Ida Droog skrifaði:
Patronen lopen tegenwoordig van boven naar beneden gebreid, en dat kan ik niet. zijn er ook nog patronen die van onderaf beginnen groetjes ida.
16.11.2026 - 15:00DROPS Design svaraði:
Dag Ida,
De wat oudere patronen zijn vaak van onder naar boven, dus als je wat verder scrolt door de pagina's zul je die patronen vinden.
22.11.2026 - 21:07
Michaela skrifaði:
Die vordere Mitte wäre bei Größe S doch nach 45 Maschen?
20.10.2026 - 20:13DROPS Design svaraði:
Liebe Michaela, die Runden beginnen mit der rechten Schulter, so diese Maschen + die Hälfe der Maschen für das Vorderteil = ca 25 Maschen in S, die restlichen Maschen nach diesem Markierer sind 2. Hälfte von Vorderteil + 2. Ärmel/Schulter + alle Maschen für Rückenteil. Viel Spaß beim Stricken!
21.10.2026 - 10:21
Michaela skrifaði:
Darf ich Folgendes fragen, Sie schreiben: „Der Rundenbeginn ist an der rechten Schulter hinten. 1 Markierer nach den ersten 19-20-20-20-21-22-23 Maschen der Runde anbringen (= ca. vordere Mitte), die Arbeit wird nun ab diesem Markierer gemessen.“ IST DAS DANN NICHT DIE HINTERE MITTE? VG Michaela
20.10.2026 - 20:05DROPS Design svaraði:
Liebe Michaela, richtig, die Runden beginnen vor der rechten Schulter aber die Arbeit wird ab Markierung gemessen, die Markierung wird an der vordere Mitte eingesetzt. Viel Spaß beim Stricken!
21.10.2026 - 10:19
Gianfranca skrifaði:
Per favore, vorrei realizzare il modello, taglia XXL con ferri 3,5/4, potreste aiutarmi? Grazie, Gianfranca
19.10.2026 - 07:36DROPS Design svaraði:
Buonasera Gianfranca, il modello è stato progettato per essere lavorato con la tensione riportata e non è possibile andare incontro alle singole esigenze. Buon lavoro!
20.10.2026 - 00:57
Hazy Morning Sweater#hazymorningsweater |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð oversize / stór peysa úr 1 þræði DROPS Snow eða 2 þráðum DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, áferðamynstri og rúllukanti. Stærð XS - XXXL.
DROPS 272-32 |
||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- UPPHÆKKUN (aftan í hnakka): Til að peysan verði aðeins hærri aftan í hnakka þegar berustykkið er prjónað, er hægt að prjóna upphækkun eins og útskýrt er að neðan. Hoppaðu yfir þennan kafla ef þú vilt ekki hafa upphækkun. Byrjið frá réttu og prjónið slétt þar til 7-8-8-8-10-10-11 lykkjur eru eftir á undan merki fyrir miðju að framan, snúið stykkinu – lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN-1 og prjónið brugðið þar til 7-8-8-8-10-10-11 lykkjur eru eftir á undan merki fyrir miðju að framan í hinni hliðinni. * Snúið stykkinu og prjónið slétt þar til 14-14-14-14-15-16-16 lykkjur eru eftir á undan þar sem snúið við síðast, snúið stykkinu og prjónið brugðið þar til 14-14-14-14-15-16-16 lykkjur eru eftir á undan þar sem snúið við síðast á hinni hliðinni *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar. Snúið stykkinu og prjónið sléttar lykkjur að byrjun umferðar við hægri öxl að aftan. Prjónið síðan berustykkið í hring eins og útskýrt er í uppskriftinni. LEIÐBEININGAR PRJÓN: Þegar prjónaðar eru stuttar umferðir myndast lítið gat þegar stykkinu er snúið við – hægt er að loka þessu gati með því að herða á þræði eða nota aðferðina German Short Rows þannig: Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið. Leggið síðan þráðinn yfir hægri prjón og herðið vel á þræði á bakhlið (þannig verða til tvær lykkjur á prjóninum). Þessar lykkjur eru prjónaðar saman í næstu umferð. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 58 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 12) = 4,8. Í þessu dæmi er aukið út í ca 5. hverja lykkju – aukið út þannig: Þessi samhverfa útaukning býr til 1 nýja lykkju. Fylgdu leiðbeiningum 1 - 4 að neðan: 1. Haldið þræðinum sem prjónað er með aftan við stykkið. Lyftið fyrstu lykkju á vinstri prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið. 2. Stingið vinstri prjóni aftan við lyftu lykkjuna og inn á milli lyftu lykkjunnar og næstu lykkju á hægri prjóni. 3. Sláið 1 sinni uppá prjóninn með þræðinum sem prjónað er með og dragið uppsláttinn í gegnum lykkjuna þannig að það myndast 1 ný lykkja á hægri prjóni. 4. Sleppið fremri lykkjuboganum af vinstri prjóni og prjónið síðan 1 lykkju slétt í fremri hlutann á hinum lykkjuboganum. Nú hefur þú aukið út um 1 lykkju. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: Þegar lykkjur eru auknar jafnt út í skiptingunni yfir í stroff, þá verður útaukningin jafnari ef aukið er út þar sem lykkjurnar verða síðan prjónaðar brugðið, sléttprjónuðu lykkjurnar koma þá til með að halda fallega áfram yfir í stroffið. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: FÆKKIÐ LYKKJUM Á EFTIR MERKIÞRÆÐI ÞANNIG: Prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna (= 1 lykkja færri). FÆKKIÐ LYKKJUM Á UNDAN MERKIÞRÆÐI ÞANNIG: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt (= 1 lykkja færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður með útaukningu fyrir hringlaga berustykki. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 58-60-60-62-64-66-70 lykkjur á hringprjón 8 með 1 þræði DROPS Snow eða 2 þráðum DROPS Air. Skiptið yfir á hringprjón 6 og prjónið 3 umferðir sléttprjón (= rúllukantur). Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið) í 4-4-4-4½-4½-5-5 cm (án rúllukants). Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 19-20-20-20-21-22-23 lykkjur í umferð (= ca fyrir miðju að framan), stykkið er mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 8 og prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem aukið er út um 12-14-14-16-16-18-18 lykkjur jafnt yfir – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1= 70-74-74-78-80-84-88 lykkjur (merki fyrir miðju að framan á að sitja á eftir fyrstu 23-25-25-26-27-28-29 lykkjum í umferð). Nú er hægt að prjóna UPPHÆKKUN aftan í hnakka – lestu útskýringu að ofan. Þegar upphækkunin hefur verið prjónuð til loka, prjónið berustykkið áfram eins og útskýrt er að neðan. Ef þú vilt ekki hafa upphækkun, prjónaðu áfram eins og útskýrt er að neðan. Prjónið sléttprjón. Munið að fylgja prjónfestunni. Þegar berustykkið mælist 3-3-4-4-6-6-6 cm frá merki fyrir miðju að framan, aukið út 14-14-16-16-18-18-18 lykkjur jafnt yfir – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1= 84-88-90-94-98-102-106 lykkjur. Þegar berustykkið mælist 4-4-5-5-7-7-7 cm frá merki fyrir miðju að framan, prjónið MYNSTUR – lesið leiðbeiningar að ofan og prjónið A.1 berustykkið hringinn. Jafnframt í hverri umferð merktri með ör í A.1 á að auka út lykkjur jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: Ör-1: Aukið út um 20-22-24-26-28-32-34 lykkjur jafnt yfir = 104-110-114-120-126-134-140 lykkjur. Ör-2: Aukið út um 36-38-42-44-46-48-48 lykkjur jafnt yfir = 140-148-156-164-172-182-188 lykkjur. Ör-3: Aukið út um 12-12-16-16-20-22-24 lykkjur jafnt yfir = 152-160-172-180-192-204-212 lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, mælist berustykkið ca 18-18-19-21-23-25-25 cm frá merki í miðju framhliðar. Síðan prjónið sléttprjón JAFNFRAMT sem aukið er út um 8-8-12-12-16-16-16 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 = 160-168-184-192-208-220-228 lykkjur. Þegar berustykkið mælist 21-22-23-24-26-28-29 cm frá merki í miðju framhliðar, skiptist stykkið í fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Setjið fyrstu 30-30-34-36-38-40-40 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 50-54-58-60-66-70-74 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 30-30-34-36-38-40-40 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 50-54-58-60-66-70-74 lykkjur sléttprjón (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 112-124-132-140-152-164-176 lykkjur. Setjið 1 merki í aðra hliðina á stykkinu (= fyrir miðju í 6-8-8-10-10-12-14 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi). Prjónið fram að merki, umferðin byrjar hér og prjónað er í hring. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 49-51-53-55-57-57-59 cm frá merki fyrir miðju að framan. Skiptið yfir á hringprjón 6 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 26-28-30-34-36-40-42 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 138-152-162-174-188-204-218 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3-3-3-3-3-4-4 cm, prjónið 1 umferð slétt. Síðan er fellt af aðeins laus með sléttum lykkjum. Peysan mælist 53-55-57-59-61-62-64 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 58-60-62-64-66-68-70 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 30-30-34-36-38-40-40 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 8 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-8-8-10-10-12-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 36-38-42-46-48-52-54 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 6-8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn - JAFNFRAMT þegar prjónuð hefur verið 1 umferð eftir skiptinguna, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig (þ.e.a.s. í hverri úrtökuumferð er fækkað um 1 lykkju til skiptis á undan og á eftir merkiþræði): Fækkið um 1 lykkju í annarri hverri umferð 2-4-4-4-4-4-4 sinnum, fækkið síðan um 1 lykkju í hverjum 2-2-2-1½-1½-1½-1½ cm 2-2-4-8-8-12-12 sinnum = 32-32-34-34-36-36-38 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 41-40-40-40-38-37-36 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 6 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 6-6-6-6-6-6-8 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 = 38-38-40-40-42-42-46 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3-3-3-3-3-4-4 cm, prjónið 3 umferðir í sléttprjóni (= rúllukantur). Fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum. Ermin mælist ca 45-44-44-44-42-42-41 cm frá skiptingunni. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #hazymorningsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 23 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 272-32
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.