Hazy Morning Cardigan#hazymorningcardigan |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð oversize / stór peysa úr 1 þræði DROPS Snow eða 2 þráðum DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, áferðamynstri, rúllukanti og i-cord. Stærð XS - XXXL.
DROPS 272-31 |
||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig (= 7 lykkjur): Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykki og prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 4 lykkjur í GARÐAPRJÓN – lesið leiðbeiningar að ofan. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig (= 7 lykkjur): Prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 4 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. UPPHÆKKUN: Til að peysan verði aðeins hærri aftan í hnakka þegar berustykkið er prjónað, er hægt að prjóna upphækkun eins og útskýrt er að neðan. Hoppaðu yfir þennan kafla ef þú vilt ekki hafa upphækkun. Notið e.t.v. aðferðina German Short Rows til að snúa við – lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN-1. Setjið 1 merki í miðjulykkju í umferð (= miðja að aftan. Byrjið frá réttu og prjónið kant að framan og sléttprjón þar til prjónaðar hafa verið 14-14-14-14-15-15-17 lykkjur fram hjá merki, snúið, herðið á þræði og prjónið 28-28-28-28-30-30-34 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 42-42-42-42-45-45-51 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 56-56-56-56-60-60-68 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið slétt þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið kant að framan eins og áður, snúið, herðið á þræði og prjónið 1 umferð brugðið (kantar að framan eru prjónaðar eins og áður). Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er í mynstri. LEIÐBEININGAR PRJÓN: Þegar prjónaðar eru stuttar umferðir myndast lítið gat þegar stykkinu er snúið við – hægt er að loka þessu gati með því að herða á þræði eða nota aðferðina German Short Rows þannig: Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið. Leggið síðan þráðinn yfir hægri prjón og herðið vel á þræði á bakhlið (þannig verða til tvær lykkjur á prjóninum). Þessar lykkjur eru prjónaðar saman í næstu umferð. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka. Fellið síðan af fyrir 5-5-6-6-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 9½-10-8½-9-9-9½-9½ cm á milli hverra hnappagata. Neðsta hnappagatið er staðsett í skiptingunni á milli sléttprjóns og stroffs á framstykki. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 71 lykkjur), mínus 10 lykkjur í hvorri hlið sem ekki á að auka út yfir (= 20 lykkjur) og deilið þeim 51 lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 12) = 4,3. Í þessu dæmi er aukið út í ca 4. hverja lykkju (lykkjur eru ekki auknar út yfir ystu 10 lykkjur í hvorri hlið) – aukið út þannig: Þessi samhverfa útaukning býr til 1 nýja lykkju. Fylgdu leiðbeiningum 1 - 4 að neðan: 1. Haldið þræðinum sem prjónað er með aftan við stykkið. Lyftið fyrstu lykkju á vinstri prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið. 2. Stingið vinstri prjóni aftan við lyftu lykkjuna og inn á milli lyftu lykkjunnar og næstu lykkju á hægri prjóni. 3. Sláið 1 sinni uppá prjóninn með þræðinum sem prjónað er með og dragið uppsláttinn í gegnum lykkjuna þannig að það myndast 1 ný lykkja á hægri prjóni. 4. Sleppið fremri lykkjuboganum af vinstri prjóni og prjónið síðan 1 lykkju slétt í fremri hlutann á hinum lykkjuboganum. Nú hefur þú aukið út um 1 lykkju. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: Þegar lykkjur eru auknar jafnt út í skiptingunni yfir í stroff, þá verður útaukningin jafnari ef aukið er út þar sem lykkjurnar verða síðan prjónaðar brugðið, sléttprjónuðu lykkjurnar koma þá til með að halda fallega áfram yfir í stroffið. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: FÆKKIÐ LYKKJUM Á EFTIR MERKIÞRÆÐI ÞANNIG: Prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna (= 1 lykkja færri). FÆKKIÐ LYKKJUM Á UNDAN MERKIÞRÆÐI ÞANNIG: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt (= 1 lykkja færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður með útaukningu fyrir hringlaga berustykki. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 71-73-75-75-77-79-85 lykkjur á hringprjón 8 með 1 þræði DROPS Snow eða 2 þráðum DROPS Air. Skiptið yfir á hringprjón 6 og prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið 7 kantlykkjur að framan með I-CORD – lesið leiðbeiningar að ofan, prjónið brugðið þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 7 kantlykkjur að framan með i-cord. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið 7 kantlykkjur að framan með i-cord, prjónið slétt þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 7 kantlykkjur að framan með i-cord. UMFERÐ 3 (= ranga): Prjónið 7 kantlykkjur að framan með i-cord, prjónið brugðið þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 7 kantlykkjur að framan með i-cord (= rúllukantur). UMFERÐ 4 (= rétta): Prjónið 7 kantlykkjur að framan með i-cord, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið) þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 7 kantlykkjur að framan með i-cord. UMFERÐ 5 (= ranga): Prjónið 7 kantlykkjur að framan með i-cord, prjónið stroff (= 1 lykkja brugðið og 1 lykkja slétt) þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 7 kantlykkjur að framan með i-cord. Prjónið síðan UMFERÐ 4 og 5 þar til stroffið mælist 4-4-4-4½-4½-5-5 cm eftir rúllukantinn. Setjið 1 merki innan við kant að framan í annarri hliðinni á stykki (= fyrir miðju að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 8 og prjónið fyrstu umferð frá réttu með byrjun frá miðju að framan þannig: Prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður, 3 lykkjur sléttprjón, prjónið 51-53-55-55-57-59-65 lykkjur sléttprjón jafnframt sem aukið er út um 12-12-14-14-16-16-18 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1, prjónið 3 lykkjur sléttprjón og 7 kantlykkjur að framan eins og áður – munið eftir HNAPPAGAT – lesið leiðbeiningar að ofan = 83-85-89-89-93-95-103 lykkjur í umferð. Nú er hægt að prjóna UPPHÆKKUN aftan í hnakka – lestu útskýringu að ofan. Þegar upphækkunin hefur verið prjónuð til loka, prjónið berustykkið áfram eins og útskýrt er að neðan. Ef þú vilt ekki hafa upphækkun, prjónaðu áfram eins og útskýrt er að neðan. Prjónið sléttprjón með 7 kantlykkjum að framan í hvorri hlið eins og áður. Munið að fylgja prjónfestunni. Þegar berustykkið mælist 3-3-4-4-6-6-6 cm frá merki, aukið út 12-12-14-16-16-18-18 lykkjur jafnt yfir – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1= 95-97-103-105-109-113-121 lykkjur. Þegar berustykkið mælist 4-4-5-5-7-7-7 cm frá merki, prjónið MYNSTUR – lesið leiðbeiningar að ofan og prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið A.1 þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið A.2 og 7 kantlykkjur að framan eins og áður. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. JAFNFRAMT sem í hverri umferð merktri með ör í A.1 á að auka út lykkjur jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 (lykkjur eru ekki auknar út yfir ystu 10 lykkjur í hvorri hlið): Ör-1: Aukið út um 20-20-24-26-28-32-32 lykkjur jafnt yfir = 115-117-127-131-137-145-153 lykkjur. Ör-2: Aukið út um 36-36-38-42-44-46-46 lykkjur jafnt yfir = 151-153-165-173-181-191-199 lykkjur. Ör-3: Aukið út um 12-12-14-16-20-22-22 lykkjur jafnt yfir = 163-165-179-189-201-213-221 lykkjur. Þegar A.1 og A.2 hefur verið prjónað til loka, mælist berustykkið ca 18-18-19-21-23-25-25 cm frá merki. Síðan prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður JAFNFRAMT sem aukið er út um 8-10-12-14-14-18-18 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 = 171-175-191-203-215-231-239 lykkjur. Þegar berustykkið mælist 21-22-23-24-26-28-29 cm frá merki fyrir miðju að framan, skiptist stykkið í fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður og 24-25-27-29-31-34-36 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 30-30-34-36-38-40-40 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 49-51-55-59-63-69-73 lykkjur sléttprjón (= bakstykki), setjið næstu 30-30-34-36-38-40-40 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið 24-25-27-29-31-34-36 lykkjur sléttprjón og 7 kantlykkjur að framan eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 123-131-139-151-159-175-187 lykkjur. Prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður þar til stykkið mælist 47-49-51-53-55-56-57 cm frá merki fyrir miðju að framan. Í næstu umferð frá réttu byrjar stroff JAFNFRAMT sem aukið er út um 28-28-30-32-36-38-42 lykkjur jafnt yfir í umferð – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 (lykkjur eru ekki auknar út yfir kanta að framan) = 151-159-169-183-195-213-229 lykkjur, prjónið þannig: Skiptið yfir á hringprjón 6 og prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið – munið eftir útaukningunni) þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og kant að framan eins og áður. Þegar stroffið mælist ca 3-3-3-3-3-4-4 cm og næsta umferð er prjónuð frá röngu, prjónið 1 umferð brugðið frá röngu yfir allar lykkjur. Fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum frá réttu. Peysan mælist 51-53-55-57-59-61-62 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 56-58-60-62-64-66-68 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 30-30-34-36-38-40-40 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 8 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-8-8-10-10-12-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 36-38-42-46-48-52-54 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 6-8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn - JAFNFRAMT þegar prjónuð hefur verið 1 umferð eftir skiptinguna, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig (þ.e.a.s. í hverri úrtökuumferð er fækkað um 1 lykkju til skiptis á undan og á eftir merkiþræði): Fækkið um 1 lykkju í annarri hverri umferð 2-4-4-4-4-4-4 sinnum, fækkið síðan um 1 lykkju í hverjum 2-2-2-1½-1½-1½-1½ cm 2-2-4-8-8-12-12 sinnum = 32-32-34-34-36-36-38 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 41-40-40-40-39-36-36 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 6 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 6-6-6-6-6-6-8 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 = 38-38-40-40-42-42-46 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3-3-3-3-3-4-4 cm, prjónið 3 umferðir í sléttprjóni (= rúllukantur). Fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum. Ermin mælist ca 45-44-44-44-43-41-41 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #hazymorningcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 272-31
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.