Birte skrifaði:
Meget sød - skynd jer med opskriften
20.11.2008 - 13:42
Kristin Magnusdottir skrifaði:
Yndisleg peysa bið spennt eftir uppskrift.
19.11.2008 - 16:51
Patricia skrifaði:
Beautiful pattern. Can't wait for directions.
16.11.2008 - 20:10
Jorunn skrifaði:
Kjempefin!!
16.11.2008 - 13:56
DOISY skrifaði:
Encore un magnifique modèle qu'on a envie de voir porter par nos bébés et à l'avance le plaisir de pouvoir le tricoter
10.11.2008 - 10:52
Anne-Marie Jenkins skrifaði:
Lovely hope you consider making patterns to fit premature babies
05.11.2008 - 05:23
Hhhh skrifaði:
Søøt
21.10.2008 - 20:28
Marianne skrifaði:
Super sød
20.10.2008 - 17:02
Krikri skrifaði:
Impossible de n'en choisir que 10
19.10.2008 - 20:40
Annica Thomsson skrifaði:
Sockersöt med lusekofta.
17.10.2008 - 21:55
Baby Squirrel#babysquirreljacket |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Sett með prjónaðri peysu fyrir börn með hringlaga berustykki, íkornum og hjörtum ásamt sokkum og buxum með garðaprjóni úr DROPS Alpaca
DROPS Baby 17-18 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.1 og M.2 – allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 6-6-6 (7-8) l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið þar til 6-6-6 (7-8) l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l br, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið þar til 5-5-5 (6-7) l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið þar til 5-5-5 (6-7) l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l br, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við. Haldið áfram á sama hátt með því það fækki um 1 l áður en 1 l er steypt yfir þar til 8-10-10 (10-12) l eru eftir á prjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið l á undan prjónamerki þannig: 2 l slétt saman. Fækkið l á eftir prjónamerki þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Aukið út um 1 l hvoru megin við 2 l sl þar sem prjónamerki er staðsett fyrir miðju að aftan. Aukið út með því að prjóna 2 l í 1 l – útauknar lykkjur eru prjónaðar í framhaldinu inn í stroff. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 152-172-188 (208-224) l á hringprjóna nr 2,5 með litnum ljós bleikur. Prjónið stroff þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-*, endið á 2 l sl og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið svona stroff í 3 cm. Haldið áfram í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið – JAFNFRAMT í umf 1 er fækkað um 20-24-26 (30-32) l jafnt yfir = 132-148-162 (178-192) l. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 16-18-21 (24-27) cm prjónið næstu umf þannig: 29-33-37 (41-44) l (= hægra framstykki), fellið af 8 l fyrir handveg, 58-66-72 (80-88) l (= bakstykki), fellið af 8 l fyrir handveg, 29-33-37 (41-44) l (= vinstra framstykki). Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 40-44-48 (52-56) l á sokkaprjóna nr 2,5 með litnum ljós bleikur. Prjónið stroff = 2 l sl/2 l br í 3 cm. Haldið áfram í sléttprjóni – JAFNFRAMT í umf 1 er fækkað um 4-6-8 (10-12) l jafnt yfir = 36-38-40 (42-44) l. Setjið eitt prjónamerki í byrjun umf = mitt undir ermi. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 4-4-4 (5-5) cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki. Endurtakið útaukningu í 5.-5.-5. (6.-6.) hverri umf alls 7-8-9 (10-12) sinnum = 50-54-58 (62-68) l. Þegar stykkið mælist 14-16-18 (22-26) cm eru felldar af 8 l mitt undir ermi (= 4 l hvoru megin við prjónamerki) = 42-46-50 (54-60) l eftir á prjóni. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 200-224-246 (270-296) l. Prjónið 1-1-3 (7-10) umf með litnum jós bleikur – JAFNFRAMT í umf 1 er fækkað um 6-6-4 (4-6) l jafnt yfir = 194-218-242 (266-290) l. Prjónið síðan og fækkið l samkvæmt M.1 með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan – byrjið við ör! Þegar M.1 hefur verið prjónað til loka eru 82-92-102 (112-122) l á prjóni og stykkið mælist ca 28-30-34 (38-42) cm upp að öxl. Setjið l á þráð. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN: Prjónið fram og til baka á hringprjóna. Takið upp ca 76-80-88 (100-112) l (deilanlegar með 4) innan við 1 kantlykkju meðfram vinstra framstykki á hringprjóna nr 2,5 með litnum ljós bleikur. Prjónið 1 umf slétt frá röngu og haldið síðan áfram þannig (séð frá réttu): 1 l garðaprjón, * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-*, endið á 2 l sl og 1 l garðaprjón. Þegar stroffið mælist 2½ cm fellið af með sl yfir sl og br yfir br. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN: Prjónið á sama hátt og vinstri kantur nema eftir 1 cm er fellt af fyrir 4-4-5 (5-5) hnappagöt jafnt yfir – efsta hnappagatið á að vera ca 4 cm frá kanti að ofan og það neðra ca 2 cm frá kanti að neðan. 1 HNAPPAGAT = fellið af 2 l og fitjið upp 2 nýjar l í næstu umf. HÁLSMÁL: Takið upp l með litnum ljós bleikur: 6 l yfir hægri kant að framan, síðan eru l prjónaðar af þræði inn í umf JAFNFRAMT er fækkað um 10-16-22 (28-34) l jafnt yfir. Takið síðan upp 6 l yfir vinstri kant að framan = 84-88-92 (96-100) l. Prjónið 4 umf garðaprjón og haldið síðan áfram þannig (frá réttu): 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-*, endið á 2 l sl og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram – JAFNFRAMT þegar stroffið mælist 1 cm er fellt af fyrir einu hnappagati yfir hin í kanti að framan. Fellið af með sl yfir sl og br yfir br þegar stroffið mælist 2 cm. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum og saumið tölur í. ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. SOKKUR: Fitjið upp 44-48-48 (52-56) l á sokkaprjóna nr 2,5 með litnum ljós bleikur. Prjónið stroff = 2 l sl/2 l br í 5-5-6 (6-7) cm. Prjónið síðan 1 umf sléttprjón JAFNFRAMT er fækkað um 8 l jafnt yfir = 36-40-40 (44-48) l. Haldið síðan eftir fyrstu 18-20-20 (22-26) l á prjóni (fyrir hæl) og hinar 18-20-20 (22-22) l eru settar á þráð (ofan á fæti). Prjónið sléttprjón í 3-3½-4 (4-4½) cm yfir hællykkjur og setjið síðan eitt prjónamerki. Prjónið síðan HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan. Takið upp 8-9-10 (10-11) l hvoru megin við hællykkjur og setjið til baka l af þræði á prjóninn = 42-48-50 (52-56) l. Prjónið síðan sléttprjón – JAFNFRAMT í umf 1 er fækkað um 1 l á undan 18-20-20 (22-22) l ofan á fæti með því að prjóna 2 l slétt saman og fækkað er um 1 l á eftir 18-20-20 (22-22) l á ofan á fæti með því að prjóna 2 l snúnar slétt saman (þ.e.a.s. prjónið í aftari lykkjubogann í stað fremri). Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf alls 3-6-7 (5-7) sinnum = 36-36-36 (42-42) l. Þegar sokkurinn mælist 6-7-8 (10-12) cm frá prjónamerki á hæl er prjónað M.2. Setjið síðan prjónamerki í hvora hlið á sokknum (þ.e.a.s. þannig að það verða 18-18-18 (22-22) l ofan á fæti og 18-18-18 (20-20) l undir fæti. Haldið áfram með litnum natur – JAFNFRAMT er fækkað um 1 l hvoru megin við hvort prjónamerki – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku í hverri umf alls 7-7-7 (8-8) sinnum = 8-8-8 (10-10) l eftir á prjóni. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið. Sokkurinn mælist ca 10-11-12 (14-16) cm. Prjónið annan sokk á sama hátt. ------------------------------------------------------- BUXUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. SKÁLM: Fitjið upp 56-60-64 (68-72) l á sokkaprjóna nr 3 með Alpaca. Setjið eitt prjónamerki í byrjun umf = innan á skálm. Prjónið þannig: 1 l sl, * 2 l br/2 l sl *, endurtakið frá *-* og endið á 2 l br og 1 l sl. Þegar stykkið mælist 4 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki með því að prjóna 2 l í 1 l – útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í stroff. Endurtakið útaukningu í 5.-6.-8. (9.-12.) hverri umf alls 8 sinnum = 72-76-80 (84-88) l. Þegar skálmin mælist 16-20-23 (25-33) cm skiptist stykkið við prjónamerki og prjónað er áfram fram og til baka – JAFNFRAMT er fitjuð upp 1 ný l í hvorri hlið fyrir saum = 74-78-82 (86-90) l. Þegar stykkið mælist 18-22-25 (27-35) cm fellið af 5 l í hvorri hlið (= kantlykkja, 1 l sl, 2 l br og 1 l sl) = 64-68-72 (76-80) l. Geymið stykkið og prjónið aðra skálm á sama hátt. BUXUR: Setjið skálmar á sama hringprjóna nr 3 = 128-136-144 (152-160) l. Setjið eitt prjónamerki við miðju að framan og eitt prjónamerki við miðju að aftan (bæði prjónamerki eiga að sitja mitt á milli 2 l sl). Haldið áfram með stroff = 2 l sl/2 l br – JAFNFRAMT er aukið út að aftan og l fækkað að framan þannig: ÚTAUKNING AÐ AFTAN: Aukið út um 2 l við miðju að aftan – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu í 4. hverri umf alls 4 sinnum. ÚRTAKA AÐ FRAMAN: Fækkið um 2 l að framan – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku í 4. hverri umf 8 sinnum. Eftir alla útaukningu og úrtöku eru 120-128-136 (144-152) l á prjóni. Haldið áfram með stroff þar til stykkið mælist 38-42-47 (52-60) cm, fellið af. FRÁGANGUR: Saumið saman efst að innanvörðu á hvorri skálm innan við kantlykkju. Saumið síðan saman op í klofi – framstykki að bakstykki. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #babysquirreljacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 17-18
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.