Veronika skrifaði:
What exactly is meant by „halbpatent“? The directions are a little confusing and when trying to look it up on YouTube, the videos seem to show a different technique. In the videos section, there’s only one for „vollpatent“. Thank you in advance.
22.10.2026 - 18:28DROPS Design svaraði:
Dear Veronika, there are several options to knit a Halbpatent (False English Rib). You can find videos under Tips & Help => Knitting Videos => Textures => English rib. The one shown in the pattern for the headscarf is the "Shaker Rib" (Halbpatent mit tiefergestochenen Maschen). Happy knitting!
22.10.2026 - 21:54
VU skrifaði:
Pourriez vous m'indiquer en vidéo comment faire 4 diminutions sur la maille centrale dans ce modèle svp
22.10.2026 - 07:51DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Vu, nous n'avons pas encore de vidéo pour cette diminution, vous allez glisser 2 mailles (les 2 avant la maille centrale) sur l'aiguille droite sans les tricoter (et sans les vriller), puis vous allez mettre la maille centrale sur l'aiguille à torsades devant l'ouvrage, vous remettez ensuite les 2 maille sur l'aiguille gauche et vous tricotez ces 2 m + les 2 suivantes sur l'aiguille gauche ensemble torse à l'endroit (4 m ensemble torse à l'endroit = on a diminué 3 m), vous remettez la maille de l'aiguille à torsades sur l'aiguille gauche, vous passez la maille de l'aiguille droite (la diminution que vous venez de faire) sur l'aiguille gauche et vous tricotez les 2 premières mailles sur l'aiguille gauche ensemble à l'endroit. Vous avez diminué 4 mailles. Bon tricot!
23.10.2026 - 06:04
Elisa skrifaði:
After the increases my piece measures 24 cm without the ties. The pattern calls for 12-14-16 cm. I feel like 22-24-26 might be correct. Also because you approx. have to add 12-14-16 cm to get to a total length of 36 cm. That doesn't add up
07.10.2026 - 11:43DROPS Design svaraði:
Dear Elisa, the increase part (after I-cord tie) should be approximately 12-14-16 cm as you will have to increase 7-8-9 times every 8th row = 49-57-65 rows and with a tension of 40 rows for 10 cm = approx. 14-14-16 cm from the first row with increase - then work until piece measures 36 cm from beg (without ties) and start decreasing = 36 rows = approx. 12-14-16 cm. Piece is now 36+12-14-16=48-50-52 cm. Can this help? Happy knitting!
07.10.2026 - 17:31
Olive Ridge Bonnet#oliveridgebonnet |
|
![]() |
![]() |
Prjónaður klútur / skupla / hetta úr DROPS Daisy og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað fram og til baka í hálfu klukkuprjóni og i-cord.
DROPS 270-24 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- 2 KANTLYKKJUR I-CORD (í hvorri hlið á stykki): Í BYRJUN UMFERÐAR: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykki og prjónið 1 lykkju slétt. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykki, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. KLUKKUPRJÓN (prjónað fram og til baka): UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið slétt. UMFERÐ 2 (= rétta): * Prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið 1 lykkju slétt í lykkjuna fyrir neðan næstu lykkju *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir og prjónið 1 lykkju brugðið. Endurtakið síðan UMFERÐ 1 og 2. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Öll útaukning er gerð frá réttu. Aukið er út um 1 lykkju (= miðjulykkja): Prjónið 1 lykkju í lykkjuna fyrir neðan miðjulykkju, sláið 1 sinni uppá hægri prjón, prjónið 1 lykkju slétt í sömu lykkju, sláið 1 sinni uppá hægri prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt í sömu lykkju (= 4 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt. Prjónið síðan útauknar lykkjur inn í hálfa klukkuprjónið (þ.e.a.s. að prjónað er þannig: 1 lykkja slétt í lykkjuna fyrir neðan, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt í lykkjuna fyrir neðan, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt í lykkjuna fyrir neðan). Setjið eitt merki í miðjulykkju og látið merkið fylgja áfram með upp úr. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Öll úrtaka er gerð frá réttu. Fækkið 5 lykkjur í 1 lykkju. Öll úrtaka er gerð frá réttu þannig: Prjónið fram að 2 lykkjum á undan miðjulykkju. Lyftið fyrstu 2 lykkjum á vinstri prjóni yfir á hægri prjón, setjið miðjulykkjuna á hjálparprjón framan við stykkið – mikilvægt – miðjulykkjunni er lyft af í lykkjuna fyrir neðan (miðjulykkja = 1 lykkja og 1 lykkja). Lyftið til baka 2 ystu lykkjunum á hægri prjóni yfir á vinstri prjón og prjónið 4 lykkjur snúnar slétt saman (lykkjan á hjálparprjóni hvílir á prjóni). Lyftið miðjulykkjunni af hjálparprjóni yfir á vinstri prjón, setjið ystu lykkjuna á hægri prjón til baka á vinstri prjón, prjónið 2 lykkjur slétt saman = miðjulykkjan liggur efst eins og bein lína = 4 lykkjur færri. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- KLÚTUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. Fyrst er prjónað snúruband í annarri hlið á stykki, síðan er aukið út þar til breidd á klút hefur verið náð, það er prjónuð miðjueining áður en lykkjum er fækkað í annarri hliðinni og í lokin er prjónað snúruband í hinni hliðinni á stykki. SNÚRUBAND-1: Fitjið upp 7 lykkjur á hringprjón 4,5 með 1 þræði DROPS Daisy og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu, prjónið þannig: Prjónið 2 KANTLYKKJUR I-CORD – lesið leiðbeiningar að ofan, prjónið HÁLFT KLUKKUPRJÓN og 2 kantlykkjur i-cord. Prjónið fram og til baka svona þar til snúrubandið mælist ca 38-40-42 cm – endið eftir umferð frá röngu. ÚTAUKNING: Héðan er stykkið mælt frá. Nú er prjónað frá réttu þannig: Prjónið kantlykkjur og hálft klukkuprjón eins og áður, en í miðju lykkju er aukið út um 4 lykkjur – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING í útskýringu að ofan. Endurtakið útaukningu í 8. hverri umferð (þ.e.a.s. í 4. hverri umferð frá réttu) alls 7-8-9 sinnum = 35-39-43 lykkjur í umferð. Munið að fylgja prjónfestunni. Stykkið mælist ca 12-14-16 cm (án snúrubands). MIÐJUEINING: Prjónið eins og áður án útaukninga þar til stykkið mælist ca 36-36-36 cm og það eru eftir ca 12-14-16 cm að loka máli (án snúru) – stillið af að næsta umferð sé frá réttu. ÚRTAKA: Prjónið kantlykkjur og hálft klukkuprjón eins og áður og fækkið um 4 lykkjur yfir miðju 5 lykkjur – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA í útskýringu að ofan. Endurtakið úrtöku í 8. hverri umferð (þ.e.a.s. í 4. hverri umferð frá réttu) alls 8 sinnum = 7 lykkjur. Stykkið mælist ca 48-50-52 cm (án snúrubands) – stillið af eftir umferð frá réttu. SNÚRUBAND-2: = 7 lykkjur. Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu, prjónið þannig: Prjónið 2 kantlykkjur i-cord, prjónið hálft klukkuprjón og 2 kantlykkjur i-cord. Prjónið fram og til baka svona þar til snúrubandið mælist ca 38-40-42 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #oliveridgebonnet eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 9 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 270-24
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.