Christina skrifaði:
Ich verstehe es folgendermassen: Wenn ich die 1. Masche auf einer Hin Reihe aufnehme und dann eine Rück Reihe stricke und das wiederhole, nehme ich die 7 Maschen auch auf einer Hin Reihe auf. Und das am Anfang der Reihe, nicht wie beschreiben am Schluss der Reihe.
23.01.2025 - 16:52DROPS Design svaraði:
Siehe Antwort unten :)
24.01.2025 - 08:43
Christina skrifaði:
Ich verstehe folgendes nicht: Nach 1-1-2 (2-2) cm bei der nächsten Hin-R neben den 6 M. in Krausrippe 1 M. aufnehmen (es ist die Seite, die dem Hals zugewandt ist)- TIPP ZUM AUFNEHMEN. 1 R. zurück stricken und bei der nächsten R. die Aufnahme wiederholen. 1 R. zurück stricken und bei der nächsten R. am Schluss 7-7-8 (8-8) neue M. anschlagen = 37-40-44 (50-56) M. Wie und wo genau muss ich die 1.2. und die 7Maschen aufnehmen? Hin/Rückreihe? Am Rand beim Hals?
23.01.2025 - 16:45DROPS Design svaraði:
Liebe Christina, das sind Zunahmen für Halsausschnitt + Blenden-Maschen; so nehmen Sie am Anfang der Hin-Reihe (nach den 6 ersten Maschen) zu, und die neuen Maschen schlagen Sie am Ende einer Rückreihe. Viel Spaß beim Stricken!
24.01.2025 - 08:32
Martine Demey skrifaði:
Kan dat ook met gewone breinaalden worden gemaakt ?
16.11.2024 - 12:17DROPS Design svaraði:
Dag Martine,
Om een patroon aan te passen om op rechte naalden te breien hebben we een instructie gemaakt. Deze vind je hier. Helaas is niet niet voor alle patronen mogelijk, maar kijk maar even of je hier wat mee kunt.
16.11.2024 - 17:56
Randi Odland skrifaði:
Lurer på hvor mange nøster man trenger på 3/6 mnd?
02.07.2024 - 07:47DROPS Design svaraði:
Hej Randi, da skal du vælge størrelse 6/9 måneder og bruge 11 nøster DROPS Snow :)
02.07.2024 - 14:12
Monica Iversby skrifaði:
Hei. Jeg vil gjerne strikke Hazelnut kjørepose, men det er ingen str. som passer. Barnet blir født i juli/august, så det hadde vært fint med en oppskrift på 3-6 mnd. Veldig stort sprang i str. i oppskriften. Noen barn er 3-6 mnd. også, el. 9-12 mnd. f.eks. Er det mulig å hjelpe meg å få til 3-6 mnd.?
14.02.2024 - 10:08DROPS Design svaraði:
Hei Monica. Design avd har dessverre ikke mulighet til å tilpasse str. etter hver enkelt kundes behov. Men om du ser på målskissen er det ikke så mange cm som skiller hver enkelt størrelsene og babyer vokser jo fort. mvh DROPS Design
14.02.2024 - 10:53
Marlies skrifaði:
Mein Problem ist der Übergang vom Rückenteil zur linken Vorderseite. Ich habe (im Rückenteil) von den 24 M Krausrippe (=hinten im Nacken), die mittleren 12 M.abkettet. Es bleiben dann auf jeder Seite 6M übrig, WAS mache ich damit? Diese Maschen finden in der Anleitung keine Erwähnung.
05.02.2024 - 17:00DROPS Design svaraði:
Liebe Marlies, es waren 68-74 Maschen auf der Nadel in 1. und 2. Größe vor man die mittleren 12 Maschen abkettet, so sind es immer noch 28-31 Maschen: von de Vorderseite gesehen: 6 M kraus rechts, 19-22 Maschen Perlmuster und 3 Maschen kraus rechts für die linke Schulter (und 19-21 Maschen für die rechte Schulter). Viel Spaß beim Strickeni
06.02.2024 - 08:14
Mary skrifaði:
I would like to make an adult version can you supply or suggest a pattern. And how much yarn I would need?
13.11.2020 - 12:34
Helene skrifaði:
Hej, jeg skal strikke hætten, hvordan skal jeg strikke kantmaskerne, så kanten bliver flot? Vh
13.01.2020 - 15:50DROPS Design svaraði:
Hej Helene, sådan her kan du strikke kantmasker:
How to knit edge stitches in slip st (chain edge) from Garnstudio Drops design on Vimeo.
15.01.2020 - 15:23
Hjørdis skrifaði:
Hej ☀️ Når opskriften siger “slå X-40-X-X masker op (inkl. 1 kantmaske i hver side)”, skal det så forstås som, at man, når man har slået 40 masker op, så er 2 af de 40 masker kantmasker. Eller er det sådan, at man skal slå 42 masker op, fordi de 2 kantmasker er UD OVER de 40? På forhånd mange tak for svar :-) Mange hilsner
13.06.2019 - 15:04DROPS Design svaraði:
Hej. Du lägger upp 40 maskor totalt (2 av de 40 är då alltså kantmaskor). Lycka till!
17.06.2019 - 12:10
Alexandra Popescu skrifaði:
Hello, Could you please Tell me how much yarn I need to knit a jumpsuit with hood for a 2 year old, so size 86/92. After knitting I want to Felt it and I don’t know how much it will shrink. Thank you.
31.05.2019 - 11:38DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Popescu, we are unfortunately not able to adapt every single pattern to each individual request. For any individual help, please contact your store, even per mail or telephone. Happy knitting!
31.05.2019 - 11:52
Hazelnut#hazelnutbuntingbag |
|
![]() |
![]() |
Prjónaður ferðapoki / galli fyrir börn úr DROPS Snow, DROPS Wish eða DROPS Andes
DROPS Baby 18-2 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. PERLUPRJÓN: UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-*. UMFERÐ 2: Prjónið brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur og sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. Endurtakið umferð 2. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjuna) svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR: Til að ná fram fallegum kanti meðfram hettunni og á ermum þá er fyrsta lykkjan tekin óprjónuð í hverri umferð. GÖT FYRIR BÍLSTÓLABELTI: Hægt er að gera göt að framan og að aftan fyrir belti í bílstól. Gerið fyrsta gatið á bakstykki þegar stykkið mælist ca 16-20-23 (28-33) cm (eða eftir máli) með því að fella af 4 lykkjur í miðju á prjóninum. Í næstu umf eru fitjaðar upp 4 nýjar lykkjur yfir þær sem felldar voru af og haldið síðan áfram eins og áður. Endurtakið á framstykki þegar stykkið mælist 42-47-52 (58-59) cm frá öxl. HNAPPAGAT: Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = fellið af 3. l frá miðju að framan og fitjið upp 1 nýja l yfir þá l sem felld var af í næstu umf. Fellið af fyrir hnappagati þegar kantur að framan mælist: STÆRÐ 1/3 mán: 1, 7, 13, 19 og 25 cm STÆRÐ 6/9 mán: 1, 8, 15, 22 og 29 cm STÆRÐ 12/18 mán: 1, 7, 14, 21, 28 og 35 cm STÆRÐ 2 ára: 1, 8, 16, 24, 32 og 40 cm. STÆRÐ 3/4 ára: 1, 10, 19, 28, 37 og 46 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- FERÐAPOKI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Pokinn er prjónaður sem eitt stykki – byrjið neðst á bakstykki, fitjið upp l fyrir ermar, fellið af fyrir hálsmáli og endið neðst á framstykki. Til að fá pláss fyrir allar l er stykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna. BAKSTYKKI: Fitjið upp 36-40-44 (46-50) l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 8 með Snow, Wish eða Andes. Prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 37-45-52 (62-67) cm – JAFNFRAMT í næstu umf er fækkað um 4 l jafnt yfir = 32-36-40 (42-46) l. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið 6 umf garðaprjón yfir allar l, haldið áfram í PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 46-54-61 (71-76) cm fitjið upp nýjar l í báðum hliðum fyrir ermar. Fitjið upp l í lok hverrar umf þannig: 4 l 1 sinni, 5 l 1-1-1 (2-2) sinnum og 9-10-12 (12-16) l 1 sinni = 68-74-82 (94-106) l. Nýjar l eru prjónaðar áfram í perluprjóni. ATH! Eftir síðustu útaukningu eiga 3 síðustu l í hvorri hlið (= síðustu l á ermum) að vera prjónaðar í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 54-63-71 (82-88) cm er prjónað þannig: 3 l garðaprjón, 19-22-25 (31-37) l perluprjón, 24-24-26 (26-26) l garðaprjón (= aftan við hnakka), 19-22-25 (31-37) l perluprjón, 3 l garðaprjón. Þegar 6 umf í garðaprjóni hafa verið prjónaðar yfir l við hnakka eru felldar af 12-12-14 (14-14) l við miðju fyrir hálsmáli og hliðarnar eru prjónaðar áfram fyrir sig. Setjið l frá hægri hlið á þráð. VINSTRI HLIÐ: = 28-31-34 (40-46) l. Prjónið áfram í perluprjóni og 6 l garðaprjóni við hálsmál og 3 l garðaprjón yst á ermi. Þegar stykkið mælist 58-67-75 (86-92) cm er sett 1 prjónamerki = miðja á öxl. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið áfram eins og áður. Þegar stykkið mælist 1-1-2 (2-2) cm er aukið út um 1 l við háls í næstu umf frá réttu, innan við 6 l garðaprjón – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING. Prjónið 1 umf til baka frá röngu og endurtakið útaukningu í næstu umf frá réttu. Prjónið 1 umf til baka frá röngu, í lok þessarar umf eru fitjaðar upp 7-7-8 (8-8) nýjar l við miðju að framan = 37-40-44 (50-56) l. Prjónið 2 umf í garðaprjóni yfir 7-7-8 (8-8) nýjar l – aðrar l eru prjónaðar áfram eins og áður. Prjónið síðan perluprjón með 6 kantlykkjur við miðju að framan í garðaprjóni (= kantur að framan) og 3 l garðaprjón yst á ermi. Þegar stykkið mælist 8-9-10 (11-12) cm er lykkjum fækkað fyrir erma-l. Fækkið síðan lykkjum í hlið í byrjun á umf þannig: 9-10-12 (12-16) l 1 sinni, 5 l 1-1-1 (2-2) sinnum og 4 l 1 sinni = 19-21-23 (24-26) l. Haldið áfram í perluprjón og 6 kantlykkjur við miðju að framan í garðaprjóni þar til stykkið mælist ca 18-19-20 (21-22) cm (leggið stykkið saman tvöfalt við prjónamerki á öxl og passið uppá að prjónaðar séu jafn margar umf í perluprjóni á bakstykki og á framstykki). Prjónið 6 umf garðaprjón yfir allar l. Haldið síðan áfram í sléttprjóni og kant að framan í garðaprjóni – JAFNFRAMT í umf 1 er aukið út um 2 l jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kant að framan) = 21-23-25 (26-28) l. Þegar stykkið mælist ca 35-41-46 (52-56) cm setjið l á þráð – passið uppá að næsta umf sé prjónuð frá réttu. HÆGRA FRAMSTYKKI: Setjið til baka l af þræði yfir á prjóninn (= 28-31-34 (40-46) l) og aukið út eins og á vinstra framstykki, nema gagnstætt. JAFNFRAMT er fellt af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan – meðfram kanti að framan. Þegar stykkið mælist 35-41-46 (52-56) cm – passið uppá að prjónað sé jafn langt eins og á vinstra framstykki – setjið l frá vinstra framstykki aftur til baka á sama prjón = 42-46-50 (52-56) l. Í næstu umf (= rétta) eru kantlykkjur að framan prjónaðar saman þannig: Prjónið sléttprjón yfir 15-17-19 (20-22) fyrstu l, setjið 6 kantlykkjur að framan frá hægra framstykki yfir á hjálparprjón fyrir framan stykkið, * prjónið 1 l af hjálparprjóni saman við 1 l frá vinstri kant að framan *, endurtakið frá *-* 6 sinnum = 6 l færri, prjónið síðan sléttprjón út umf = 36-40-44 (46-50) l. Haldið áfram í sléttprjóni yfir allar l. Þegar stykkið mælist ca 55-64-72 (83-89) cm (leggið stykkið saman tvöfalt við prjónamerki á öxl og passið uppá að framstykki og bakstykki séu jafn löng, fyrir utan 6 neðstu umf í garðaprjóni á bakstykki). Prjónið 6 umf garðaprjón yfir allar l. Fellið laust af. FRÁGANGUR: Leggið stykkið saman tvöfalt við öxl og saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju. Saumið saman uppfitjunarkant við affellingarkant neðst á pokanum – saumið kant í kant svo að saumurinn verði ekki of þykkur. HETTA: Prjónið upp 37-39-41 (45-47) l með Snow, Wish eða Andes á hringprjóna nr 8 í kringum hálsmál (byrjið við miðju að framan og prjónið upp í ystu lykkjubogana frá réttu). Prjónið perluprjón fram og til baka. Þegar hettan mælist 18-20-22 (24-26) cm prjónið 2 umf garðaprjón, fellið síðan LAUST af. Saumið hettuna saman kant í kant á toppnum. Saumið tölur í. Hægt er að hafa uppábrot á ermum. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #hazelnutbuntingbag eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 12 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 18-2
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.