Melanie skrifaði:
Just to let you know , the corrected measurements don’t come out on the print out . It’s the old measurements !
27.04.2026 - 11:54DROPS Design svaraði:
Der Melanie, the correction applies only if you printed the pattern before the correction date, otherwise, the chart is matching the measurements as explained in the written pattern. Happy knitting!
27.04.2026 - 14:05
Tiny Traditions#dropstinytraditions |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónaðar buxur / sparibuxur og þverslaufa fyrir börn úr DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með norrænu mynstri og axlaböndum. Stærð 6 mánaða – 6 ára.
DROPS Children 50-23 |
||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR PRJÓN: Þegar prjónaðar eru stuttar umferðir myndast lítið gat þegar stykkinu er snúið við – hægt er að loka þessu gati með því að herða á þræði eða nota aðferðina German Short Rows þannig: Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið. Leggið síðan þráðinn yfir hægri prjón og herðið vel á þræði á bakhlið (þannig verða til tvær lykkjur á prjóninum). Þessar lykkjur eru prjónaðar saman í næstu umferð. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Aukið út 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, aukið er út hvoru megin við 2 lykkjur (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN MERKIÞRÆÐI (= uppslátturinn snýr til hægri): Færið uppsláttinn af vinstri prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, setjið uppsláttinn til baka yfir á vinstri prjón með því að stinga inn vinstri prjóni aftan í uppsláttinn (uppslátturinn er núna snúinn). Prjónið uppsláttinn slétt í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Á EFTIR MERKIÞRÆÐI (= uppslátturinn snýr til vinstri): Prjónið uppsláttinn slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn – svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR MÆLING: Öll mál eru gerð þegar stykkinu er haldið uppi, annars kemur flíkin til með að verða of löng þegar hún er mátuð. TVÖFALT PRJÓN: UMFERÐ 1 (= rétta): * Prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 1 lykkju slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): * Lyftið 1 lykkju af prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, lyftið 1 lykkju af prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið. Á EFTIR UMFERÐ 2: Prjónið UMFERÐ 1 og 2 að loka máli. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- BUXUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Buxurnar eru prjónaðar í hring, ofan frá og niður. Fyrst er prjónuð líning fyrir mittislinda og síðan mittislindi með mynstri, síðan eru buxurnar prjónaðar niður á við áður en stykkinu er skipt upp fyrir skálmar og hvor skálm er prjónuð fyrir sig. Skálmarnar eru prjónaðar með mynstri og líningu neðst á hvorri skálm. Axlaböndin eru prjónuð fram og til baka með tvöföldu prjóni og þau saumuð niður á buxurnar. Líningin í mittislinda er brotinn inn og saumuð við rönguna á buxunum. Í lokin er prjónuð þverslaufa. LÍNING (fyrir mittislinda): Fitjið upp 120-132-144-156-168 lykkjur á hringprjón 3 með litnum Svartur – það er mikilvægt að fitja ekki upp of fast. Prjónið sléttprjón hringinn. Munið að fylgja prjónfestunni. Þegar stykkið mælist 10 cm, prjónið 1 umferð brugðið (= uppábrot). MITTISLINDI: Prjónið A.1 (= 12 lykkjur) hringinn yfir allar lykkjur (= 10-11-12-13-14 mynstureiningar). Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, mælist mittislindinn ca 11 cm og stykkið mælist alls ca 21 cm frá uppfitjunarkanti (ásamt líningu). BUXUR: Skiptið yfir í litinn Svartur og prjónið 1 umferð slétt jafnframt sem aukið er út um 40 lykkjur jafnt yfir = 160-172-184-196-208 lykkjur. Setjið 1 merki í stykkið eftir 40-43-46-49-52 lykkjur (= miðja að framan), síðan er stykkið mælt héðan. Að auki eru settir 2 merkiþræðir í umferðina þannig: Teljið 40-43-46-49-52 lykkjur, setjið 1 merkiþráð í umferð (= miðja að framan), teljið 80-86-92-98-104 lykkjur, setjið 1 merkiþráð í umferð (= miðja að aftan) – þ.e.a.s. byrjun umferðar er í hliðinni. Til að flíkin passi betur er prjónað sléttprjón með stuttum umferðum fram og til baka yfir bakstykkið á buxunum, prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttprjón þar til 6-7-7-8-8 lykkjur hafa verið prjónaðar fram hjá merkiþræði við miðju að aftan, snúið stykkinu – lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 12-14-14-16-16 lykkjur brugðið, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 6-7-7-8-8 lykkjur fram hjá þar sem stykkinu var snúið við síðast, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 6-7-7-8-8 lykkjur fram hjá þar sem stykkinu var snúið við síðast, snúið stykkinu. Endurtakið síðan UMFERÐ 3 og 4. Prjónið slétt þar til stykkinu hefur verið snúið við alls 10 sinnum (= 5 sinnum í hvorri hlið og síðasta umferðin er prjónuð frá röngu). Í síðasta skipti sem umferð 4 er prjónuð, endið umferðina með því að snúa stykkinu við, prjónið síðan frá réttu að byrjun umferðar (= í hlið). Prjónið sléttprjón í hring yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist 14-18-20-21-25 cm frá merki við miðju að framan, aukið út 1 lykkju hvoru megin við merkiþræði – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 7 sinnum = 188-200-212-224-236 lykkjur. Eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 18-22-24-25-29 cm frá merki við miðju að framan. Fellið nú af 6 lykkjur við miðju að framan og við miðju að aftan þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan fyrsta merkiþræði, fellið af næstu 6 lykkjur, prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan næsta merkiþræði og setjið þessar 88-94-100-106-112 lykkjur á þráð fyrir skálm, fellið af næstu 6 lykkjur, nú byrjar umferðin á hægri skálm hér. Hvor fótur er prjónaður til loka fyrir sig, haldið áfram í hring eins og útskýrt er að neðan. SKÁLM: = 88-94-100-106-112 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í byrjun umferðar (= innan á skálm). Prjónið sléttprjón í hring. Þegar skálmin mælist 2 cm frá þar sem stykkinu var skipt, fækkið um 0-2-0-2-0 lykkjur jafnt yfir í umferð = 88-92-100-104-112 lykkjur. Þegar stykkið mælist 3-10-11-15-19 cm frá þar sem stykkinu var skipt – lesið LEIÐBEININGAR MÆLING, fækkið lykkjum í næstu umferð þannig: Prjónið * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman *, prjónið frá *-* yfir allar lykkjur = 66-69-75-78-84 lykkjur. Prjónið A.2 yfir allar lykkjur JAFNFRAMT sem fækkað er um 6-5-7-6-8 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 60-64-68-72-76 lykkjur. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka mælist skálmin ca 7-14-15-19-23 cm frá skiptingunni. LÍNING (neðst á skálm): Síðan er prjónuð líning með litnum Svartur. Prjónið 1 umferð brugðið (= uppábrot). Síðan er líningin prjónuð í sléttprjóni hringinn. Fellið af þegar líningin mælist 4 cm frá uppábroti. AXLABÖND: Notið litinn Svartur og fitjið upp 21 lykkju á sokkaprjóna 3. Prjónið 2 axlabönd í TVÖFALT PRJÓN – lesið leiðbeiningar að ofan. Prjónið þar til axlaböndin mælast 44-46-48-50-52 cm samtímis sem dregið er aðeins í axlaböndin á lengdina. Fellið af. Axlaböndin verða ca 4 cm á breidd. FRÁGANGUR: Brjótið líninguna efst í mittislinda inn að röngu og saumið niður í líninguna á buxum með litnum Svartur – saumið í fyrstu umferð sem var prjónuð í litnum Svartur eftir mittislinda og passið uppá að saumurinn verði ekki of stífur, saumið í aðra hverja lykkju. Ef líningin á mittislinda er of stutt eða of löng er hægt að jafna hana til áður en saumað er - líningin er 1 cm styttri en mittislindinn þannig að hún á ekki að rúllast út eftir frágang. Saumið líninguna á skálmum neðst á hvora skálm inn að röngu á stykki á sama hátt. Saumið 6 lykkjur sem felldar voru af á milli skálma að hvorri annarri. Saumið axlaböndin við mittislindann, hlið við hlið við miðju að aftan í skiptinguna á milli mittislinda og buxna – saumið e.t.v. saum bæði efst og neðst í líninguna til að festa axlaböndin betur. Saumið gagnstæðan enda á axlaböndum niður að framan með ca 8-8-9-10-10 cm á milli axlabanda við miðju að framan – mátið e.t.v. buxurnar og stillið axlaböndin eftir stærð. Buxurnar mælast ca 47-59-63-69-78 cm. ÞVERSLAUFA: Slaufan er prjónuð í hring í sléttprjóni með líningu. Fitjið upp 52 lykkjur með litnum Svartur á sokkaprjóna 3. Prjónið þannig: UMFERÐ 1-6: Prjónið slétt. UMFERÐ 7: Prjónið brugðið (= uppábrot). UMFERÐ 8-20: Prjónið A.2 1 sinni á hæðina – ekki snúa þráðunum saman á bakhlið á mynstri, þræðirnir felast á bakvið líninguna. UMFERÐ 21: Notið litinn Svartur og prjónið slétt. UMFERÐ 22: Prjónið brugðið (= uppábrot). UMFERÐ 23-28: Prjónið slétt. Fellið af með sléttum lykkjum. Saumið uppfitjunarkantinn við affellingarkantinn í ysta lykkjubogann á ystu lykkju – ekki sauma of fast. Þverslaufubandið hefur nú myndað hring, þegar bandið leggst flatt mælist það ca 10 cm á breidd og 4 cm á hæð. Prjónið annað band sem við frágang verður fyrir miðju á þverslaufunni þannig: Fitjið upp 9 lykkjur á sokkaprjóna 3 með DROPS Alpaca í litnum Svartur. Prjónið TVÖFALT PRJÓN fram og til baka þar til miðjubandið mælist 4 cm. Fellið af. Saumið uppfitjunarkantinn við affellingarkantinn á miðjubandinu sem hring utan um þverslaufubandið – passið uppá að saumurinn bæði á miðjubandinu og þverslaufubandinu liggi fyrir miðju að aftan og saumið nokkur spor þannig að þverslaufubandið dragist ekki út frá miðjubandinu. Klippið teygju í óskaðri lengd, þræðið teygjunni inn í gegnum tvöfalda prjónaða miðjubandið og hnýtið endana saman. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #dropstinytraditions eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 20 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 50-23
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.