer att vara. "sticka 2 am i denna m" och sedan står det att 6 maskor har ökats. Ska jag sticka 1 maska som 2 aviga och sedan nästa varv sticka räta?

18.04.2020 - 02:19

DROPS Design svaraði:

Hej Tck för info. Det ser ut som om det är ett skrivfel där, det ska stickas 2 rm i maskan. Texten kommer att uppdateras. Mvh DROPS Design

20.04.2020 - 11:39

country flag Dalene skrifaði:

The sleeves just don't work out. Knitting two together on each side makes the sleeve to short to fit into the arm hole. Am I doing anything wrong. I have now knitted my own sleeve with the help of a family member. Totally different to what the pattern suggests. I'm still busy after having to pull the knitted piece out to under the arm.

18.08.2019 - 11:33

DROPS Design svaraði:

Dear Dalene, for the sleeve cap you will cast off the stitches at the beg of every row (both from RS and from WS), ie not decrease. First cast off 4 sts 1 time, 2 sts 1 time and 1 st 0-1-1-2-2-3 times then cast off 2 sts each side until piece measures 54 cm for all sizes, now cast off 4 sts 1 time each side and cast off remaining sts. Sleeve cap should measure 6-12 cm. Happy knitting!

19.08.2019 - 10:26

country flag Marielle skrifaði:

Is het in het begin de bedoeling dat de naald aan de verkeerde kant van het werk tegenovergesteld gebreid wordt van de goede kant? Dus aan de goede kant een rechte steek aan de verkeerde kant een averechts steek? Alvast bedankt voor uw antwoord

15.01.2019 - 20:14

DROPS Design svaraði:

Dag Marielle,

Ja, daar heb je inderdaad gelijk aan; recht aan de goede kant, averecht aan de verkeerde kant en vice versa, zodat je boordsteek breit.

17.01.2019 - 10:08

country flag Judit skrifaði:

Az ujjánál mit jelent amig 9cm ?

20.03.2018 - 08:05

country flag Claudia Wächtler skrifaði:

Hallo Vielen Dank für die Nachricht.Ich meinte da der Zopf vorne ist kann es ja sein das deswegen die 12 Maschen am Rücken abgenommen werden.Das Rückenteil wird glatt rechts gestrickt.Danke für Ihre schnelle Antort Liebe Grüße Claudia Wächtler

06.12.2017 - 10:02

country flag Claudia Wächtler skrifaði:

Hallo Warum bei diesen Pullover am Rückenteil 12 Maschen abnehmen?Damit ist das Rückenteil 10 Maschen kleiner als das Vorderteil.Vieleicht hängt es mit den Zöpfen zusammen.Können Sie mir genau schreiben,ob ich die 12 Maschen am Rückenteil abnehmen muss.Danke im Vorraus für die Antwort. Liebe Grüße Claudia

06.12.2017 - 09:06

DROPS Design svaraði:

Liebe Fau Wächtler, es gibt keinen Zopf am Rückenteil, es wird nur glatt rechts gestrickt, deshalb ist der Maschenanzahl unterschiedlich. Viel Spaß beim stricken!

06.12.2017 - 09:47

country flag Karen Zuurmond skrifaði:

Kan deze trui ook gebreid worden op rondbreinaalden? Hoe zit het dan met het patroon voor de armen??

27.11.2017 - 18:56

DROPS Design svaraði:

Hallo Karen, Jazeker, dat kan! Je zet 2 steken minder op (want je hebt geen kantsteken nodig bij rondbreien), 1 naald averecht aan de verkeerde kant, wordt 1 naald recht aan de goede kant. Verder plaats je een markeerdraad aan het begin van de naald (= midden onder de mouw) en de meerderingen doe je aan beide kanten van deze markeerdraad. Bij het minderen voor de mouwkop kant je eerst 8 steken midden onder de mouw af (aan beide kanten 4), daarna brei je heen en weer verder volgens patroon (waar bij je de 1 x 4st aan elke kant dus over kunt slaan, omdat je die al hebt afgekant)

28.11.2017 - 09:14