Daisy Kiss Top#daisykisstop |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónaður toppur úr DROPS Belle. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með kanti í gatamynstri. Stærð XS - XXXL.
DROPS 267-30 |
||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- 2 LYKKJUR MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kantlykkjur þannig (= 2 lykkjur): Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kantlykkjur þannig (= 2 lykkjur): Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Takið vel eftir að lykkjufjöldinn í A.1 og A.2 er breytilegur um 1 lykkju þar sem það er útaukning og úrtaka í mynstrinu. Allur lykkjufjöldinn í mynstri er byggður á fjölda lykkja sem stendur fyrir neðan hverja mynsturteikningu. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Aukið út 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn frá réttu. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN MERKI: Prjónið uppsláttinn brugðið í aftari lykkjufjöldann – svo ekki myndist gat. Prjónið nýjar lykkjur í sléttprjóni. Á EFTIR MERKI: Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið uppsláttinn til baka yfir á vinstri prjón í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn brugðið í fremri lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið nýjar lykkjur í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fyrst eru prjónuð tvö bönd/hlýrar, síðan eru lykkjur fitjaðar upp fyrir hálsmál fyrir miðju að framan á milli banda/hlýra. Síðan er framstykkið prjónað fram og til baka niður að handvegi. Bakstykkið er prjónað fram og til baka niður að handvegi. Framstykkið og bakstykkið hafa sömu lengd niður að handvegi. Síðan eru stykkin sett saman fyrir fram- og bakstykki. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við og í hring á hringprjóna. Í lokin eru böndin saumuð niður við bakstykkið. HÆGRA BAND/HLÝRI: Fitjið upp 12-12-12-14-14-16-16 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Belle. Prjónið þannig: 2 KANTLYKKJUR I-CORD – lesið leiðbeiningar að ofan, A.1, 2 kantlykkjur i-cord. Haldið svona áfram fram og til baka þar til bandið/hlýrinn mælist 10-10-10-10-10-12-12 cm – endið eftir umferð frá réttu. Klippið þráðinn og setjið lykkjurnar á þráð eða á lykkjuhaldara. VINSTRA BAND/HLÝRI: Fitjið upp 12-12-12-14-14-16-16 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Belle. Prjónið þannig: 2 kantlykkjur i-cord, A.1, 2 kantlykkjur i-cord. Haldið svona áfram fram og til baka þar til bandið/hlýrinn mælist 10-10-10-10-10-12-12 cm – endið eftir umferð frá röngu (stillið af að þetta sé umferð eftir umferð þar sem hægra bandið/hlýrinn endaði á, þannig að mynstrið passi þegar stykkin eru sett saman), jafnframt í lok síðustu umferðar frá röngu eru síðustu 2 lykkjurnar í umferð prjónaðar brugðið saman (= 1 lykkja færri) = 11-11-11-13-13-15-15 lykkjur á bandi/hlýra, ekki klippa þráðinn, heldur fitjið upp 30-34-38-38-42-46-50 lykkjur aðeins fast í lok þessarar umferðar fyrir hálsmáli, síðan er prjónað frá röngu yfir 12-12-12-14-14-16-16 lykkjur frá hægra bandi/hlýra þannig: Prjónið 2 lykkjur brugðið saman (= 1 lykkja færri), A.1, 2 kantlykkjur i-cord = 52-56-60-64-68-76-80 lykkjur. Prjónið síðan framstykkið eins og útskýrt er að neðan. FRAMSTYKKI: Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 2 kantlykkjur i-cord, A.1 (stillið af að mynstrið haldi rétt áfram yfir lykkjur frá bandi/hlýra), 1 lykkja slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 13-13-13-15-15-17-17 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt, A.1 og 2 kantlykkjur i-cord. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 2 kantlykkjur i-cord, A.1, 1 lykkja brugðið, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 13-13-13-15-15-17-17 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið, A.1 og 2 kantlykkjur i-cord. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stroffprjónið mælist 2-3-3-2-2-2-3 cm – endið með umferð frá röngu. Munið að fylgja prjónfestunni. Prjónið síðan þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): 2 kantlykkjur i-cord, A.1, 1 lykkja slétt, setjið 1 merki hér, aukið út 1 lykkju – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING, prjónið slétt yfir næstu 30-34-38-38-42-46-50 lykkjur, aukið út 1 lykkju, setjið 1 merki á undan næstu lykkju, prjónið 1 lykkju slétt, A.1 og 2 kantlykkjur i-cord (= 2 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2 (= ranga): 2 kantlykkjur i-cord, A.1, 1 lykkja brugðið, prjónið brugðið fram að merki (munið eftir að uppslátturinn er prjónaður snúinn í sitt hvora áttina eins og útskýrt er í LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING), prjónið 1 lykkju brugðið, A.1 og 2 kantlykkjur i-cord. UMFERÐ 3 (= rétta): 2 kantlykkjur i-cord, A.1, 1 lykkja slétt, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju, prjónið slétt fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 1 lykkju slétt, A.1 og 2 kantlykkjur i-cord (= 2 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4 (= ranga): 2 kantlykkjur i-cord, A.2, 1 lykkja brugðið, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið brugðið fram að næsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 1 lykkju brugðið, A.1 og 2 kantlykkjur i-cord. Prjónið UMFERÐ 3 og 4 alls 11-11-13-16-17-17-19 sinnum (= 22-22-26-32-34-34-38 umferðir prjónaðar). Nú hefur verið aukið út alls 12-12-14-17-18-18-20 sinnum í hvorri hlið = 76-80-88-98-104-112-120 lykkjur í umferð. Prjónið síðan án þess að auka út þar til stykkið mælist 11-12-13-14-15-15-17 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan – síðasta umferðin er frá röngu. Klippið þráðinn og setjið lykkjurnar á þráð eða á hjálparprjón. Prjónið bakstykkið eins og útskýrt er að neðan. BAKSTYKKI: Fitjið upp 52-56-60-64-68-76-80 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Belle. Prjónið frá röngu þannig: 2 kantlykkjur i-cord, A.1 (byrjið í sömu umferð í mynsturteikningu sem var prjónuð þegar bönd/hlýrar var sett saman við framstykki), 1 lykkja brugðið, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til eftir eru 13-13-13-15-15-17-17 lykkjur, prjónið 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið, A.1 og 2 kantlykkjur i-cord. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stroffprjónið mælist 2-3-3-2-2-2-3 cm – endið með umferð frá röngu. Prjónið síðan þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): 2 kantlykkjur i-cord, A.1, 1 lykkja slétt, setjið 1 merki hér, aukið út 1 lykkju – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING, prjónið slétt yfir næstu 30-34-38-38-42-46-50 lykkjur, aukið út 1 lykkju, setjið 1 merki á undan næstu lykkju, prjónið 1 lykkju slétt, A.1 og 2 kantlykkjur i-cord (= 2 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2 (= ranga): 2 kantlykkjur i-cord, A.1, 1 lykkja brugðið, prjónið brugðið fram að merki (munið eftir að uppslátturinn er prjónaður snúinn í sitt hvora áttina eins og útskýrt er í LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING), prjónið 1 lykkju brugðið, A.1 og 2 kantlykkjur i-cord. UMFERÐ 3 (= rétta): 2 kantlykkjur i-cord, A.1, 1 lykkja slétt, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju, prjónið slétt fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 1 lykkju slétt, A.1 og 2 kantlykkjur i-cord (= 2 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4 (= ranga): 2 kantlykkjur i-cord, A.2, 1 lykkja brugðið, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið brugðið fram að næsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 1 lykkju brugðið, A.1 og 2 kantlykkjur i-cord. Prjónið UMFERÐ 3 og 4 alls 11-11-13-16-17-17-19 sinnum (= 22-22-26-32-34-34-38 umferðir prjónaðar). Aukið hefur verið út alls 12-12-14-17-18-18-20 sinnum í hvorri hlið = 76-80-88-98-104-112-120 lykkjur í umferð. Prjónið síðan án þess að auka út þar til stykkið mælist 11-12-13-14-15-15-17 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að aftan – síðasta umferðin er frá röngu. Nú er bakstykkið og framstykkið sett saman fyrir fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið fyrstu 2 lykkjurnar frá bakstykki (= 2 kantlykkjur) slétt saman, prjónið eins og áður yfir næstu 72-76-84-94-100-108-116 lykkjur frá bakstykki, prjónið síðustu 2 lykkjur (= 2 kantlykkjur) snúnar slétt saman (= nú hefur fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið á bakstykki), fitjið upp 6-10-10-10-14-18-22 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir handveg), prjónið fyrstu 2 lykkjur frá framstykki (= 2 kantlykkjur), slétt saman, prjónið eins og áður yfir næstu 72-76-84-94-100-108-116 lykkjur frá framstykki án þess að auka út, prjónið síðustu 2 lykkjur (= 2 kantlykkjur) snúnar slétt saman (= nú hefur verið fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið á framstykki), fitjið upp 6-10-10-10-14-18-22 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir handveg) = 160-176-192-212-232-256-280 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið á fram- og bakstykki – fyrir miðju í 6-10-10-10-14-18-22 lykkjur sem fitjaðar voru upp í hlið undir hvorum handveg. Látið merkiþræðina fylgja áfram með í stykkinu, merkiþræðirnir eru notaðir þegar fækka á lykkjum í hliðum á fram- og bakstykki. Prjónið þannig: 2 kantlykkjur, setjið 1 merki á undan næstu lykkju (síðan byrjar umferðin við þetta merki), prjónið A.2, prjónið sléttprjón fram að kanti með gataumferð, prjónið A.2 yfir miðju 6-6-6-8-8-10-10 lykkjur í A.1, prjónið * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* alls 2-3-3-3-4-5-6 sinnum, 2 lykkjur slétt (= stroffprjón í hlið fyrir miðju undir handveg), prjónið A.2 yfir miðju lykkjur í A.1, prjónið sléttprjón fram að næsta kanti með gataumferð, prjónið A.2 yfir miðju lykkjur í A.1, prjónið * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* alls 2-3-3-3-4-5-6 sinnum, 2 lykkjur slétt. Haldið svona áfram. Þegar stroffprjónið undir hvorum handveg mælist 2 cm, prjónið sléttprjón yfir þessar lykkjur – aðrar lykkjur halda áfram í sléttprjóni og A.2 eins og áður. Þegar stykkið mælist 10 cm frá handvegi, fækkið um 2 lykkju í hvorri hlið – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 20 cm = 152-168-184-204-224-248-272 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 30-31-32-33-33-34-34 cm frá handvegi (stykkið mælist ca 41-43-45-47-48-49-51 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan). Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið stroffprjón (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 16-24-24-28-32-32-32 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 þannig: Prjónið A.3 yfir lykkjur í A.2, prjónið stroffprjón (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) yfir næstu 56-60-68-74-80-84-92 lykkjur og aukið jafnframt út 8-8-8-10-12-12-12 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, prjónið 2 lykkjur slétt, A.3, prjónið stroffprjón (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) yfir næstu 4-8-8-8-12-16-20 lykkjur jafnframt sem aukið er út um 0-4-4-4-4-4-4 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, prjónið 2 lykkjur slétt, A.3, prjónið stroffprjón (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) yfir næstu 56-60-68-74-80-84-92 lykkjur og aukið jafnframt út 8-8-8-10-12-12-12 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, prjónið 2 lykkjur slétt, A.3, prjónið stroffprjón (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) yfir næstu 4-8-8-8-12-16-20 lykkjur jafnframt sem aukið er út um 0-4-4-4-4-4-4 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, prjónið 2 lykkjur slétt. Þegar stroffið mælist 2-2-2-2-3-3-3 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. FRÁGANGUR: Saumið böndin á öxlum/hlýra yst í hvora hlið á bakstykki. Toppurinn mælist 43-45-47-49-51-52-54 cm frá uppfitjunarkanti fyrir miðju að framan og ca 48-50-52-54-56-58-60 cm frá öxl. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #daisykisstop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 19 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 267-30
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.