Spell of Summer Sweater#spellofsummersweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Bomull-Lin. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í klukkuprjóni og i-cord. Stærð XS - XXXL.
DROPS 268-18 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR PRJÓN: Þegar lykkjurnar eru taldar þá er uppslátturinn ekki talinn sem ein lykkja. Frá réttu byrjar umferðin alltaf með 1 lykkju í garðaprjóni með tilheyrandi 1 lykkju í klukkuprjóni. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út um 2 lykkjur í slétta klukkuprjónslykkju (= slétt lykkja og uppsláttur) með því að prjóna 3 lykkjur í sömu lykkju þannig: Prjónið lykkjuna og uppsláttinn slétt saman, en bíðið með að lyfta lykkjunni og uppslættinum af vinstri prjóni, sláið 1 sinni uppá hægri prjón og prjónið sömu lykkju og uppsláttinn slétt saman einu sinni til viðbótar (= 2 lykkjur fleiri). Prjónið nýjar lykkjur í klukkuprjóni, en takið vel eftir að útauknar lykkjur eru ekki með uppslætti í næstu umferð og eru því prjónaðar stakar í fyrsta skipti sem þær eru prjónaðar. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um ermar): Úrtakan er gerð í umferð þar sem uppsláttur og sléttar lykkjur eru prjónaðar slétt saman. Fækkið um 2 lykkjur hvoru megin við lykkju með merki þannig: FÆKKIÐ UM 2 LYKKJUR Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið að fyrstu sléttu klukkuprjónslykkjunni á eftir lykkju með merki í: Lyftið fyrstu sléttu lykkjunni og uppslættinum yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið næstu 2 lykkjur slétt saman (þ.e.a.s. 1 lykkja brugðið + slétt lykkja og uppsláttur), steypið síðan lyftu lykkjunni og uppslættinum yfir lykkjurnar sem voru prjónaðar saman (= 2 lykkjur færri). FÆKKIÐ UM 2 LYKKJUR Í LOK UMFERÐAR: Prjónið að næst síðustu sléttu klukkuprjónslykkjunni á undan lykkju með merki í: Lyftið fyrstu sléttu lykkjunni og uppslættinum yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni og uppslættinum yfir brugðnu lykkjuna, lyftið til baka lykkjunni yfir á vinstri prjón, steypið lykkjunni og uppslættinum sem er næst brugðnu lykkjunni með merki yfir lykkjuna sem var lyft til baka yfir á vinstri prjón, í lokin er lykkjunni sem eftir er yfir á hægri prjón (= 2 lykkjur færri). I-CORD AFFELLING: Eftir að allar lykkjur hafa verið prjónaðar upp í kringum hálsmál, byrjar affelling þannig: BYRJUN (= rétta): Fitjið upp 3 nýjar lykkjur á hægri prjón frá réttu. Lyftið 3 nýju lykkjum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón þannig að þráðurinn sem prjónað er með sitji 3 lykkjum inn á vinstri prjóni (þegar prjónað er þá herðir þráðurinn sem prjónað er með á stykkinu, þannig að það myndast snúruprjón). UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið næstu 2 lykkjur snúnar slétt saman. Lyftið til baka 3 lykkjunum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón. Ekki snúa stykkinu. Endurtakið UMFERÐ 1 þar til 3 lykkjur eru eftir. Lyftið til baka 3 lykkjum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón. Fellið af. Saumið lítið spor sem bindur saman byrjun og lok á i-cord. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Bakstykkið og framstykkið er prjónað fram og til baka ofan frá og niður á hringprjóna hvort fyrir sig niður að handveg. Síðan eru stykkin sett saman og fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við. Lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermar í kringum handveg og ermarnar eru prjónaðar niður á við. Fyrst er prjónað fram og til baka fyrir ermarkúpu, síðan eru ermarnar prjónaðar niður á við. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og fellt er af með i-cord. HÆGRA BAKSTYKKI: Fitjið upp 25-27-27-29-31-33-35 lykkjur á hringprjón 5 með DROPS Bomull-Lin. Lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN og prjónið fram og til baka í klukkuprjóni þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 1 lykkju í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, * prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, endið með 1 lykkju slétt og prjónið 1 lykkju í garðaprjóni. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 1 lykkju í garðaprjón, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, endið með 1 uppslætti, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju í garðaprjóni. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, * prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 uppsláttur er eftir og 2 lykkjur, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, prjónið 1 lykkju í garðaprjóni. Á EFTIR UMFERÐ 3: Endurtakið síðan umferð 2 og 3 þar til prjónaðar hafa verið alls 8 umferðir – þ.e.a.s. síðasta umferðin er prjónuð frá röngu og stykkið mælist ca 2 cm. Klippið þráðinn, setjið lykkjurnar á þráð eða á hjálparprjón og prjónið vinstra bakstykki eins og útskýrt er að neðan. VINSTRA BAKSTYKKI: Fitjið upp 25-27-27-29-31-33-35 lykkjur á hringprjón 5. Prjónið á sama hátt og hægri öxl bakstykki (= 8 umferðir prjónaðar) – síðasta umferðin er prjónuð frá röngu. Ekki klippa þráðinn, í næstu umferð er prjónað yfir báðar axlirnar samtímis sem lykkjur eru fitjaðar upp fyrir hálsmáli eins og útskýrt er að neðan. BAKSTYKKI: Prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið 25-27-27-29-31-33-35 lykkjur á vinstra bakstykki eins og áður, fitjið upp 21-21-23-23-23-25-25 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli, prjónið 25-27-27-29-31-33-35 lykkjur frá hægra bakstykki eins og áður = 71-75-77-81-85-91-95 lykkjur. Prjónið síðan klukkuprjón fram og til baka yfir allar lykkjur með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Frá réttu byrjar umferðin alltaf með 1 lykkju í garðaprjóni með tilheyrandi 1 sléttri klukkuprjónslykkju - en takið vel eftir að nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp fyrir hálsmáli eru ekki með uppslætti í fyrstu umferð og eru því prjónaðar stakar í fyrstu umferð. Prjónið þar til stykkið mælist 19-20-21-22-23-24-25 cm frá uppfitjunarkanti – síðasta umferðin er prjónuð frá röngu. Klippið þráðinn, setjið lykkjurnar á þráð eða á hjálparprjón og prjónið framstykkin eins og útskýrt er að neðan. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 25-27-27-29-31-33-35 lykkjur á hringprjón 5. Munið eftir LEIÐBEININGAR PRJÓN og prjónið fram og til baka í klukkuprjóni þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, * prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, endið með 1 lykkju slétt og prjónið 1 lykkju í garðaprjóni. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, endið með 1 uppslætti, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju í garðaprjóni. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, * prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 uppsláttur er eftir og 2 lykkjur, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, prjónið 1 lykkju í garðaprjóni. Á EFTIR UMFERÐ 3: Endurtakið síðan UMFERÐ 2 og 3 þar til prjónaðar hafa verið alls 10-10-14-10-12-16-16 umferðir – þ.e.a.s. síðasta umferðin er prjónuð frá röngu. Nú á að auka út fyrir hálsmáli í 2. sléttu klukkuprjónslykkju séð frá réttu – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING og aukið út frá réttu þannig: Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, prjónið 2 klukkuprjónslykkjur eins og áður, aukið út 2 lykkjur í næstu lykkju, prjónið út umferðina eins og áður (= 2 lykkjur fleiri). Í stærð XS - S - M er útaukningu lokið. Í stærðum L - XL - XXL – XXXL eru prjónaðar 7 umferðir í klukkuprjóni eins og áður, áður en aukið er út 1 sinni til viðbótar á sama hátt og útskýrt var að ofan = 27-29-29-33-35-37-39 lykkjur. Á eftir síðustu útaukningu eru prjónaðar 3 umferðir eins og áður – þ.e.a.s. síðasta umferðin er prjónuð frá röngu, stykkið mælist ca 4-4-5-6-7-8-8 cm. Klippið þráðinn, setjið lykkjurnar á þráð eða á hjálparprjón og prjóni hægra framstykki eins og útskýrt er að neðan. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 25-27-27-29-31-33-35 lykkjur á hringprjón 5. Munið eftir LEIÐBEININGAR PRJÓN og prjónið fram og til baka í klukkuprjóni þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, * prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, endið með 1 lykkju slétt og prjónið 1 lykkju í garðaprjóni. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, endið með 1 uppslætti, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju í garðaprjóni. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, * prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 uppsláttur er eftir og 2 lykkjur, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, prjónið 1 lykkju í garðaprjóni. Á EFTIR UMFERÐ 3: Endurtakið síðan UMFERÐ 2 og 3 þar til prjónaðar hafa verið alls 10-10-14-10-12-16-16 umferðir – þ.e.a.s. síðasta umferðin er prjónuð frá röngu. Nú á að auka út fyrir hálsmáli í næst síðustu sléttu klukkuprjónslykkju séð frá réttu – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING og aukið út frá réttu þannig: Prjónið eins og áður þar til 4 lykkjur eru eftir (þ.e.a.s. 3 klukkuprjónslykkjur og 1 lykkja í garðaprjóni), aukið út 2 lykkjur í næstu lykkju, prjónið út umferðina eins og áður (= 2 lykkjur fleiri). Í stærð XS - S - M er útaukningu lokið. Í stærðum L - XL - XXL – XXXL eru prjónaðar 7 umferðir í klukkuprjóni eins og áður, áður en aukið er út 1 sinni til viðbótar á sama hátt og útskýrt var að ofan = 27-29-29-33-35-37-39 lykkjur. Á eftir síðustu útaukningu eru prjónaðar 3 umferðir eins og áður – þ.e.a.s. síðasta umferðin er prjónuð frá röngu, stykkið mælist ca 4-4-5-6-7-8-8 cm. Ekki klippa þráðinn, í næstu umferð er prjónað yfir báðar axlirnar samtímis sem lykkjur eru fitjaðar upp fyrir hálsmáli eins og útskýrt er að neðan. FRAMSTYKKI: Prjónið næstu umferð þannig: Prjónið 27-29-29-33-35-37-39 lykkjur frá hægra framstykki frá réttu eins og áður, fitjið upp 17-17-19-15-15-17-17 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli, prjónið 27-29-29-33-35-37-39 lykkjur frá vinstra framstykki frá réttu eins og áður = 71-75-77-81-85-91-95 lykkjur. Prjónið síðan klukkuprjón yfir allar lykkjur með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Prjónið þar til stykkið mælist 19-20-21-22-23-24-25 cm frá uppfitjunarkanti – síðasta umferðin er frá röngu. Ekki klippa þráðinn, í næstu umferð frá réttu eru framstykkin og bakstykkið sameinað fyrir fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið eins og áður yfir 71-75-77-81-85-91-95 lykkjur frá framstykki, fitjið upp 1-1-3-5-7-11-15 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið eins og áður yfir 71-75-77-81-85-91-95 lykkjur frá bakstykki, fitjið upp 1-1-3-5-7-11-15 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) = 144-152-160-172-184-204-220 lykkjur. Prjónið síðan klukkuprjón hringinn yfir allar lykkjur eins og áður þannig: UMFERÐ 1: Prjónið fyrst yfir framstykkið þannig: Prjónið 1 lykkju brugðið, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna brugðið saman *, prjónið frá *-* út umferðina – nýjar lykkjur undir hvorri ermi eru prjónaðar inn í mynstur - en takið vel eftir að nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp í hlið undir hvorri ermi eru ekki með uppslætti og eru því prjónaðar stakar í fyrstu umferð. UMFERÐ 2: * Sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjunni slétt saman *, prjónið frá *-* út umferðina. UMFERÐ 2: * Prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* út umferðina. Á EFTIR UMFERÐ 3: Endurtakið UMFERÐ 2 og 3. Prjónið hringinn þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62-64 cm frá öxl. Fellið af með sléttum lykkjum – til að affellingarkanturinn verði ekki of stífur er hægt að fella uppsláttinn af eins og venjuleg lykkja. FRÁGANGUR-1: Saumið axlasaumana. ERMAR: Prjónið upp 53-55-57-61-63-67-69 lykkjur með hringprjón 5 innan við lykkju í garðaprjóni meðfram framstykki og bakstykki – ATH: Lykkjur eru ekki prjónaðar upp í lykkjurnar sem fitjaðar voru upp í hvorri hlið undir ermi, klaufin undir ermakúpunni er síðar saumuð við lykkjur á fram- og bakstykki sem fitjaðar voru upp undir ermum. Fyrst er prjónuð ermakúpa fram og til baka í klukkuprjóni þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, endið með 1 uppslætti, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju í garðaprjóni. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, * prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, endið með að prjóna uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman og prjónið 1 lykkju í garðaprjóni. UMFERÐ 3 (= ranga): Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, endið með að slá 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju í garðaprjóni. UMFERÐ 4 (= rétta): Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, * prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, prjónið 1 lykkju í garðaprjóni. Prjónið UMFERÐ 3 og 4 alls 1-1-2-3-4-6-9 sinnum (þ.e.a.s. prjónaðar hafa verið alls 4-4-6-8-10-14-20 umferðir). Nú hefur ermakúpan verið prjónuð til loka. Í lok síðustu umferðar (= frá réttu), er fitjuð upp 1 ný lykkja í umferð (= síðasta lykkjan í umferð) = 54-56-58-62-64-68-70 lykkjur. Setjið 1 merki í nýju lykkjuna sem fitjuð var upp í lok umferðar. Síðan er prjónað klukkuprjón hringinn frá réttu yfir allar lykkjur þannig: UMFERÐ 1: Prjónið 1 lykkju brugðið, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna brugðið saman *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið. UMFERÐ 2: * Sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman *, prjónið frá *-* út umferðina. UMFERÐ 3: * Prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* út umferðina. Á EFTIR UMFERÐ 3: Endurtakið síðan UMFERÐ 2 og 3. Þegar stykkið mælist 5-5-5-5-6-6-7 cm frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp fækkið um 2 lykkjur hvoru megin við lykkju með merki (= 4 lykkjur færri) – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA = 50-52-54-58-60-64-66 lykkjur. Haldið áfram að prjóna klukkuprjón hringinn þar til ermin mælist 49-49-49-49-48-47-47 cm frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Fellið af með sléttum lykkjum – til að affellingarkanturinn verði ekki of stífur er hægt að fella uppsláttinn af eins og venjuleg lykkja. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið hringprjón 5, prjónið upp lykkjur í kringum hálsmál frá réttu þannig: Byrjið við annan axlasauminn og prjónið upp ca 58-58-62-64-66-74-74 lykkjur. Fellið af með I-CORD AFFELLING – lesið leiðbeiningar að ofan. FRÁGANGUR-2: Saumið klauf undir ermum við lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi á fram- og bakstykki. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #spellofsummersweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 20 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 268-18
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.