Cosy Giggles Jumpsuit#cosygigglesjumpsuit |
|
![]() |
![]() |
Prjónaður galli fyrir börn úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, garðaprjóni og i-cord. Stærð 0 – 4 ára.
DROPS Baby 53-1 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið i-cord þannig: Prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið i-cord þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, lyftið 2 lykkjum af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið. Haldið svona áfram frá réttu og frá röngu. LASKALÍNA: Aukið út 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, það á ekki að myndast gat. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um fyrir miðju undir ermum og innan á skálmum): Fækkið í umferð sem prjónuð er slétt. Prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna, prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt saman og 1 lykkju slétt (= 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka. Fellið síðan af fyrir 7-7-7-7-8-8 næstu hnappagötum með ca 3½-4-4½-5-4½-5 cm á milli hverra hnappagata. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- GALLI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Allur gallinn er prjónaður í garðaprjóni, með 2 lykkjur i-cord í hvorri hlið fyrir miðju að framan. Berustykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður með útaukningu fyrir laskalínu. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna þar til kantlistinn að framan hefur verið prjónaður til loka, á meðan ermarnar bíða. Eftir kantlistann að framan er stykkið sett saman og síðan prjónað í hring í garðaprjóni. Stykkið skiptist fyrir skálmar og hvor skálm er prjónuð í hring. Síðan eru ermarnar prjónaðar niður á við í hring. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 58-58-66-70-78-82 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Air. Prjónið 8 umferðir GARÐAPRJÓN prjónað fram og til baka með 2 lykkjur I-CORD í hvorri hlið – lesið leiðbeiningar að ofan (= 8 umferðir). Setjið 1 merki innan við lista að framan í annarri hlið á stykki (= miðja að framan), stykkið er mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Nú eru sett 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett á milli 2 lykkja, þessar 2 lykkjur eru kallaðar fyrir laskalykkjur og auka á út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar. Teljið 12-12-14-14-16-16 lykkjur (= vinstra framstykki), setjið 1. merki á undan næstu lykkju, teljið 8-8-8-10-10-12 lykkjur (= ermi), setjið 2. merki á undan næstu lykkju, teljið 18-18-22-22-26-26 lykkjur (= bakstykki), setjið 3. merki á undan næstu lykkju, teljið 8-8-8-10-10-12 lykkjur (= ermi), setjið 4. merki á undan næstu lykkju. Það eru 12-12-14-14-16-16 lykkjur eftir á prjóninum fyrir hægra framstykki. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið garðaprjón með i-cord í hvorri hlið fram og til baka og aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við laskalykkjurnar – lesið leiðbeiningar að ofan með útskýringu hvernig auka á út. Munið eftir að fella af fyrir HNAPPAGAT – lesið leiðbeiningar að ofan. Aukið út fyrir laskalínu eins og útskýrt er að neðan, aukið er út hvoru megin við laskalykkjurnar þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar = 8 lykkjur fleiri. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið slétt og prjónið uppsláttinn eins og útskýrt er að ofan. UMFERÐ 3: Prjónið slétt og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar = 8 lykkjur fleiri. UMFERÐ 4: Prjónið slétt og prjónið uppsláttinn eins og útskýrt er að ofan. UMFERÐ 5: Prjónið slétt án útaukninga. UMFERÐ 6: Prjónið slétt án útaukninga. Prjónið UMFERÐ 1 til 6 alls 4-4-5-4-5-4 sinnum (= 24-24-30-24-30-24 umferðir prjónaðar), prjónið síðan umferð 1 og 2 0-1-1-0-0-0 sinnum til viðbótar = 122-130-154-134-158-146 lykkjur í umferð. Munið að fylgja prjónfestunni. Prjónið síðan og aukið út fyrir laskalínu þannig: UMFERÐ 1: Prjónið slétt og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar = 8 lykkjur fleiri. UMFERÐ 2: Prjónið slétt og prjónið uppsláttinn eins og útskýrt er að ofan. UMFERÐ 3: Prjónið slétt og aukið út fyrir laskalínu á framstykkjum og á bakstykki, ekki er aukið út yfir ermar = 4 lykkjur fleiri. UMFERÐ 4: Prjónið slétt og prjónið uppsláttinn eins og útskýrt er að ofan. UMFERÐ 5: Prjónið slétt án útaukninga. UMFERÐ 6: Prjónið slétt án útaukninga. Prjónið UMFERÐ 1 til 6 alls 3-3-2-4-3-5 sinnum (= 18-18-12-24-18-30 umferðir prjónaðar = 3-3-2-4-3-5 sinnum útaukning á ermum og 6-6-4-8-6-10 sinnum útaukning á framstykkjum/bakstykki) = 158-166-178-182-194-206 lykkjur í umferð. Öll útaukning fyrir laskalínu hefur nú verið gerð til loka, aukið hefur verið út 14-15-15-16-16-18 sinnum á framstykkjum/bakstykki og 11-12-13-12-13-13 sinnum á ermum. Stykkið mælist nú ca 11-12-13-13-14-16 cm frá merki fyrir miðju að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 26-27-29-30-32-34 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 30-32-34-34-36-38 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 46-48-52-54-58-62 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 30-32-34-34-36-38 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 26-27-29-30-32-34 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 106-114-122-130-138-146 lykkjur. Prjónið eins og áður þar til stykkið mælist 28-34-36-38-41-44 cm frá merki fyrir miðju að framan. Nú er stykkið sett saman og prjóna á í hring – prjónið frá réttu eins og útskýrt er að neðan: Prjónið eins og áður þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, leggið þessar 6 lykkjur ofan á síðustu 6 lykkjur frá vinstra framstykki og prjónið lykkjurnar saman 2 og 2 (prjónið 1 lykkju frá hægra framstykki saman með 1 lykkju frá vinstra framstykki). Til að garðaprjónið passi þá þarf að prjóna 2 og 2 lykkjur slétt saman 3 sinnum, síðan er prjónað 2 og 2 lykkjur brugðið saman = 100-108-116-124-132-140 lykkjur. Prjónið síðan GARÐAPRJÓN prjónað í hring yfir allar lykkjur – lesið leiðbeiningar að ofan – setjið 1 merki fyrir miðju í 6 lykkjurnar sem prjónaðar voru saman – þetta er núna byrjun umferðar. Prjónið hringinn þar til stykkið mælist 31-37-39-41-44-47 cm frá merki fyrir miðju að framan (það hafa verið prjónaðir 3 cm hringinn yfir allar lykkjur). Nú á að skipta stykkinu fyrir skálmar og hvor skálm er prjónuð áfram hvor fyrir sig. Klippið þráðinn. SKIPTING FYRIR SKÁLMAR: Stykkið skiptist upp fyrir skálmar án þess að lykkjurnar séu prjónaðar: Byrjið 3 lykkjum á undan merki í byrjun umferðar, setjið fyrstu 6 lykkjurnar (= miðja að framan) á lykkjuhaldara, setjið næstu 44-48-52-56-60-64 lykkjur á þráð (= vinstri skálm), setjið næstu 6 lykkjur á lykkjuhaldara (= miðja að aftan), það eru 44-48-52-56-60-64 lykkjur eftir á prjóni fyrir hægri skálm. Hvor skálm er prjónuð áfram hvor fyrir sig. HÆGRI SKÁLM: = 44-48-52-56-60-64 lykkjur. Setjið 1 merki í byrjun umferðar (= að innanverðu á skálm) og prjónið garðaprjón í hring. Þegar prjónuð hefur verið 1 umferð, fækkið um 2 lykkjur að innanverðu á skálminni – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 3. hverri umferð alls 3 sinnum = 38-42-46-50-54-58 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til skálmin mælist 15-18-25-33-38-42 cm frá skiptingunni. Fellið af. Brjótið uppá neðstu 4-4-5-5-6-6 cm. VINSTRI SKÁLM: Prjónið á sama hátt og hægri skálm. ERMAR: Setjið 30-32-34-34-36-38 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á sokkaprjóna 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 4-6-6-8-8-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 34-38-40-42-44-46 lykkjur. Setjið 1 merki fyrir miðju í 4-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkið. Prjónið garðaprjón í hring - JAFNFRAMT þegar prjónuð hefur verið 1 umferð eftir skiptinguna, fækkið um 2 lykkjur fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 3 cm = 30-34-36-38-40-42 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist ca 15-18-21-26-30-32 cm frá skiptingunni. Fellið af. Brjótið uppá neðstu 4-4-5-5-6-6 cm. FRÁGANGUR: Saumið saman 6 lykkjur frá lykkjuhaldara við miðju að framan með 6 lykkjum frá lykkjuhaldara við miðju að aftan – saumið með lykkjuspori, svo saumurinn verði ekki þykkur. Saumið tölur í vinstra framstykki. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #cosygigglesjumpsuit eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 16 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 53-1
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.