Bente Felland skrifaði:
En spennende modell som er strikket på tvers. Fletteborden er en fin detalj.
28.08.2006 - 21:25Ann skrifaði:
Snygg! Ta med, tack!
21.08.2006 - 16:11
Jytte skrifaði:
Jeg synes det er en flot model, fordi er anderledes også med det asymetriske. Detkan jeg lide.
12.08.2006 - 17:16Monique skrifaði:
Good morning. I like your models. But they're not traduct in french. Why ? A lot of french knitters watch your site. Thanks. Monique
11.08.2006 - 11:15
sølva andersen skrifaði:
en meget lækker model..Er specielt glad for det asymetriske
06.08.2006 - 17:17
Karin skrifaði:
JA! Annorlunda att sticka och fräck design
02.08.2006 - 17:44Britt-Marie skrifaði:
Snygg och tuff samt ser ut att vara rolig att sticka
01.08.2006 - 20:40Agneta skrifaði:
snygg och annorlunda. Den vill jag göra!
01.08.2006 - 13:18Mari Alexanderson skrifaði:
Den här var snygg och tuff. Den skulle jag vilja göra.
31.07.2006 - 10:23
Bente Hermansen skrifaði:
Meget speciel. Den kunne jeg godt tænke mig opskriften på.
28.07.2006 - 20:24
DROPS 96-3 |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Stutt peysa með köðlum úr 2 þráðum DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað frá hlið. Stær: S-XXL
DROPS 96-3 |
|||||||||||||
-------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LEIÐBEININGAR (á við um mynstur á ermi): Til þess að kaðallinn snúi í sömu átt allan tímann verður að prjóna M.1 á bakhlið á hægri ermi og á framhlið á vinstri ermi gagnstætt við það sem stendur í mynsturteikningu. Þ.e.a.s. Það stendur að setja eigi lykkjurnar á hjálparprjón framan við stykkið, þá verður að setja aftan við og þegar stendur að setja eigi lykkjurnar aftan við, verður að setja þær að framan. Ef þetta er ekki gert þá kemur kaðallinn að snúa gagnstætt á þessum tveimur stöðum. -------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ---------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Peysan er prjónuð á lengdina. Byrjað er við miðju framan á hægra framstykki, prjónið að hlið, setjið lykkjur á band fyrir ermi, fitjið upp nýjar lykkjur fyrir ermi og prjónið síðan yfir bakstykki fram að hinni hliðinni, setjið lykkjur á band fyrir ermi, fitjið upp nýjar lykkjur fyrir ermi og prjónið fram að miðju að framan á vinstra framstykki. PEYSA: FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 90-94-98-102-106 lykkjur með 2 þráðum á prjón 4,5. Prjónið þannig (1. umferð = rétta): 1 kantlykkja sem er prjónuð slétt í öllum umferðum, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðnar *, endurtakið frá *-* yfir 12 lykkjur, M.1 (= 8 lykkjur), * 2 lykkjur brugðnar, 2 lykkjur slétt *, endurtakið frá *-* og endið með 1 kantlykkju sem er prjónuð slétt í öllum umferðum. Prjónið svona þar til stykkið mælist 16-16-18-18-20 cm, fitjið nú upp 12-12-14-14-16 nýjar lykkjur efst á öxl – þær eru síðan prjónaðar brugðnar (séð frá réttu) með 1 kantlykkju yst = 102-106-112-116-122 lykkjur. Síðan eiga þessar nýju lykkjur að fækka aftur inn þannig að það myndast fleygur á öxlinni til að flíkin passi betur. JAFNFRAMT eru þær lykkjur sem eftir eru prjónaðar áfram eins og áður eru 2 ystu brugðnu lykkjurnar á hvorri hlið við fleyginn prjónaðar saman í 8. hverri umferð 6-6-7-7-8 sinnum, þar til 2 lykkjur brugðnar eru eftir. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 29-31-34-37-41 cm er einungis prjónað yfir neðstu 57-57-61-61-65 lykkjurnar – aðrar lykkjur eru settar á 1 band fyrir ermi. Prjónið 1 cm, setjið 1 prjónamerki (= hægri hlið), prjónið 1 cm til viðbótar. Fitjið nú upp 33-37-37-41-41 nýjar lykkjur yfir þær sem sitja á 1 band fyrir ermi = 90-94-98-102-106 lykkjur. Prjónið síðan mynstur eins og áður. Þegar stykkið mælist 43-47-51-57-63 cm frá prjónamerki í hlið og einungis eru prjónaðar neðstu 57-57-61-61-65 lykkjurnar – setjið þær lykkjur sem eftir eru á 1 band fyrir ermi. Prjónið 1 cm, setjið 1 prjónamerki (= vinstri hlið), prjónið 1 cm til viðbótar. Fitjið síðan upp 37-41-41-45-45 lykkjur yfir lykkjur sem sitja á bandi fyrir ermi = 94-98-102-106-110 lykkjur. Prjónið síðan frá öxl þannig: 1 kantlykkja, 4 lykkjur brugðnar, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðnar *, endurtakið frá *-* yfir 12 lykkjur, M.1 (= 8 lykkjur), * 2 lykkjur brugðnar, 2 lykkjur slétt *, endurtakið frá *-* og endið með 1 kantlykkju. Haldið svona áfram – jafnframt er aukið út fyrir fleyg á öxl með því að prjóna 2 lykkjur í fyrstu og síðustu lykkju brugðna á öxl í 8. hverri umferð 6-6-7-7-8 sinnum (=12-12-14-14-16 lykkjur fleiri) = 102-106-112-116-122 lykkjur. Þegar stykkið mælist 14-16-17-20-22 cm frá prjónamerki á vinstri hlið eru felldar af efstu 12-12-14-14-16 lykkjur brugðnar fyrir hálsmáli = 90-94-98-102-106 lykkjur. Prjónið síðan mynstur – JAFNFRAMT eftir 1 cm er fellt af fyrir 2 hnappagötum efst frá réttu þannig: Prjónið 5 lykkjur, fellið af 2 lykkjur, prjónið 9 lykkjur, fellið af 2 lykkjur, prjónið út umferðina. Í næstu umferð eru fitjaðar upp 2 nýjar lykkjur yfir þær sem felldar voru af. Haldið áfram með mynstur. Fellið af fyrir 2 nýjum hnappagötum alveg eins og þegar stykkið mælist 28-30-33-36-40 cm frá prjónamerki á vinstri hlið. Prjónið 2 cm til viðbótar, fellið af allar lykkjur. HÆGRI ERMI: Setjið lykkjur af bandi yfir ermi á framstykki á hægri hlið á sokkaprjón 4,5. Takið upp 6 lykkjur mitt undir ermi og takið upp 1 lykkju í hverja og eina af lykkjum sem fitjaðar voru upp yfir ermi á bakstykki. Prjónið mynstur eins og áður – sjá LEIÐBEININGAR – með 6 lykkjum brugðnum mitt undir. JAFNFRAMT er lykkjum fækkað til loka fyrir fleyg mitt ofan á ermi og 6 lykkjur brugðnar mitt undir ermi eru fækkaðar í 2 lykkjur brugðnar með því að prjóna 2 lykkjur brugðnar saman í öðrum hverjum cm 4 sinnum = 70-78-78-86-86 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 65-66-66-67-67 cm frá hálsmáli. Fellið af. VINSTRI ERMI: Setjið lykkjur af bandi yfir ermi á bakstykki á vinstri hlið á sokkaprjón 4,5. Takið upp 1 lykkju í hverja og eina af lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi á framstykki og takið upp 6 lykkjur mitt undir ermi. Prjónið eins og hægri ermi. FRÁGANGUR: Saumið niður fleyg á öxlum að bakstykki. Leggið vinstra framstykki yfir hægra – leggið stykkin þannig að þau verði aðeins á ská, ca 3-4 cm frá hálsmáli – saumið tölur í þannig að þær passi við hnappagötin. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 19 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 96-3
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.