Torunn skrifaði:
Lurer litt på om det fins ein link med forklaring til korleis ein syr saman skulder- og overarmssømmane kant i kant?
20.02.2009 - 13:32
Françoise skrifaði:
Génial, rapide à tricoter, super confortable avec le froid qui vient d'arriver.
27.11.2008 - 08:36
Inger skrifaði:
Så dejlig og bamseblød.Ikke til at stå for.
09.11.2008 - 21:22
Judy Larsson skrifaði:
Jag ska få tvilling barnbarn snart - ska absolut sticka två aav dessa överaller!
08.11.2008 - 16:47
Kjellaug Byberg skrifaði:
Kjempetøff dress.ser god og varm ut.den skal jeg stikke til mitt barnebarn.
05.11.2008 - 18:41
Hege skrifaði:
En riktig fin kosedress :)
04.11.2008 - 22:39
Anita Wangen skrifaði:
Denne er kjempefin, god plass til et skjerf i halsen :)
28.10.2008 - 21:56
Karoline skrifaði:
Noe lignende har jeg lett etter lenge. Jeg håper virkelig den kommer med.
27.10.2008 - 13:34
Line Levinsen skrifaði:
Nydelig, men kanskje litt vel åpen i halsen?
22.10.2008 - 13:27
Lene Jensen skrifaði:
Stilig design og dejlig praktisk. Ingen steder der skiller ad og bliver koldt. Dejligt
17.10.2008 - 16:05
Ready to Fly#readytoflyoverall |
|
|
|
Prjónaður galli á börn án ermasauma úr DROPS Snow.
DROPS Baby 16-15 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt (þ.e.a.s. í aftari lykkjubogann, svo ekki verði gat). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = fellið af 3. lykkju frá miðju að framan og fitjið upp 1 nýja lykkju yfir þá sem felld var af. Fellið af fyrir hnappagati þegar stykkið mælist alls: STÆRÐ 1/3 MÁN: 22, 29, 36, 43 og 49 cm. STÆRÐ 6/9 MÁN: 26, 34, 42, 50 og 58 cm. STÆRÐ 12/18 MÁN: 30, 39, 48, 57 og 66 cm. STÆRÐ 2 ÁRA: 33, 41, 49, 57, 65 og 72 cm. STÆRÐ 3/4 ÁRA: 41, 48, 56, 63, 71 og 78 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- GALLI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað neðan frá og upp. VINSTRI SKÁLM: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitið upp 26-28-30 (34-36) lykkjur á sokkaprjón 7 með Snow. Prjónið GARÐAPRJÓN í 5 cm – sjá útskýringu að ofan. Haldið áfram í sléttprjóni – setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (= innan á skálm). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 10 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING að ofan – endurtakið útaukningu með 2-2-2½ (3-4) cm millibili alls 4-5-6 (6-7) sinnum = 34-38-42 (46-50) lykkjur. Þegar stykkið mælist 20-23-27 (30-38) cm fellið af 2 lykkjur vinstra megin við prjónamerki (= að bakhlið á skálm) = 32-36-40 (44-48) lykkjur. Setjið lykkjur á þráð. HÆGRI SKÁLM: Prjónið á sama hátt og vinstri skálm, nema spegilmynd, þ.e.a.s. að alveg efst er felldar af 2 lykkju hægra megin við prjónamerki. GALLI: Fitjið upp 4 nýjar lykkjur (= að miðju að framan) á hringprjón 7, prjónið inn hægri skálm á prjóninn, prjónið síðan vinstri skálm inn á prjóninn og að lokum eru fitjaðar upp 4 nýjar lykkjur í lok umferðar (= við miðju að framan) = 72-80-88 (96-104) lykkjur. Setjið tvö prjónamerki í stykkið - eftir 19-21-23 (25-27) lykkjur inn frá hvorri hlið við miðju að framan (þau merkja hliðar). Prjónið síðan sléttprjón fram og til baka með 6 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan í garðaprjóni – jafnframt er fellt af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 43-51-59 (64-69) cm skiptist stykkið við prjónamerkin og bæði framstykkin eru sett á þráð. BAKSTYKKI: = 34-38-42 (46-50) lykkjur. Fitjið upp nýjar lykkjur í hvorri hlið fyrir ermi. Fitjið laust upp í lok hverrar umferðar í báðum hliðum: 4 lykkjur 2-2-3 (3-3) sinnum og 10-11-10 (14-18) lykkjur 1 sinni = 70-76-86 (98-110) lykkjur á eftir síðustu útaukningu. Þær 5 ystu lykkjur í hvorri hlið (= yst á ermum) eru prjónaðar í garðaprjóni, aðrar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 53-62-71 (77-83) cm fellið af miðju 8-10-10 (12-12) lykkjur fyrir hálsmáli og hvor hlið er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umferð er að auki felld af 1 lykkja við hálsmál = 30-32-37 (42-48) lykkjur eftir á öxl og ermi. Fellið af þegar stykkið mælist 55-64-73 (79-85) cm. VINSTRA FRAMSTYKKI: = 19-21-23 (25-27) lykkjur. Fitjið upp nýjar lykkjur í hlið fyrir ermi eins og á bakstykki = 37-40-45 (51-57) lykkjur. Þegar stykkið mælist 51-60-68 (74-80) cm fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá miðju að framan: 6 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 1-2-2 (3-3) sinnum = 30-32-37 (42-48) lykkjur eftir á öxl og ermi. Fellið af þegar stykkið mælist ca 55-64-73 (79-85) cm – stillið af þannig að framstykkin séu jafn löng og bakstykki. HÆGRA FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og vinstra framstykki, nema spegilmynd – munið eftir HNAPPAGAT! FRÁGANGUR: Saumið axlasauma og sauma yfir ermum kant í kant. Saumið undir ermum í ystu lykkjubogana svo að saumurinn verði ekki þykkur. Leggið hægri kant að framan yfir vinstri kant og saumið saman á milli skálma. KRAGI: Prjónið upp ca 26-30-32 (34-38) lykkjur í kringum hálsmál á hringprjón 7 með Snow. ATH: Lykkjur eru ekki teknar upp yfir kant að framan. Setjið eitt prjónamerki í hvora öxl. Prjónið garðaprjón fram og til baka – JAFNFRAMT í 4. hverri umferð er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkin – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING! Þegar kraginn mælist 5-5-6 (6-7) cm fellið af. Saumið tölur í. Brjótið uppá ca 5 cm neðst á skálmum = uppábrot. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #readytoflyoverall eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 13 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 16-15
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.